Morgunblaðið - 30.10.1980, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
VIÐSKIPTi
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón Sighvatur Blöndahl
Japan:
Bílaframleiðsla
jókst um liðlega
41% í september
Nýir elektrónískir
fjarritar á markað
Sérfræðingur Olivetti-verksmiðjunnar lengst til vinstri, sést hér
leiðheina starfsmönnum Pósts os? síma í sambandi við viðgerðir á
fjarritunum.
BÍLAFRAMLEIÐSLA japönsku
framleiðendanna jókst um lið-
le^a 41% í september sl., aðallesa
veuna vaxandi eftirspurnar er-
lendis frá, að því cr talsmaður
framleiðendanna saiíði á fundi
með fréttamönnum fyrir
^ikömmu.
Alls voru framleiddir 1.008.800
bílar í september, sem er mesta
VERZLUNARRÁÐ íslands gekkst
í sl. viku fyrir almennum félags-
fundi, þar sem til umfjöllunar
voru hin nýju lög um tekju- og
eignaskatt, sérstaklega hvað varð-
ar reynsluna af þeim. Á fundinum
voru samþykktar þrjár ályktanir
og segir m.a. í fyrstu ályktuninni,
að skorað sé á Álþingi að taka til
endurskqðunar gildandi lög um
tekju- og eignaskatt á grundvelli
tillagna Verzlunarráðsins, sem
byggðar eru á reynslu af fram-
kvæmd laganna.
Ennfremur segir í ályktuninni,
að í tillögum þessum felist breyt-
ingar á lögunum, sem þingmenn
allra flokka ættu að geta samein-
ast um, og þar með stuðlað að
traustu atvinnulífi í landinu og
réttlátari skattlagningu tekna af
atvinnurekstri.
í annarri ályktun fundarins
segir m.a., að á undanförnum
árum hafi álagning óbeinna
skatta á atvinnurekstur aukizt
verulega. Álagning þessara skatta
taki engin mið af raunverulegri
afkomu fyrirtækja, og geti fyrir-
tækjum því verið gert að greiða
háa skatta, jafnvel þótt um stór-
felldan taprekstur sé að ræða. Sé
nú svo komið, að flestir skattar,
sem lagðir séu á íslenzkan
framleiðsla frá upphafi, en áður
hafði framleiðslan mest komist í
liðlega milljón bíla, eða í júlí sl.
Útflutningur á japönskum bíl-
um til Vestur-Þýzkalands jókst
um liðlega 45% á fyrstu átta
mánuðum þessa árs og er þegar
farin að valda miklum áhyggjum í
Vestur-Þýzkalandi, þar sem fram-
leiðsla hefur á sama tíma dregizt
nokkuð saman.
atvinnurekstur séu þessa eðlis. —
„Þegar skattheimtan er orðin svo
mikil, sem raun ber vitni, er þessi
skattastefna stórhættuleg, veldur
verulegum greiðsluerfiðleikum og
getur jafnvel .leitt til gjaldþrota
hjá fyrirtækjum. Skorar fundur-
inn á Alþingi og ríkisstjórn, að
taka þessa skattastefnu til endur-
skoðunar, þannig að skattar fyrir-
tækjanna miðist framvegis ein-
vörðungu við raunverulegar tekjur
þeirra," segir orðrétt í ályktun
fundarins.
Þá segir í þriðju ályktun fund-
arins, að hann telji, að ákvæði
laga um tekju- og eignaskatt, sem
heimila, að skattstjórar ákvarði
mönnum með sjálfstæðan at-
vinnurekstur laun til tekjuskatts,
séu bæði ósanngjörn og ófram-
kvæmanleg. Skorar fundurinn á
Alþingi að fella þegar úr gildi 59.
grein laganna.
Verzlunarráðið hefur sett upp
samandregið yfirlit um breytingar
á lögunum um tekju- og eigna-
skatt og er það eftirfarandi:
1.0 Samræming í skattlagníngu
rekstrarforma.
1.1 Opinber atvinnurekstur
greiði öll opinber gjöld, þegar um
er að ræða beina eða óbeina
samkeppni við skattskyld fyrir-
tæki og einstaklinga.
PÓSTUR og sími hafa ný-
verið flutt hingað til lands
60 elektróníska fjarrita af
Olivetti-gerð, og eru það
fyrstu elektrónísku fjar-
ritarnir, sem hingað
koma. Samfara þessari
nýjung hefur svo verið
ákveðið að gera þá
grundvallarbreytingu á
fjarritaþjónustunni, að nú
verða viðskiptavinir Pósts
og síma að kaupa tækin,
en hingað til hefur stofn-
unin leigt þau.
Þorvarður Jónsson, yfirverk-
fræðingur Pósts og síma, sagði í
samtali við Mbl., að aðalástæðan
fyrir þessari breytingu væri sú,
að komast hjá því, að borga
söluskatt tvisvar sinnum af sama
tæki, þ.e. bæði þegar tækið er
flutt inn til landsins og síðan af
leigunni. Þetta fyrirkomulag
dregur einnig úr fjárfestingu
Pósts og síma. — „Þá kemur
þetta nýja fyrirkomulag líka
betur út fjárhagslega fyrir við-
skiptavini Pósts og síma, því það
tekur tiltölulega skamman tíma
að borga niður heildarverð tæk-
isins, sé miðað við þá leigu, sem
viðkomandi viðskiptamenn þurfa
að greiða fyrir tækin í dag,“
sagði Þorvarður ennfremur.
