Morgunblaðið - 11.12.1980, Page 10

Morgunblaðið - 11.12.1980, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980 Gunnar G. Schram, formaður Lögfræðingafélags Islands: Yegið að Hæstarétti í viðtali við Dagblaðið þann 6. desember sl. lýsir Vilmundur Gylfason þingmaður því yfir að nærvera Armanns Snævarrs hæstaréttardómara á sameigin- legum fundum menntamála- nefnda Alþingis, er fjallað var um frumvarp um biskupskjör, hafi verið stjórnarskrárbrot. I viðtal- inu segist Vilmundur hafa „bent á þá staðreynd að þarna væri kom- inn fulltrúi dómsvaldsins í land- inu eins og kaupmaður með vöru sína að halda henni að okkur ... En að fulltrúi dómsvaldsins skuli vera að vasast í málum löggjaf- arvaldsins er augljóslega brot á 2. grein stjórnarskrárinnar um þrí- skiptingu valdsins og spilling af verstu tegund". Sá þingmaður, sem telur sig hafa þekkingu til þess að dæma um það að hér hafi verið framið stjórnarskrárbrot, ætti jafnframt að vita að dr. Ármann Snævarr var ekki kominn til þessa þing- nefndarfundar að eigin ósk, held- ur eftir sérstakri beiðni formanns menntamálanefndar neðri deildar Alþingis. Hann var heldur ekki þangað kominn til að „kenna löggjafarvaldinu" eins og þing- maðurinn orðar það og telur einnig stjórnarskrárbrot. Á fund- inn var hann kominn til þess að gera grein fyrir og skýra efni frumvarps, sem hann samdi að beiðni biskups á grundvelli álykt- unar Kirkjuþings um breytingar á fyrirkomulagi biskupskjörs, í samráði við kirkjumálaráðherra. Alkunna er að það er algengt að þeir embættismenn og sérfræð- ingar, sem alþingismenn eða ráðu- neyti biðja um að semja laga- frumvörp, séu kvaddir á þing- nefndarfundi til þess að skýra efni þeirra frumvarpa, enda má líta á það sem embættiskyldu þeirra að verða við slíkum beiðnum þing- nefnda. Ekkert er við það að athuga þótt hæstaréttardómarar komi á fundi þingnefnda þessara erinda sem aðrir, sé þess óskað af þingmönn- um. Hvergi er stafur í lögum eða stjórnarskrá, sem bannar slíkt. Hvergi er það heldur bannað að alþingismenn eða ráðherrar leiti liðsinnis hæstaréttardómara við gerð lagafrumvarpa. Það lýsir vægast sagt takmarkaðri þekk- ingu á stjórnskipun landsins að halda því fram að með því séu dómarar að taka löggjafarvaldið úr hendi Alþingis og brjóta 2. gr. stjórnarskrárinnar. Hér er aðeins um það að ræða að Alþingi fær í hendur fyrstu gerð lagafrumvarps eða frumvarpsdrög að þeim mál- um, sem það sjálft telur svo flókin að sérfræðingar þurfi þar um að fjalla. Þau drög eru síðan send til umsagnar fjölmargra aðila utan þingsins, ítarlega rædd á þing- nefndarfundum í báðum deildum og loks rædd við minnst sex umræður á þingi. Það er því augljóst að vitanlega er það Al- þingi sjálft, sem hér vinnur lög- gjafarstarfið, en ekki þeir sér- fræðingar, sem frumdrögin semja. Alla vega ætti ekki manni, sem setið hefur sjálfur á þingi í nokkur ár, að vera ókunnugt um þessa hluti. Þingmanninum til fróðleiks má geta þess að það hefur tíðkast allt frá stofnun Hæstaréttar fyrir röskri hálfri öld að leitað væri til hæstaréttardómára um gerð frumvarpsdraga i vandasömum málum, einkum á sviði réttarfars og einkamálaréttar. Raunar nær sú venja allt aftur til dómara Landsyfirréttarins. Má það því furðu mikil glámskyggni heita, að enginn skuli fyrr hafa komið auga á að slíkur háttur mála sé stjórn- arskrárbrot og spilling af verstu tegund. Þá má og géta þess að ekki eru nágrannaþjóðir okkar á Norður- löndum á sama máli og þingmað- urinn í þessum efnum. Þar er það alsiða, ekki sízt í Danmörku, að hæstaréttardómarar eru