Morgunblaðið - 20.07.1980, Page 18

Morgunblaðið - 20.07.1980, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980 Bjarni Egilsson Ilvalnesi á Skaga: Það er lífshags- munamál fyrir sveitirnar að byggð grisjist ekki Biarni EtrilsHon bóndi á llvalncsi. Heimasætan vildi ekki sýna sig. MiÖja vegu á leiðinni út á Skagaströnd býr Bjarni Ejíilsson, ásamt unnustu sinni Hrafnhildi Bjarnadóttur og ungri dóttur þeirra, á Hvalnesi í Skefilstaðahreppi. Bjarni er uppalinn á Sauðárkróki og bjó hann þar fram til 1976 þegar hann keypti jörðina Hvalnes, 21 árs gamall, og hóf þar búskap. Bjarni er búfræðingur að mennt, útskrifaður frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1975. Hagstætt að skipta á íbúð í kaupstað og jörð í sveit Var ekki strembið fyrir ungan mann að kaupa jörð 1976? Vissu- lega var það ýmsum annmörkum háð, og staðreyndin er sú að ég ætlaði alls ekki að kaupa jörð strax, þrátt fyrir að ég væri staðráðinn í að hefja búskap. Þegar móðurbróður minn, sem átti Hvaines, hugðist selja á þess- um tíma gat ég ekki látið þetta tækifæri úr greipum ganga, ég sló til og ekki skemmdi það fyrir að jörðin hafði verið í eigu fjölskyld- unnar um langa hríð. Ég þurfti vissulega að greiða fullt verð fyrir jörðina en segja má að frændsem- in gerði það að verkum að auð- veldara var að semja um greiðsl- ur, þannig að gamla máltækið „frændur eru frændum verstir" átti ekki við í þessu tilfelli. Ég þurfti hins vegar að nýta mér öll þau lán sem í boði voru, og þau eru þungur baggi, en mér sýnist við munum bráðlega komast yfir erf- iðasta hjallann, en það er óneitan- lega ekkert sérstaklega girnilegt fyrir ungt fólk að hefja búskap á þessum tímum. Ég myndi ráðleggja ungu fólki sem hyggst hefja búskap að koma fyrst yfir sig þaki í kaupstað, og skipta síðan á jörð, því reynslan hefur sýnt að það er mjög auðvelt. Hve stóran bústofn átt þú? Ég á um 350 fjár, nokkuð af hestum en enga kú. Þessi bústofn er þó ekki nógu stór til að halda uppi hagkvæmu búi, þannig að ég verð að stækka það í framtíðinni, hvort sem það verður fjölgun fjár eða hesta. Ég á síður von á að ég leggi út í kúabúskap, aðallega vegna offramleiðsluvandans. Hvalnes er að mínu viti betri jörð fyrir fjárbúskap. Hér er mikil fjörubeit, sem sparar okkur hey, og er auk þess ákaflega holl fyrir skepnurn- ar. Fjörubeitin kom sér ekki síst vel sl. sumar, ef kalla má sumar, þar sem hún bjargaði mér alveg með fóðrunina. Hlunnindi sem þessi eru ómetanleg, en þetta eru ekki einu hlunnindi jarðarinnar. Á hverju ári fáum við hingað í fjörur mikið magn af rekavið, svo mikið að það nægir fyrir öllum girðingum, en auk þess eru öll hús hér reist úr rekavið, grindur í fjárhús eru úr rekavið og yfirleitt allt annað sem smíðað er úr á þessum bæ. Ég get nefnt sem dæmi að á síðasta ári girti ég á þriðja ferkílómeter af nýgirðing- um og auk þess var þó nokkuð viðhald á eldri girðingum. Ef við miðum við fimm metra bil á milli staura lætur nærri að ég hafi notað 2000 girðingarstaura í þess- ar framkvæmdir. í kaupfélaginu kostar girðingarstaurinn 1.800 kr. sem gerir samanlagt 3,6 milljónir, þannig að augljóst er hversu mikil hlunnindi eru af rekanum. Grásleppuveiði gefur vel af sér, en hún er á versta tíma fyrir fjárbændur Er ekki Hvalnes nokkuð stór jörð, og hvað með sjóróðra? Jörðin er nokkuð stór, við eigum auk þess vötn uppi á heiðum, sem í veiðist silungur, en þau hefur Stangveiði- félag Sauðárkróks á leigu. Ég nytja einnig tvær aðrar jarðir, Selnes, sem ég nytja í félagi við annan mann og Berg- skáia, sem ég nytja einn. Báðar þessar jarðir hafa farið í eyði, en það hefur lengi verið eitt af helstu áhyggjuefnum hér um slóðir hversu byggð hefur grisjast hér á Skaganum, þrátt fyrir að hægt hafi á þeirri þróun í bili. Hér á árum áður var alltaf gert út á grásleppu, höfn er hér góð frá náttúrunnar hendi og aðstæður allar ágætar. Meginókosturinn við grásleppuveiðina er hins vegar sá, að vertíðin stendur yfir sama tíma og undirbúningur fyrir sauðburð- inn, þannig að fyrir fjárbónda er erfiðleikum háð að stunda róðra. Móðurbróðir minn gerir hins veg- ar út héðan, í félagi við annan mann og þeir salta og verka grásleppuna sjálfir. Hvernig er félagslífið hér í sveitinni? Það er líflegt, við tókum upp á því að halda árlega þorrablót, en auk þess höfum við tvö spilakvöld á hverjum vetri. Þessar samkomur fara fram á einu eyðibýlinu hér í sveitinni, og það sem er skemmti- legast við þetta er hin almenna þátttaka, þar ríkir ekkert kynslóðabil. í fámennri sveit eins og hér er það vitaskuld forsenda félagslífs, að allir séu virkir þátttakendur, og áhuginn er það mikill að hreppurinn hyggst byggja nýtt félagsheimili á næstunni. Það verður að gera sveitarfélögin aðlað- andi til búsetu Hyggst þú fara út í einhverja aukabúgrein? Ég hef undanfarin ár verið með hesta í fóðrun og tamningu til að drýgja tekjurnar og sl. vetur var ég með 25 hross, þar af 8 í tamningu. Ég hef gælt við þá hugmynd að fara meira út í að ala hross, temja þau og selja, en sú hugmynd á langt í land með að verða að veruleika. Um aðrar búgreinar hef ég lítið hugsað. Hvernig líst þér á þróun byggð- ar til sveita, og þá sérstaklega hér í Skefilstaðahreppi? Það hefur verið okkur nokkuð áhyggjuefni hér í hreppnum hversu byggð hefur jafnt og þétt grisjast í gegnum árin, og ég álít að við verðum að snúa við blaðinu sem fyrst. Það er lífshagsmuna- mál fyrir sveitirnar að byggð grisjist ekki, þannig að okkar hlutverk er að gera sveitarfélögin sjálf aðlaðandi til að setjast að í. Annars lítur þetta aðeins betur út en áður, hér er mikið af ungu fólki og samheldni er mikil, þannig að ég óttast ekki sérstaklega þróun byggðar hér næstu árin, og lít björtum augum til framtíðarinn- ar. ' Á ferð um Skagafjörð / Texti: Friðrik Friðriksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.