Morgunblaðið - 11.12.1980, Side 1
64 SÍÐUR
277. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Samstaða f elur nef nd
að kanna fangelsanir
Varsjá, 10. des. — AP.
ÓIIÁÐA verkalýðshreyfinííin Sam-
staða skipaði i dag sérstaka nefnd
til að rannsaka pólitískar fangels-
anir i Póllandi og berjast fyrir því
að pólitiskir andófsmenn verði
látnir lausir. Áður hafnaði Sam-
staða i yfirlýsingu ásökunum um.
að hreyfingin hefði ýtt landinu „út
á yztu nöf efnahaKsöngþveitis“ og
itrekaði vilja til viðra'ðna við
ríkisstjórnina.
Nefndin, sem er meðal annars
skipuð átta leiðtogum Samstöðu og
nokkrum menntamönnum hand-
gengnum hreyfingunni, sagði að
tveir andófsmenn andvígir komm-
únistum hefðu nýlega verið hand-
teknir og þeir væru orðnir 'tíu alls.
Hinir handteknu eru úr „Bandalagi
sjálfstæðs Póllands" undir forystu
Leszek Moczulski, sem hefur verið í
haldi í nokkrar vikur.
„Við erum ekki að lýsa yfir
stuðningi við stefnu Moczulski eða
samtaka hans,“ sagði Tadesz Mazo-
wieckin, talsmaður Samstöðu, held-
ur reynum við að verja alla, sem eru
í haldi fyrir stjórnmálaskoðanir.
Yfirvöld hafa sakað Moczulski um
að berjast opinberlega gegn komm-
únistastjórn í Póllandi.
Landvarnaráðherra Sovétríkj-
anna, Dmitri Ustinov hvatti í dag
til „aukinnar árvekni“ gegn tilraun-
um „heimsvaldasinna" að veikja
stöðu sósíalistaríkja — einkum
Póllands. Ustinov sagði þetta á
ráðstefnu kommúnistaflokksins á
Moskvu-herstjórnarsvæðinu og er
valdamesti maðurinn, sem hefur
beint opinberum ummælum um
Pólland til sovézka hersins.
Fyrr í dag neitaði sovézki tals-
maðurinn Leonid Zamyatin í Nýju
Delhi, að sovézkt herlið hefði sótt
inn í Pólland og kallaði slíkar
fréttir „illa meinta ögrun".
Ný viðvörun birtist í málgagni
pólska hersins um að sumir Pól-
verjar reyndu að magna vandamál
Póllands. Blaðið Trybuna Ludu
sagði, að skortur á matvælum væri
að aukast í verzlunum og skellti
skuldinni á svartamarkaðsbraskara
og spákaupmenn.
Veiðibann í
Norðursjó
Frá fréttaritara Mbl. i Ósló i K»'r.
ALGERT bann við allri fiskvéiði
Efnahagsbandalagsins á norska
sva'ðinu í Norðursjó tekur gildi í
nótt vegna ofveiði fiskimanna-
bandalagsins á þorski og ýsu.
Norðmenn og Efnahagsbanda-
lagið reyndu árangurslaust á fundi
sínum í Briissel 1. og 2. desember
að ná samkomulagi um fiskveiði-
samning.
Norðmenn ákváðu þá, að frá og
með 3. desemjfer yrði að hætta allri
þorsk- og ýsuveiði á norska svæð-
inu og hvöttu EBE til að hætta
allri veiði á þessum fiskitegundum
á EBE-svæðinu einnig.
En þessum veiðum hefur verið
haldið áfram á svæði EBE. Því var
ákveðið að skip EBE fengju ekki
frá og með miðnætti í nótt að veiða
aðrar fiskitegundir. í dag voru 28
skip frá EBE á norska svæðinu.
Lauré.
Sigri Obote í
Uganda spáð
Kampala, 10. des. — AP.
