Morgunblaðið - 30.10.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
19
Bergur Guðnason um takmörkun vaxtafrádráttar:
Gíf urleg mismunun á aðstöðu
þeirra, sem uppfylla skilyrðin,
og hinna, sem gera það ekki
Þau sýna tékkneska þjóðdansa á Tékkóslóvakíu-hátíð.
Tékkóslóvakíu-hátíð
að Hótel Loftleiðum
„TILGANGUR okkar með
þessu er sá, eins otí raunar
setíir i tilkynningunni. að vekja
athygli fólks á þvi að vaxtafrá-
dráttur einstaklinga. sem ekki
stunda atvinnurekstur. verður í
fyrsta skipti takmarkaður nú á
næsta framtali, það er árið
1981.“ — Þetta var svar Bergs
Guðnasonar lögmanns. er
Morgunbiaðið spurðist i gær
fyrir um tilefni auglýsingar er
hann hefur birt undanfarna
daga til að vekja athygli á
breyttum skattalúgum.
„Þessi breyting er gerð með
lögum númer 7 frá 1980, og þar
er um að ræða endurbætur á
skattalögum númer 40 frá 1978,“
sagði Bergur ennfremur. „Að
mínu mati var þessu ákvæði
hálfvegis laumað inn í skattalög-
in, sagði Bergur, „án þess að það
vekti athygli vegna þess að þetta
kom ekki til framkvæmda við
síðustu skattlagningu. Fyrir
bragðið virðist þetta hafa farið
5
Bergur Guðnason
fram hjá allri opinberri um-
ræðu, en hér er um að ræða
breytingu sem felur í sér gífur-
legan mismun á aðstöðu þeirra
annars vegar, sem uppfylla ekki-
skilyrðin og hins vegar þeirra
sem uppfylla þau samkvæmt
hinni nýju grein skattalaganna.
En í henni segir að það sem
frádráttarbært sé „vaxtagjöld,
afföll og gengistap, enda séu
gjöld þessi vegna fasteigna-
veðskulda til þriggja ára eða
lengri tíma, sem sannanlega eru
notaðar til öflunar íbúðarhús-
næðis til eigin nota.“ — Þetta
ákvæði er sem sé bundið við að
um sé að ræða eigið húsnæði, er
viðkomandi ætli sjálfur að búa í,
ekki væri til dæmis unnt að fá
frádrátt vegna íbúðar númer
tvö. Sama gildir um vaxtagjöld
vegna annarra skulda, sem sann-
anlega er til stofnað vegna
kaupa eða nýbyggingar húsnæð-
is til eigin nota. Slík vaxtagjöld
er þá aðeins heimilt að draga frá
tekjum á næstu skattárum, talið
frá og með kaupári, eða fjórum
árum talið frá því ári sem
bygging er hafin á.
Þetta þýðir það, að menn fá að
vísu að draga frá fasteigna-
veðskuldavexti, sem eru til
þriggja ára eða lengri tíma. Það
er hins vegar alkunna, að öll
vaxtaaukalán eins og þau leggja
sig, þekkjast ekki til þriggja ára
eða lengri tíma.
Þá er þetta auk þess takmark-.
að þannig þegar þessu sleppir, að
frádráttur þessi má aldrei nema
hærri fjárhæð en 15 hundruð
þúsundum króna, en hjá hjónum
helmingi hærra. Skattgreiðend-
ur njóta því ekki þessa hámarks
nema þeir hafi keypt fasteign á
síðustu tveimur skattárum, eins
og ég vék fyrr að, eða þá byggt á
síðustu fjórum árum. — Þó er
þess að gæta í sambandi við
þetta „þak“, að ef um er að ræða
fasteignaveðlán til lengri tím en
3ja ára er ekki skilyrði að
viðkomandi hafi keypt eða byggt
á umræddum árafjölda," sagði
Bergur að lokum, og sagði rétt
að vekja athygli fólks, sem hygði
á fasteignaviðskipti á næstunni,
að hagkvæmt væri að gera það
þegar fyrir áramót.
í DAG hefst „Tékkóslóvakíu-
hátíðin“ í Vikingasal Hótel Loft-
leiða; eins konar kynning á
Tékkóslóvakíu — landi og þjóð.
Að þessari kynningu standa. auk
Hóteis Loftleiða, Ferðaskrifstofa
Kjartans Helgasonar og Sendiróð
Tékkóslóvakíu í Reykjavík.
A Tékkóslóvakíu-hátíð munu
ýms tékknesk fyrirtæki og um-
boðsmenn þeirra hérlendis kynna
tékkneskan iðnvarning og sýna
vörur í sýningarskápum hótelsins.
Ennfremur verða kvikmyndasýn-
ingar í ráðstefnusal.
Ellefu tékkneskir listamenn eru
komnir til landsins og munu þeir
skemmta gestum á hátíðinni og
framreiddur verður matur á
tékkneska vísu. I þessum hópi eru
hljómlistarmenn, dansarar, trúð-
ar og töframaður; allt frægt fólk í
sínu heimalandi.
Hópurinn heimsækir líka stofn-
anir meðan á dvölinni hérlendis
stendur, þ.á m. Reykjalund og
Landspítalann.
Tékkóslóvakíu-hátíðin stendur
fram á nk. sunnudagskvöld, 2.
nóvember.
Tilkynning f rá Húsafelli sf.
og SkattaÞiónustunm sf^ ^
tram.aH áhö «81 sem JJ J*a ““ 30 gr laga nr.
næöi á siðustu 2 nú er því rétti tíminn til aö kaupa
40/1978 meö breyt ^"LN“ skri}stofunni.
ef pú ert aö hugsa um paö. uppi.
Húsafell
Skattaþjónustan st
Abalsteinn Pgfursson
fasteignaSA;.a LMhoH’Zfc'* BergurGuönasoo hdl
Bæiarleibahu! mu I °
_ S. 82023.
Þetta er tékkneskur töframaður.
Verið ©HU
viobuin
MOTORS
vetrinum
Látið fagmenn okkar undirbúa
bílinn fyrir veturinn.
VETRARSKOÐUN INNIHELDUR:
Skipt um kerti og platínur.
Ath. kertaþræðir, kveikjulok og hamar.
Athuguð forhitun og benslnsla.
Þjöppumæling.
Stillt reim á rafal.
Loftsia athuguð.
Mæld olla á vél.
Mæld hleösla, bætt á rafgeymi og ath. geymaskór.
Stillt kveikja og blöndungur.
Stýrisgangur athugaður.
Hemlar athugaðir.
Kúpling stillt.
Athugað hvort leki sé á kælikerfi.
Mældur frostlögur, bætt á ef með þarf.
Athugaðar rúðusprautur og bætt á ef meó þarf.
Rúöuþurrkur athugaðar.
Smurt I læsingar og lamir.
Silicon sett á hurðar- og skottloksgúmml.
Mælt loft I dekkjum og ath. slit á munstri.
Athuguð Ijós.
Ljósastilling.
[hIHEKLAHF
I Laugavegi 170-172 Sími 21240
VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI: Kr. 38.500 og gildir til 1. des. 1980.
Innifaliö i verði: Kerti og platinur.