Morgunblaðið - 11.12.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980
Bæjarstjórn Sauöárkróks:
Blanda verði
virkrað næst
Verðlaun fyrir akstursiþróttir sumarsins afhent. Á myndinni eru frá vinstri. Örvar Sigurðsson, formaður
LÍA, ómar og Jón Ragnarssynir, Jón S. Halldórsson, Ólafur Vilhjálmsson, Bragi Finnbogason. Oddur
Vífilsson og Gunnar Þ. Jónsson.
Verðlaun afhent hjá LÍA
NÝLEGA afhenti Landssamband
islenzkra akstursiþrótta verð-
laun fyrir sameiginlcgan árang-
ur á mótum sumarsins. Alls var
keppt um 30 sinnum í sumar í
fimm flokkum á vegum LÍA.
Þetta var i annað skipti sem
verðlaun voru veitt fyrir Rally og
rally-cross, en i fyrsta skipti
í jóla-
umferðinni
Spurningakeppni
skólabarna
ÞESSA dagana fer fram í skól-
um um land allt spurninga-
keppni 6—12 ára barna um
umferðarmál sem kallast „í
jólaumferðinni“:
Tilgangur hennar er að vekja
athygli skólabarna og fjöl-
skyldna þeirra á ýmsum mikil-
vægum reglum umferðarinnar,
að því er segir í tilkynningu frá
umferðarráði. Segir ennfremur
að ætlast sé til að börnin leiti
samráðs við kennara og foreldra
um réttar lausnir en þó hjálp
þeirra fullorðnu sé mikilvæg sé
um að gera að láta börnin
spreyta sig sem mest sjálf á
verkefninu.
Ýmis félög og stofnanir gefa
verðlaun sem einkennisklæddir
lögregluþjónar munu víðast hvar
gefa þeim heppnu fyrir jólin. í
Reykjavík fá 175 börn bókaverð-
laun og mun lögreglan heim-
sækja þau á aðfangadag.
: inlaumferó,-
| J 1980
,fyrir kvartmílukeppni,
spyrnu og motor-cross.
sand-
Bræðurnir Jón og Ómar Ragn-
arssynir urðu hlutskarpastir í
rallymótum sumarsins. Verðlaun í
þeim flokki gaf Ford-umboðið. I
rally-cross sigruðu Jón S. Hall-
dórsson og verðlaun gaf Kristinn
(ielraun
skólahörn
Árni Blandon og Tinna
Gunnlaugsdóttir í hlutverk-
um slnum í „Smalastúlkunni
og útlögunum“.
Síðustu sýningar á
„Smalastúlkunni
og útlögunum“
Nú um helgina, nánar tiltek-
ið föstudaginn 12. og sunnu-
daginn 14. desember, verða
allra seinustu sýningarnar á
Smalastúlkunni og lltlögun-
um eftir Sigurð Guðmundsson
og Þorgeir Þorgeirsson. Verkið
er í leikstjórn Þórhildar Þor-
leifsdóttur og leikmyndin er
eftir Sigurjón Jóhannsson. Með
helstu hlutverkin fara Árni
Blandon, Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Baldvin Halldórsson,
Kristbjörg Kjeld, Róbert Arn-
finnsson, Arnar Jónsson, Guð-
rún Þ. Stephensen, Gunnar
Eyjólfsson, Þráinn Karlsson,
Helga E. Jónsdóttir, Helgi
Skúlason, Rýrik Haraldsson,
Þóra Friðriksdóttir og Þórhall-
ur Sigurðsson.
Leikritið var frumsýnt á
þrjátíu ára afmæli Þjóðleik-
hússins sl. vor og hefur þegar
verið sýnt 40 sinnum, en sýn-
ingum lýkur nú fyrir jól.
Bókagjöf frá Austurríki
FRÁ Austurríki hefur nýlega
borist bókagjöf til Islands og
afhenti austurríski ræðismað-
urinn, Ludwig Siemsen, gjöf
0'
INNLENT
þessa forstöðumanni þýska
bókasafnsins, Colette Biirling.
Bækur þessar munu verða
varðveittar í safninu og er
hægt að fá þær lánaðar þar.
