Morgunblaðið - 30.10.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
5
Hausthappdrætti
Sjáfistaeðisflokksms
HAUSTHAPPDRÆTTI Sjálí-
stæðisflokksins er nú að hefjast.
Miðar hafa verið sendir út til
fiestra flokksmanna. en enn eiga
nokkrir eftir að fá sina miða.
Dre»íið vcrður í happdrættinu
þann 15. nóvember 1980 og er
drætti aldrei frestað. Að þessu
sinni eru tveir vinningar í happ-
drættinu, Toyota-bifreið að verð-
mæti kr. 7,7 miiljónir og mynd-
segulbandstæki að verðmæti kr.
1,6 miiljónir. Heildarverðmæti
vinninga er þannig krónur
9.350.000,-.
Og vinningarnir ganga áreiðan-
lega út, sagði Kjartan Gunnarsson
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, vegna þess að við drög-
um aðeins úr seldum miðum.
Kjartan sagði, að happdrætti
Sjálfstæðisflokksins sem að jafn-
aði væru haldin tvisvar sinnum á
ári, eða vor og haust, væru ein
allra hejzta tekjuöflunarleið
flokksins. í happdrættunum gæf-
ist hinum almenna flokksmanni
og öðrum stuðningsmönnum
flokksins gott tækifæri til að sýna
stuðning sinn við flokkinn í verki.
Upp á síðkastið hefur dálítið verið
skrifað um fjármál Sjálfstæðis-
flokksins, sagði Kjartan. Ég ætla
ekki að svara því neinu hér, en það
má öllum vera ljóst, að það er dýrt
að reka stóran flokk og við þurfum
á miklu fé að halda um þessar
mundir.
í bréfi sem undirritað er af
formanni flokksins Geir Hall-
grímssyni og framkvæmdastjóra
hans segir m.a.:
„Öflug starfsemi Sjálfstæðis-
flokksins krefst stöðugrar fjáröfl-
unar frá stuðningsmönnum
flokksins. Happdrætti flokksins
eru ein helzta leið flokksins til
fjáröflunar vegna flokksstarfsins.
Mikil verkefni eru framundan í
íslenzkum stjórnmálum. Treysta
þarf frelsi og framtíð landins og
bæta hag og afkomu þjóðarinnar.
Þessi verkefni verða aðeins leyst
af öflugum Sjálfstæðisflokki. Því
ríður á, að Sjálfstæðismenn herði
baráttuna fyrir góðum máistað og
efli samtök sín. Við biðjum alla,
sem styðja markmið og stefnu
Sjálfstæðisflokksins að sameinast
um að happdrættið megi skila sem
skjótustum og allra beztum ár-
angri."
Eg vil eindregið taka undir þá
greiðsluhvatningu sem fram kem-
ur í þessu bréfi, sagði Kjartan
Gunnarsson að lokum. Það er
óskaplega mikilvægt að flokks-
menn geri sér fulla grein fyrir því
að öflugt flokksstarf krefst um-
talsverðra fjármuna og þeir fjár-
munir geta hvergi annars staðar
komið frá, heldur en frá flokks-
mönnum sjálfum.
Skil í happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins má í Reykjavík gera í
skrifstofu flokksins í Valhöll við
Háaleitisbraut 1, en út um land
hjá umboðsmönnum happdrættis-
ins á hverjum stað, en ávinningur
að happdrættinu úti á landi renn-
ur til flokksstarfseminnar í við-
komandi kjördæmi.
HAUSTHAPPDRÆTTl
T7ECHSF LOK KSINS 1980
vwro Kr. 2000,- DREQO 15. NÓVEMBER «80
Lundúnaferðir Útsýnar vikulega
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN gengzt fyrir ódýrum Lundúnaferð-
um i hverri viku yfir vetrarmánuðina, eins og hún hefur gert
mörg undanfarin ár.
Auk vikuferðanna, sem standa
frá laugardegi til iaugardags, er
einnig boðið upp á helgarferðir frá
fimmtudegi til þriðjudags með
meira en helmings afslætti á
fargjaldi. Gist er á þekktum hótel-
um í miðborginni, sem liggja vel
við viðskiptaerindum og leikhúss-
og skemmtanalífi heimsborgar-
innar. Á næstunni býður Útsýn 2
ferðir með sérstökum vildarkjör-
um, sem byggð eru á leiguflugs-
kjörum og stórlækkuðu verði á
gistingu. Eru það helgarferðir frá
laugardegi til þriðjudags með
innifalinni gistingu, með enskum
morgunverði, flutningi milli
Heathrow-flugvallar og hótels og
fararstjórn fyrir aðeins 191 þús-
und, en almennt fargjald er nú kr.
353.600. Fyrri ferðin stendur 8,—
11. nóvember er hin síðari 29.
nóv,—2. des. Fararstjóri Útsýnar í
Lundúnaferðum er Kristín Hauks-
dóttir, sem stundar þar nám í
leikhúsfræðum og er þaulkunnug
borginni og leikhúsviðburðum.
Útsýn vekur athygli á rang-
hermi í fréttatilkynningu Sam-
vinnuferða-Landsýnar í Mbl. 26.
þ.m., um fyrsta leiguflugið með
Boeing 727-200, sem hafi farið á
vegum Samvinnuferða. Fyrsta
leiguflugið með þessum nýja far-
kosti Flugleiða hf. var á vegum
Útsýnar til Malaga hinn 2. október
sl. og með þeirri flugvél fljúga
Útsýnarfarþegar í Lundúnaferð-
um sínum
(Fréttatiikynning frá Útsýn).
Sýningu Braga lýk-
ur næsta sunnudag
Aðgangur ókeypis fyrir skólanemendur
AÐ Kjarvalsstöðum stendur
nú yfir umfangsmesta sýning
myndlistarverka sem sett hef-
ur verið upp í húsinu til
þessa.
Er um að ræða yfirlitssýningu
Braga Ásgeirssonar sem spann-
ar 33 ára feril hans á myndlist-
arvettvangi, sem mikla athygli
hefur vakið. Sýningin stendur of
stutt yfir, en henni lýkur á
sunnudagskvöld, 2. nóvember.
Til þess að gefa sem flestum
tækifæri til þess að skoða hana
býður Bragi skólanemendum í
fylgd með kennurum eða gegn
framvísun skólaskírteina ókeyp-
is á sýninguna á fimmtudag og
föstudag (í dag og á morgun).
ÍJPT0FRA-
DISKURINN
Ryksugan sem svífur
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun. vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rúmar 12 lítra, já 12 lítra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur lettasta ryksuga sem völ er á, hún liður um
gólfið á loftpúöa alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hún.
Eg erléttust...
búin 800Wmótor
og 12 lítra rykpoka
(Made inUSA)
Verö kr.
139.900.-
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
HOOVER er heimilishjálp