Morgunblaðið - 30.10.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
11
Krabbameinsfélagið:
Yiimingar fyrir 34
millj. í happdrætti
Hausthappdrætti Krabba-
meinsfélagsins er nú hafið eins
og kunnugt er þeim mörgu sem
hafa fengið miða senda heim.
Aðalvinningurinn er 5 manna
fólksbifreið Volvo 345 GLS
(Grand Luxe Super) af árgerð
1981. Þá eru tveir bílar að eigin
vali fyrir 6,5 og 5,5 milljónir
króna, fjögur Philips VCR 2020
myndsegulbandstæki og fimm
700 þúsund króna hljóm-
tækjavinningar. Heildarverð-
mæti þessara 12 vinninga er
meira en 34 milljónir króna en
hver happdrættismiði kostar
1300 krónur.
Volvo bíllinn verður fyrst til
sýnis í Bankastræti og síðan í
Austurstræti þegar nær líður
drætti. Verða miðar að venju
seldir í bílnum. Jafnframt eru
seldir miðar og veittar upplýs-
ingar á skrifstofu happdrættis-
ins í Suðurgötu 24.
Dregið verður 24. desember en
mjög kærkomið að heimsendir
miðar séu greiddir sem fyrst.
Mjólkurvika
verður 3.-9.
nóvember
MJÓLKURDAGSNEFND hefur
ákveðið að efna til sérstakrar
mjólkurviku. Það verður dagana
3. til 9. nóvember. Víðtæk kynn-
ing mun fara fram þessa daga á
helstu mjólkurafurðum.
Dagana 3.-7. nóvember verð-
ur nemendum í grunnskólum
utan höfuðborgarsvæðisins gef-
inn kostur á að heimsækja
mjólkurbúin. í Reykjavík og
nágrannabyggðum hafa á vegum
Mjólkursamsölunnar verið
skipulagðar heimsóknir ákveð-
inna bekkja í grunnskólunum.
Þessar kynnisferðir í Mjólkur-
samsöluna verða flesta virka
daga í vetur. Nemendurnir fá
nokkra fræðslu um vinnslu
mjólkurinnar og starfsemi
Mjólkurstöðvarinnar, þeim verð-
ur sýnd kvikmynd og boðið upp á
mjólkurdrykk.
Dagana 6.-9. nóvember verð-
ur sýning og markaður í húsi
Osta- og smjörsölunnar að
Bitruháísi 2 í Reykjavík. Fram-
leiðsluvörur einstakra
mjólkursamlaga verða sýndar og
gefnar verða bragðprufur af
nýjum og gömlum tegundum af
ostum, jafnframt sem þessir
ostar verða seldir á staðnum.
Sýnikennsla verður alla dagana,
þar sem leiðbeint verður um
tilbúning ýmissa mjólkurrétta.
Sýnikennslan verður á vegum
Osta- og smjörsölunnar og
Mjólkursamsölunnar.
Seldar verða að minnsta kosti
tvær tegundir af tertum: rjóma-
ostterta og skyrterta. Þá verða
einnig seldir kynningapakkar
með mismunandi mjólkurvörum.
Hlutavelta verður í gangi alla
dagana, vinningar verða ýmsar
mjólkurafurðir. Samtímis sem
kynnt verður léttmjólk og
óblönduð jógurt, mun fara fram
nokkurs konar neytendakönnun.
Kvikmyndasýningar verða
alla dagana, þar sem sýndar
verða stuttar fræðslumyndir um
framleiðslu og vinnslu mjólkur.
Aðgangur verður ókeypis.
Ágóða af happdrættinu er
varið til starfsemi og fram-
kvæmda á vegum krabbameins-
samtakanna svo sem til skipu-
lagðrar krabbameinsleitar,
frumurannsókna, krabba-
meinsskráningar og víðtækrar
fræðslu- og útgáfustarfsemi
fyrir skóla og almenning. Hafa
landsmenn fyrr og síðar veitt
samtökunum ómissandi stuðn-
ing til alls þessa með þátttöku
sinni í happdrættinu.
(Fréttatilkynning)
Læknamafían
Ný bók eftir
Auði Haralds
Auður Haralds
LÆKNAMAFÍAN, lítil pen bók
eftir Auði Haralds, er nýkomin út
hjá Iðunni. Eftir Auði kom í fyrra
út bókin Hvunndagshetja, þrjár
öruggar aðferðir til að eignast
óskilgetin börn. Vakti sú bók veru-
lega athygli og þótti nýstárleg.
Læknamafían er fyrstu persónu
saga og lýsir þeirri reynslu sögu-
manns (sem er kona) að veikjast og
þurfa að gangast undir læknisað-
gerð á spítala. Þarf hún að heyja
harða baráttu við læknastéttina til
að fá sjálfa sig og sjúkdóm sihn
tekin gild í þvt samfélagi. Það tekst
að vísu að lokum og lýsir sagan
sjúkrahúsvistinni og kynnum af
hjúkrunarfólki og öðrum sjúkling-
um. — Höfundur lætur eftirfarandi
athugasemd fylgja: „Algjör tilvilj-
un ræður því ef persónur bókarinn-
ar líkjast lifandi eða látnu fólki, því
ég hef svo sannarlega lagt mig fram
við að hylma yfir uppruna þeirra.”
Læknamafían er í tuttugu köfl-
um, 178 blaðsíður. Steinholt hf.
prentaði. Ólöf Árnadóttir sá um
útlit kápu.
/
&
Hefur þú
gert þér grein fyrir þMí...
að verö vöru sem liggur á lager í
verslun veróurfljótt „gamalt
verð“. Þegar varan síðan selst á
gamla veróinu og endurnýja þarf
lagerinn er nýja varan dýrari í inn-
kaupi. Þannig fæst aóeins hluti
nýrrar vöru fyrir andviröi þeirrar
eldri. Smátt og smátt tæmist
slíkur lager.
Ef vió viljum þjónustu og vöru-
úrval í versluninni veróa aö gilda
sömu lögmál þar og annars-
staöar í þjóðfélaginu.
Raunvirði vöru er sjálfsagt, líka
í versluninni.
Búum betur að versluninni.
Það er okkar hagur.
viöskipti
&verzlun