Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1980
Býður
nokkur betur?
i" Málning — Hraunmálning — Þakmálning —
Fúavarnarefni — allar málningavörur.
—Afsláttur-
Kaupir þú fyrir 30—50 þúsund veitum viö 10% afslátt
- I Kaupir þú umfram 50 þúsund veitum við 15% afslátt
Veggfóður — veggdúkar 51 cm breiður ,
—Afsláttur--------------------
Kauþir þú 3—5 rúllur veitum viö 10% afslátt
Kaupir þú umfram 5 rúllur veitum viö 15% afslátt
Sannkallað Litaverskjörverð
Ertu aö byggja, viltu breyta, þarftu aö bæta
Líttu við í Litaver, því þaö hefur ávallt borgað sig
Grensasvegi, Hreyfilshusinu Sími 82444.
Guðlaugur og Kristín verða á fundi að
Hvoli Hvolsvelli
þriðjudaginn 24. júní kl. 21.00.
Fundarstjóri: Séra Hannes Guömundsson.
Ávörp:
Albert Jóhannsson.
Anna Margrét Jakobsdóttir.
Fannar Jónasson.
Magnús Finnbogason.
Matthías Pétursson.
Sveinn Runólfsson.
Ljóðalestur:
Guörún Jónsdóttir og
Guöný Pálsdóttir.
Einsöngur:
Rut L. Magnússon.
Píanóleikur:
Jónas Ingimundarson.
Almennur söngur við undirleik Önnu Magnúsdóttur.
Húsiö opnað kl. 20.30.
Jónas Ingimundarson leikur létt lög á píanó.
Stuðningsmenn.
Bátar, sól og vor í Reykjavikurhöfn.
I.jósmynd II.S.
Kergja og hugur þungur
Nú fyrir stuttu hélt Snar-
fari, félag sportbátaeigenda
sinn fimmta aöalfund í húsi
Slysavarnafélagsins á
Grandagarði. Formaður fé-
lagsins skýrði fundargestum
m.a. frá, að þrátt fyrir marg-
endurteknar áskoranir og
beiðni smábátaeigenda,
þráuðust borgaryfirvöld enn
við að veita fé i þá smábáta-
höfn, sem samþykkt var
1978 af þáverandi borgar-
stjórn Reykjavíkur, að
byggð yrði. óneitanlega fer
þetta að verða torskilin
tregða. Hvers virði eru sam-
þykktir ef þær eru virtar að
vettugi af sjálfum borgar-
fulltrúum Reykjavíkurborg-
ar ár eftir ár. Ekki er
undarlegt þótt brúnir smá-
bátaeigenda séu þungar. þá
er þessi mál bera á góma
innan raða þeirra og það
ófremdarástand, sem þeir
hafa átt við að stríða á
undanförnum árum og farið
hefur hríðversnandi eftir því
sem smábátum hefur fjölgað,
en þeir skipta nú hundruð-
um í Reykjavík án hafnar-
aðstöðu. Enn endurtók sig
sama sagan fyrir stuttu er
vindhæð náði 10 vindstigum
hér í Reykjavík. að smábátar
Snarfaramanna slitnuðu frá
bólfærum í Elliðavogi þar
sem þeim er lagt út á opinn
voginn. Rak þá upp í grýtta
fjöru, en Snarfaramenn
stóðu í sjólöðri og tóku á
móti bátunum jafn óðum og
þá rak að landi og björguðu
því, sem bjargað varð. Enn
urðu bátaeigendur fyrir
milljóna tjóni. Er nokkur
furða þótt í þeim sé kergja
og hugur þungur.
Nýr formaður
Snarfara
Á aðalfundi Snarfara fé-
lags sportbátaeigenda sem
haldinn var 17. maí síðastlið-
inn baðst formaður félagsins
Hafsteinn Sveinsson mjög
eindregið undan endurkjöri,
en hann hefur verið formaður
þess frá því að það var
stofnað 1975. Enn fremur
baðst varaformaðurinn Hörð-
ur Guðmundsson undan
endurkjöri hann hefur verið
varaformaður frá upphafi
þessa félagsskapar. Þriðji
maðurinn Oskar Magnússon
gekk einnig úr stjórninni þar
sem hann er fluttur út á land.
Kjörnir voru eftirtaldir menn
í þeirra stað, formaður Oddur
Guðmundsson, Örlygur Hálf-
dánarson sem er varaformað-
ur og Jón Hjörleifsson ritari,
áfram sitja í stjórninni þeir
Einar Sigurbergsson gjald-
keri og Einar Nikulásson
meðstjórnandi. Á þessum
fundi flutti Hafsteinn
Sveinsson fráfarandi formað-
ur ítarlega ársskýrslu og
sagði meðal annars, þótt mik-
il vinna hafi verið lögð í að ná
fram hafnarsamþykktinni á
sínum tíma, fer það víðsfjarri
að það sé eina vinnan sem
stjórn Snarfara og aðrir
Snarfarafélagar hafa lagt að
mörkum til handa þessum
félagsskap.
