Morgunblaðið - 07.12.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1980
93
VELVAKANDI
SVARAR j SÍMA
I0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
öllum mannlegum samskiptum, og
þyngdaraflið í heimi efnisins.
Sé annar væng-
urinn visinn ...
í yngstu opinberuðu trúar-
brögðum heims, Bahá’í trúnni
(upprunnin í Persíu fyrir nærfellt
140 árum) er það grundvallarsetn-
ing, að það sem andstætt sé
skynseminni sé andstætt trúnni.
Trú og vísindi eru manninum það
sem vængirnir eru fuglinum. Sé
annar vængurinn visinn, getur
fuglinn ekki flogið. Trú án
vísindalegrar hugsunar og þekk-
ingar leiðir til kreddufestu og
ofstækis. Vísindi án trúarlegs sið-
gæðis hafa menn fyrir augunum á
okkar tímum og óþarfi er að
fjölyrða um þau.
Schopenhauer
skaut yíir markið
Trúarbrögðin eru vaxandi fyrir-
bæri, lifandi og virk, og hlíta sömu
lögmálum og önnur vaxtarfyrir-
bæri — þau kvikna, eflast að
þrótti, ná hámarki og síðan fjarar
lífsmagn þeirra út. Þá endurnýja
þau sig, en siðgæðisboðskapurinn,
sem er kjarni þeirra allra, er
áfram hinn sami. Það er góð
vísbending um trúarbrögð í hnign-
un, þegar þeim tekst ekki lengur
að umbreyta hjartalagi og hugar-
fari fylgjenda sinna og göfga siðu
þeirra. Efist nokkur um að trúar-
brögðin hafi megnað þetta meðan
frumkraftur opinberunarinnar
bjó í þeim, er hann beðinn að
kynna sér sögu þeirra. Áhrif
Islám á eflingu vísindanna fram á
elleftu öld er eitt fegursta dæmið
um hvernig trúarbrögðin í lífs-
blóma sínum skapa kröftuga og
glæsilega sið.menninu. Allar stofn-
anir og hreyfingar, sem stuðlað
hafa að bættu og fegurra mannlífi
á Vesturlöndum, má rekja til
frumuppsprettu kristindómsins.
Ljóst má því vera að Schopenhau-
er skaut yfir markið, þegar hann í
elli sinni nefndi trúarbrögðin
„Dætur fáfræðinnar". Nær sanni
væri að nefna þau mæður visk-
unnar."
Þessir hringdu . . .
Ekki hægt að
neita öðrum
hans líkum
Kristín Kress hringdi og sagði:
— Ég er mjög undrandi yfir þeim
múgæsingum sem orðið hafa út af
franska flóttamanninum sem kom
hingað til lands á fölskum for-
sendum og þekkist hvorki haus né
sporður á. Það er eins og fólk skilji
ekki að ef þessi maður fær land-
vistarleyfi, þá er ekki hægt að
neita öðrum hans líkum um það,
og afleiðingar þess yrðu hörmu-
legar. Það er einmitt það, sem
fyrir 50 árum
„í Kær barst sú fregn austan
úr Skaftafellssýslu, að eld-
ingu hefði slegið niður í
ibúðarhúsið í Flögu í Skaft-
ártungu. og að húsið hefði
brunnið til kaldra kola. Til
þess að fú nánari fregnir af
þessu, átti Morgunblaðið tal
við Gísla Sveinsson sýslu-
mann í Vík, og skýrði hann
þannig frá:
Aðfaranótt mánudags
(l.des.) gerði hjer aftaka veð-
ur af haf-útsuðri; var það með
verstu veðrum, sem hjer hafa
komið. Urðu víða simslit, svo
að ekki fcngust strax fregnir
um, hvort nokkurt slys hefði
orðið af veðrinu. Þó gat
stöðvarstjórinn i Vík heyrt
óljóst samtöl á aukalínum
austan Mýrdalssands. Fékk
hann þá þær fregnir, að kl.
um 3 aðfaranótt 1. des. hefði
cidingu slegið niður í ibúðar-
húsið í Flögu i Skaftártungu
og húsið brunnið til kaldra
kola. Eldingu sló niður í
skiftiborð simans og húsið
stóð þegar i björtu báli. Fólk-
ið komst nauðulcga út ómeitt,
en misti alt, sem inni var.
Bóndinn i Flögu heitir Vig-
fús Gunnarsson og er kona
hans Sigríður Sveinsdóttir,
systir Gísla Sveinssonar,
sýslumanns.**
dómsmálaráðuneytið vill forða
okkur frá. Hafi það þökk fyrir.
Lög eru lög. Ég vona að þau sem
dveljast í ráðuneytinu og aðrir
samherjar gefi sér tíma til þess að
breiða feld yfir höfuð sér eins og
Þorgeir Ljósvetningagoði forðum
og hugsa til komandi kynslóðar.
