Morgunblaðið - 07.12.1980, Blaðsíða 20
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1980
+
Bróöir okkar,
SIGMUNDUR SIGUROSSON
fró Sauöárkróki,
sem andaöist 30. nóvember, verður jarösunginn frá Fossvogs-
kirkju, þriöjudaginn 9. desember kl. 15.30.
Fyrir hönd systkinanna,
Guóvaröur Sigurösson.
Útför
ÓLAFS EINARSSONAR,
Sólvöllum Höfnum,
fer fram þriöjudaginn 9. desember kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Vandamenn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, sonar, fööur, tengdafööur og afa,
LARUSAR GUDBJARTSSONAR,
Alftamýri 16. .
Kristín Sigfúsdóttir,
móöir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug við andlát og
jaröarför
STURLU SNORRASONAR,
Goöalandí 2.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliös á Borgarspítalanum.
Sigrún Jóhannesdóttir, Geir Runólfsson,
Björg J. Snorradóttir, Bergþór R. Ólafsson,
Kristin Snorradóttir, Þorgeir Tryggvason,
Arndís Snorradóttir.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg hef reynt af öllum mætti að fara eftir kenningum
Krists. En eg finn. að í mér eru að verki lögmál. sem kippa
undan mér fótunum. Hvernig geta menn orðið megnugir
þess að fylgja Jesú Kristi af einiægum huga?
Það er eins og einhver hefur sagt: „Það ekki aðeins
erfitt að lifa Kristi ... það er ekki unnt... án kraftar
Krists."
Vissulega var til sú persóna, sem lifði ævinlega í
samræmi við sannan kristindóm, og það var Jesús
Kristur. Nú er sem eg heyri yður segja: Þýðir þá
nokkuð fyrir okkur að reyna? Eg vil svara með orðum
ritningarinnar: Kristur í yður, von dýrðarinnar.
Eg hef lesið um málaranema, sem fór ekki eftir
neinum fyrirmyndum meistara síns. Hann reyndi þó
að líkja eftir snilli kennara síns, en tókst það ekki.
Kennarinn sá, hversu nemandann skorti hæfileika.
Einn daginn teygði hann sig yfir öxl hans og stjórnaði
pensli hans. Form, litir og lögun tóku þá að birtast
fyrir sjónum nemandans, og hann varð furðu lostinn.
Innan stundar hafði hann málað frábæra mynd á
strigann með hendi sinni, undir leiðsögn meistarans.
Líf kristins manns er líkt þessu. Við getum ekki
fylgt Jesú Kristi í eigin mætti. Við hljótum að gefast
upp, ef við ætlum að láta okkur nægja eigin krafta.
En Páll sagði: „Allt megna eg fyrir hjálp hans, sem
mig styrkan gjörir."
Þeir eru of margir, sem berjast við það í eigin
mætti að lifa sem kristnir menn. Þeir gera sér ekki
ljóst, að fyrst verður Kristur að taka sér bústað í
hjörtum þeirra, svo að þeir leyfi Guði að taka völdin í
lífi þeirra. Þá lifir hann fullkomnu lífi sínu í þeim, en
ekki fyrir þeirra tilstilli eða framlag.
Guörún Agústa
Guðmundsdóttir
Bellman — Minning
Fædd 29. nóvember 1917.
Dáin 12. nóvember 1980.
„Yfir hafið helfregn berst
himinninn var dimmur."
(M.S.)
Þegar ég frétti lát Guðrúnar
vinkonu minnar, fannst mér ég
þurfa að festa nokkur kveðjuorð á
blað. Fráfall hennar kom okkur
hér heima á óvart vegna þess að
við vissum ekki hve sjúk hún var,
enda kvartaði hún aldrei. Síðast-
liðið sumar hafði hún orðið fyrir
þeirri reynzlu að missa mann sinn,
Kenneth Bellman, snögglega.
Guðrún fæddist 29. nóvember
1917 að Stórólfshvoli á Rangár-
völlum, þar sem faðir hennar var
héraðslæknir. Hún var dóttir
hjónanna Guðmundar Guðfinns-
sonar augnlæknis og konu hans
Margrétar Lárusdóttur, homo-
pata. Er sá frændleggur stór hér.
