Morgunblaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980
15
Sautján ára gamall sonur John Lennons, Julian, kemur til
Dakota-fjölbýlishússins i New York.
Beðið fyrir
John Lennon
Liverpool. 10. des. — AP.
Bænasamkoma var haldin í
Liverpool í dag til þess að
minnast hins látna hitils
John Lennons og sagði prest-
urinn sem stjórnaði samkom-
unni, Donald Grey, að Lcnnon
myndi 'ávallt lifa í hugum
fólks sem „maður friðarins“.
„Hann notaði tónlistargáfu sína
í þágu friðar og bræðralags í
heiminum," sagði Grey. „Hann
hefur nú látið lífið vegna óskiljan-
legs ofbeldisverks og við skulum
biðja fyrir þeim sem leiðst hafa út
á slíkar brautir."
Lög Lennons voru leikin stöðugt
í útvarpinu, blóm voru lögð fyrir
framan söngklúbbinn, þar sem
bítlarnir slógu fyrst í gegn og
kirkjuyfirvöld í Liverpool til-
kynntu, að minningarathöfn um
Lennon kynni að verða haldin
innan tíðar.
Soyus snýr aft-
ur til jarðar
Moskva. 10. des. — AP.
SOVÉSKIJ geimfararnir þrír,
Kizim. Marakov og Strekalov
sem skotið var á loft í nóvember
síðastliðnum hafa tekið stefnu
aftur til jarðar eftir að hafa
hringsólað um sovésku geimstiið-
ina Salyut 6 í tæplega tvær vikur,
að því er útvarpið í Moskvu
tilkynnti i dag.
Þetta er í fyrsta skipti sem
geimfarar dveljast í Salyut 6 síðan
tveir aðrir sovéskir geimfarar
settu þar dvalarmet í geimnum í
október síðastliðnum.
Fréttastofan sagði að geimfar-
arnir væru nú að hefja lokaundir-
búning fyrir lendinguna á jörðinni
og að líðan þeirra væri í besta lagi.
Þrettán geimskipaáhafnir hafa
átt viðdvöl í Salyut 6 um lengri
eða skemmri tíma síðan rann-
sóknarstöðinni var skotið á loft
fyrir þremur árum og þar hafa 14
geimfarar verið af öðru þjóðerni
en sovésku. Nú eru í þjálfun í
Sovétríkjunum geimfarar frá
Rúmeníu, Mongólíu og Frakklandi
sem áætlað er að muni taka þátt í
sameiginiegum geimferðum til
Salyut 6 í framtíðinni.
Þetta gerðist 11. des.
1317 — Birgir Magnússon Svíakon-
ungur lætur handtaka bræður sína,.
hertogana Eirík og Valdimar, í
Nyköbinghöll.
1515 — Leo páfi X lætur Parma og
Piacenza af hendi við Frakka með
Bologna-sáttmála.
1718 — Karl XII fellur við Frede-
rikshald í herförinni gegn Norð-
mönnum.
1806 — Saxland gengur í Rínarsam-
bandið og verður konungsríki með
Posen-friðnum við Frakka.
1816 — Bretar skila Hollendingum
Jövu.
1845 — Síkhar sækja yfir ána
Sutlej á Indlandi og Fyrra Síkha-
stríðið hefst.
1853 — Bretar innlima Nagpur á
Indlandi.
1878 — Sameiginlegri stjórn
Frakka og Breta í Egyptalandi
hætt.
1899 — Ósigur Breta við Magers-
fontein, Óraníu-fríríkinu.
1936 — Georg VI verður konungur
Englands eftir valdaafsal Játvarðar
VIII.
1937 — Italir fara úr Þjóðabanda-
laginu.
1941 — Bandaríkin segja Þýzka-
landi og Ítalíu stríð á hendur.
1961 — Bein hernaðaraðstoð Banda-
ríkjanna við Suður-Víetnam hefst
með komu tveggja bandarískra
þyrlusveita til Saigon.
1972 — Geimfararnir í Apollo 17
lenda á tunglinu.
1974 — Brezka þingið hafnar
endurvakningu dauðarefsingar fyrir
hryðjuverk.
Afmæli. Hector Berlioz, franskt
tónskáld (1803—1869) — Alfred de
Musset, franskur rithöfundur
(1810-1857).
Andlát. 1913 Menelik II Eþíópíu-
keisari.
Innlent. 1930 „Garnaslagurinn“
(átök lögreglu og verkfallsmanna
við Garnahreinsunarstöðina) —
1933 Hannes Jónsson og Jón í
Stóradal reknir úr Framsóknar-
flokknum — 1942 Haraldur Guð-
mundsson tilkynnir að tilraun til
stjórnarmyndunar hafi mistekizt —
1951 Alþingi staðfestir herverndar-
samninginn — 1975 Tveir brezkir
dráttarbátar sigla á „Þór“ í mynni
Seyðisfjarðar. Island kærir Breta
fyrir Öryggisráðinu.
