Morgunblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
UfllHOItP
Umsjón:
Gústaf Níelsson
-
Tími umræðu er senn úti,
aögerða er þörf
Úr álitsgerö ungra sjálfstæðismanna um framboðsmál Sjálfstæöisflokksins:
Undanfarin misseri hafa átt sér stað miklar umræður innan
stjórnmálafiokkanna um kjördæmaskipan og kosningalöggjöf
og stjórnarskrárnefnd hefur haft málið til athugunar í áraraöir,
en hana skipa fulltrúar allra flokka. Þykir mörgum sem nú ætti
tíma umræðu senn að Ijúka, en tími framkvæmda að taka við.
í tengslum við þessa umræðu hefur jafnframt farið fram
umræða um framboðsmál flokkanna sjálfra og er nú svo komið
aö allir hafa þeir tekiö upp prófkosningar í einhverri mynd,
sem eru þó mismunandi áhrifamiklar um röðun á framboðs-
lista.
Sl. vor skipaði stjórn SUS þá Jón Orm Halldórsson, Ólaf
Helga Kjartansson og Pétur Rafnsson til þess að gera úttekt á
framboðsmálum Sjálfstæðisflokksins. Lögðu þeir álitsgerðir
sínar ffyrír stjórn SUS 25. okt. sl. Kom þar margt fram, m.a.
atriði um megin kosti og galla prófkosninga, bent á leiðir til
úrbóta, um hlut ungra manna á framboðslistum flokksins o.ffl.
Pétur Rafntson
Kostir og gallar
prófkosninga
í raun og sannleika hafa
alltaf staðið deilur um rétt-
mæti prófkosninga innan
Sjálfstæðisflokksins og
margir hafa ekki viljað viö-
urkenna þau. Hefur þetta
ástand verulega skaðaö
flokkinn og er nú svo
komið að bráðnauðsynlegt
er aö komast að niður-
stöðu um fyrirkomulag
framboðsmála. Fáir munu
þó vera þess fýsandi aö
hverfa aftur til fyrra fyrir-
komulags, þegar fámennar
kjörnefndir höföu í raun
uppstillingu lista í hendi
sér, en í sltkum nefndum
sátu oft menn, sem litu á
forystu flokksins á hverjum
tíma sem umbjóöanda
sinn.
í álitsgerð þeirra þre-
menninga kemur m.a. fram
að helstu kostir prófkosn-
inga séu: Lýöræðisleg
Otafur Haigi Kjartanston
vinnubrögð, þar sem öllum
flokksmönnum er gefinn
kostur á aö hafa áhrif á val
frambjóðenda. — Minni
hætta á klofningi viö fram-
boð, þar sem menn sætta
sig fremur við niöurstöðu
fjöldakosningar, en niður-
stöðu fámennra fulltrúa-
samkoma.
Aftur á móti benda þeir
á þaö aö prófkosningar
hafa aldrei veriö haldnar í 4
af 8 kjördæmum landsins
og aö reglum hafi verið
breytt eöa hnikað til í
hinum kjördæmunum.
Þannig hafi deilur um regl-
ur komiö í veg fyrir fram-
kvæmd prófkosninga í
ákveðnum kjördæmum og
reglum veriö breytt annars
staöar, að því er viröist til
þess að hafa áhrif á út-
komu kosninganna, en
niöurstööur þeirra geta
verið mjög háðar slíkum
reglum.
Megingallar prófkosn-
Jón Ormur HaHdóruon
inganna hafa því verið
þessir: Skort hefur skýrar
almennar reglur um fram-
kvæmd þeirra og bein
ákvæöi um að þær skuli
alfariö notaöar viö uppstill-
ingu framboðslista flokks-
ins.
Prófkosningar hafa í
nokkrum tilfellum dregiö
mjög úr þrótti flokksins til
að heyja kosningabaráttu.
Prófkosningar hafa ekki
haft þau jákvæöu áhrif til
endurnýjunar og yngingar
á þingliði flokksins, sem
ungir sjálfstæðismenn von-
uöust eftir.
Þrátt fyrir þá ágalla, sem
fram hafa komið benda
þeir þó á þaö aö prófkjör
eigi aö vera sú grundvall-
arregla, sem nota beri við
val frambjóðenda.
Leiðir til úrbóta
í álitsgeröinni er bent á
ýmsar leiöir til úrbóta og
eru þessar helstar: —
Setja þarf í skipulagsreglur
flokksins fortakslaus
ákvæöi um meöferö
framboðsmála hans um
land allt. Nokkurt svigrúm
má veita vegna mismun-
andi aöstæöna, en deilur
um meginatriði þarf að
útiloka með setningu al-
mennra reglna, sem gilda
þar til landsfundur ákveöur
ööru vísi. — Að þrófkjör
veröi bindandi fyrir þá sfem
hljóta 50% eða meira af
heildaratkvæöamagni. —
Aö kosning sé bundin viö
yfirlýsta frambjóðendur og
sérstakur framboösfrestur
settur og tala meömæl-
enda fast sett viö nokkru
hærra mark en var viö
síöasta prófkjör. — Aö
samræma aðgang fram-
bjóöenda aö félagaskrám
og öörum gögnum. Enn-
fremur kemur til álita aö
fastsetja aö prófkjör fari
fram eigi síöar en t.d. þrem
árum eftir síðustu Alþing-
iskosningar, bæöi til þess
aö draga úr líkum á próf-
kosningabaráttu samfara
kosningabaráttu og enn-
fremur til þess aö gefa
tíma til aö græöa hugsan-
leg sár aöila eöa afla innan
flokksins, sem undir kunna
aö verða.
