Morgunblaðið - 20.07.1980, Síða 24

Morgunblaðið - 20.07.1980, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980 jÍluírignttiM&fotfo Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250 kr. eintakiö. Tímamót urðu í kjara- viðræðunum á föstu- dag. Fram kom, að leyni- viðræður hefðu farið fram milli Vinnumálasambands samvinnufélaganna og Al: þýðusambands íslands. í kjölfar þeirra óskaði Al- þýðusambandið eftir sér- viðræðum við Vinnumála- sambandið. Vinnuveit- endasamband íslands lýsti því þá yfir, að það liti svo á, að með fyrirvaralausri ósk sinni um slíkar sérvið- ræður hefði viðræðunefnd Alþýðusambandsins rofið samningaviðræðurnar og þar með hindrað frekara sáttastarf milli Vinnuveit- endasambandsins og Al- þýðusambandsins. Al- mennu samningaþófi aðila vinnumarkaðarins var þar með lokið og kjaraviðræð- urnar eru nú í höndum Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna og Alþýðu- sambands íslands annars vegar og ríkisstjórnarinn- ar og Bandalags starfs- manna ríkis og bæja hins vegar. Þessi óvænta atburðarás byggist ekki á faglegum sjónarmiðum, ef þannig mætti að orði komast, heldur endurspeglar hún vilja þeirra manna, sem eru í pólitísku forsvari fyrir Alþýðusambandið og Samband íslenskra sam- vinnufélaga. Þegar til þess er litið, aðalþýðubanda- lagsráðherrarnir telja sig sjálfskipaða pólitíska leið- toga Alþýðusambandsins og framsóknarráðherrarn- ir eru gæslumenn hags- muna Sambands íslenskra samvinnufélaga á hinum pólitíska vettvangi, þarf engan að undra, að þessar fylkingar telji sér það best henta að ræðast einslega við um kjaramálin. Póli- tísku og „faglegu" hags- munirnir falla saman í ríkisstjórninni og má því segja, að nú séu kjaramál- in alfarið komin á borð hennar. Vaxandi óróleika hefur gætt í stjórnarliðinu vegna þess, að ekki hefur verið unnt að leysa kjaradeil- urnar. Til að berja í brest- ina hafa málgögn stjórnar- innar lagt höfuðkapp á það síðustu daga að sannfæra menn um mikinn og góðan samstarfsanda innan rík- isstjórnarinnar. Og Tím- inn hefur tekið að sér að veita Alþýðubandalaginu skjól fyrir vaxandi ágjöf. Lokaátakið í þessari við- leitni felst í þessum nýja samleik ASÍ og SÍS í kjaramálunum. Af hálfu framsóknar- manna hefur því verið haldið á loft síðustu vikur, að um almennar efnahags- aðgerðir geti ekki orðið að ræða nema kjaramálin séu fyrst komin á hreint. Sér- stök efnahagsmálanefnd hefur verið skipuð af ríkis- stjórninni til að gera til- lögur um framtíðarstefn- una í þeim málaflokki og er ekki að efa, að hún hafi lagt á ráðin um þennan nýja leik í kjaraviðræðun- um- Meðal nefndarmanna er einn þingmanna Fram- sóknarflokksins í Reykja- vík, Guðmundur G. Þórar- insson. Hann skrifaði ný- lega blaðagrein, þar sem hann gagnrýndi vísitölu- kerfið harðlega og taldi það einungis leiða til enn meira öngþveitis. Er ekki að efa, að þau sjónarmið verði ítarlega reifuð á einkafundum ASÍ og SÍS og ef til vill er ekki loku fyrir það skotið, að þau hafi þegar komið á dagskrá leynifundanna, sem leiddu til ákvörðunar- innar um sérviðræður aðil- anna. Fyrr í sumar vakti það athygli, hve treglega ríkis- stjórnin brást við tilmæl- um Vinnuveitendasam- bands íslands um aðild ríkisvaldsins að kjaradeilu aðila almenna vinnumark- aðarins. Sú afstaða rennir stoðum undir það sjónar- mið, að nokkuð langur að- dragandi sé að þessari nýju stöðu. Jafnframt vakti athygli með hve hógværum hætti Kristján Thorlacíus formaður BSRB tók harðorðu bréfi Ragnars Arnalds fjármál- aráðherra og hótun hans um að félagsmálapakkarn- ir yrðu afturkallaðir, ef BSRB sæi ekki að sér og félli frá launakröfum sín- um. Styður afstaða Kristj- áns þá kenningu, að sam- hliða ætli ríkisstjórnin að semja við BSRB og segja fyrir um samkomulag milli ASÍ og SÍS. Forsvarsmenn Vinnu- málasambandsins og Al- þýðusambandsins eru varkárir í orðum um þau atriði, sem borið hefur á góma í viðræðum þeirra. Þó hefur komið fram, að SÍS-valdið vill helst, að öllum samningum sé