Sstar
Umsjón HAFSTEINN
SVEINSSON
Það væri of langt mál að
telja það allt upp hér, þó
freistast ég til að drepa á
nokkrum atriðum þar sem ég
nú hverf frá félaginu sem
formaður þess. Vorið 1976
hófust Snarfaramenn handa
um að koma sér upp sjósetn-
ingaraðstöðu í Elliðavogi með
því að ýta niður jarðvegi,
keyra í möl og steypa síðan
sjósetningarbraut, hlaða
bryggjuhaus, byggja flot-
bryggju frá grunni, og koma-
henni fyrir út af bryggju-
hausnum, ennfremur koma
fyrir skýli á sjávarkambinum
og slá upp svölum umhverfis
það, koma fyrir fánastöng,
gróðursetja blóm á svæðinu
og raflýsa það. Þaðan vorum
við svo hraktir burt, og urð-
um að byrja upp á nýtt á
öðrum stað í Elliðavogi eins
og flestum félagsmönnum er
kunnugt. Margar skipulagðar
hópsiglingar hafa félagsmenn
farið. Fjölskyldu sumarhátíð
haldin í Viðey. Hópsigling í
Breiðafjarðareyjar. Sjóveiði-
keppnir í Faxaflóa. Kappsigl-
ingar umhverfis landið tvö ár
í röð. Gefið út bátablað sem
\
Nýkjörinn formaður Snarfara
Oddur Guðmundsson.
ber nafnið Sjósport. Á annað
hundrað manns hafa farið á
vegum Snarfara í Stýri-
mannaskólann og lokið þaðan
30 tonna prófi. Kennt hjálp í
viðlögum. Kvikmyndasýn-
ingar á fundum félagsins svo
og kynntar talstöðvar og
dýptarmælar. Yfirgripsmikil
bátasýning 1979 sú fyrsta
sinnar tegundar hérlendis.
Safnað skýrslum erlendis frá,
er varða rannsóknir á áhrif-
um utanborðsvéla á lífríki í
ám, vogum og vötnum, sem
við notfærðum okkur svo í
baráttunni fyrir hafnarsam-
þykktinni á sínum tíma, sem
okkur tókst að fá samþykkta
1978, sú samþykkt hljóðar
upp á meira en bara hafnar-
byggingu. í skipulagstillög-
unni sem samþykkt var, er
gert ráð fyrir að auk hafnar-
innar sem á að rúma 200 báta
verði flotbryggjur, bátag-
eymsla fyrir 100 báta með
rafknúnum krana, (hlaupa
köttur), sem ná á út í höfnina
svo hægt verði að hífa bátana
beint úr sjó, og koma þeim
fyrir hverjum fyrir sig í sinn
rekka í bátageymslunni að
auki er gert ráð fyrir klúbb-
húsi og viðgerðarstofu.
Eldsneytistanki, malbikuðu
bílastæði, skjólgarði með
trjágróðri svo og bátsýn-
ingarsvæði og knattvelli. Állt
þetta er innifalið í skipulags-
tillögunni sem samþykkt var
1978. Langt er frá að allt sé
upptalið sem starfað hefur
verið innan þessa félags frá
stofnun þess. En ég læt hér
staðar numið. í fundarlok
þökkuðu fráfarandi formaður
og varaformaður Snarfara-
mönnum ánægjulegt sam-
starf á liðnum árum og
óskuðu þessum mjög svo
nauðsynlega félagsskap allra
heilla á komandi árum svo og
hinum nýkjörna formanni og
meðstjórnendum hans.
Sjórall 1980
Miðvikudaginn 11. júní síð-
astliðinn rann út frestur til
að tilkynna þátttöku í vænt-
anlegu sjóralli umhverfis
landið, sem hefst laugardag-
inn 5. júlí næstkomandi. Ca^’
10 bátar eru nú komnir á
blað. Gert er ráð fyrir að
keppninni ljúki sunnudags-
kvöldið 13. júlí og að þá hafi
allir keppendur lokið hringn-
um umhverfis landið. Trún-
aðarmenn keppnisstjórnar
skoða bátana 23. júní til að
kanna hvort allt sé í lagi um
borð og tryggja að öllum
öryggisreglum sé fylgt, sem
eru margar.