Morgunblaðið - 30.10.1980, Page 1
48 SÍÐUR
241. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
Prentsmiðja Morgunhlaðsins.
„Rússar hafa drepið
yfir milljón Afgana44
Frankfurt. 29. október. — AP. ------------iii—
Frambjóðendur banda-
rísku stjórnmálaflokk-
anna við forsetakosn-
inKarnar í næstu viku
leggja áherzlu á mál
sitt í sjónvarpskapp-
ræðu í fyrrinótt.
Simamynd — AP.
MOHAMMED Paktiawal fulltrúi Afganistans á þingi
Menningar- og framfarastofnunar SÞ í Belgrað, er sótti
um hæli í V-Þýzkalandi eftir að hafa fordæmt mjög
harkalega innrás Sovétmanna í Afganistan á þinginu,
kenndi Sovétmönnum um dauða yfir milljón Afgana frá
því í innrásinni í desember í viðtali við vestur-þýzka
blaðið BILD, er skýrt var frá í kvöld.
„Rússar hafa drepið yfir eina
milljón saklausra Afgana, þar á
meðal konur og börn, frá því að
þeir réðust inn í landið," sagði
Patkiawal í viðtalinu. „Og frá því
að kommúnistar komust til valda
1978 hafa 16.000 námsmenn, há-
skólalærðir menn og kaupsýslu-
menn verið teknir af lífi í
aðalfangelsi Kabúlborgar,“ sagði
hann ennfremur.
Prestar fá
að giftast
Vatikaninu. 29. október — AP.
JÓHANNES Páll páfi annar
hefur ákveðið að veita undan-
þágur frá 1.500 ára gömlum
reglum kaþólsku kirkjunnar
og veita prestum leyfi undir
ákveðnum kringumstæðum til
að ganga i hjónaband.
Talið er að þessi ákvörðun
muni að einhverju leyti koma í
veg fyrir það að þúsundir
presta snúi við kirkjunni ár-
lega. Að jafnaði láta um fjögur
þúsund prestar á ári af
prestskap vegna ákvæðanna
um einlifi. Nú liggja umsóknir
frá um fimm þúsund prestum
hjá Vatikaninu um leyfi til
hjúskapar.
Paktiawal sagði einnig í viðtal-
inu, að hin borgaralega stjórn
Babraks Karmals réði engu í
landinu, völdin væru í höndum
æðstu manna hersins. Hann
sagði að Sovétmenn réðu lögum
og lofum í Kabul og örfáum
öðrum stórum borgum, en að
frelsissveitir réðu sléttunum og í
fjallahéruðunum.
Ennfremur sagði hann, að
tékkneskir og kúbanskir ráðgjaf-
ar sæu um það hlutverk að þjálfa
afganska stjórnarherinn og að
austur-þýzkum fulltrúum „hefði
verið falið að gera lögreglu og
öryggisvörzlu í landinu fyrsta
flokks“.
Samtök afganskra uppreisn-
armanna lýstu því yfir í dag, að
skæruliðar hefðu gert árás á
Jalalabadflugvöll í austurhluta
Afganistan á laugardag og eyði-
lagt a.m.k. tvær sovézkar árásar-
þyrlur og valdið þar þó nokkru
tjóni.
Uppreisnarmenn gerðu árás á
þennan sama flugvöll í síðasta
mánuði og ollu þá einnig tjóni á
hergögnum sovézka innrásarliðs-
ins. Hins vegar fóru engar fregn-
ir af mannfalli í gerðum þessum.
Jalalabad er miðstöð Nangarh-
arfylkis við landamæri Pakist-
ans.
Unnu álíka fylgi í
röðum óákveðinna
WashinKton. 29. október. — AP.
JIMMY Carter og Ronald Reag-
an framhjóðendur bandarísku
stjórnmálaflokkanna við forseta-
Irösk sprengjuflugvél
skotin niður við Qom
Beirút, 29. október. — AP.
ÍRANIR sögðust í dag hafa skotiö
niður langdra'ga Tupolev sprengju-
flugvél fyrir írökum nærri hinni
helgu borg Qom þar sem Khomeini
erkiklerkur hefur höfuðstöðvar sín-
ar, en ekki var þess getið hvort
sprengjum hefði verið varpað á
horgina, sem ekki hefur verið 1
viglínu í stríði írana og íraka
hingað til. Einnig sögðust tranir
hafa skotið niður sprengjuflugvél
af sömu gerð við Isfahan.
1 tilkynningu írönsku herstjórnar-
innar var skýrt frá miklum loftárás-
um stórskotaliðs á skotmörk í írak,
þ.á m. hefðu orrustuþotur valdið
miklu tjóni í stærstu olíuhreinsun-
arstöð íraka við Baghdad og í
hafnarborginni Basra. Þá hefðu ír-
anskar hersveitir hrint skriðdreka-
árásum Iraka á Abadan.
