Morgunblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980 11 þennan hátt er höggvið að sæmd og heiðri þeirrar stofnunar, sem er helzti hornsteinn réttaröryggis í landinu, og til þess treyst af þjóðinni að leysa úr ágreiningi að réttum lögum einungis. Ekki er því að neita að sérstætt andlegt atgervi þarf til þess að halda slíkri samsæriskenningu fram um störf æðsta dómstóls þjóðarinnar, án minnsta snefils af rökum eða sönnunum um réttmæti hennar. Enn sérstæðara er að ásakanir um svo gróf embættisbrot skuli koma fram frá manni, sem fyrir skömmu fór með embætti dóms- málaráðherra landsins og ætti því öðrum fremur að þekkja til starfs- hátta Hæstaréttar. Slík gífuryrði verða því hér ekki afsökuð með ókunnugleika. Og hér við bætist að þingmanninum er fullkunnugt um að hæstaréttardómurum er torkleift, starfs síns vegna, að svara slíkum árásum á opinberum vettvangi eða gefa þar skýringar á dómum sínum. Þingmönnum, sem öðrum borg- urum þessa lands, er vitanlega fullheimilt að gagnrýna allt það, er miður fer á sviði dómsmála sem annars staðar í þjóðfélaginu. Til þess er prentfrelsið í stjórnar- skránni. En þá lágmarkskröfu verður að gera til slíkrar gagn- rýni, að hún sé rökstudd og máiefnaleg, en ekki fullkomlega úr lausu lofti gripin, ekki sízt þegar spjótum er beint að þeirri stofnun, sem er helzti vörður laga og réttar í landinu og hefur frá öndverðu rækt það hlutverk sitt af hendi með miklum ágætum. Gunnar G. Schram, formaður Lögfræðingafélags íslands. Þá skvettir Lárus Björnsson innihaldi glassins í andlitið á Má Blöndal." Með það endar bókin, en verkakonurnar hafa samt unnið nokkurn sigur. Þeim verður ekki sagt upp og það er trúlegt að aðstaða þeirra verði bætt, eða við höfum að minnsta kosti ástæðu til að ætla það. Galeiðan er að mörgu leyti góð bók og segir í knöppu máli og liðlegu býsna áhrifaríka sögu, lýsir af skilningi og án teljandi öfga — nema hvað varðar for- mann atvinnurekendaklúbbsins, sem kemur eins og skrattinn úr sauðaleggnum — aðstöðu stúlkn- anna í verksmiðjunni. Kaflarnir um formanninn tengjast ekki söguþræðinum, hafi það verið ætl- an höfundar að setja þetta upp í andstæður sínar, finnst mér hann sem sagt skjóta yfir markið. MYNDAMÓTHF. PRENTMYNDAGERÐ AÐAL3TRÆTI • - SfMAR: 17152-17355 W \llökull hf. Ármúla 36. Símar 84366 - 84491 SÍVINSÆL BARNABÓK SALÓMON SVARTI eftir HJÖRT GiSLASON Sagan um Salómon svarta átti gífur- legumvinsældum að fagna þegar hún kom fyrst út. en hefur verið ófáanleg um árabil. Þvt gefur Bókaforlag Odds Björnssonar bókina út að nýju. I bókinni segir frá þeim bræðrum Fía og Fóa, en þeir alast upp hjá Skúla afa sínum og Þurtöi ömmu sinni. Óvænt bætist einn meðlimur í fjölskylduna, svart hrútlamb, sem þeir bræður nefna Salómon svarta. Skúli I Smiðjubæ fann hann hjá mömmu sinni sem lá dauð milli þúfna og var lambið heldur óburðugt í fyrstu. En það færist lif i Salómon svo um munar og ævintýri þau sem hann og bræðurnir lenda i eru óvænt og skemmtlleg. Hjörtur Gíslason segir söguna á eðlilegan og kíminn hátt svo allir geta haft gaman af, bæði börn og fullorðnir. Bókina prýða teikningar eftir Hall- dór Pétursson. Verð gkr. 4.940 — nýkr. 49,40 BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR BÓKAFORLAGSBÚI ATBURÐIR SEM SKIPTU SKÖPUM FYRIR ÍSRAEL ÞRENNING eftir KEN FOLLETT Árið er 1968. Leyniþjónusta (sra- els hefur komist að því um seinan að Egyptar, með aðstoö Sovét- manna, munu eignast kjarn- orkuvopn innan nokkurra mán- aða — sem þýddi ótímabæran endi á tilveru hinnar ungu þjóð- ar. (sraelsmenn brugðu þá á það ráð aö stela úrani úti á rúmsjó og segir frá því einstaka þrekvirki í þessari bók. Þetta er eitthvert furðulegasta njósnamál síöustu áratuga og best geymda leyndar- mál aldarinnar. Jafnframt því að vera hörkuspennandi er ÞRENNING stór- furðuleg ástarsaga. Verögkr. 15.930 — nýkr. 159,30 BÓKAFORLAG ODDS BJÚRNSSONAR ÞAÐ GNEISTAR AFÞESSUM MINNINGAELDI VINIR I VARPA eftir JÓN G(SLA HÖGNASON Gísli á Læk, eins og hann er jafnan nefndur af samferða- mönnum sínum, er roskinn bóndi úr Árnessýslu. ( þessari gagn- merku og skemmtilega skráðu bók rekur hann endurminningar sínar frá æsku og uppvexti á fyrstu áratugum þessarar aldar. Ljóslifandi er lýsing hans á bú- skaparháttum þess tíma og samskiptum viö menn og málleysingja í bliðu og stríðu. Það gneistar af minningaeldi hins greinda bónda ogfrásögnin hefur ótvírætt mikið menningarsögulegt gildi. Bókina prýða margar myndir og i bókarlok er nákvæm nafnaskrá. Verðgkr. 19.760 —nýkr. 197,60 BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.