Morgunblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980 Hæsti vinningurinn skiptist í fimm staði DREGIÐ var í happdrætti Há- skóla íslands í gær og var vinningsupphæðin l.fi milljarðar króna. Miðarnir með númerinu. sem hæsti vinningurinn féll á, eru i eigu fimm Reykvíkinga. Kópavogsbúa og Vestmanney- inga, og skiptust 45 milljónirnar því þannig, að eigandi trompmið- ans fékk 25 miiijónir króna. en hinir fjórir 5 milljónir hver. Jóhannes L. L. Helgason, for- maður happdrættisráðsins, sagði í samtali við Mbl. í gærkvöldi: „Við munum reyna að greiða vinnings- höfunum í reiðufé, þótt verkfall bankamanna dragist á langinn. Og það munum við gera án aðstoðar Seðlabankans, þrátt fyrir það, að við höfðum pantað fé með löngum fyrirvara." Sjá vinningaskrá bls. 28. * Samgönguráðherrar Islands og Luxemborgar: Vilja hef ja könnun á áframhaldi Atlants- hafsflugs næsta haust „VIÐ urðum sammála um það að stuðla að því að fyrr en seinna verði hafist handa við að athuga hvort áframhaldandi grundvöllur sé fyrir Norður-Atlants- hafsfluginu eftir 30. sept. nk. og áhugi Luxemborgara í þessum efnum er sá sami og áður, þeir vilja skoða alla möguleika til þess að flugið geti haldið áfram,“ sagði Steingrímur Ilermannsson samgönguráðherra í samtali við Mbl. í gær, um viðræður hans við Josy Bartel samgönguráðherya Luxemborgar en Steingrímur kom þar við á leið til íslands af ráðherrafundi í Danmörku. „Luxemborgarmenn vilja m.a. skoða sérstaklega möguleika á samblandi af farþegaflugi og vöruflutningaflugi og þeir hafa áhuga á því að flugfélög landanna tengd þessum leiðum hefji fyrr en seinna samstarf á einhvern hátt ef grundvöllur er á annað borð til. Þeir leggja áherslu á það að þeir vilja halda áfram samstarfinu við íslendinga. Annars kom þessi heimsókn til vegna þess að Bartel hringdi í mig fyrir skömmu og þar sem ég var þá á leið til Danmerkur var ákveðið að ég kæmi við í Luxem- borg til þess að við bærum saman bækur okkar í framhaldi af fyrri viðræðum, bæði það sem hefði gerst síðan og varðandi framtíð- INNLENT Samkeppnisnefnd: Félagslög bóka- útgefenda brjóta verðlagslög „SAMKEPPNISNEFND taldi einróma, að i félagslögum Félags islenzkra bókaútgefenda séu ákvæði, sem hafi i för með sér skaðlegar samkeppnishömlur og var verðlagsstofnun falið að taka upp samningaviðræður við bóka- útgefendur til að binda endi á þessar skaðlegu samkeppnis- hömlur, eins og verðlagslög segja, að skuli vera fyrsta skref- ið,“ sagði Björgvin Guðmunds- son, formaður samkeppnisnefnd- ar, er Mbl. spurði hann í gær- kvöldi, hver hefði orðið niður- staða nefndarinnar varðandi mál það sem risið er vegna bóksölu Hagkaups. Auk Björgvins eru Unnsteinn Beck og Þórir Einarsson í sam- keppnisnefnd. Björgvin sagði, að í félagslögum bókaútgefenda væru ákvæði um sölukerfi varðandi verzlun með bækur, sem sam- keppnisnefnd teldi m.a. takmark- anir á frelsi til atvinnureksturs, sem brytu í bága við verðlagslög- in. ina. Þetta er því óformleg kurteis- isheimsókn. Við vorum sammála um það að æskilegt væri að fundir hæfust strax eftir áramót á vettvangi flugfélaganna og við munum reyna að fylgjast með þeim. Þessar viðræður við Bartel voru gagnlegar, þeim finnst að vísu að umfangið hafi minnkað mjög og hafa áhyggjur af því hver sam- dráttur hefur orðið hjá Luxair í framhaldi af færri flugferðum Flugleiða, en Bartel er jákvæður og reynt verður að vinna málið á þann hátt.“ Flugvallarskattur hækkaði í gær: Birgir Þorgils- son hættir hjá Flugleiðum BIRGIR Þorgilsson sem um árabil hefur unnið að sölu og markaðsmálum Flugleiða. hef- ur nú sagt upp störfum hjá Flugleiðum frá áramótum. Birgir hefur verið yfir norður- svæðinu svokallaða. á sinu sviði, Skandinaviu, Bretlandi og lslandi, þá hefur hann annazt IATA-mál og sölustjórn á farþegasviði. Mbl. innti Birgi eftir því í' gær hvort hann hygðist ganga i ákveðið starf, en hann kvað óráðið með öllu hvað hann færi að gera. Vildi hann ekki tjá sig um ástæðu þess að hann segir upp starfi sinu hjá Flugleiðum. Skilar 1350 