Af hálfu yfirvalda í írak var því
mótmælt að íranskar orrustuþotur
hefðu valdið miklu tjóni á olíustöð-
inni við Bagdad. Þá voru fregnir frá
írak af manntjóni talsvert lægri en
íranir hermdu að fallið hefðu í dag.
íranska þingið ræddi gíslamálið í
dag fyrir luktum dyrum, og haft var
eftir einum þingmanna að sam-
komulag hefði verið um ný skilyrði
fyrir framsali gíslanna, en ekki hefði
náðst samstaða um öll atriði máls-
íns, m.a. um þær kröfur að auði
keisara yrði skilað. Búist er við að
málið verði til lykta leitt á morgun,
fimmtudag, að sögn talsmanns
þingsins og skilyrðin fyrir framsali
gíslanna þá kunngerð. Sænska út-
varpið hafði í dag eftir Sadegh
Khalkali æðsta dómara byltingar-
dómstólanna og þingmanni í íranska
þinginu að yfirvöld í Teheran vildu
skipta á gíslunum og bandarískum
vopnum, helzt fyrir forsetakosn-
ingarnar næstkomandi þriðjudag.
Einn af nánustu samstarfs-
mönnum Carters forseta sagði í dag,
að Khomeini erkiklerkur þjáðist af
krabba í þörmum og ætti „mjög
skammt eftir ólifað“.
kosningarnar í næstu viku unnu
álíka marga óákveðna kjósendur
á sitt band samkvæmt skoðana-
könnun AP-íréttastofunnar
skömmu eftir kappra'ður þeirra i
sjónvarpi í gærkvöldi. Jókst fylgi
hvors um sex prósent. Samkvæmt
könnuninni horfðu fleiri stuðn-
ingsmenn Reagans á kappræð-
urnar og sögðu 16 af hundraði
aðspurðra að hann hefði staðið
sig betur en Carter, sem 36%
sögðu að staðið hefði sig hetur.
Konnunin leiddi einnig í Ijós að
hvorugur vann fylgi af hinum
svo að talandi sé um.
Fréttaskýrendur voru þeirrar
skoðunar að Carter hefði verið
málefnalegri en Reagan. Á einum
stað sagði að Reagan hefði fært
sér í nyt leikarahæfileika sína til
hins ýtrasta og líklega unnið hug
kjósenda með látbragði og
leikaratöktum.
Sjö útvaldir sérfræðingar fylgd-
ust með kappræðunum í sjón-
varpssal og gáfu frambjóðendun-
um stig fyrir frammistöðuna.
Hlaut Reagan 161 stig og Carter
160, en dómararnir gátu gefið
hvorum allt að 30 stig. Þrír
dómaranna dæmdu Reagan mjög
nauman sigur, tveir dæmdu Cart-
er sigur og tveir gáfu hvorum jafn
mörg stig.
Sjá nánar fréttir af kappræðun-
um á bls. 22 og 23.
Drottningu sýnd óvirðing í Marokkó
Hretum þ<)tti í gær sem þjóðhöfð-
ingja þeirra. Elísahetu drottn-
ingu, hefði verið sýnd óvirðing i
opinherri heimsókn drottningar
til Marokkó og létu hrezk blöð
úspart í Ijós vanþóknun sina á
Hassan konungi og hirð hans af
þvi tilefni.
Á þessari símamynd AP, sem
tekin var í gær á sjónleik sem
haldinn var til heiðurs drottningu,
virðist Elísabet mæðuleg á svipinn,
og Hassan konungur, sem er lengst
til hægri, er heldur ekki með
hugann við það sem fram fer.
Fregnir bárust af því að kastast
hefði í kekki með gestgjöfunum og
gestunum í heimsókninni vegna
„ýmissa furðulegra ráðstafana"
gestgjafanna.
Sprenging
Peking
r
1
Peking. 29. október. — AP.
SPRENGING varð á aðaljárn-
hrautarstöðinni í Peking í dag,
og herma óstaðfestar fregnir að
um 20 manns hefðu týnt lífi.
Yfirvöld og lögregla forðuðust
allra fregna af sprengingunni
og að hvað hefði valdið henni. en
sjónarvottur sagði. að slysið
hefði orðið í lyftu og að 20 hefðu
farist eða særst.
Stöðugur straumur sjúkrabíla
var til og frá stöðinni. Þúsundir
manna söfnuðust saman í ná-
grenni við járnbrautarstöðina, en
engin verksummerki var að sjá á
stöðinni utanfrá og járnbrautar-
ferðir röskuðust ekki, en farþeg-
ar voru látnir fara inn og út af
stöðinni um hlið til hliðar við
aðalinnganginn.