TÆPLEGA 10 milljónir Uganda-
manna fóru á kjörstað í dag til að
greiða atkvæði í fyrstu kosning-
unum í 18 ár. Ákveðið var að
kosið yrði einnig á morgun vegna
þess að kjörgögn hárust seint á
marga kjörstaði og kosningar
gátu viða ekki hafizt fyrr en eftir
langa bið.
Milton Obote fyrrverandi for-
seti og flokki hans, UPC, Þjóðar-
ráði Uganda, er spáð sigri í
kosningunum, en þó getur orðið
tvísýn keppni milli hans og Lýð-
ræðisflokks (DP) Paul Ssemoger-
ere, sem rómversk-kaþólskir menn
styðja.
Kjörstjórnum hefur verið skip-
að að setja vörð um kjörkassa í
nótt, en andstæðingar Obote
gagnrýna þá ráðstöfun að kjósa
líka á morgun þar sem það gefi
flokki Obote og stuðningsmönnum
hans í stjórninni færi á að hafa í
frammi kosningamisferli.
Kosningarnar fóru yfirleitt frið-
samlega fram, þótt ofbeldi og
ásakanir um kúgun og svik settu
svip sinn á kosningabaráttuna og
þrátt fyrir skort á kjörkössum,
atkvæðaseðlum og skrám yfir
kjósendur á hundruðum kjörstaða.
Brezhnev-tillaga
um olíusiglingar
Nýju Delhi, 10. des. — AP.
LEONID Brezhnev, forseti Sovét-
rikjanna, kynnti í kvöld áatlun um
að tryggja alþjóðlegar siglingar til
Persaflóa með því að afneitað verði
valdheitingu. hcrstöðvum og kjarn-
orkuvopnum í þessum heimshluta.
Hann sagði í meiriháttar stefnu-
ræðu á indverska þinginu í lok
Indlandsheimsóknar sinnar, að það
væri „hreinn tilbúningur" að Rússar
ógnuðu olíubirgðum Miðausturlanda.
Brezhnev skoraði á Bandaríkin,
önnur vestræn ríki, Kína, Japan og
önnur hlutaðeigandi ríki — þar á
meðal ríki í heimshlutanum — að
takast á hendur nokkrar „gagn-
kvæmar skuldbindingar" til að
tryggja frið á svæðinu og ábyrgjast
frjálsar siglingar til Persaflóa.
Bandaríkin hafa heitið að verja
olíuflutninga frá Miðausturlöndum
og tillögur Brezhnevs mætti skoða
sem lið í baráttu gegn hernaðaráhrif-
um þeirra. En orðalagið í ræðunni
var óljóst, þannig að ekki er vitað
hvort tillögurnar einskorðast við
Persaflóa eða ná til nálægra sigl-
ingaleiða. Óljóst er hvort átt er við
núverandi herstöðvar eða fyrirhug-
aðar herstöðvar einnig.
Um Afghanistan sagði Brezhnev
að samningar við stjórnina í Kabul
mundu leiða í ljós hvort brottflutn-
ingur gæti átt sér stað. Honum var
fagnað með lófataki þegar hann
lofaði að vinna að stofnun „friðar-
svæðis" á Indlandshafi. Hann kallaði
áætlun sína „kenningu friðar og
öryggis".
Leonid Brezhnev ávarpar indverska þingið og hvetur til trygginga fyrir
siglingum til Persaflóa. Indira Gandhi hlustar á ásamt forscta neðri
deildar. Balram Jakhar, en túlkur stendur fyrir aftan Brczhnev.
Astæðurnar fyrir
morðinu kannaðar
New York. 10. des. AP.
NÁNAR gætur eru hafðar á
Mark David Chapman, scm er
ákærður fyrir morðið á John
Lennon. og reynt er að grafast
fyrir um ástæðurnar fyrir verkn-
aðinum.
Maður nokkur, sem þekkti
Chapman fyrir fimm árum, kvað
þau ummæli Lennons, að bítlarnir
væru vinsælli en Jesús Kristur,
hafa komið honum úr jafnvægi.