Á villigötum
Kristján Kristjánsson, Kópa-
vogi, hringdi og hafði þetta að
segja: — Eg hef fylgst með máli
Gervasonis og hugleitt það. Hann
segist berjast fyrir friði og af-
vopnun. Ég held að þessi ungi
maður sé á villigötum. Það mætti
t.d. spyrja hann, hvernig fara
mundi fyrir föðurlandi, hans,
Frakklandi, ef það yrði almennt
að ungir menn flykktust úr landi
og neituðu að gegna herþjónustu,
ekki síst með tilliti til þess hversu
ófriðlega horfir í heiminum. Ég
trúi því ekki að Gervasoni sé
þannig gerður að hann mundi
neita að verja land sitt. Mér finnst
að ráðamenn hér ættu að bjóða
honum að skrifa með honum til
Frakklands, þar sem honum væri
beðið griða og þess farið á leit að
hann fengi refsingarlaust að taka
út sína herskyldu. Hann fengi þá
áreiðanlega góðar móttökur í
landi sínu og hann getur áreiðan-
lega hvergi haft það betra. Það má
líka minna á, að samkvæmt ís-
lensku stjórnarskránni getur
hann lent í þeirri aðstöðu hér að
þurfa að grípa til vopna og verja
Island. Hefur hann hugsað út í
það?
Annars konar
flóttamenn
ættu að
ganga fyrir
Matthías Kristinsson, ísafirði,
hringdi og kvaðst vera á móti því
að veita Gervasoni landvist hér. —
Mér blöskrar það, að lítill hópur
skuli ætla sér að taka lögin í sínar
hendur og laga þau að eigin
geðþótta, eins og nú virðist vera
að gerast. Þögli meirihlutinn horf-
ir bara á. Ef það er hins vegar
áhugi fyrir þvi hjá yfirvöldum að
taka við fleira landflótta fólki
finnst mér að annars konar flótta-
menn en hér er um að ræða ættu
að ganga fyrir. Það eru vafalaust
margir þeirra ólíkt verr staddir en
Gervasoni.
Lipur þjónusta
á Hressingar-
skálanum
Dröfn Snæland hringdi og
kvaðst vilja koma á framfæri
þakklæti sínu til starfsfólks Hress-
ingarskálans fyrir einstaklega
lipra þjónustu. — Ég er sykursýk-
issjúklingur og hef átt í vandræð-
um með að fá mat við mitt hæfi á
veitingahúsum. Alls staðar eru
þessar sósur og fiskur er steiktur í
feiti, sem sagt freistingar en for-
boðnir réttir fyrir sykursjúka. Við
eigum því óvíða innhlaup ef okkur
liggur á hérna í miðbænum. En ég
rakst inn á Hressingarskálann og
þar var mér tekið tveim höndum,
fékk þurran hamborgara fram-
reiddan eins og mér hentaði og
matsveinninn upplýsti mig um
kálmeti sem ég gæti fengið með
kjötinu. Þannig var stjanað við
mig. Þökk fyrir.
ii. i *
T J L —~~T ^
WtiL -w*á
Gervijólatré
í miklu úrvali
Stæröir Verö
1,25 m 25.900
1,35 m 34.900
1,55 m 44,900
1,80 m 59.900
Einnig mikið úrval af kertum, kortum og
jólapappír. Póstsími 30980.
HAGKAUP
Höfum kaupendur að eftirtöldum veröbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
mmooifuuo: Innlauanarverð
7. desember 1980 Seðlabankans
Kaupgengi m.v. 1 árs Yfir-
pr. kr. 100.- tímabil frá: gengi
1969 1. flokkur 5.219,14 20/2 '80 3.303,02 58,0%
1970 1. flokkur 4.775,68 15/9 '80 3.878,48 23,1%
1970 2. flokkur 3.459,85 5/2 '80 2.163,32 60,0%
1971 1. flokkur 3.158,18 15/9 '80 2.565,68 23,1%
1972 1. flokkur 2.752,20 25/1'80 1.758,15 56,5%
1972 2. flokkur 2.354,94 15/9 '80 1.914,22 23,0%
1973 1. flokkur A 1.759,91 15/9 '80 1.431,15 23,0%
1973 2. flokkur 1.621,45 25/1 '80 1.042,73 55,5%
1974 1. flokkur 1.119,16 15/9 '80 910,11 23,0%
1975 1. flokkur 913,82 10/1 '80 585,35 56,1%
1975 2. flokkur 689,54
1976 1. flokkur 654,22
1976 2. flokkur 531,34
1977 1. flokkur 493,48
1977 2. flokkur 413,31
1978 1. flokkur 336,87
1978 2. flokkur 265,84
1979 1. flokkur 224.82
1979 2. flokkur 174,41
1980 1. flokkur 131,17
VEÐSKULDA- Kaupgengi m.v. nafnvexti
BREF:* 12% 14% 16% 18% 20% 38%
1 ár 65 66 67 69 70 81
2 ár 54 56 57 59 60 75
3 ár 46 48 49 51 53 70
4 ár 40 42 43 45 47 66
5 ár 35 37 39 41 43 63
*) Miðaö er við auðseljanlega fasteign.
NÝTT ÚTBOÐ VERÐTRYGGÐRA SPARI-
SKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS:
2. flokkur 1980.
Sölu lýkur 31. desember.
Sölugengi pr. 1. des. 1980 103,51 -t- dagvextir.
niRKfnncmféM isuMtoi hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGOTU 12 R.
lönaöarbankahúsinu. Sími 28566.
Opiö alla virka daga frá kl. 9 30—16.