Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 29

Morgunblaðið - 22.06.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980 29 Helgi Guðjónsson verkstjóri - Minning Fæddur 24. febrúar 1917 Dáinn 13. júní 1980 Kær mágur minn og vinur Helgi Guðjónsson, verkstjóri, andaðist á Landspítalanum 13. þ.m. eftir erf- iða sjúkdómslegu. Ég kynntist Helga fyrst árið 1947 er hann kvæntist Borghildi systur minni. En þar áður hafði ég oft veitt honum athygli á förnum vegi sem óvenjulega fríðum og röskum manni. Karlmenni var hann að burðum, óvenjulega greindur, lesinn og minnugur vel. Hann fylgdist og vel með lands- málum. Og á seinni árum sökkti hann sér niður í ævisögur og ættfræði. Músíkalskur var Helgi, spilaði á slaghörpu, hafði fallega og mikla söngrödd og mikið yndi af sígildri tónlist enda söng hann nokkuð í kórum á yngri árum. Hann var fágaður í framkomu, átti létt um mál og sagði vel frá. Ljót orð voru honum ekki töm. Hann var einarður, en stilltur vel, hlédrægur, en gat verið hrókur alls fagnaðar þá hentaði. Hugur hans mun hafa staðið mjög til mennta á yngri árum. En þá var kreppa á landi hér og ungum mönnum þar af leiðandi ekki eins greiðfær leið til mennta og nú er. Helgi var mikill smekkmaður og höndin hög eins og heimili hans ber vott um. Hann var öllum velviljaður, ekki dómharður um menn eða málefn og mun hafa varast að hrinda magnlitlum í halla. Ég stend í mikilli þakkarskuld við Helga. Móðir mín og faðir, tengdaforeldrar hans, voru á heimili þeirra hjóna frá því skömmu eftir að þau stofnuðu til hjúskapar og eyddu ævikvöldi sínu hjá þeim. Reyndist hann þeim mæta vel enda mátu þau hann að verðleikum. Heimilið var gest- kvæmt og áttu margir vinir og venslafólk þar ánægjulegar stund- ir. Móðir Helga er Steinunn Magn- úsdóttir frá Miðvogi við Akranes, en faðir hans var Guðjón Jónsson verkamaður frá Hunkubökkum í Vestur-Skaftafellssýslu sem lát- inn er fyrir allmörgum árum. Steinunn er enn á lífi í hárri elli, eða 89 ára. Ekki kann ég ættir þeirra«að rekja en mér hefur verið tjáð að að þeim hafi staðið styrkir stofnar enda áttu þau miklu barnaláni að fagna eins og börn þeirra síðar, en þau eru Elín, húsmóðir, Helgi sem hér er minnst, Guðjón, deildarstjóri hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga og séra Magnús, lengi þjónandi prestur á Éyrarbakka, nú biskups- ritari. Helgi vann í rúm 20 ár í kjötbúðinni Borg en síðar var hann verkstjóri hjá Sambandi ísl. samvinnufél. þar til hann hóf störf hjá fyrirtækinu Ísfugl í Mosfellssveit. Helgi kvæntist eft- irlifandi eiginkonu sinni Borghildi Þórðardóttur þann 14. júní 1947. Börn þeirra eru Þórður cand. mag., kennari við Háskóla íslands, Guðjón, viðskiptafræðingur, Þóra sem vinnur hjá Flugleiðum og Solveig sem starfar hjá Síldarút- vegsnefnd. Þegar ég fyrir síðustu ferð mína vestur um haf fyrir mánuði síðan Sýning á til- lögu að skipulagi Garðabæjar SÝNING á tillögu að skipulagi Garðabæjar, sem unnin var á árunum Hún er opin alla daga vikunnar frá klukkan 16—19 og er í stofu 101. Höfundar tillögunnar voru Gestur Ólafsson og Pálmar Ólason og munu þeir svara fyrir spurnum frá kl. 18 til 19 sýningar- dagana. Bæjarstjórn og skipulagsnefnd vilja benda þeim sem hafa ein- hverjar ábendingar sem gætu stuðíað að æskilegri framtíðar- þróun, á að snúa sér til þeirra. kvaddi Helga var kjarkur hans óskertur og var hann þá farinn að gera framtíðaráætlanir og hlakka mjög til þess að geta hafið störf að nýju, en þegar ég kom aftur að sjúkrabeði hans mátti hann ekki mæla. Sköpum mátti eigi renna. Tveimur dögum síðar var hann allur. Jesús sagði „Ég lifi og þér munuð lifa“. Við þessi vegamót á vegferð Helga er ég viss um að hann er nú aðeins að hefja ferð um fegri heim meira að starfa guðs um geim. Þegar mér sjálfum verður gert að fara yfir þau landamæri sem hann hefur nú farið þá er víst að Helgi er einn af þeim sem ég hlakka hvað mest til að sjá aftur. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Ég votta eiginkonu hans og börn- um innilega samúð okkar Sigrún- ar svo og móður hans, systkinum og öllum ástvinum. Helgi verður kvaddur hinstu kveðju hérvistar mánudaginn 23. júní. í guðs friði. Sigbjörn Þórðarson FALLEG HÚSGÖGN FJÖLBREYTT ÚRVAL Wienarstólarnir V Í n Sð81U T egund 9591 ruggustóll Verökr. 98.000 Tegund 14 Verökr. 29.000 Höfum sölu- umboö fyrir þessar margeft- irspuröu vörur. Hagstætt verö. SENDUM GEGN PÓSTKROFU VALHÚSGÖGN ÁRMÚLI 4 SÍMI82275 t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför SOFFÍU MAGNEU JÓHANNESDÓTTUR, Byggöarenda 22. Margrét Arnadóttir, Sólveig Arnadóttir, örn Árnaaon, Jón Árnason, Ólafur Árnason, og barnabörn. Gísli Guómundsson, Ragna Rósantsdóttir, Margaret Árnason, Ragnheiöur Benediktsdóttir, Eyrún Jóhannesdóttir t Utför BALDURS ÞORSTEINSSONAR, Sólheimum 10 fer fram frá Fossvogskapellu, þriöjudaginn 24. júní kl. 3. Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á líknarstofnanlr. Fjóla Jónsdóttir, Þorsteinn Baldursson, Katrin Magnúsdóttir, Jón Baldursson, Vigdís Baldursdóttir, Sævar Baldursson, Helgi Baidursson, Ágústa Baldursdóttir, Hermína Benjamínsdóttir, Axel Bender, Matthildur Guómundsdóttir, Guöbjörg Marteinsdóttir, Kristinn Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. Félag austfirskra kvenna í Reykjavík fer sína árlegu skemmtiferö sunnudgainn 13. júlí. Fariö verður í Þórsmörk. Konur eru beðnar aö láta vita í síöasta lagi 3. júlí í síma, Laufey 37055, Jóhanna 30342, Sonja 75625. Eldhúsinnréttingar Baðinnréttingar Til sýnis og sölu. Einnig sófaborö á verksmiöjuveröi. • Smíöum eftir máli. Tréiðjan, Tanghöföa 2. Sími 33490. Opið í dag frá 10—17 og alla virka daga. orkugjafinn heimsþekkti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.