Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 26

Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980 — Þaö, sem kemur nokkuö á óvart í þessari kosningabaráttu er, hvaö sveiflurnar viröast miklar. Þessa dagana veröum viö áþreifanlega vör viö þaö — stuöningsfólk mitt og ég — aö línurnar eru aö skýrast. Fólk er óöum aö ákveöa sig, og ef ég ber saman þaö sem aö okkur sneri fyrir nokkrum vikum og þaö sem er aö gerast í dag, þá er þar mikiíl munur á. Annaö, sem hefur líka komiö á óvart á fundinum úti á landi og hér á höfuöborgarsvæöinu, er hversu margir viröast standa í þeirri trú, aö meö því aö mæla meö frambjóöanda hafi þeir skuldbundiö sig til aö kjósa þann hinn sama þegar komið er aö kjörboröinu. Meömælin eru aöeins yfirlýsing manns um þaö, aö maöur telji hlutaöeigandi persónu hæfa til forsetaframboös. Þaö væri óeölileg regla, ef menn gætu bundiö atkvæöi sitt löngu fyrir kjördag, sérstaklega ef menn vita ekki ennþá um hverja er aö velja. Og margt getur breytzt síöustu vikurnar og síðustu dagana áöur en kosning fer fram. Þess vegna er ætlazt til aö menn kjósi miöaö viö aöstæður á kjördegi, sagöi Pétur Thorsteinsson í samtali á þjóöhátíöardaginn en hann var þá nýkominn úr fundaferö um Snæfellsnes. að sækja ráó til — Ég gerði mér grein fyrir því í upphafi að á brattann var að sækja, en samt er ég búinn að hafa það sterklega á tilfinning unni allan tímann, að andrúms- loftið ætti eftir að breytast, mér í hag. Stuðningsmenn mínir segja að það sé að koma í ljós. — Ilver heldurðu að ástæð- an sé? — Ástæðurnar eru sjálfsagt margar, en ein hlýtur að vera sú, að í upphafi þessarar kosninga- baráttu var ég ekki þekktur meðal almennings. Vegna starfa minna hingað til hef ég lítið verið í sviðsijósinu. Ég hef ekki látið á mér bera í fjölmiðlum fyrr en þessar síðustu vikur, og þegar ég fór að fara út um land, varð ég þess var, að margt fólk vissi fátt um mig annað en það, að ég væri sendiherra, héti Pétur Thor- steinsson og væri í forsetafram- boði. Nú er þetta breytt. Þar sem ég er á ferðinni þessa dagana, þarf engan formála og ástæðan er auðvitað sú, að á þessum fáu vikum er ég orðinn fjölmiðlaper- sóna. Menn geta haft mismun- andi skoðanir á því hvað þetta er geðfeiit, en þetta er nú samt sem áður staðreynd, sem ekki er hægt að sniðganga. lega eins og nú er háttað málum, geti komið að góðum notum, meðal annars áratuga reynsla á sviði stjórnsýslu og samskipti við ríkisstjórnir og Alþingi, allt frá því að lýðveldið var stofnað 1944. Ég hef viljað láta umræður snúast sem mest um forsetaemb- ættið sjálft, enda er það mergur málsins, en persónulegar kosn- ingar eins og þessar hljóta einnig að snúast verulega um þá, sem eru í framboði. Ég hef ekki vanizt því að málefni snúist um persónu Péturs Thorsteinssonar, þannig að sú hlið málsins var mér að sjálfsögðu framandi þegar lagt var upp, en þetta venst. — Hverjir eru það sem sækja framboðsfundi? — Það er fólkið í landinu, fólk, sem tekur málið alvarlega og vill kynna sér, hvað um er að ræða, áður en það ákveður hvern það kýs forseta sinn. Fólk sækir þessa fundi í jákvæðum tilgangi. Því er ekki sama hver verður forseti. Það gerir sér grein fyrir því að um annað og meira er að ræða en yfirborðsembætti. Það veit að forsetinn hefur vald, sem hann á að nota til að gæta hagsmuna fólksins í landinu, og það lætur sér annt um hver gegnir því embætti. Ef á reynir í landinu, þá hafa afskipti af þeim málum, sem ég teldi varða hagsmuni þjóðar- innar, að svo miklu leyti sem slíkt er unnt án þess að brjóta þá reglu, að forsetinn láti stjórn- málabaráttuna afskiptalausa. Mér bæri skylda til að fylgjast mjög nákvæmlega með því, sem er að gerast í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Ég