Morgunblaðið - 30.10.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
Friðrik
tapaði fyrir
Balashov
Bu<*nos Alreti, 29. októbor. — AP.
FRIDRIK Ólafsson tapaOi í níundu
umfcrð alþjoða skákmútsins i Buen-
us Aires fyrir Sovétmanninum Yuri
Balashov. I>ar meú vann Balashov
sína fyrstu skák á mótinu. Friðrik
Kafst upp eftir 35 leiki. Hann stýrði
svortu mönnunum og tefldi vörnina
mjöK veikt eftir uppskipti á drottn-
inKum ok missti peð. Hann átti
mjöK í vök að verjast ok varð að
Kefast upp eftir 35 leiki.
Aðeins einni annarri skák lyktaði
með sigri — Walter Browne vann
MÍKuel Quinteros ok vann þar með
sína fyrstu skák á mótinu. Skák
Bents Larsens ok Jans Timmans fór
í bið eftir 42 leiki ok að söKn
skákskýrenda á Larsen KÓða vinn-
inKsmöKuleika eftir að hafa yfirspil-
að Hollendinginn.
Anatoly Karpov, heimsmeistari,
hefur átt fremur erfitt uppdráttar í
Buenos Aires á eÍRÍn mælikvarða. í
níundu umferð samdi hann um
jafntefli við Lubomir Kavalek eftir
25 leiki. Þá gerðu þeir Oscar Panno
ok Ulf Anderson jafntefli, svo og
Vlastimil Hort og Miguel Najdorf.
Skák Giardelli og Ljubojevic var
frestað vegna veikinda Ljubojevic.
Larsen er nú langefstur á mótinu —
hefur hlotið 7 vinninga og á eina
biðskák. Friðrik hefur aðeins hlotið
2,5 vinninga og á eina biðskák.
Veður
víða um heim
Akureyri -1 skýjað
Amsterdam 15 skýjað
Aþena 20 skýjaö
Berlin 14 skýjað
BrUssel 15 léttskýjaö
Chicago 6 heiöskírt
Feneyjar 10 þoka
Frankfurt 17 heiöskírt
Færeyjar 4 léttskýjaö
Genf 15 léttskýjað
Helsinki 6 skýjaö
Jerúsalem 23 heiöskírt
Jóhannesarborg 28 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Las Palmas 13 skýjaö
Líssabon 21 heiöskírt
London 16 heiöskírt
Los Angeles 28 heiðskírt
Madrid 23 heiöskírt
Malaga 24 skýjaö
Mallorca 21 léttskýjaö
Miamí 29 skýjað
Moskva 1 skýjaö
New York 13 heiðskírt
Osló 5 skýjaö
París 17 skýjaö
Reykjavík 5 rigning
Ríó de Janeiro 39 skýjaö
Rómaborg 23 heiöskírt
Stokkhólmur 7 rigning
Tel Aviv 25 heiöskírt
Tókýó 17 heiðskírt
Vancouver 14 heiðskírt
Vínarborg 18 heiöskírt
Walesa óánægður með
ferðatakmarkanir aust-
ur-þýzkra stjórnvalda
Fleiri oddar í eld-
flaugar Poseidonbáta
WashinKton. 29. októhrr. — AP.
BANDARÍKJAMENN ætla að
fjölga kjarnaoddum í Poseidon-kaf-
hátaflaugum sínum samkvæmt
heimildum í dag.
Kjarnaoddunum mun verða fjölg-
að úr 10 í 14 og sú fjölgun er talin
vega upp á móti áhrifunum af því, að
allir 10 gömlu Polaris-kafbátarnir
verða teknir úr umferð eða breyt-
ingar gerðar á þeim á næstu 14
mánuðum. Þeim möguleika er haldið
opnum að nota suma Polaris-kafbát-
ana fyrir eldflaugabáta lengur en
ráðgert hefur verið.
Bandaríkjafloti á 17 kafbáta búna
Poseidon-flaugum og fjóra Poseidon
báta, sem hafa verið búnir Trident-
flaugum, nýjustu eldflaugagerðinni.
Hver Polaris- og Poseidon-kafbátur
er búinn 16 flaugum, sem draga um
4.800 km.
Trident-bátarnir eru búnir 24
flaugum hver og þær draga um 7.200
km. Trident-flaugarnar eru búnar
átta öflugri kjarnaoddum.
A-Ucrlín. Varsjá. 29. októbcr. — AP.
„ÉG ER ákaflega óánægður
með ákvörðun A-Þjóðverja
um að takmarka ferðalög
milli A-Þýzkalands og Pól-
lands. Við munum reyna að
þrýsta á pólsku stjórnina
um að fá þessu breytt þegar
við ra'ðum við Jozef Pin-
kowski, forsætisráðherra á
föstudag,“ sagði Lech Wal-
esa, leiðtogi Samstöðu —
hins óháða verkalýðsfélags í
Póllandi um ákvörðun
A-Þjóðverja að takmarka
ferðalög milli landanna.