Útsöluverð hins nýja elektrón-
íska fjarrita er liðlega 3,4 millj-
ónir króna og síðan þarf viðkom-
andi notandi að greiða tæplega
75 þúsund krónur ársfjórðungs-
1.2. Einkarekstur geti verið
sjálfstæður skattaðili, myndað
varasjóð. með sömu takmörkun á
ráðstöfun hans og hjá öðrum og
verið skattlagður eins og annar
atvinnurekstur, en áætlun launa
verði afnumin.
2.0 Endurmat og fyrningar.
2.1. Fyrri fyrningarhlutföll úr
lögunum verði lögleidd að nýju.
2.2. Ársfjórðungslegur verð-
breytingarstuðuil.
2.3. Ibúðarhúsnæði í atvinnu-
rekstri verði fyrnanlegt.
2.4. Kostnaðarverð tækja og
áhalda, sem fyrna má á kaupári,
verði hækkað.
3.0 Aðlögun að nýmælum 53. gr.
3.1. Sérstök fyrning tekjufærslu
hækki úr 50% í 100%.
3.2. I ár verði fyrirtækjum
heimilt að auka eigið fé sitt og
teljist sú aukning með eigin fé í
ársbyrjun.
3.3. Opinber gjöld, nema sölu-
skattur, teljist ekki til skulda við
útreikning tekjufærslu.
4.0 Jafnrétti sparnaðarforma.
4.1. Arður verði að fullu frá-
dráttarbær hjá fyrirtækjum, en'
skattlagður hjá viðtakanda eftir
þeim reglum, sem gilda.
4.2. Áhættufé í atvinnurekstri í
eigu manna verði frádráttarbært
lega. Samkvæmt gamla fyrir-
komulaginu þurftu notendur að
greiða liðlega 930 þúsund krónur
í stofngjald og síðan tæplega 350
þúsund krónur ársfjórðungslega.
Inni í þessum ársfjórðungsgjöld-
um er viðhaldskostnaður tækj-
anna, en Póstur og sími sjá eftir
sem áður um viðhald þeirra.
Þegar hafa verið seldir 11 nýir
fjarritar úr þessari sendingu,
allir til fyrirtækja, sem viljað
hafa endurnýja tækjakost sinn.
Þorvarður sagði, að í landinu
til eignaskatts eins og annað
sparifé.
4.3. Jöfnunarhlutabréf megi
ávallt gefa út miðað við hreina
eign.
5.0 Frádráttur frá tekjum:
5.1. Öll opinber gjöld á því ári
sem stofn gjaldanna myndast.
5.2. Niðurfærslureglur vöru-
birgða verði óbreyttar frá því sem
var við EFTA-inngönguna.
5.3. Sérstakur frádráttur verði
heimilaður vegna rannsókna- og
þróunarstarfsemi.
5.4. Ójafnað rekstrartap megi
draga að jöfnu frá tekjum fyrri og
síðari ára. Bakfærslan nái til
síðustu fimm ára og verði skattur
þá endurgreiddur, en færslan
fram í tímann miðist við endur-
mat eins og nú er.
6.0 Skatthlutföll verði færð í
fyrra horf.
6.1. Tekjuskattshlutfall fari úr
65% í 53%.
6.2. Eignarskattshlutfall fari úr
1,2% í 0,8%.
7.0 Dráttarvextir
7.1. Innheimta dráttarvaxta
miðist við gjaldfallnar afborganir
skatta, sem eru í vanskilum.
7.2. Of innheimtir skattar verði
endurgreiddir með sömu vöxtum
og lagðir eru á vangreidda.
væru liðlega 500 tæki, en það
stæði fjölgun fyrir þrifum, að
númer vantar í telexstöðina. Úr-
bóta er hins vegar að vænta þar á
næstunni, þegar 40 númer bæt-
ast við og síðan önnur 40 á næsta
ári.
Nýju fjarritarnir eru útbúnir
með svokölluðum nálaprentara,
sem teiknar upp stafina, í stað
þess að prenta þá beint eins og
þekkist.
Aðspurður hvers vegna keyptir
hefðu verið fjarritar frá Olivetti,
en ekki einhverju öðru fyrirtæki,
sagði Þorvarður, að Póstur og
sími hefðu á sínum tíma leitað
eftir tilboðum frá sex fremstu
fyrirtækjunum á sviði fjarrita-
framleiðslu og Olivetti hefði ein-
faldlega verið með lægsta tilboð-
ið.
Olivetti-verksmiðjan á Ítalíu
sendi hingað til lands sérfræðing
í viðgerðum fjarrita til að halda
námskeið fyrir starfsmenn Pósts
og síma, og kom fram í viðtali við
Baldvin Jóhannesson, yfirdeild-
arstjóra viðgerðardeildar Pósts
og síma, að námskeiðið hefði
gengið mjög vel.
Landsbanki íslands er ein þeirra
stoínana, sem fengið hefur hina
nýju fjarrita í sína þjónustu, en
þessi mynd var tekin þar á
dögunum.
*
Félagsfundur í Verzlunarráði Islands:
Tekju- og eignaskattslögin
verði endurskoðuð á Alþingi
— Skattar miðist framvegis einvörðungu við raunverulegar tekjur fyrirtækja