Morgunblaðið - 22.06.1980, Page 2

Morgunblaðið - 22.06.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980 íslenska álfélagið seldi fyrir tæplega 34 milljarða sl. ár Hagnaðurinn rúmur milljarður SÝNINGU Félaxs íslenzkra myndlistarmanna ok Listahátíðar á verkum Sigurjóns ólafssonar myndhöggvara í FÍM-salnum við Laugarnesveg lýkur í kvöld. Listaverk Sigurjóns hafa einnig verið til sýnis fyrir utan heimili hans og vinnustofu á Laugarnestanga og þar er þessi mynd tekin. Sverrir Hermannsson um ákvörðun þingfararkaupsnefndar: Bókunin tekur gildi, þeg- ar Alþingi kemur saman í ÁRSSKÝRSLU íslenska álfé- lagsins, sem nýlega er komin út, kemur fram að á sl. ári hafi verið mikil eftirspurn eftir framleiðslu Álversins og verðþróunin verið hagstæð. Heildarsalan nam tæp- um 34 milljörðum íslenskra króna, framleiðslan varð 71.000 tonn og af henni voru seld 68.900 tonn. Skipað var út á árinu „Haugafyllerí við heita læk- inn“ — Tveir á slysadeild TVEIR menn voru fluttir á Slysa- deild Borgarspítalans í gærmorg- un vegna meiðsla, sem þeim hlutu við heita lækinn í Nauthólsvik. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni var mikil ölvun við lækinn í fyrrinótt og þá einkum á tímabilinu frá klukkan 6 til 8 en þarna var þá um 50 manna hópur. „Það var haugafyllerí á fólkinu og þessir tveir ultu hreinlega um sjálfa sig niður í fjöru. Annar fékk það slæmt höfuðhögg að hann var meðvitund- arlaus um tíma,“ sagði varðstjór- inn. EINS og fram kom í Morgun- blaðinu í gær, hefur utankjör- staðakosning í Miðbæjarskólan- um í Reykjavík verið verulega minni nú vegna forsetakosn- inganna heldur en við þa-r al- þingiskosningar, sem fram hafa farið á svipuðum árstíma síð- ustu ár. „Ég vil endilega nota tækifærið til að hvetja það fólk, sem veit að það verður ekki heima á kjördag til að kjósa sem fyrst, því síðustu 76.700 tonnum og fór 71,2% til EBE landa, 23,5% til Efta landa og 5,3% til annarra landa. Þá kemur fram í ársskýrslunni að hagnaður hafi verið 1,9 millj- arðar á sl. ári, en rúmir 1,2 milljarðar eftir að opinber gjöld höfðu verið greidd. A árinu 1978 nam salan 23 milljörðum króna og skilaði Álverið þá 125 milljón króna hagnaði eftir að dregnar höfðu verið frá rúmar 400 milljón- ir í opinber gjöld. Á síðasta ársfjórðungi 1979 varð að draga nokkuð úr orkusölu til Áiversins vegna óhagstæðs veð- urfars á landinu og nam minnkun: in 6,2% þennan ársfjórðung. í árslok 1979 voru starfsmenn Isal 670 þar af 118 skrifstofustarfs- menn og stjórn, 490 aðrir starfs- menn, 8 nemar og 54 í tímabundnu starfi hjá ísal. Stjórn íslenska álfélagsins skipa Halldór H. Jónsson formaður, dr. Paul H. Muller varaformaður, Wolgang Capitaine, Gunnar J. Friðriksson, Sigurður Halldórsson, Ingi R. Helgason og Þorsteinn Ólafsson og komu þeir tveir síðastnefndu í stað Héðins Finnbogasonar og Stefáns Jónssonar sem gengur úr stjórn á aðalfundi 1979. Forstjóri Álversins er Ragnar S. Halldórs- son. daga getur fólk þurft að bíða lengi eftir að komast að hér,“ sagði Jónas og bætti því við að í undanförnum kosningum hefði ekki verið óalgengt að fólk hefði orðið að bíða í eina klukkustund eftir að geta kosið síðustu 3 til 4 dagana fyrir kjördag. Utankjörstaðakosningin í Mið- bæjarskólanum er opin alla daga milli klukkan 10 og 12,14 og 18 og 20 og 22 nema á sunnudögum en þá er aðeins opið milli klukkan 14 og 18. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Sverri Hermannssyni, forseta neðri deildar Alþingis og vara- formanni þingfararkaupsnefnd- ar: „Það er að bera í bakkafullan lækinn að itreka enn einu sinni. að þingfararkaupsnefnd hefur ekki með að gera að ákveða þingmönnum bein laun. Um það gilda lög, sem segja við hvað launin skuli miðuð. í febrúar síðastliðnum kemur í ljós, að allur viðmiðunarlauna- flokkur ríkisstarfsmanna um laun þingmanna, hefur breytzt og hækkað um 20 til 50% fyrir hvorki meira né minna en 6 árum! Að kalla launahækkunina yfirvinnu- greiðslur er ekkert annað en nýtt nafn á launaskriði, sem ríkis- stjórn hafði sjálf forystu um á sínum tíma. Þegar þingfararkaupsnefnd- armenn fengu þessar upplýsingar, og kröfu frá þingmönnum úr öllum flokkum um að farið yrði að lögum og þetta leiðrétt, fóru þeir í smiðju til Guðmundar Karls Jónssonar, forstöðumanns launa- deildar fjármálaráðuneytisins og fengu