Tíminn - 03.07.1965, Blaðsíða 13

Tíminn - 03.07.1965, Blaðsíða 13
liAUGARDAGUR 3. júlí 1965 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 Hvað skeður á mánudagskvöld? — þá mætast ísland og Danmörk í landsleik í knattspyrnu í 8. sinn. Leikurinn verSur á Laugardalsvelli og hefst kl. 20.30. Hvað skeður á mánudags- kvöld, þegar ísland og Dan- mörk leiða saman hesta sína í landsleiknum í knattspyrnu? Enginn getur svarað þessari spurningu, því að allt getur gerzt. Óneitanlega eru Danir sigurstranglegri, en það þarf ekki að þýða, að þeir séu bún- ir að vinna leikinn fyrirfram. íslenzka liðið hefur mögu- leika, en þá verða líka pilt- arnir okkar að taka á, og mega ekki slaka á eina ein- ustu mínútu. i Því er ekki að leyna, að vörnin ! er veikari hluti íslenzka liðsins, | og það veltur á miklu, hvernig j henni tekst upp. Áhorfendur á Laugardalsvellinum ættu að geta S veitt liðinu mikilsverðan stuðn- ling með hvatningarhrópum, — og hér með er skorað bæði á leik- menn og áhorfendur að sameinast í átaki, sem færir okkur sigur gegn dönsku landsliði í knatt- spyrnu. f íslenzka liðinu eru þrír nýlið ar, Baldvin Baldvinsson. KR, sem fyrir nokkrum dögum varð 22 ára gamall, Magnús Jónatansson, Akureyri, 22 ára, og Sigurvin Ól- afsson, sem einnig er 22 ára. Ann ars er liðið skipað nokkuð reynd um leikmönnum. Aldursforseti þess er Árni Njálsson, 29 ára gam all, en yngsti leikmaður þess ei Eyleifur Hafsteinsson, 18 ára gam all. Fyrirliði íslenzka liðsins er Ellert Sohram, og er þetta í annað sinn, ,sem hann stýrir íslenzka lið inu. Leikurinn á mánudagskvöld hefst stundvíslega kl. 20.30. Dóm ari verður Wharton frá Skotlandi, og línuverðir Magnús Pétursson og Hannes Þ. Sigurðsson. — Þess má geta, að forsala aðgöngumiða er hafin fyrir framan Útvegsbank ann. Landsmótið hefst í dag — búizt viS góðu veðri á Laugarvatni meðan mótið stendur. Baldvin Baldvinsson, KR, einn þriggja nýliða í ísl. landsliðinu. Myndin var tekin á landsliðsæfingu í fyrrakvöld. Alf—Reykjavík. — Um helgina verður Iialdin mikil íþróttahátíð að Laugarvatni, 12. landsmót UMFÍ sem dregur að sér þúsund ir manna. Þegar þetta er skrif að, er all stór hópur kominn að Laugarvatni og hefur reist tjald búiðir, en búast má við aðalstraum Tók eiginkonuna með á skákmótið — þegar Friðrik Ólafsson gat ekki komið því við. Á simnudaginn hófst í Júgó- slavíu tíu skáka einvígi þeirra Bent Larsen og Boris Ivkov frá Júgóslavíu í sambandi við heims meistarakeppnina í skák og er teflt í Bled. Jafnhliða tefla þar Tal, Sovétríkjunum, og Portisch, Ungverjalandi, og sigurvegarar í þessum einvígum mun síðan tefla um réttinn til að mæta Spassky, Sovétríkjunum, sem þegar hefur sigrað þá Keres og Geller í hinum riðli keppninna. Fyrsta ská'k þeirra Larsen og Ivkov fór í bið — og stendur Lar- sen mun betur eða „ég er næstum öruggur með að vinna þá skák“ eins og hann segir sjálfur. önnur skák þeirra var friðsöm, og tókst Larsen að ná uppskiptum. Jafn- tefli var samið eftir 31. leik. Tal sigraði í sinni skák og var það dæmigerð Talskák. Hann fórn aði hrók og náði sterkri sókn. Portisch fór úr jafnvægi, lék illa af sér, og gaf skákina eftir 27 leiki. Tal áleit sjálfur, að með beztu vörn hefði Portisch átt að geta haldið jafntefli. Á sunnudaginn birtist skemmti legt viðtal við Larsen í Berlingske Tidende, og fyrirsögnin er „Eg reíkna með að verða heimsmeist- ari“. Þar segir: „Með tvær ferða töskur fullar af skákbókum og eig inkonu sína sem fararstjóra hélt hinn danski stórmeistari, Bent Larsen, til Júgóslavíu til að færast skrefi nær hinu mikla takmarkí sínu: heimsmeistari í skák, og hann reiknar sjálfur með að vinna. Það er ekkert merkilegt með bækurnar, en hins vegar mun Það vekja athygli í Júgóslavíu að Larsen kemur með konu sína sem sinn eina fararstjóra. „Eg hef aldrei lagt mikið upp úr aðstoðarmönnum, segir Larsen. Danska Skáksambandið hafði þó boðið mér, að fá íslendinginn Friðrik Ólafsson með mér Hann er snjall strákur, og okkur kemur vel saman, en þar sem hann gat Framhald á 12. síðu inum þangað í dag. MikiII við- búnaður er í sambamdi við mótið aukin umferðargæzla á vegum til Laugarvatns og eftir hádegið í dag verður tekinn upp einstefnu akstur að staðnum frá vegamótun um við Svínavatn i Grímsnesi og enn fremur við Lyngdalsheiði frá Þingvallavatni. Veðurguðirnir virðast ætla að verða hinní ungu íþróttaæsku, sem áir- að Laúgarvátni, hliðhollir, þvi spáð er góðu veðri yfir helgina. Mótið hefst kl. 9 f. h. í dag og ganga þá keppendur fylktu liði inn á nýja leikvanglnn, sem verð ur vígður af menntamálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasyni. Á undan vígsi unni flytur Árni Guðmundsson, skólastjóri íþróttakennaraskólans, ávarp. Setningarræðu flytur sr. Eiríkur J. Eiríks, en að því búnu hefst keppni í hinum ýmsu grein um og verður keppt fram eftir degi, en um kvöldið verður kvöld vaka og síðan stiginn dans. Afrekaskrá Skarphéðins Út er komin afrekaskrá Skarp- héðins í súndi og frjálsíþróttum, hið vandaðasta rit í skemmtilegu broti, sem nær yfir beztu afrek HSK frá 1910 allt til ársins 1965. Ólafur Unnsteinsson, hinn kunni frjálsíþróttamaður, hefur haft veg og vanda af útkomu ritsins, en út- gefandi er Héraðssambandið Skarphéðinn. Þess má geta, að afrekaskráin verður seld á .-landsmótinu á Laugarvatní. VÍKÍNGUR GEGN HERIEV Á sunnudagskvöld, þ.e. annað kvöld, leikur danska unglingalið- íð, frá Herlev, sem hér dvelst á vegum Víkings, sinn síðasta leik i förinni hingað og mætir þá gest gjöfum sínum. Leikurinn fer fram á Melavellinum og hefst kl. 20.30 í fyrrakvöld léku dönsku piltarnir gegn íþróttabandalagi Vestmanna eyja, 2 aldursflokkí, og sigruðu 3:2. Búast má við skemmtilegum leik milli Herlev og Víkings ann að kvöld. Mótið heldur svo áfram strax á sunnudagsmorguninn og verður keppt allan daginn og mótinu síð an slitið um kvöldið. Nánar er sagt frá mótinu á útsíðu. Vandað blað um lands- leikinn í dag kemur út vandað blað í sambandi við lands- leik fslands og Danmerkur i knattspyrnu, sem verður á mánudaginn. Blaðið er i dag blaðsformi og ber heitið „ALLT UM LANDSLEIK- INN“. í blaðinu, sem er 12 síður, er að finna margs konar fróðleik um fyrri landsleiki okkar gegn Dön um og kennir margra grasa. T. d. vita víst fáir, að einn leikmanna ísl. liðsins lék rif beinsbrotinn heilan lands- leik gegn Dönum — og einn landsliðsmanna skoraði mark í lanösleik án þess að sjá það. Þetta kemur fram í viðtöl um við fyrrverandi leik- menn. f blaðinu er t. d. rætt við Albert Guðmundsson, sem lék fyrsta landsleik fs- lands, einnig Brand Bryn- jólfsson, sem var fyrirliði íslenzka liðsins í fjTSta leiknum. Þá er rætt við Svein Teitsson, Halldór Halldórsson, Sæmund Gísla- son ,Svein Helgason, Hörð Felixson o. fl. o. fl. Þá er auðvitað að finna í blaðinu allar upplýsingar um landsleikinn, sem verður á mánudaginn. myndir af Ieikmönnum og upplýsingar um þá. Til hægðarauka er svo liðunum stillt upp. Þá má geta þess, að nokkrir þekktir borgarar spá um úrslit og líklega mun spá- dómur Svavars Gests koma mörgum á óvart. Blaðið verður selt á göt um borgarinnar í dag og alveg fram að landsleiknum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.