frestað um eitt ár með ákveðnum skilyrðum. Þótt slík frestun sé í hróplegu ósamræmi við kjörorðið „samningana í gildi“ myndi hún veita stjórnar- liðum ráðrúm til að semja um breytingar á vísitölu- kerfinu og aðrar umbætur, sem þeir telja brýnar. Mið- að við allan málatilbúnað geta menn nú búið sig undir það, að rösklega verði gengið til verks og flötur fundinn í kjaramál- unum, sem samrýmist að- gerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Kjaramálin á borði ríkisstjórnarinnar j Reykjavíkurbréf ^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦Laugardagur 19. ^^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< Bolungar- víkurrædan Ræða sú, sem Geir Hallgríms- son, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, flutti á 50 ára afmælishátíð sjálfstæðisfélagsins Þjóðólfs í Bol- ungarvík um síðustu helgi hefur vakið verðskuldaða athygli. Flokksformaðurinn drap þar á þrjú meginatriði: stöðuna innan Sjálfstæðisflokksins, aukin umsvif sósíalista á íslandi og nokkra þá málefnaþætti, sem hann telur brýnasta á verkefnaskrá Sjálf- stæðisflokksins. Viðbrögð andstæðinga Sjálf- stæðisflokksins við þessari ræðu hafa einkennst af hræðslu og komið fram í vangaveltum um það, hvort þeir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins, er veita núver- andi ríkisstjórn brautargengi eigi afturkvæmt inn í flokkinn. Geir Hallgrímsson lagði í ræðu sinni megináherslu á það, að reginmun- ur væri á stefnu ríkisstjórnarinn- ar og stefnu Sjálfstæðisflokksins, um leið og hann hvatti til þess að innan flokksins yrðu sköpuð skil- yrði til þess að fylkja öllum sjálfstæðismönnum saman til sátta og samkomulags og afla flokknum aukins fylgis með þjóð- inni. Af skrifum stjórnarmálgagn- anna verður helst ráðið, að þau telji það stjórninni og flokkum sínum eitt til bjargar, að alið sé á sundrungu meðal sjálfstæðis- manna. Er þessi málflutningur í samræmi við þær hvatir, sem lágu að baki myndunar stjórnarinnar hjá valdamiklum aðilum, bæði í röðum kommúnista og framsókn- armanna. Og þeir vilja síst af öllu tapa aðstöðu þeirri, sem þeir telja sig hafa fengið til að hlutast til um innri málefni Sjálfstæðis- flokksins, en ríkisstjórnarsam- starfið er einmitt tækið í þeim ógeðfellda leik. Uppgjafartóninn í stjórnarlið- inu má greinilega sjá tií dæmis í forystugrein Tímans sl. fimmtu- dag, sem ber yfirskriftina „Hótan- ir Geirs Hallgrímssonar", þar segir á einum stað: „Aðstaða stjórnarinnar er vissulega erfið, en helst eru þó bundnar við hana þær vonir, að hægt verði að halda í horfinu og hefjast handa um að komast úr örðugleikum verðbólg- unnar." Ekki er unnt að segja, að mikill baráttuþróttur sé í þessum orðum til stuðnjngs ríkisstjórn- inni og furðulegt er að sjá þá fullyrðingu koma úr penna rit- stjóra málgagns Framsóknar- flokksins, að von sé til þess, að ríkisstjórninni takist að vinna bug á verðbólgunni. En á þeim rúmu sex mánuðum, sem liðnir eru frá myndun stjórnarinnar, hefur nið- urtalningarstefna framsóknarm- anna runnið algjörlega út í sand- inn. Stjórnarsinnum er ljóst, að mál- efnaleg samstaða innan sjálfstæð- isflokksins felur í sér harða and- stöðu við rikisstjórnina. Af þeim sökum eru þeir jafn kvíðnir og raun ber vitni, þegar þeir verða varir við almennt góðar undirtekt- ir undir þau sjónarmið, sem Geir Hallgrímsson setti fram í Bolung- arvíkurræðu sinni. Skortur á sjálfs- gagnrýni Á aðeins rúmum sex mánuðum hefur haldleysi kosningaloforða Steingríms Hermannssonar, for- manns Framsóknarflokksins, um auðunnan sigur á verðbólgunni eftir niðurtalningarjeiðinni, kom- ið í Ijós. Tómas Árnason, sem framsóknarmenn settu í embætti viðskiptaráðherra, til að sjá um framkvæmd niðurtalningarinnar játar nú skipbrot stefnunnar með því að tileinka sér aðferð strútsins og stinga hausnum í sandinn, þegar erfiðleikar steðja að. Ásamt Framsóknarflokknum hefur Alþýðubandalagið ráðið mestu um stefnuna í efnahags- málum frá kosningum 1978. Áð vísu lagði Alþýðuflokkurinn