mundi gera mér far um að vera forseti, sem hægt væri að sækja ráð til. í starfi ráðuneytisstjóra í utanrík- isráðuneytinu kynntist ég for- setaembættinu náið í daglegum samskiptum mínum við það og hef því haft tækifæri til að mynda mér ákveðnar skoðanir á hlutverki forsetans. í stjórn- arskránni eru fá ákvæði um forsetaembættið og er því svig- rúm til að móta það á ýmsan hátt, en að sjálfsögðu innan þess ramma sem þingræðisreglan set- ur. En við þingræðisfyrirkomulag vona ég að við munum ávallt búa, hér eftir sem hingað til, og að því vil ég stuðla á allan hátt sem mér er unnt. Það getur vel verið að ég yrði afskiptasamur forseti, — ég gæti átt það til að benda ráðherra á málvillu eða hugsanavillu í frum- varpi sem leggja á fram sem stjórnarfrumvarp. Forsetinn á að vera maður sem — Hvað olli því að þú ákvaðst að gefa kost á þér í íramboð til forsetakjörs? — Ástæðurnar voru ýmsar, og meðal annars sú, að samkvæmt venjum og reglum ætti ég bráð- lega að fara að skipta um starf innan utanríkisþjónustunnar. Ég hef nú starfað hér heima nærri ellefu ár og ætti því að taka við starfi erlendis. Það var eitt af því, sem ég lagði áherzlu, á meðan ég var ráðuneytisstjóri, að starfsmenn þjónustunnar ynnu til skiptis heima og erlendis. Á hinn bóginn erum við hjónin sammála um það, að við viljum helzt hvergi búa nema á íslandi. Og hvað snertir forsetastarfið, held ég að reynsla mín, sérstak- reynir á forsetaembættið. Ef stjórnsýslan bilar, þá verður for- setinn að taka til sinna ráða. Það er fyrst og fremst þetta, sem ég tel a forsetakosningar snúist um, og áreiðanlega er það líka skoðun flestra. — Þú hefur fengið orð fyrir stjórnsemi í ráðuneyt- inu. Ertu ráðríkur maður? — Ég þyki það víst. Ég býst við að ég sé kröfuharður stjórnandi. Þeir, sem hafa mannaforráð, þurfa að vera það, en sanngirni og réttsýni eru ekki síður nauð- synlegir eiginleikar í því sam- bandi. — Yrðir þú afskiptasam- ur forseti? — Ég mundi ekki hika við að — Þú dvaldist langdvöl- um erlendis. Fannst þér ekkert losna um tengsl þín við land og þjóð á þeim tíma? — Nei, þvert á móti. Störf mín í utanríkisþjónustunni voru eðli málsins samkvæmt svo bundin Islandi og því sem íslenzkt er, að kannski hefur maðúr af þeirri ástæðu gert sér betri grein fyrir hagsmunum þjóðarinnar, vanda- málum hennar og viðfangsefnum, en ella hefði orðið. Fjarlægðin getur gefið mönnum aðstöðu til að meta mál af hlutlægni, sem e.t.v. er síður viðhöfð þegar menn eru beinir aðilar að því sem er að gerast. — Var erfitt að koma heim? — Nei, heimkoman var ósk okkar sjálfra og það var gott að koma heim. Eftir 16 ára útivist fannst okkur sannarlega kominn tími til að setjast að hér. Þetta var árið 1969, og ein ástæðan fyrir því, að við lögðum áherzlu á flutning heim, voru synir okkar þrír, sem voru að komast á legg. Við höfðum ævinlega látið okkur annt um að þeir gleymdu ekki uppruna sínum og vildum að þeir festu rætur hér á íslandi og ekki í útlöndum. Hér beið mín starf, sem ég hlakkaði til að takast á við. Ég hafði ákveðnar hugmynd- ir um breytingar, sem tímabært var að gera á utanríkisþjónust- unni, og fyrstu árin, sem ég var ráðuneytisstjóri, lagði ég megin- áherzlu á að sinna því verkefni. — Sumum finnst kominn tími til að utanríkisþjónust- an dragi saman seglin og að veizluvafstur setji um of svip sinn á þá starfsemi. — Já, það heyrist stundum, en slíkar skoðanir stafa oft af ókunnugleika á aðstæðum. Sam- kvæmi eru ekki nema lítill hluti af starfinu, en þau geta verið hinn þarfasti vettvangur tii að greiða fyrir nauðsynlegum sam- skiptum. — Ilvernig atvikaðist það að þú fórst í utanríkis- þjónustuna? ■nm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.