Morgunblaðið - 11.12.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980
3
Þorskaflinn
ast 400 þús.
UM SÍÐUSTU mánaðamót
var þorskafli íslendinga á
árinu orðinn rúmlega 390
þúsund lestir samkvæmt
bráðabirgðatölum Fiski-
félags íslands. Er það tæp-
um 50 þúsund lestum
meiri afli, en fyrstu 11
mánuði síðasta árs. Fiski-
fræðingar lögðu til í upp-
hafi þessa árs, að þorskafli
færi ekki yfir 300 þúsund
tonn á árinu, stjórnvöld
ákváðu að miða við 350
þúsund tonn sem hámark
og nú er útlit fyrir að alls
verði veidd 410—415 þús-
und tonn af þorski á ís-
landsmiðum í ár.
Þorskafli skiptist þannig á milli
báta og togara fyrstu 11 mánuði
ársins að bátarnir höfðu veitt
201.571 tonn, en togararnir 189.704
tonn. Botnfiskaflinn var samtals
orðinn um síðustu mánaðamót
605.320 tonn og í botnfiski er
nálg-
tonn
aukningin á milli ára tæplega 59
þúsund tonn á árinu, þannig að
aukningin í botnfiski á milli ára er
nær öll í þorski.
Sjö þúsund tonnum meira hafði
borizt á land af síld á síðustu
mánaðamót en á sama tíma í
fyrra eða 50.719 tonn og áttu
allmörg skip þá eftir að fylla
kvóta sinn. Loðnuafli er hins
vegar um 230 þúsund tonnum
minni í ár, en í fyrra. Heildarafl-
inn var um síðustu mánaðamót
1.420.391 tonn, en var á sama tíma
í fyrra 1.612.136 tonn.
„Smyglhjón-
in“játuðu
IIJÓNIN, sem setið haía í
gæzluvarðhaldi undanfarna
daga á meðan rannsókn hefur
farið fram á hlut þeirra í
smyglmáli. voru leyst úr haldi
í Kær.
Eiginmaðurinn er stýrimað-
ur á íslenzku vöruflutninga-
skipi og liggja fyrir játningar
hans og eiginkonunnar um
smygl og dreifingu á um 48
lítrum af spíra, 30 flöskum af
vodka og 40 lengjum af vindl-
ingum. Smyglvarningnum var
aðallega dreift í Þorlákshöfn
og nágrenni. Maður einn í
Þorlákshöfn sat inni í gæzlu-
varðhaldi um tíma vegna máls-
ins en honum hefur einnig
verið sleppt.
ekkisama
kaupir
amatinn
Hjá Versluninni Ásgeir í Tindaseli leggja þeir
saman krafta sína Sveinbjörn kjötiðnaðarmaður
og Bjarni matreiðslumaður til þess að gera hrá-
efnið sem allra best úr garði. Því eins og Bjarni
segir: ,,Þú lagar ekki góðan mat úr lélegu
hráefni.”
í kjötborðinu hjá þeim félögum færðu allt það
besta sem hægt er að hugsa sér í jólamatinn.
Þar er til dæmis úrval af 1. flokks svínakjöti og
norðlenskt hangikjöt sem alltaf stendur fyrir
sínu, — og ekki sakar að það er á gamla verðinu.
En það besta er eftir! Þú færð kaupbæti:
Bjarni veitir þér allar hugsanlegar upplýsingar
og ráð sem þú þarft á að halda við matreiðsluna.
Að þessu sinni mælir hann sérstaklega með
„SÆNSKRI SKINKU,” en sá réttur nýtur nú
vaxandi vinsælda.
ÞAÐ ERU KOMIN JÖL í KJÖTBORÐINU HJÁ
VERSLUNINNI ÁSGEIR!
Tindaseli 3, Breiðholti. Sími: 76500 og Grímsbæ
Sími: 86744,
Þess vegna borgar sig að versla þar sem
starfsmennirnir hafa bæði þekkingu og reynslu
sem kemur þinni eigin matargerð til góða.