millj- ónum á næsta ári Flugvallarskatturinn hækkaöi í gær og vegna ílugs milli landa er hann nú 11.200 krónur, en var áður 8.800 krónur. Innanlands- gjaldið nú 800 krónur, en var áður 650 krónur á hverja ferð. Hækkunin milli landa nemur 27,3%, en inn- anlands 23,1% og þess má geta að vegna ferða til Grænlands og Færeyja er sami flugvallarskattur og innanlands. Hækkun þessi er samkvæmt ákvæðum í lögum vegna ákvæða um breytingar á verðlagi og eink- um var tekið mið af breytingum á gengi dollarans síðan í maí við hækkunina. í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að flugvallarskatturinn skili 1350 milljónum króna, en því á að ráðstafa til flugmála. Sveinn Sæmundsson, blaðafull- trúi Flugleiða, sagði í samtali við Mbl. í gær, að flugvallarskattur- inn hefði verið vandræðabarn allt frá því, að hann fyrst var settur á. Margvíslegir erfiðleikar hefðu komið upp við innheimtu hans og margur útlendingurinn farið óánægður úr landi vegna hans. — Fólki finnst þessi skattur alltof hár, en hann er með því hæsta sem gerist í slíkri skatt- heimtu í heiminum, og mörgum finnst hann ganga þvert á þá viðleitni að byggja upp ferða- mennsku sem atvinnugrein hér á landi. Starfsfólk okkar í Keflavík hefur farið fram á, að það sleppi við innheimtu skattsins og vill að ríkið taki sjálft að sér innheimt- una, sagði Sveinn Sæmundsson. N ey ðarsendingar án bankastimpl- unar stöðvaðar NEYÐARSENDINGAR eða af- greiðsla á þeim án bankastimplun- ar hefur verið stöðvuð, að sögn Björns Hermannssonar. tollstjóra i Reykjavik, þar sem bankastimplun vantar, en Island mun vera eitt fárra landa, sem krefst banka- Meinbugir taldir á laga- setningu í bankamannadeilu BANKAMENN og fleiri hafa velt þvi fyrir sér að undanförnu, hvort stjórnvöld muni skerast í leikinn i verkfallsmálum banka- manna og banna verkfall SÍB og setja gerðardóm til ákvörðunar launakjörum bankamanna. Sam- kvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins munu ekki enn uppi nein áform um lagasetningu, enda þar miklir meinbugir á að mati fróðra manna. Helztu erfiðleikar við lagasetn- ingu eru þeir, að það boð, sem bankamönnum hefur þegar borizt, er mun hærra hlutfall launahækk- ana en BSRB samdi um og munar þar um 3 prósentustigum. Einnig hefur BHM krafizt endurskoðunar á kjarasamningi sínum fyrir Kjaradómi og er búizt við að þessar hækkanir fari þá út yfir allan ríkisgeirann. Að vísu mun BSRB ekki hafa endurskoðunar- rétt eftir að það fékk verkfallsrétt, en í samningi þess við fjármála- ráðherra er kveðið á um samræm- ingu miðað við launatöflu BHM á samningstímanum. Geta hækkan- ir á efstu töxtum BHM þá haft hugsanleg áhrif þar á. Nú hefur uppstytta orðið í bankaviðræðum og verði boðað til nýs sáttafundar síðdegis í dag, þykir augljóst að takist að ná samkomulagi, verður verkfalli ekki aflýst, fyrr en atkvæða- greiðsla hefur farið fram í aðild- arfélögunum SÍB. Við það mun myndast ófremdarástand á morg- un, er greiða á tímakaupsmönnum vikulaun sín. stimplunar, svo að unnt sé að tollafgreiða vörusendingar. Þessar afgreiðslur neyðarsend- inga hafa farið fram um helgar, þegar tollstjóraskrifstofan hefur verið lokuð. Björn Hermannsson kvað þetta vera afbrigðilegar af- hendingar, sem framkvæma ætti þegar skrifstofa tollsins væri ekki opin um hátiðar eða helgar. Að öðru leyti á öll afgreiðsla að beinast í gegnum tollstjóraskrifstofuna á meðan hún er opin, þar með talin bankastimplun. Heimild er í reglugerð í þessum neyðartilvikum, að farmflytjandi afhendi vöruna án tollafgreiðslu og án bankastimplunar með því að sett verði trygging fyrir. Tollstjóri sagði, að sér hefði ekki þótt rétt að afgreiða þetta án bankastimplunar á meðan skrifstofan væri opin og hafi ráðuneyti og stjórnvöld viður- kennt það sjónarmið sitt. Hins vegar hefur ekki reynt á það enn, hvort afgreiðsla fæst á þessu um næstu helgi. Björn Hermannsson sagði, að þessi mál væru til athug- unar bæði í viðskiptaráðuneytinu og fj ármálaráðu ney tinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.