Morgunblaðið - 30.10.1980, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
45
, !|f!|
r "mn >s--
= VELVAKANDI
: SVARAR í SÍMA
i 10100 KL. 13-14
' FRÁ MÁNUDEGI
Þökk fyrir
„Camelot"
Bóndakona úr Kjósinni skrifar:
„Ég vil biðja Velvakanda að
koma þakklæti mínu til sjónvarps-
ins fyrir sýningu á myndinni
„Camelot“ sem sýnd var laugar-
daginn 25. þ.m. Þetta var sannar-
lega góð mynd sem allir gátu horft
á og hreif huga manns frá hvers-
dagsleikanum. Mætti sýna fleiri
slíkar, en því miður eru allt of oft
sýndar myndir sem eru ekki þess
virði að eyða tíma sínum á.
Kær kveðja."
Þessir hringdu .
Gerum kröfur
til sjálfra
okkar
E.V. verkakona hringdi til að
þakka grein í Velvakanda-dálkun-
um um vinnusiðgæði. — Þetta
voru orð í tíma töluð hjá mannin-
um. Mér finnst það meira en
athugandi fyrir verkafólk að gera
kröfur til sjálf sín með því að
bæta vinnulag sitt og vinnubrögð
til heilla sínum fyrirtækjum frem-
ur en að gera ávallt einhliða
kröfur til vinnuveitenda. Það ætti
til dæmis ekki að þekkjast að fólk
fari í vinnusloppum út úr frysti-
húsunum til þess að versla eða
jafnvel fara í kaffi í einkahús. Þá
vill líka teygjast úr pásunum. Nei,
gerum fyrst kröfur til okkar
sjálfra, svo til atvinnurekenda.
Stórhýsi Framkvæmdastofnunar:
„Mannvitsbrekka“ skrifar:
„Ekki hefur það farið framhjá
neinum, að Útvarpið mun búa við
þröngan kost niðri á Skúlagötu.
Og eftir því sem skilja má af
útvarpsmönnum gengur það
kraftaverki næst að hægt skuli að
reka Útvarp Reykjavík. — Nú það
gæti annars verið fróðlegt fyrir
almenning að fá um það upplýs-
ingar hve margir starfa við Ríkis-
útvarpið og jafnvel skiptinguna
milli hinna ýmsu deilda.
Nú en nóg um það, því verður
vafaiítið ekki svarað, Velvakandi
góður, því svo viðtekin er sú regla
hjá mörgum opinberum stofnun-
um, að svara ekki fyrirspurnum
viðskiptamanna sinna.
óþörí stofnun
En víkjum aftur að húsnæðis-
leysi útvarpsins. — Gæti ekki
komið til mála að leysa það mál,
með því að afhenda Ríkisútvarp-
inu stórhýsi Framkvæmdastofn-
unar ríkisins, sem að flestra dómi
er stofnun, sem er gjörsamlega
ofaukið í skrifstofuveldi ríkisins?
Eitt sinn voru fögur orð höfð um
að leggja hana niður, þar eð
stofnunin væri óþörf eins og ég
lýsti hér að ofan.
Vilja menn ekki ræða þessa
lausn á húsnæðisvanda Ríkisút-
varpsins og þá væri hægt að gefa
Arbæjarsafni skófluna frægu, sem
Villi á Brekku notaði uppi í
mýrinni á árunum."
Hver má nota bílastæðin
við Tollstöðvarhúsið?
6879—7160 skrifar:
Kæri Velvakandi!
Að gefnu tilefni langar mig að
leggja fram eftirfarandi spurn-
ingar:
1. Er bílastæðið við Tollstöðvar-
húsið eingöngu notað vegna
skrifstofu tollstjóra og Skattstofu.
2. Ef bílastæði fyrir ofangreindar
skrifstofur eru ekki nýtt, er þá
ekki leyfilegt að hinn almenni
skattborgari fái þau lausu til
afnota.
Ofannefnd kom á bílastæði það
er um er rætt mánudaginn 27. okt.
1980 milli 10.30 og 11 og voru þar
nokkur auð stæði svo ég lagði
bílnum mínum á eitt þeirra og
sagði stöðuverði frá. Spurði hann
mig hvort ég ynni hjá Tollinum og
kvað ég nei við. Sagði hann að ég
þyrfti þá að fara með bil minn
hvað ég og gerði.
Þökk fyrir birtinguna.“
JHoröunblnbib
fyrir 50 árum
„TROÐNINGUR á samkom-
um. — Það er lciðinlegt að
þurfa að játa það að Reykvík-
ingar kunni ekki einföldustu
mannasiði. Eitt dæmið um það
er hvernig menn troðast,
hrinda og olnboga sig áfram
þar sem mannþröng er við
miðasolur samkomuhúsa. —
Einkum ber á þessum ósið við
dyr bíóanna. Þar lætur fólk
eins og það sé ekki með öllu
viti. — Til þess að sporna við
þessum ófögnuði og venja fólk
á að hegða sér sæmilega hefir
Nýja bíó nú fengið skáta til
þess að standa vörð í anddyr-
inu og sjá um að enginn
ryðjist fram fyrir annan. —
En vonandi er að fólki lærist
brátt almenn kurteisi og
skátavörðurinn verði óþarf-
ur.“
„FYRIR nokkru sigldi bresk-
ur togari með 11 sjómilna
hraða á Skrúðinn, sem var
þéttur fyrir! — Varð togarinn
fyrir miklum skemmdum ofan
sjólinunnar. — Var gert við
hann til bráðabirgða á Seyðis-
íirði og gat togarinn siglt til
Bretlands. Nokkrir skipverj-
ar meiddust við áreksturinn,
en enginn alvarlega ,..“
Hví ekki að afhenda
það Ríkisútvarpinu?
Lærið vélritun
Ný námskeið hefjast í dag, fimmtudaginn 30. okt.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima-
vinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13.
Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20
Körfubolti í kvöld
Í.S. — Í.R.
leika í úrvalsdeildinni í Hagaskóla í kvöld kl.
20.00.
Spennan í úrvalsdeildinni hefur aldrei
meiri — hvert stig skiptir máli.
veriö
Kantlímdar — smíðaplötur
(Hobby-plötur)
fyrir fagmenn og leikmenn.
Spónlagdar 1
KOTO-
'"•h°8ny-> eikar
ffl turuaPKnj
^'vahð tM ,kápa
réítin eldhú,inn- |
r*tti ngaamfda.
Hvífar
Plast-
hillur
1 30 cm, 5(
^ooeocm
* öreidd. 244
cm < lengd.
Hurðir
é fata-
skápa
eikar-
•pa»ni, til-
ounar undir
'»kk og b»«.
Það er ótrúlegt hvað hægt
er aö smíöa úr þessum
hobbýplötum, t.d. klæða-
skápa, eldhúsinnréttingar,
hillur og jafnvel húsgögn.
BJORNINN
Skúlatúm 4. Simi 25150 Reykjavi