Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 20

Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980 „Þaö hefur veriö skemmtilegt og þroskandi aö fá tækifæri til þess aö taka þátt í koáhingabaráttunni. Þetta er lífsreynsla sem maður getur metiö eins og hvaö annaö burtséö frá úrslitum. Það hefur alltaf veriö svolítill ævintýramaður í mér og mér líkar vel aö ferðast um landið og kynnast dugmiklu fólki lands okkar. Þaö er spennandi að keppa um þaö aö veröa sameiningartákn þjóöarinnar því umfram allt veröum viö aö standa saman þegar á reynir, standa saman um sjálfstæöi okkar, menningu og framtíö," sagöi Guölaugur Þorvalds- son í upphafi samtals okkar þegar óg spuröi hann um þá nýju reynslu aö taka þátt í kosningaferðalögum, en þau hjón, Guðlaugur og Kristín Kristinsdóttir, voru þá nýlent í Reykjavík eftir kosningaferö- alag um Austurland. Þótt Kristín og Guölaugur séu komín af táningsaldrinum eins og sagt er þá hafa þau fas ungs fólks, eru kvik og opinská og þótt Guólaugur hafi um langt árabil unniö embættisstörf sem krefjast mikillar alvöru þá á hann auóvelt meö aó bregöa á leik og gantast á sígildan hátt. Ég spurói hann hvernig hann hefói farið að því aó halda þessum tón þrátt fyrir störf í þágu kerfisins sem býður upp á flest annað en skemmtilegheit. „Að verjast leiða kerfisins“ „Ég held,“ svaraði hann, „að það hafi hjálpað mér mjög í þessum efnum, félagsskapur- inn í badmintonhópnum sem ég er í. Þar eru góðir félagar. Einnig höfum við hjónin gam- an af að bregða á leik, ferðast, og við eigum stóran vinahóp sem tekur sig stundum til og fer út að dansa eða eitthvað annað til þess að fylgjast með í mannlífinu. Ég hætti á sínum tíma störfum í fjármálaráðu- neytinu vegna þess að mig langaði að vera innan um ungt fólk. Mig langaði að fá tæki- færi til þess að reyna mig frekar í kennslu og í háskólan- um komst ég í þá snertingu við ungt fólk sem mér féll vel. Allt þetta held ég að hafi hjálpað mér til þess að verjast því að draga dám af leiða kerfisins." Sameiningartákn fremur en valdsmaður „Svo við víkjum að þeim kosningum sem málið snýst um, hver er afstaða þín til valdsviðs forseta íslands?" „Ég lít ekki á forseta íslands fyrst og fremst sem valdsins mann, heldur sem samein- ingartákn þjóðarinnar. Þegar um val er að ræða reynir mest á forsetann í stjórnarmyndun- um. Það er ætlast til þingræð- islegs meirihluta að baki ríkis- stjórn og forsetinn á að stýra málum þannig að svo verði. Gangi það ekki eftir er ekki unnt að setja upp neinar fyrir- fram ákveðnar reglur um lausn mála, það verður að meta hverju sinni hvort reyna skuli aðrar leiðir eins og utanþings- stjórn eða minnihlútastjórn. Þá getur forseti neitað að staðfesta lög frá Alþingi, en á það hefur ekki reynt og ég tel æskilegast að til slíks komi ekki. Kjörnir fulltrúar eiga að geta stýrt fleyinu það vel og ábyrgst að til þess komi ekki. Það hlýtur að vera mikið sam- vizkuuppgjör hjá forseta að neita lögum og ég tel að forseti þurfi að hafa mjög sterk rök í eigin huga ef hann grípur til slíks. Þetta er vissulega var- nagli í stjórnkerfi landsins, en ég vona að til slíks komi ekki. Eins er mögulegt að ríkisstjórn reyni að koma forseta frá, en góður forseti er ekki metinn eftir stöðvun laga, það er ætlast til þess að ráðherrar fari með valdið. Ég tel komna nokkuð hefð- bundna mynd á embætti for- seta og hef enga