einn- ig sitt lóð á vogarskálina um tíma, en það var fislétt eins og allt. sem frá þeim flokki kemur, þótt tals- menn hans líti á sig sem mikla þungavigtarmenn í stjórnmála- átökunum. En allt það hjal krat- anna minnir menn aðeins á Jón sterka. Þegar Ólafur Jóhannesson skýrði stefnu ríkisstjórnar sinnar á Alþingi 19. október 1978, flutti nýbakaður viðskiptaráðherra í þeirri stjórn, Svavar Gestsson, ræðu og skýrði sjónarmið Alþýðu- bandalagsins og stórhuga áform. Færi vel á því, að bæði ræðumaður og aðrir kynntu sér efni þeirrar ræðu og bæru boðskap hennar saman við árangurinn nú, tæpum tveimur árum siðar. í ræðu sinni 1978 sagði Svavar Gestsson: „Núverandi ríkisstjórn, sem hefur setið að völdum í 7 vikur, hefur ekki gefið stór loforð. Loforð hennar eru í fyrsta lagi að treysta kaupmátt launa, í öðru lagi að tryggja það, að atvinnu- vegirnir gangi þannig að við festum efnahagslegt sjálfstæði okkar í sessi. í þriðja lagi hefur þessi ríkisstjórn lagt áherslu á að hornsteinninn að stjórnarsam- starfinu eru samráð stjórnar- flokkanna við verkalýðshreyfing- una, samtök launafólks." Og Svav- ar sagði einnig: „Hlutverk Alþýðu- bandalagsins í þessari ríkisstjórn er að tryggja að afurðunum sé skipt launafólki í vil. Við það eitt, að Alþýðubandalagið á aðild að ríkisstjórn, hver sem hún er, verða þó ekki neinar stökkbreytingar á íslensku þjóðfélagi. Það tekur tíma að breyta þjóðfélagi sem hefur staðið kyrrt og lítt breytt um áratugaskeið." Með þessi sömu slagorð á vörun- um gekk Alþýðubandalagið til setu í þeirri ríkisstjórn, sem nú situr að völdum. Greinilegt er, að hvorki Svavar Gestsson né sam- flokksmenn hans í báðum þessum ríkisstjórnum hafa staðið við þau loforð, sem þeir gáfu 1978 og Svavar taldi þó ekki stór, sem sé að tryggja kaupmátt launa, treysta undirstöðu atvinnuveg- anna og efla samráð við launþega. Við ekkert þessara loforða hefur verið staðið. Þau hafa öll verið þverbrotin og ástandið í atvinnu- málum hefur hríðversnað, eftir því sem Alþýðubandalagið hefur setið lengur í ríkisstjórn. Og nýlega var haldið upp á ársafmæli þess, að engir kjarasamningar við opinbera starfsmenn eru í gildi. Hitt er ljóst, að við tilvist Alþýðu- bandalagsins í ríkisstjórninni hef- ur þjóðféiagið breyst, eins og Svavar vildi. I stjórn efnahags- mála hefur verið horfið áratugi aftur í tímann og teknir upp starfshættir, sem allir voru sam- mála um að bæru engan árangur. Einnig hafa afturhaldssöm við- horf kommúnista til stóriðju leitt til þess, að við blasir stöðnun vegna skorts á ákvörðunum um f ramtíðarverkef ni. Efnahags- málanefndin Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd ófaglærðra manna, ef svo mætti að orði komast, til að gera tillögur um ráðstafanir í efna- hagsmálum. Þótt ekki sé því haldið á loft opinberlega, er það á allra vitorði, sem til þekkja, að skipan þessarar nefndar er af Alþýðubandalaginu talin mikil- vægur liður í því að vmbreyta þjóðfélagsgerðinni. Röksemdin fyrir skipan nefndarinnar er sú, að það hafi sannast í verðbólgutíð núverandi stjórnar og þeirrar, sem á undan henni sat, að ráð Þjóðhagsstofnunar, Seðlabanka íslands og annarra slíkra aðila, sem hafa sérfræðingum á að skipa, hafi ekki gefist nægilega vel. Þess vegna ákvað stjórnarliðið að kalla saman hóp þeirra manna, sem það telur hafa mesta þekk- ingu á innviðum og þróun ís- lenskra efnahagsmála og fela þeim að gera tillögur um alveg „splunkuný" úrræði. Af ummæl- um forsætisráðherra í sjónvarps- viðtali í vor, þegar hann vildi sem minnst úr slíkri tillögugerð gera og ítrekaði sjónarmið sitt um að stjórna ætti frá degi til dags, er ljóst, að ráðherrann hefur orðið undir í ríkisstjórninni með sjón- armið sín. í sárabætur fékk hann hins vegar að láta nefndina starfa á sínum vegum og skipa formann hennar. Skipan slíkra nefnda er í raun ekkert nýmæli, þær tíðkuðust á tímunum fyrir 1960, áður en viðreisnarstjórnin tók upp algjör-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.