Prófkjör inn í kjörklefana
Annar möguleiki sem
nefndur er í álitsgerðinni er
sá aö færa prófkjör inn í
kjörklefana meö stjórn-
arskrárbreytingu um leið
og breytingar veröa geröar
á kjördæmaskipan og
kosningalöggjöf. Er m.a.
bent á þann möguleika aö
stilla upp lista á gamla
mátann eöa meö bundnum
kosningum í kjördæmis-
ráöum úti á landi og í
fulltrúaráöi í Reykjavík.
Þannig gætu á annað þús-
und flokksmanna í Reykja-
vík tekiö þátt í uppstillingu
listans á lokuðum fundi,
sem hægt væri aö efna til
með mun skjótari hætti en
prófkjörs. Listi þessi væri
þó engan veginn bindandi
fyrir kjósendur og þeir
beinlínis hvattir til aö
breyta rööun listans, ef
þeir teldu aðra rööun
heppilegri. Þannig fengi
flokkurinn öll þau atriöi,
sem lista hans væru greidd
og þingmannatölu í sam-
ræmi viö þaö, en einstakl-
ingar gætu færst verulega
til á lista. Víöast mun þetta
kerfi ekki leiöa til innbyröis
deilna milli frambjóðenda,
heldur þvert á móti hvetja
menn mjög til dáöa í kosn-
ingabaráttu. Kerfi sem
þetta felur í sér alla kosti
prófkjörs og er laust viö
tvo af þeim megingöllum,
sem aö framan voru taldir.
Hlutur ungra manna á
framboðslistum flokksins
í samanburöi viö aöra
flokka í landinu má meö
sanni segja aö hlutur ungra
manna á framboðslistum
flokksins sé í rýrara lagi,
a.m.k. hvaö varðar kosn-
ingar til Alþingis, og munu
fáar raddir uppi um þaö,
aö núverandi þingflokkur
Sjálfstæöisflokksins sé
blómi flokksins, hvaö varö-
ar atgervi eöa yfirleitt
nokkuö þaö annaö er máli
skiptir. Flestir munu raunar
þeirrar skoöunar aö heldur
hafi sigiö á ógæfuhliöina á
seinni árum.
Viö kosningarnar 1971
var yngsti frambjóðandi
Sjálfstæöisflokksins í
væntanlegu þingsæti 31
árs og sá næst yngsti 39
ára og sá þriöji yngsti 40
ára aö aldri. Viö kosn-
ingarnar 1974 var sá yngsti
í vinnanlegu þingsæti 35
ára og var einn innan við
fertugsaldurinn. Viö kosn-
ingarnar 1978 var sá yngsti
35 ára og annar var 39 ára.
Viö ^osningarnar áriö eftir,
1979, var sá yngsti 36 ára
og annar fertugur. Aörir
„ungir“ frambjóöendur
voru teknir aö hallast aö
fimmtugu.
Aldur er aö sjálfsögöu
ekki einhlítur mælikvaröi á
dug eöa ferskieika manna
en greinilegt er, aö hér
hefur illa tekist til og er
Sjálfstæðisflokkurinn nú
nánast sér á báti hvaö
þetta varðar. Eru þessar
staöreyndir sérstaklega at-
hyglisveröar, m.a. fyrir þá
sök, aö u.þ.b. helmingur
kjósenda í landinu er 40
ára og yngri.
G.N.
Kynning á ís-
lenzkum listíðnaði að
Hafnarstræti 3
liRZLIININ ísienzkur heim-
iðnaður, Hafnarstræti 3,
fur ákveðið að gangast fyrir
nninífu á íslenzkum listiðn-
aði eftir hjónin Katrínu Ág-
ústsdóttur og Stefán Hall-
dórsson. Eru það kjólar,
svuntur, dúkar o.fl. Kynning
þessi mun hefjast með tízku-
sýningu í verzluninni kl. 19 í
dag og á morgun, föstudag, á
sama tíma.
yviyvTi
Norræna húsið
í kvöld:
Lifnaðarhætt-
ir starans
FUGLAVERNDARFÉLAG íslands
byrjar vetrarstarf sitt með fundi í
Norræna húsinu í kvöld, fimmtu-
dag, en þar sýnir Skarphéðinn
Þórisson litskyggnur og segir frá
lifnaðarháttum starans, sem nam
hér land fyrir nokkrum árum.
Fundurinn hefst kl. 20.30, en í
vetur mun félagið hafa á sama hátt
og undanfarin ár, að efna til
fræðslufunda með áhugamönnum
og sérfræðingum í fuglavernd einu
sinni í mánuði.