Hér er um að ræða úrva!
austurrískra fagurbókmennta.
Meðal höfunda mánefna Hugo
von Hofmannsthal, Arthur
Schnitzler, Franz Kafka, Stef-
an Zweig, Robert Musil, Rein-
er Maria Rilke, Paul Celan og
Peter Handke.
Guðnason. Ólafur Vilhjálmsson
sigraði í kvartmílunni og þar gaf
Ö.S.-umboðið verðlaun. I sand-
spyrnunni bar Bragi Finnbogason
sigur úr býtum, en þar var aðeins
ein keppni gild. Verðlaun gaf B.A.,
Gunnar Þ. Jónsson sigraði í 50 cc.
flokki í motor-cross og Oddur
Vífilsson í 500 cc. flokki.
Sauóárkróki, 10. desember.
VEGNA umræðna. sem nú eiga
sér stað um virkjunarmál Blöndu
gerði bæjarstjórn Sauðárkróks
eftirfarandi samþykkt um málið
á fundi sínum i gær, 9. desember:
„Bæjarstjórn Sauðárkróks skor-
ar á iðnaðarráðherra að beita sér
nú þegar fyrir því að ákvörðun
verði tekin um virkjun Blöndu
sem næsta áfanga í virkjunarmál-
um þjóðarinnar. Bæjarstjórnin
minnir á það fyrirheit í stjórnar-
sáttmála núverandi ríkisstjórnar,
að næsta vatnsaflsvirkjun skuli
vera utan eldvirkra svæða. Bæjar-
stjórn Sauðárkróks leggur á það
ríka áherzlu að samningar takist
strax við þá landeigendur, sem
hagsmuna eiga að gæta, þannig að
framkvæmdir geti hafizt við sjálfa
virkjunina sem fyrst, helzt á árinu
1981.“
Þessi samþykkt var gerð með 9
samhljóða atkvæðum bæjarfull-
trúa.
Telja má víst, að allur þorri
Sauðárkróksbúa sé sammála þess-
ari ályktun bæjarstjórnarinnar.
Kári
r
1
á
6 skip með
loðnuafla
REYTINGSAFLI hefur verið
loðnumiðunum austur af Kol-
beinsey i vikunni og er heildar-
aflinn á vertiðinni nú orðinn um
360 þúsund lestir. Eftirtalin skip
tilkynntu Loðnunefnd um afla í
gær og í fyrradag:
Þriðjudagur: Keflvíkingur 500,
Bergur 500.
Miðvikudagur: Rauðsey 580,
Skírnir 380, Ljósfari 220, Isleifur
400.
Lucíuhátíðir
Akureyrarkirkju
Akureyri, 10. dcsember.
KARLAKÓR Akureyrar heldur
Lucíuhátíð í Akureyrarkirkju 11.
og 12. desember klukkan 20:30
bæði kvöldin.
Söngstjóri er Guðmundur Jó-
hannsson, en hlutverk Lúcíu er
sungið af Auði Aðalsteinsdóttur.
Henni fylgja tólf söngmeyjar.
Aðrir einsöngvarar með kórnum
verða Halldór Þórisson og Óskar
Pétursson, en þar að auki syngja
þau Helga Alfreðsdóttir og Eirík-
ur Stefánsson einsöng og tvísöng.
Undirleikarar verða Dýrleif
Bjarnadóttir og Jakob
Tryggva-
Sverrir
Leiðrétting
í GREIN Jóns Brynjólfssonar í
blaðinu 7. des. sl. féllu niður tvær
línur neðarlega í 4. dálki. Setn-
ingarnar, sem við það brengluðust,
eru þannig: „Lýðræðiskjörið sýnir, að
þessi aðferð er út í hött. Það er hægt
að ná jöfnuði milli flokka beint út frá
heildaratkvæðafjölda, án þess að
fjöldi kjördæma og þingmanna komi
þar við sögu.