„Nú verða pólskir ríkisborgarar
að fá opinbert boð um heimsókn
til vina og ættingja í
A-Þýzkalandi,“ sagði Valesa
ennfremur. A-Þjóðverjar segjast
hafa sett ferðabann milli land-
anna „aðeins til bráðabirgða þar
til ástandið í Póllandi verður
stöðugt," og var greinilegt, að þar
var átt við frelsisbylgjuna, sem
farið hefur um Pólland undanfarið
og stofnun óháðra verkalýðsfélaga
í landinu.
Stanislaw Kania, leiðtogi pólska
kommúnistaflokksins heldur síðar
í vikunni til Moskvu, að því er
áreiðanlegar heimildir frá Varsjá
herma. Kania- fór í stutta ferð til
Moskvu skömmu eftir valdatöku
sína. Heimildir í Varsjá segja, að
Kania muni gefa sovéskum ráða-
mönnum skýrslu um ástandið í
landinu. Sú ákvörðun a-þýzkra
stjórnvalda, að hefta ferðalög
milli Póllands, svo og deilur
óháðra verkalýðsfélaga nú við
ríkisvaldið í Póllandi hafa gert
ástandið í landinu viðsjárvert. Að
sögn, óttast margir Pólverjar nú
íhlutun Sovétmanna í innanrík-
ismál Póllands. Þá eru Kremlverj-
ar sagðir óánægðir með, að mörg-
um „dyggum Moskvumönnum"
hefur ýerið vikið til hliðar í
Póllandi að undanförnu.
Carrington lávarður, utanríkis-
ráðherra Bretlands kom í dag í
heimsókn til Varsjár. Fyrir kom-
una til Varsjár sagði Carrington,
að Pólverjar einir væru færir um
að leysa vandamál sín. Carrington
er fyrsti vestræni ráðherrann,
sem kemurí heimsókn til Póllands
eftir verkföllin í landinu.
Lech Walesa
Svíþjóð:
Frumvarp um
skattalækkanir
Stokkhólmi. 29. októixT. frá (■uófinnu Ra^narsdóttur fréttaritara Mhl.
SÆNSKA ríkisstjórnin lagði í dag fram frumvarp um
breytingu á sköttum, en samkvæmt henni eiga skattar að
lækka um samtals einn milljarð sænskra króna á næsta ári.
Skattalækkunin á fyrst og fremst að auðvelda samninga
atvinnurekenda og launafólks sem nú eru að hefjast, en
ríkisstjórnin hefur að undanförnu átt langar viðra'ður við
hin ýmsu hagsmunafélög og félög atvinnurekenda.
Fyrstu viðbrögð verkalýðsfé- launafólki. Atvinnurekendur
laganna við skattalækkuninni hafa einnig lýst vanþóknun sinni
voru mjög neikvæð. L.O. (sænska á tillögunni sem hefur í för með
alþýðusambandið) og jafnaðar-
menn héldu því fram að skatta-
lækkunin væri alltof mikil hjá
hálaunafólki og of lítil hjá lág-
Norski Verkamannaflokkurinn:
V axandi andstaða er nú
gegn formennsku Steens
Frá Jan Erik Laure. fréttaritara Mbl. í Osló. 29. október.
NIJ VINNA sterk öfl innan Verkamannaflokksins að því að
setja Reiulf Steen af sem formann flokksins. Þess í stað
hyggjast sömu aðilar koma Gro Harlem Brundtland,
varaformanni flokksins í formannsembættið. Þessi átök
innan Verkamannaflokksins komu berlega upp á yfirborð-
ið í vikunni. En Verkamannaflokkurinn á ekki aðeins í
innbyrðis átökum. Borgaraflokkarnir eru einnig skiptir í
afstöðu til ríkisfjármála. Það verður æ líklegra að
borgaraflokkarnir klofni í afstöðu til fjárlagafrumvarps
Verkamannaflokksins, — að kristilega þjóðarflokkinn og
Miðflokkinn greini á við Hægri flokkinn.
Um langt skeið hefur verið ólga
innan Verkamannaflokksins vegna
formennsku Reiulf Steens. Hann
hefur átt undir högg að sækja og
andstæðingar hans hafa ásakað
hann um linkind. Honum hafi ekki
tekist að sætta nægilega vel and-
stæður innan flokksins og varð-
veita einingu hans. Andstaðan
gegn Steen gengur jafnvel svo
langt, að hörð barátta er gegn
honum í kjördæmi hans, Osló.
Kann jafnvel svo að fara, að hann
missi þingmannssæti sitt. Steen
gegnir nú embætti viðskiptaráð-
herra og svo kann að fara, að
ráðherraembætti hans verði hans
einasta eftir kosningar í Noregi.
Pólitískir fréttaskýrendur í Osló
hafa sagt blaðamanni Mbl. að vel
sé hugsanleg að Gro Harlem
Brundtland, varaformaður flokks-
ins, fari fram á móti Steen til
Reiulf Steen — sætir nú vaxandi
andstöðu i Verkamannaflokkn-
um.
formennsku í flokknum og beri
hærri hlut á flokksþingi.