Hann sagði líka, að Chapman
hefði fengið taugaáfall, þegar for-
eldrar hans skildu fyrir fjórum
árum.
Chapman, sem er einlægur
bítlaaðdáandi, er sagður valda
„engum hegðunarvandkvæðum“.
Dómari fyrirskipaði að eftirlit
væri haft með Chapman á 15
mínútna fresti, þar sem lögfræð-
ingur hans sagði, að hann hefði
tvívegis reynt að fyrirfara sér.
Lík Lennons var í dag afhent
„fulltrúum fjölskyldunnar" og
flutt í líkstofu. Ekkja Lennons,
Yoko Ono, bað um að þeir sem
vildu minnast hans létu líknar-
stofnun, sem Lennon stofnaði,
njóta þess. Fólk safnaðist enn
saman við Dakota-fjölbýlishúsið í
dag og tók þátt í óundirbúinni
minningarathöfn.
Maðurinn. sem er grunaður
lögreglunnar í New York.
um morðið á John Lennon. í vörzlu
Eiginkona og móðir Chapmans
eru í einangrun í Honolulu og
njóta verndar öryggisvarða. Chap-
man mun hafa hringt í konu sína
og sagt henni að fá sér lögfræðing
til öryggis. Hann verður í einangr-
un þar til kyrrð kemst á og gengst
undir sálfræðipróf til að kanna
hvort hann er sakhæfur.
Mark David Chapman, sem er
grunaður um morðið á Lennon.
Mvndin er frá skólaárum hans i
Decatur, Georgíuríki.
Refsiaðgerðir
fyrirætlaðar
Brtissel, 10. des. — AP.
IIAROLD Brown. landvarnaráð-
herra Bandarikjanna. sagði í dag.
að „efling hernaðarmáttar" NATO
yrði eitt andsvarið við sovézkri
innrás i Pólland. Aðrir landvarna-
ráðherrar NATO sögðu á fundi
sinum í Briissel, að bandalagið
legði siðustu hönd á aðrar efna-
hagslegar og diplómatiskar gagn-
ráðstafanir.
Brown sagði að Bernard Rogers
hershöfðingi, yfirmaður liðsafla
bandamanna í Evrópu, hefði verið
falið að gera eðlilegar hernaðarlegar
varúðarráðstafanir vegna eflingar
sovézka heraflans í Austur-Evrópu
að undanförnu.
Brown og Fráncis Pym, land-
varnaráðherra Breta, sögðu þó , að
hernaðarráðstafanirnar væru ekki
„óvenjulegar". En margt bendir til
þess að utanríkisráðherra banda-
lagsins muni ræða alvarlegar póli-
tískar og efnahagslegar ráðstafanir
á fundi sínum á morgun og föstudag.
Niðurskurður á viðskiptum aust-
urs ög vesturs, lánum og tækniaðstoð
eru meðal „hugsanlegra sameigin-
legra andsvara" Bandaríkjanna og
samherja þeirra samkvæmt heimild-
um í Washington. Þó er lögð áherzla
á, að meginmarkmið Carter-stjórn-
arinnar sé að sannfæra Rússa um,
að þeim stafi ekki ógn af frjálsræði í
Póllandi og stjórnin hafi reynt að
sýna fram á, að hún vilji ekki auka
innanlandsvanda Pólverja eða hagn-
ast á honum.
Utanríkisráðherrarnir munu
leggja á það áherzlu, að bandalagið
hafi áhyggjur á hernaðaruppbygg-
ingu Rússa og hættunni, sem íhlutun
hefði á jafnvægi í Evrópu. Vitað er,
að aðildarríkin vilja ganga misjafn-
lega langt í refsiaðgcrðum: Vestur-
Þjóðverjar og Belgar hafa minnstan
áhuga á þeim, Bretar og Frakkar
mestan.