Guðrún var hin þriðja í röðinni
af börnum þeirra hjóna. Eldri
voru bræðurnir Lárus og Oddur.
Þeir eru báðir látnir. Eftir lifir þá
aðeins yngsta barnið, Ólöf, sem
syrgir nú systur sína úásamt eigin-
manni sínum, Andrési Bjarnasyni,
gullsmið.
Við vorum ellefu ára þegar við
kynntumst fyrst og höfum haldið
vináttu og sambandi æ siðan, að
svo miklu leyti sem hægt var að
koma því við, þar sem hún eyddi
ævidögum sínum á erlendri grund.
Minningar frá æskuárunum
hrannast upp. Ég varð fljótt
heimagangur á heimili Gunnu, og
var talin hennar sjálfsagði fylgi-
fiskur. Mér eru enn í minni
sunnudagarnir á Mímisveginum,
þegar Margrét móðir hennar, sú
myndarlega húsmóðir, dúkaði
borð og bar fram gómsæta döðlu-
köku fyrir heimilisfólkið, börnin
og vini þeirra að ógleymdum
Jóhönnu mágkonu og Agústu syst-
ur. Oddur bróðir hennar hafði
smávegis gaman af að stríða
okkur. En hann bætti fyrir það
allt með að setjast við píanóið og
spila fyrir okkur nýjustu dægur-
lögin. Eins minnist ég þeirra
dásamlegu sumardaga þegar
Gunna dvaldist hjá okkur austur í
Stuðningur
FUJ á Suð-
urnesjum
MBL. BARST í gær eftirfarandi
til birtingar:
FUJ á Suðurnesjum skorar á
dómsmálaráðherra að standa fast
við fyrri ákvörðun um brottvísun
Gervasonis úr landi. FUJ á Suður-
nesjum varar við því slæma for-
dæmi, sem breytt ákvörðunartaka
myndi hafa í för með sér. Enn-
fremur fordæmir FUJ á Suður-
nesjum þau gerræðislegu vinnu-
brögð, sem einn þingmanna Al-
þýðubandalagsins hefur viðhaft í
þessu máli með því að taka þá
afstöðu að láta þjóðarhag lönd og
leið.
14% fækkun
erlendra
ferðamanna
FJÖGUR þúsund færri íslend-
ingar hafa verið á ferðinni milli
Islands og annarra landa fyrstu 11
mánuði þessa árs miðað við sama
tíma sl. ár, en þá komu 64.500
íslenskir ferðamenn til landsins.
Þá hafa 10.500 færri útlendir
ferðamenn komið til landsins í ár
miðað við sl. ár þegar 74.500
ferðamenn komu til landsins.
sumarbústað í ölfusinu. Þar höfð-
um við nóg við að vera. Klifra í
fjallinu, synda í ánni og fá lánaða
hesta á bæjunum. Tíminn leið og
áfram var haldið upp í fram-
haldsskóla. Þá vorum við orðnar
fjórar í hópnum, Ingibjörg Gísla-
dóttir (Porter) og Sigríður Ólafs-
dóttir (McKenzie). Þegar ég hugsa
til þessara ára, þá sé ég, að það
var gleðin og ánægjan, sem var
þar ríkjandi. Það var ekki sízt
Gunna, sem skapaði þá gleði. Hún
var hrókur alis fagnaðar hvar sem
hún kom. Við lásum saman og
eyddum öllum okkar frístundum
saman. Við gerðum mikið af því að
fara í gönguferðir um nágrennið.
Það var ekki mjög títt þá að sjá
ungar stúlkur með bakpoka um
öxi og gönguskó á fótum arka út
úr bænum, enda var horft á eftir
þessum furðufuglum. En þar kom
að, að þrjár yfirgáfu þær landið og
fylgdu sínum mönnum til Eng-
lands. Það var mikill missir fyrir
mig, sem sat ein heima og saknaði
þeirra. En sárabætur fékk ég, það
voru mæður þeirra. Til þeirra lágu
sporin og var það mér mikils virði.
Eftir að til Englands kom, höfðu
þær ávallt samband sín á milli.
Þær sóttu hver aðra heim og gistu.
Gunna kynntist sínum tilvon-
andi eiginmanni, Kenneth Bell-
man í Reykjavík, þau gengu í
hjónaband hér heima áður en þau
sigldu út til Englands. Gunna
eignaðist fallegt heimili ásamt
sínum góða og glæsilega eigin-
manni. Naut margur landinn
gestrisni þeirra hjóna. Þar á
meðal ég og öll mín börn. Börnin
urðu þrjú. Elzt er stúlka, Gillian,
og tveir synir, Keith og Piers. Þau
eru nú öll gift. Börn Gillian voru
sólargeislar ömmu og afa, enda
einu barnabörnin.
Maður hennar hafði ekki gengið
heill til skógar í nokkur ár.
Einmitt þegar Gunna ætlaði að
gera alvöru úr því að heimsækja
mig yfir sundið til Danmerkur, þá
veiktist Ken. Svo sú ferð var
aldrei farin.
Árið síðasta var henni erfitt.
Hún dvaldi langdvölum á heimili
vinkonu sinnar Ingibjargar Porter
og hennar góða eiginmanns, Cyril
Porter, eftir lát manns síns. Eins
er það sárt, að sá draumur Guð-
rúnar rættist ekki, að hún kæmi
heim á sumri komanda og gengi
hér milli ættingja og vina, eins og
hún var búin að ákveða. Nú er hún
horfin okkur í bili, en gott er að
eiga vísa endurfundi.
Ég votta börnum Guðrúnar,
barnabörnum, systur og öðrum
aðstandendum innilegrar samúðar
og bið Guð að blessa minningu
hennar.
Begga
Hallgrímskirkju
í Saurbæ berst
rausnarleg gjöf
SYSTKININ í Skorholti í Leirár-
og Melahreppi, þau Jóna Ilali-
steinsdóttir og Sigurjón Hall-
steinsson. hafa nýlega fært Hall-
grímskirkju i Saurbæ hálfa millj-
ón að gjöf. Þessa rausnarlegu
gjöf gefa þau i minningu um
ástvini sina, sem í Saurbæjar-
kirkjugarði hvíla. en það eru
foreldrar þeirra, Hallsteinn
Ólafsson og Steinunn Eiriksdótt-
ir, og bræðurnir Böðvar, Narfi og
ólafur.
I gjafarbréfi er sóknarpresti
falið að ráðstafa gjöfinni til þeirra
hluta, er kirkjunni mega verða til
sem mestra nytja.
Það kemur ekki á óvart, að
systkinin í Skorholti gefi kirkjum
gjafir. I þeim efnum hafa þau oft
sýnt fórnfýsi sína, kærleika og
höfðingsskap áður, ekki sízt til
sóknarkirkju sinnar, Leirárkirkju,
sem þau oft hafa gefið stórgjafir.
Þau systkinin eru sérstaklega
kirkjurækin og bera svo mikinn
ræktarhug og kærleika til kirkju
sinnar, að fágætt er.
Fyrir hönd Hallgrímskirkju í
Saurbæ þakka ég þeim systkinun-
um þessa góðu gjöf og allar þeirra
gjafir og fórn í þágu kirkjunnar.
Guð blessi þetta góða fólk,
heimili þeirra og framtíð. — Guð
blessi minningu látinna ástvina.
Jón Einarsson. sóknarprestur.
Kvöldskemmtun
aö Hótel Sögu (Súlnasal), í kvöld, sunnudag, 7. des.
kl. 20.30. Kynnir og stjórnandi: Bryndís Schram.
Dagskrá:
1. Ávarp: Guðrún Helgadóttir alþingismaður.
2. Söngtríó: John Paul James with Amour.
3. Gamanvísur: Jóhannes Hilmisson.
4. Samleikur á tlautu og gítar: Manuela Wiesler og Snorri A.
Snorrason.
5. Model '79 sýna fatnað úr Flónni.
6. 7 ? 7
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
Málverkahappdrætti
Mjög góö málverk eftir þekkta myndlistarmenn.
Miöasala Hótel Sögu frá kl. 20.
Fjáröllunarnefnd Styrktarfélags vangefinna.