Dagblöð Verkamannaflokksins í
N-Noregi tóku í sínum leiðurum
afstöðu gegn Reiulf Steen og segja
að skipta beri um formann. Þar
með er andstaða gegn Steen orðin
opinber og víst að átök verða í
vetur innan flokksins. Dagblöðin
tóku afstöðu með Brundtiand sem
formanni og þeim Bjartmar Gerde,
sem nýlega sagði af sér embætti
olíu- og orkumálaráðherra, Rolf
Hansen, umhverfismálaráðherra
og fyrrum varnarmálaráðherra,
sem forustumönnum við hlið
Brundtland.
óeining borgaraflokk-
anna dregur athygli frá
Verkamannaflokknum
Óeining borgaraflokkanna hefur
komið Verkamannaflokknum ákaf-
lega vel, því hún dregur athygli frá
innbyrðis átökum innan flokksins.
Þegar fjárlagafrumvarp Verka-
mannaflokksins verður lagt fram,
munu Kristilegi þjóðarflokkurinn
og Miðflokkurinn leggja fram eigin
skattatillögur. Þessum tveimur
flokkum ásamt Hægri flokknum
hefur verið mjög í mun, að sanna
fyrir kjósendum að þeir geti unnið
saman en snurða er hlaupin á
þráðinn. Hægri flokkurinn hefur
harðlega gagnrýnt skattatillögur
hinna tveggja flokkanna og for-
maður flokksins, Kare Wiloch hef-
ur sagt, að þessar tillögur muni
skaða flokkana þrjá í þingkosning-
unum á næsta ári. Aftenposten
segir í dag í leiðara að Hægri
flokkurinn eigi að íhuga alvarlega
að fara í minnihlutastjórn borg-
araflokkanna vinni þeir kosninga-
sigur í komandi þingkosningum.
1 fjárlagafrumvarpi sínu gerir
Verkamannaflokkurinn ráð fyrir
verulegum skattalækkunum — og
það sem mestum deilum hefur
valdið — til þeirra sem betur eru
settir í þjóðfélaginu. Alþýðusam-
band Noregs hefur brugðist hart
við þessum tillögum. „Það er gegn
stefnu flokksins, að veita hinum
ríku verulegar skattalækkanir —
mun meiri en hinum tekjulægri í
þjóðfélaginu,“ sagði Tor Halvor-
sen, formaður Alþúðusambands
Noregs. Hann segir, að skattatil-
lögurnar séu hrein hægristefna.
Það þarf því engum að koma á
óvart, að Hægri flokkurinn hyggst
styðja fjárlagafrumvarp Verka-
mannaflokksins á Stórþinginu.
Formenn Kristilegra og Miðflokks-
ins hafa harðlega gagnrýnt Will-
och, leiðtoga Hægri flokksins
vegna þessa og hafa látið hafa það
eftir sér, að þessi afstaða hægri
manna muni mjög torvelda mynd-
un borgaralegrar stjórnar, fari svo
að borgaraflokkarnir beri sigur í
þingkosningunum næsta haust.
sér, að af meðal Verkamanns-
launum, sem eru um 60 þúsund
sænskar krónur á ári, borgar
maður 19.331 krónu í skatt á
árinu 1980, en 18.460 á næsta ári.
Hátekjufólk með 120 þúsund
krónur í árstekjur borgar 61.273
krónur en 58 þúsund á næsta ári.
„Við gerum okkur grein fyrir
því, að þessi tillaga uppfyllir ekki
allar kröfur samningsaðila og við
erum viðbúnir neikvæðum við-
brögðum," sagði Rolf Wurtém
fjárhagsáætlanaráðherra, „en
efnahagsástandið leyfir ekki
meiri lækkun og ríkisstjórnin
mun ekki víkja frá þessari til-
lögu,“ sagði hann.
Játaði
njósnir
Baltimore. 29. október. — AP.
FYRRVERANDI starfsmaður CIA,
David H. Barnett, játaði fyrir rétti í
dag, að hann hefði stundað njósnir
fyrir Rússa, og stjórnvöld segja, að
KGB hafi greitt honum 92,600
doliara.
Bæði CIA og FBI hafa yfirheyrt
Barnett um njósnir hans í þágu
Rússa. Saksóknari sagði í réttar-
höldunum, að ríkisstjórnin mundi
enga tillögu bera fram um dóm yfir
Barnett, en vildi skýra frá því að
hann hefði verið samvinnuþýður.
Hámarksrefsing er ævilangt fang-
elsi.
Lögfræðingur dómsmálaráðuneyt-
isins, George Matava, sagði að við-
kvæmustu upplýsingarnar, sem
Barnett hefði látið Rússum í té,
hefðu verið þær, að Bandaríkjamenn
hefðu uppgötvað útvarpstíðni sov-
ézkra SA-2 loftvarnaeldflauga og
þann tíma, sem sovézkir W-kafbátar
gætu verið í kafi.
Upplýsingarnar fengust í CIA-
aðgerðinni Ha-Brink. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum vann Barn-
ett við hana í Indónesíu 1967—’70.