hugmynd á breytingum þar að lútandi sem ástæða er til að nefna." „Áhugavert að takast á við verkefni forseta“ Ég spurði Guðlaug hvers vegna hann hefði áhuga á því að verða forseti? „Þetta er erfið spurning," svaraði hann, „en í stuttu máli tel ég að það sé mjög áhugavert að takast á við þetta verkefni ef maður hefur traust til þess og treystir sér til þess í þeim tilgangi að gera gagn. En það er ekki nóg að treysta sér til þess og langa til þess. Traust sem fólk sýnir manni skiptir ákaflega miklu máli og ég hefði ekki farið í þetta framboð nema vegna fjölmargra áskor- ana frá fólki víðs vegar af öllu Guðlaugur var á gangi úti i garði þegar við renndum i hlað og veifaði. - ' - ■>/ -jf fólkið er mesta sem við eiaurn" landinu úr öllum atvinnugrein- um og öllum stjórnmálaflokk- um. Eg taldi því skylt að gefa kost á mér og láta reyna á það hvort þetta traust væri al- mennt. Ég spurði sjálfan mig að því hvað ég teldi að yrði mér gott veganesti ef til kæmi í embætti forseta íslands og alltaf sigldu þrjár myndir í kjölfarið á þessum vangaveltum. í fyrsta lagi bakgrunnurinn frá upp- vaxtarárunum í Grindavík þar sem ég vann alla almenna vinnu í venjulegu sjávarþorpi. Ég er ekki að tala um hand- brögðin, þau verða úrelt, en vinnan sjálf með almennu fólki er skóli sem ekki bregst. í öðru lagi vil ég nefna þá skólagöngu sem ég hef hlotið og í þriðja lagi fjölbreytta starfsreynslu og samvinnu við fólk úr hinum ýmsu greinum og þáttum þjóð- félgsins. Hvort þetta nægir er hins vegar ekki mitt að dæma um. „Tillitssemi í fámenni og persónulegu þjóðfélagi“ Einn af fjórum verður kjör- inn í þessum forsetakosningum og ég spurði Guðlaug að því hvort hann væri tilbúinn að tapa baráttunni? Það kom ekki til greina að fara út í þessar kosningar svo sigurviss að tap kæmi ekki til greina. Það gerðum við hjónin fullkomlega upp við okkur. Þá er einnig að taka tillit til þess að í fámennu og persónulegu þjóðfélagi eins og okkar getur maður ekki verið það barn að halda að atkvæði greitt öðrum sé greitt á móti manni sjálfum. Fólk skiptist eftir svo mörgu eins og eðlilegt er og það er mín ósk að eftir þessa kosningu standi menn fyrst og fremst saman hver sem verður kjör- inn.“ „ísland er í raun miklu stærra og f jölbreyttara“ Við ræddum um sérkenni íslenzks þjóðfélags þar sem þræðir frænda og vina spinn- ast þvers og krus um landið, en þessi tengsl taldi Guðlaugur vera eitt af sérkennum íslenzks mannlífs og styrkur okkar sem þjóðar á vettvangi þjóða heims. Tal okkar barst aftur að kosn- ingaferðalögum. „Það hefur að flestu leyti verið gaman að taka þátt í þessari kosningabaráttu, en ég verð að játa að ég hefði gjarn- an viljað hafa meiri tíma til ferðalaga um landið og í þétt- býlinu, en ég missti þrjár vikur úr vegna inflúensu. Hins vegar má vissulega velta því fyrir sér upp á framtíðina hvort unnt er og æskilegt að heyja kosn- ingabaráttuna með þeim hætti sem nú er gert. Á fáum vikum geta menn ekki heimsótt allar byggðir landsins eða vinnu- staði og ég skil vel óánægju fólks þar sem frambjóðendur koma því ekki við að koma í heimsókn. Litlir staðir vilja verða útundan og fámennir vinnustaðir og það er vissulega slæmt. Menn kæmust yfir meira í þessum efnum ef þeir hefðu meiri tíma, en ég er hins vegar á móti því að menn taki ef til vill heilt ár í svona —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.