Menntamálaráðuneytið:
Mælir ekki með frestun
á flutningi háhyrninganna
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
athugasemd frá Menntamála-
ráðuneytinu vegna fréttar um
háhyrninga í Sædýrasafninu í
blaðinu i gær. í athugasemdinni
kemur m.a. fram, að ráðuneytið
treysti sér ekki til að mæla með
beiðni um framlengingu frests
um að flytja háhyrningana úr
landi til 20. þessa mánaðar.
„Athugasemd írá Mennta-
málaráðuneytinu.
í Morgunblaðinu í dag, á 2. síðu,
er frétt sem ber yfirskriftina
Iláhyrningarnir hinir spræk-
ustu.
í fréttinni segir m.a.: „Dýrin
áttu að vera farin héðan fyrir 1.
desember, en nú hefur Mennta-
málaráðuneytið framlengt leyfi
fyrir dýrunum og mega þau vera í
Sædýrasafninu fram í miðjan
þennan mánuð."
Vegna þessa óskar ráðuneytið
að taka fram eftirfarandi:
Ráðuneytið veitir ekki rekstr-
arleyfi Sædýrasafninu til handa,
heldur er það bæjarfógetinn í
Hafnarfirði. Ráðuneytið er hins
vegar umsagnaraðili varðandi
safnið, sbr. Reglugerð nr. 67/1971.
Bæjarfógeti leitaði umsagnar
ráðuneytisins um bréf forstöðu-
manns Sædýrasafnsins, dags. 3.
þ.m., þar scm þess var farið á leit
að framlengdur yrði frestur til 20.
þ.m. til að flytja úr landi þá 5
háhyrninga sem geymdir eru í
hvalalaug safnsins. Ráðuneytið
treysti sér ekki til að mæla með
þessari beiðni, sbr. hjálagt ljósrit
af bréfi ráðuneytisins til bæjar-
fógetans í Hafnarfirði, dags. 9.
þ.m.“
Bréf Menntamálaráðuneytisins
til bæjarfógetans í Hafnarfirði 9.
desember var svohljóðandi:
'
„Ráðuneytið vísar til bréfs yðar,
herra bæjarfógeti, dags. 5. þ.m., og
ljósrits af bréfi Jóns Kr. Gunn-
arssonar, forstöðumanns Sædýra-
safnsins í Hafnarfirði, dags. 3.
þ.m., þar sem þess er farið á leit
að framlengdur verði frestur til að
flytja úr landi 5 háhyrninga, sem
veiðst hafa á vegum Sædýrasafns-
ins og eru nú geymdir í hvalalaug
þess.
Vegna þessa tekur ráðuneytið
fram eftirfarandi:
í bréfi ráðuneytisins, dags. 5.
september 1979, var það gert að
skilyrði, þar sem mælt var með
rekstrarleyfi Sædýrasafninu til
handa, „að hvalir verði • ekki
geymdir í safninu að vetrinum
eftir 1. desember." í leyfisbréfi
yðar, herra bæjarfógeti, til að
reka safnið, dags. 17. september
1979, var þetta skilyrði m.a. sett,
en svo sem yður er kunnugt
fullnægði Sædýrasafnið ekki
þessu skilyrði, sbr. bréf ráðuneyt-
isins, dags. 4. desember 1979, en
niðurlag þess er svohljóðandi:
„Þar sem Sædýrasafnið hefur
ekki fullnægt framangreindu skil-
yrði um að hvalir yrðu ekki í
safninu eftir 1. desember, leggur
ráðuneytið til að háhyrningarnir
verði tafarlaust fluttir úr landi
eða þeim sleppt að öðrum kosti, að
viðlagðri sviptingu rekstrarleyf-
is.“
Nú gerist það í annað sinn að
Sædýrasafnið gerist brotlegt við
þær reglur, sem því hafa verið
settar varðandi þetta atriði, og
biður ekki> um undanþágu til þess
að hafa háhyrninga í fyrrgreindri
hvalalaug eftir 1. desember fyrr
en með bréfi til yðar, dags. 3. þ.m.
Ráðuneytið getur ekki unað þessu
og telur sér því ekki fært að mæla
með áðurgreindri beiðni um und-
anþágu til að hafa umrædda 5
háhyrninga í Sædýrasafninu til
20. desember.
Ingvar Gíslason.
Knútur llallsson."