Tíminn - 03.07.1965, Qupperneq 9

Tíminn - 03.07.1965, Qupperneq 9
9 LAUGARDAGUR 3. júlí 1965 TÍMINN Leikrit eftir svertingja- skáld sýnt um alla Evrdpu Tvö síðustu leikár í New York hafa blökkumenn talsvert haslað sér völl á leiksviðum þar í borg, bæði leikarar og leikritahöfundar. Af hinum síð arnefndu hefur mesta athygli vakið rithöfundurinn James Baldwin, sem áður var víðkunn ur af skáldsögum sínum og rit gerðabókum. í sumar verður nýjasta leik- rit hans, „Adarn’s Corner“ Arthur Miller Jean-Paul Sartre Neita Suöur-A'fríku um sýn- Kynþáttaofstækisstefna stjórn arvaldanna í Suður-Afríku, a- partheid, hefur vitaskuld bitn- að á leikhúslífinu þar í iandi, en það hefur nú dregið þarm dilk á eftir sér að ieikhúsin þar syðra eiga nú við sívaxandi erfiðleika að etja vegna skorts 4 leikritum eftir helztu, beztu og vinsælustu núlifandi leik ritahöfunda heimsins. Fjol- nörg leikritaskáld Evrópu og \meríku hafa í mótmælaskyni •ið þessa afturhaldssömu stjórnarstefnu lagt blátt bann við því, að leikrit þeirra séu sett á svið í Suður-Afríku. og standa þar fremstir í flokki Harold Pinter Samuel Beckett Graham Greene, Jhon Os borne, Jean-Paul Sartre Ed- ward Albee, Arthur Miller og Tennessee Williams. Þessar mótmælaráðstafanir leikritahöfundanna eru þegai farnar að segja til sin syðra. Leikritamiðlari einn í Johanr,- Framhald a iz síðu flutt á listahátíðini í Edinborg og einnig á nokkrum leiklistar- hátíðum öðrum á meginlandi Evrópu, og verða leikendur all ir blökkumenn. En fyrsta leik- rit þessa höfundar heitir „Blues for Mr. Charlie“, og var frumsýnt í New York I fyrra undir Ieikstjórn kvik- myndaleikarans fræga Burgess Meredith og var þá meðfylgj- andi mynd tekin af höfundi og leikstjóra á æfingu fyrir þá sýningu. Leikritið fékk mis- jafna dóma gagnrýnenda, en samt vakti það allmikla athygli sökum efnisins og snarpar á- deilu höfundar á kynþátta- hleypidóma. Það fjallar um ungan blökkumann, sem heldur heim til Suðurríkjanna eftir að hafa orðið fyrir miklum vonbrigði af dvöl í Norður- ríkjunum. En syðra hittir hann mann einn hvítan, tekst með þeim kunningsskapur, sem end ar með því, að sá hvíti miðar byssu á hinn blakka hleypir af sem verður hans bani. Sá hvíti er að vísu dreginn fyrir rétt. en sleppur með áminningu og síðan látinn laus. Höfundur ti.1 einkar leikritið minningu Medg ar Evers foringja blökkumanna í Mississippi, sem skotinn var til bana í næturklúbbi í fæð- ingarbæ .sínum þar í ríkinu í fyrra og leynir sér ekki, að það atvik er líka uppistaðan i leik riti Baldwins. Leikritið hefst á því, að morðinginn dregur fórnarlamb sitt yfir leiksviðið þá hefjast lífgunartilraunir, sem heppnast, en síðan verður sá blakki aftur fyrir skoti kem ur samt enn fram lifandi í nokkrum atriðum unz liann loks er skotinn fyrir opnum tjöldum, og lýkur þar með leiknum. James Baldwin leikritahöfundur og Burgess Meredith leikari sem er hér að æfa fyrsta leikrit höfundar í New York. Theater in the Street, leik hús á götunni, eða máske öllu heldur leikhús á víðavangi, nefnist leikfélag eða hópur atvinnuleikara, sem efna til sýninga á almannafæri án að gangseyris, og hófust sýning- ar þessar í New York fyrir fjórum árum, en fimmta leikár ið hefst í hverfinu Borough of Brooklyn seint í þessum mánuði. Leikfélag þetta nýtur stuðn- ings bæði frá listaráði New York ríkis og einstaklingum. En sýningar fara fram á ó- btyggðum lóðum, leikvöllum skóla og annars staðar á ber- svæði sumarlangt. í sumar flyt ur flokkurinn þrjú leikrit fyr- ir fullorðna, Björninn og Bón- orðið, bæði eftir Anton Tsje- kov, og Læknirinn eftir Moli- ere. Tvö leikrit fyrir börn, Ching-Ling og Töfraeplið eft- ir ameríska leikskáldið Mary Kennedy. Og loks verður Bón- orðið búið sérstaklega til flutn ings handa Puerto Rico íbúum í New York. Strengjahljómsveitin í Podolsk mun vera ein hin lágvaxnasta, sem um getur, en það leynir sér ekki, að hver og einn tekur verk sitt alvarlega, og árangurinn varð lika undraverður. 3JA ÁRA HUÓM- SVEITARSTJÓRI Hingað til hefur það óvíða tíðkazt að láta börn undir sjö ára aldri hefja náro í tónlist- arskóla. En þó hljóta undan- tekningar að vera írá þeirri reglu, ef börn sýna ovenjuleg ar tónlistargáfur yngri en þetta. í Sovétríkjunum hefur upp á síðkastið verið haldið uppi tónlistarkennslu fyrir þriggja ára börn tilrauna- skyni. Og maðurinn, sem á frumkvæðið að þessari fróð- legu tilraun, heitir Michail Kravets og er tónlistarkennari í Podolsk skammt irá Moskvu. Hann hefur tekið upp sér stakt kennslukerfi fyrir 3ja ára börnin. Þau fá svo að segja að fara leikandi ínn í heim tónlistarinnar. Kennarinn seg- ir þeim rólegar sögu/ af syngj andi fuglum og spilandi dýr- um. Og hljóðfærin verða að kærkomnum leikföngum. sem hægt er að iokka fram töfr- andi tóna með. Árangurinn af pessari til- raunakennslu er undraverður. Það sannfærðust þeir um, er nýlega voru viðstaddir nem- endatónleika, er Kraveís efndi nýlega til í Podolsk. Þar kom m.a. fram strengjahljómsveit drengja á forskólaaldri, og þeir stóðu sig með einstakri prýði, léku ljómandi vel og voru furðu öruggir En það merkilegasta var, að hljómsveit inni stjórnaði þriggja ára telpa, sem heitir Olja Graul, og var ekki nema íveggja og hálfs árs, þegai húr, fékk að byrja skólagöngu hjé Kravet- Nú leikur mörgum æðimikil forvitni á að vita hvað verði úr þessu undrabarni sem er fluglæs á nótui. og er oröin feiknarfróð i tonbók menntunum. Framhald á 12 síðu Það er ekkert hik i svipnum á henni, þessari, og þetta er nú hún Olja Graul, 3ja ára með tónsprotann og gerir miklar kröf ur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.