Örð dagsins. Tvær verstu uppfinn-
ingar mannkynsins eru miðöldum
að þakka — púðrið og rómantísk ást
— André Maurois (1885—1967).
Afleiðingar vísitölukerfis-
ins eru vaxandi verðbólga
I breska blaðinu The Econom-
ist frá 6. dcs. sl. er grein um
islensk efnahagsmál og nýút-
komna skýrslu OECI) þar að
iútandi. Greinin fcr hér á eftir
litillega stytt:
Hvar er efnahagsmálum best
stjórnað í Evrópu? Svarið er Island
cf atvinnuleysið er haft í huga. Þar
hefur verið full atvinna fyrir lands-
menn allan síðasta áratug. En hvar
er efnahagsmálum verst stjórnað?
Svarið er líka ísland ef verðbólgan
er tekin sem dæmi, en hún hefur
verið 50% allan áratuginn. er nú
58% og kann að fara vaxandi.
Ástæðurnar fyrir íslenskri verð-
bólgu má tákna með einu orði:
fiskur. Efnahagur þjóðarinnar
byggist nær eingöngu á fiskút-
flutningi, sem nemur 3A alls útflutn-
ings og tekur sífelldum stökkbreyt-
ingum bæði í verði og magni.
I fiskiðnaði starfa aðeins 13%
vinnuaflsins en launagreiðslur þar
eru stefnumarkandi fyrir allar aðr-
ar atvinnugreinar. Sjávarútvegi og
fiskiðnaði er séð fyrir fjármagni á
hverju sem veltur og batnandi verð
fyrir afurðirnar veldur launahækk-
unum, sem síðan velta um allt
hagkerfið. Lækkandi afurðaverð
veldur hins vegar, að sjálfsögðu,
' * *
"* V
u k’
l
ekki launalækkunum hjá sjómönn-
um og fiskverkunarfólki.
Lækkandi fiskverð eða minnkandi
veiði leiðir til óhagstæðs viðskipta-
jafnaðar, sem venjulega er mætt
með mikilli gengislækkun og mikl-
um verðhækkunum á innanlands-
markaði. Þegar svo olíukostnaður-
inn bætist- við — og íslendingar
kaupa olíuna á Rotterdamverði — er
útkoman „suður-amerísk“ verð-
bójga.
íslendingar hafa aðlagast þessu
ástandi á undraverðan hátt en orðið
að gjalda fyrir það með vaxandi
vísitölubindingu og þar af leiðandi
sjálfvirkri verðbólgu. Laun hafa
verið vísitölubundin mest allan
þennan áratug og fjárskuldbind-
ingar í stöðugt ríkari mæli.
Á árinu 1975 frestaði ríkisstjórnin
vísitölugreiðslum á laun og afleið-
ingarnar urðu þær, að kaupmáttur-
inn hrapaði um 12%. Nú hafa áhrif
erlendra verðhækkana verið tekin út
úr vísitölukerfinu að öllu leyti nema
hvað varðar laún sjómanna og má
það dæmigert heita. Áhrifin af
síðustu olíuverðhækkun virðast
minni en áður en segja þó fyrr til
sín: raunverulegar þjóðartekjur
minnkuðu um 6% árið 1975 en talið
er að samdrátturinn verði aðeins um
1% í ár. En eyðileggjandi áhrif
verðbólgunnar, af völdum vísitölu-
bindingarinnar virðast nú öllu meiri
en áður.
í síðustu skýrslu Efnahags- og
framfarastofnunar Evrópu, OECD,
um íslensk efnahagsmál, sem kom
út fyrir skömmu, er bent á leiðir út
úr vandanum, sem yrðu þá farnar
um leið og gjaldmiðilsbreytingin,
sem verður nú um áramótin:
+ Strangt aðhald í launa- og
verðlagsmálum, stutt lækkun per-
sónuskatta. Leyfðar verði erlendar
veðhækkanir en aðeins sem liður í
víðtækum efnahagsaðgerðum, ella
kæmi allt fyrir ekki með auknum
kaupkröfum.
+ Full verðbinding fjárskuld-
bindinga.
+ Reynt verði að forðast verð-
bólguáföll af völdum breyttrar
gengisskráningar. Verðjöfnunar-
sjóður fiskiðnaðarins hefur ekki
reynst hlutverki sínu vaxinn og
betra kynni að vera að beita auð-
lindaskatti eða útflutningsgjaldi og
meira eftirliti með lánum til fyrir-
tækja í sjávarútvegi og fiskiðnaði.
+ Strangari fjárlaga- og pen-
ingamálastefna til að gera „aftur-
hvarfið“ frá núgildandi kerfi eins
auðvelt og kostur er.
u> •
VI
i dansara til
á hverjum einasta gs söngurinn og ,^tt spor i
Stverslu" okkar —
þér emtfk og P
— ■ kaupbgtl~ _