kallaðir til, þegar undirbúa þarf vanda- sama og mikilvæga lagasetningu. í Svíþjóð og Finnlandi er það beinlínis lögfest sem ein af emb- ættisskyldum hæstaréttardómara að semja frumvörp að beiðni þjóðþinganna þar. Enn má í þessu sambandi minna þingmanninn á 83. grein norsku stjórnarskrárinnar. Þar segir að Stórþingið geti beðið um álitsgerðir Hæstaréttar varðandi lögfræðileg málefni. Svo mikil- vægt þykir þar í landi að löggjaf- arþingið geti leitað ráða og lið- sinnis hæstaréttardómara að það er beinlínis fest í stjórnarskrá — það framferði, sem þingmaðurinn telur hér á landi vera spillingu og stjórnarskrárbrot. Loks sakar ekki að geta þess, að þá fáu mánuði, sem þessi þing- maður fór með embætti dóms- málaráðherra, fól hann persónu- lega ýmsum dómurum landsins að semja a.m.k. hálfan tug lagafrum- varpa. Þá var hvorki minnzt á spillingu, né stjórnarskrárbrot! Nú segist þingmaðurinn hinsvegar vilja „berjast gegn þeirri spill- ingaráráttu að flækja saman dómsvald, framkvæmdavald og löggjafarvald í landinu". Skjót eru veður að skipast í lofti hjá sumum mönnum. í síðari hluta Dagblaðsviðtals- ins er um að ræða einhverja grófustu og ómaklegustu árás á æðsta dómstól landsins, sem nokkru sinni hefur sést á prenti hér á landi. Þar segir þingmaður- inn orðrétt: „Hæstaréttardómur um aftur- virkni skatta féll fyrir skömmu ríkisvaldinu í hag. Þrír dómarar voru fylgjandi dómnum, en tveir andvígir. Ég held að niðurstaða dómsins hafi fyrirfram verið ákveðin ríkinu í hag og að mis- munandi skoðanir dómaranna séu aðeins sjónarspil". Um þessi ummæli má segja það að þau eru bæði siðlaus og löglaus. Hér er þingmaðurinn að gefa í skyn að dómarar Hæstaréttar dæmi ekki í málum eftir beztu vitund og samvizku, heldur beygi sig í duftið fyrir ríkisvaldinu og reyni síðan að leyna þeirri afstöðu sinni og blekkja þjóðina með því að setja sérálit sín á svið. Það er alvarlegri hlutur en í fljótu bragði gæti sýnzt, þegar á Þeim, sem þekkt hafa til Thors Vilhjálmssonar, kemur það ekki á óvart, að hann heldur sýningu á myndlist sinni. Hann hefur sýnt nokkur verk áður hér í borg ásamt öðrum rithöfundum. Sú sýn- ing var í anddyri Norræna hússins, ef ég man rétt, og vakti nokkra eftirtekt. Thor hefur einnig látið fylgja verk- um sínum rituðum, myndir bæði við texta og einnig á kápum. Og það virðist ekki óalgengt, að rithöfundar stundi myndgerð jöfnum höndum, einnig er það oft svo, að málarar hafa skemmtun af að grípa til ritsmíða, en engin Thor í Djúpinu föst formúla er fyrir þessu fremur en öðru því, er undir listir flokkast. Þetta er því fyrsta einkasýning Thors. Hann hefur valið 36 verk til þessarar sýningar og eru þarna krítarmyndir, vatns- litamyndir og teikningar með bleki. Sumar þessara mynda eru gerðar á ítölsk dagblöð með Gouache-litum(?) og hafa skemmtilega áferð, myndræna og dálítið expressionistíska. Thor er ágætur í litameðferð og nær stundum merkilega góðum árangri. Hann er einn- ig nokkuð góður teiknari og fer yfirleitt mjög vel með þær hugmyndir, er verða valdar að verkum hans. Hann er á stundum undir sjáanlegum áhrifum frá sumum samtíma meisturum,. og nefni ég í því sambandi Klee, enda ekki leið- um að líkjast. í heild er þessi sýning Thors furðulega sam- stæð og hefur vissan slag- kraft, sem vart er finnanlegur hjá fólki, sem hefur myndgerð sem aukastarf, að ég ekki nefni, að einbeiting á öðru listasviði verður í flestum tilfellum þess valdandi, að broddurinn fer úr öðru hvoru. Hvað um það, Heinesen kemst einnig vel frá þessu, og fleiri mætti telja. Myndlist eftir VALTÝ PÉTURSSON Þarna í Djúpinu eru nokkur verk, sem mér fundust fremri öðrum, og nefni ég sem dæmi No. 3, 4, 9 og 12 og enn eitt verk, sem mér varð miklu minnisstæðara en aðrar myndir á þessari sýningu. Það var No. 23, sem að mínum dómi er algerlega í sérflokki. Þar er bæði næm tilfinning og skemmtileg póesía á ferð, sem grípur mann á seiðandi hátt og skilar áhrifum, sem fáum er gefið að miðla í verkum sínum. Það mætti ýmislegt fleira segja um þær 36 myndir Thors, sem þarna eru á veggj- um. En mér kom í hug, er ég rölti upp Túngötuna eftir að hafa skoðað sýningu Thors, hvort myndi nú hafa betur myndlistarmaðurinn Thor eða rithöfundurinn Thor, ef hann legði sömu rækt við myndgerð sína og ritað mál. Ég er langt frá því að hafa komist að niðurstöðu, þegar þetta er ritað. En sýning sem þessi hlýtur að vekja hugmyndir, sem ef til vill ekki allar passa inn í raunveruleikann. Vanga- veltur mun einhver segja, Já vangaveltur í sambandi við list sýna einmitt að hún hefur náð tilgangi sínum. Ég hafði sérlega ánægju af að sjá þessi verk Thors Vil- hjálmssonar og þakka hér með fyrir stundarkorn er varpaði ljósi í grámyglu skammdegis. Stúlkur í dósaverksmiðju ólafur Ilaukur Simonarson: Galeiðan, skáldsaga. Útg. Mál og Menning 1980. Sögusviðið er aðallega dósa- verksmiðja í Kópavogi og nokkrar stúlkur, sem vinna þar. Aðalper- sónan er Jónína, einstæð móðir sem býr í leiguíbúð á Rauðarár- stígnum með tveimur vinkonum sínum. Þær vinna allar í dósaverk- smiðjunni og það koma vitanlega fleiri við sögu. Lýst er vinnudegi stólknanna og knappri aðstöðu þeirra, misréttið í launum skýtur upp kollinum og verkstjórinn er hálfleiðinlegur. Samræður stúlkn- anna snúast ekki um sérlega mikilvæg efni, það er talað um karlmennina og dálítið um arð- ránið og fleira. En þetta er lifandi saga og vel sögð, lesandi fær góða hugmynd um hag og líðan þessara stúlkna. Inn í sög- una fléttast fjölskyldumál stúlk- unnar Brynju, sem hefur verið vanheil á geði og vill ekki verða hlaðfreyja, þrátt fyrir grátbeiðnir móður hennar. Brynja vill bara vinna í dósaverksmiðjunni. Einnig koma einkamál verkstjórans Lár- usar Björnssonar við sögu og kona hans, Lóló, gerir uppreisn gegn honum og yfirgefur hann vegna þess að hann metur ekki vinnu hennar og er naumur á peninga til nauðþurfta. Hann situr eftir jafn skilningssljór og áður: dæmigerð- ur karlmaður sem ekki botnar neitt í neinu. Dósaverksmiðjustúlkunum og fleiri sögupersónum er lipurlega lýst og sagan rennur fram í fremur stuttum og hnitmiðuðum köflum, sem allir hafa í sér samhengi og það er góður stígandi í bókinni. Þegar slys verður í dósaverk- smiðjunni, vegna ónógs öryggis- búnaðar taka konurnar sig saman. Þær leggja niður vinnu, vegna þess að aðstaðan fæst ekki bætt. Lárus verkstjóri lendir í hinum mestu vandræðum og hann reynir að fá liðsinni forstjóra fyrirtækis- ins, Más Blöndal, sem er heldur ólafur Haukur Simonarson Bókmenntlr eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR fráhrindandi og ekki kærusamur aðili. En Már er sofandi og Lárusi stendur þvílík ógn af svo fínum forstjóra að það má ekki vekja hann að sinni. Blaðamenn streyma á vettvang og þá fer Blöndal að runíska. Stöðvar allar fréttir í blöðunum, en ákveður að segja engum upp. „Þetta mál er allt á misskilningi byggt," segir Már við Lárus. „Það er út úr heiminum. Lárus, málið er út úr heiminum." En svo er að skilja að nú sé Lárusi nóg boðið: ... „Málið er útúr heiminum segir Már Blöndal. Vinnufriðurinn er fyrir öllu. Skál Lárus!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.