staðfestingu hans. Sá, sem sker úr um túlkun laganna um þingfararkaup, er skrifstofustjóri Alþingis, Friðjón Sigurðsson, en ekki forsætisráð- herra á hverjum tíma. Að fengn- um fyrrgreindum upplýsingum, var skrifstofustjóri ekki í vafa um réttmæti kröfu þingmanna. Fyrir Samþykkt þingfarar- kaupsnefndar HÉR FER á eftir orðrétt samþykkt þingfararkaups- nefndarmanna sl. fimmtudag um launamá) þingmanna: „Undirritaður þingfarar- kaupsnefndarmaður samþykkir tilmæli þingforseta um að fresta framkvæmd bókunar þingfararkaupsnefndar frá 20. maí sl. til næsta reglulegs alþingis." Þessi samþykkt er gerð skv. tillögu Sverris Her- mannssonar og samþykktu hana allir nefndarmenn í þing- fararkaupsnefnd nema Stefán Valgeirsson, sem hefur ekki tekið formlega afstöðu til hennar. því var margrædd bókun þingfar- arkaupsnefndar gerð. Áuðvitað var hún á óheppilegum tíma, einneginn vegna fáránlegra kaup- tilboða fjármálaráðherra til handa hinum lægri launuðu í röðum ríkisstarfsmanna. En hin óheppilega tímasetning breytir ekki lögum. Ég vek athygli á, að þingfarar- kaupsnefnd hefir ekki breytt stafkrók í bókun sinni, enda telur nefndin að hún hafi farið að lögum, þótt nú reynist þau óheppi- leg í framkvæmd, og forsetar Alþingis voru sammála um, að nefndin hefði farið að réttum lögum. Þingfararkaupsnefnd hef- ur aðeins frestað framkvæmd bók- unarinnar, þar til reglulegt Al- þingi kemur saman. Þá tekur hún gildi. Auðvitað getur Alþingi sjálft breytt lögum, en enginn annar, nema ríkisstjórn með bráðabirgðalögum, sem Alþingi síðan samþykkir eða hafnar. Kröfur ríkisstjórnarinnar og formanna þingflokka Alþýðu- bandalagsins og Framsóknar- flokksins um að bókun þingfarar- kaupsnefndar yrði úr gildi felld var hafnað, þar sem farið hafði verið að réttum Iögum. Þetta er mergurinn málsins." Utankjörstaðarkosning í Rvík: Fólk getur þurft að bíða í klukkustund síðustu 3 til 4 dagana Óðal feðr- anna frum- sýnd í gær ÓÐAL feðranna. ný íslenzk kvik- mynd var frumsýnd í Háskólabíói i gær að viðstöddu fjölmenni. Myndin er 95 mínútna löng, tekin i lit og á 35 mm filmu. Framleið- endur eru Hrafn Gunnlaugsson, Snorri Þórisson og Jón Þór Hann- esson, en þeir eiga fyrirtækið íslenzka leikritamiðstöðin. Óðal feðranna var tekin á sl. ári í Borgarfirði, Keflavík, Reykjavík og Hafnarfirði. Alls eru um 30 leikar- ar í myndinni, sem fjallar um baráttu ungs manns sem ætlar sér ákveðna hluti, en ekki fer allt sem ætlað er. Myndin verður sýnd í Háskóla- bíói og Laugarásbíói samtímis, en á næstunni verða send eintök út á land og þá fyrst í Borgarnes og Keflavík. 15 tonna álbátur smíð- aður í Hveragerði NÝSTOFNAÐ fyrirtæki, Álbátar hf. í Hveragerði hefur nú hafið smíði á 15 tonna fiskibát úr áli, sem mun vera alger nýjung hér á landi. Frumdrög að gerð bátsins hafði Sigurður Karlsson í Ilveragerði og hefur hönnun og smiði hans tekið um tvö ár. Lagði hann þessa hugmynd sína fyrir nokkra aðilja, sem standa að fyrirtækjunum Sveinn Egilsson hf. og Þ. Jónsson & Co og þróaðist það í þann farveg að stofnað var fyrirtækið Álhátar hf. í samtali við Mbl. sögðu Sigurð- ur Karlsson og Þórir Jónsson stjórnarmenn fyrirtækisins að kostir bátsins væru margir um fram báta af sama stærðarflokki sem smíðaðir eru úr stáli og eik. Álið gerir bátinn um 60% léttari og verður hann fyrir vikið mun rúmbetri, vinnuaðstaða verður betri og vistarverur mjög rúmgóð- ar. Léttleiki álsins sparar svo mikinn vélarkraft og þar með eldsneyti. Álið þarf lítið sem ekk- ert viðhald, enda varið gegn allri tæringu sjávar og lofts. Eins og áður sagði er báturinn 15 tonn. Hann er 11 metra langur og ber um 15 tonn af fiski í lest sem hönnuð er fyrir fiskikassa. Hægt verður að nota margar gerðir veiðarfæra, allt frá fiski- rúllum til fiskineta. Báturinn verð- ur knúinn 150 hestafla Fordvél frá Sveini Egilssyni og með Borg- Warner gír. Fullgerður mun bátur- inn kosta um 100 milljónir. Vél- smiðja Ævars Axelssonar í Hvera- gerði smíðaði bátinn. Til gamans má geta þess að fyrsti sjómaðurinn sem skoðaði bátinn keypti hann á staðnum, svo við hljótum að vera bjartsýnir með framtíðina, sögðu þeir Þórir og Sigurður að lokum. Þeir Ævar Axelsson og Sigurður Karlsson á þilfari álbátsins, en hann verður til sýnis að Austurmörk i Hveragerði næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.