Morgunblaðið - 11.12.1980, Síða 31

Morgunblaðið - 11.12.1980, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980 31 Stórleikur Ásgeirs - skoraði þrjú mörk LIÐ Ásgeirs Sigurvinssonar Standard Liege yíirspilaði Austur-Þýska liðið Dynamo Dres- den aigjorlega i UEFA-keppninni í knattspyrnu í gærkvöldi er liðin mættust í Dresden. Þetta var siðari leikur liðanna. Fyrri leikn- um sem fram íór í Belgíu lauk með jafntefli 1 — 1. Síðari leikn- um lauk hinsvegar með stórsigri Standard Liege sem sigraði 4—1. Staðan í hálfleik var 2—0. Það var fyrst og fremst stór- leikur Ásgeirs Sigurvinssonar sem færði Standard þennan stóra sig- ur. Ásgeir snéri hvað eftir annað á mótherja sína og átti snilldar sendingar á samherja sína að sögn fréttaskeyta. Þá voru öll mörk hans, 3 að tölu, mjög glæsileg. Fyrsta markið skoraði Ásgeir á 17. mínútu leiksins. Fimm mínút- um áður en flautað var til hálf- leiks fékk Standard aukaspyrnu 18 metra frá marki. Og eins og Ásgeiri er einum lagið sendi hann 10 ár frá láti Rúnars Vilhjálmssonar FYRR Á þessu ári voru liðin 10 arstig, Verzluninni Straumnesi ár frá þvi að Rúnar Vilhjálmsson og Bókaverzlun Olivers Steins í knattspyrnumaður úr Fram lézt Hafnarfirði. af slysförum í keppnisför með islenzka landsliðinu til Englands. Stofnaður var minningarsjóð- ur um Rúnar heitinn og var veitt fé úr honum til byggingar félags- heimilis Fram við Safamýri. Nýlega hefur verið fjölgað sölustöðum, þar sem minningar- kort sjóðsins verða til sölu. Munu þau eftirleiðis fást í Lúllabúð við Ilverfisgötu, Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar við Klapp- Björk vann bronsverðlaun í FRÉTT á íþróttasíðu Mbl. í Rúnar Vilhjálmsson Fram burstaði ÍBK! þrumufleyg með miklum snúningi í markið framhjá varnarvegg Þjóðverjanna. Þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum skoraði Ásgeir svo þriðja markið. Tahamata skoraði fjórða mark leiksins. Á 80. mínútu tókst svo Þjóðverjum loks að skora eitt mark. 35.000 áhorfendur fylgdust með leiknum sem var sjónvarpað um allt Austur-Þýskaland. Þjálfari Standard, Ernst Happel, sagði eftir leikinn að lið sitt hefði leikið mjög vel og hann væri í sjöunda himni. Happel kom á sínum tíma FC Brugge í úrslitaleik UEFA- keppninnar. ARNÓR Guðjohnsen og félagar hans hjá belgiska félaginu Loker- en smeygðu sér i átta liða úrslitin í UEFA — keppninni i gær- kvöldi, er liðið nældi sér í jafn- tefli á útivelli gegn spænska liðinu Real Sociedad. Lokeren vann heimaleik sinn 1—0 og 2—2 urðu lokatölurnar í gærkvöldi. FRAM opnaði toppharáttuna í 1. deildarkeppninni í körfuknatt- leik upp á flóðgátt i gærkvöldi með því að verða fyrst liða á þessu keppnistímahili til þess að sigra ÍBK. Sigur Fram var Iweði stór og verðskuldaður, liðið lék miklu betur og i heild mjög vel þrátt fyrir að gifurlegan villu- rosa drægi upp á himininn hjá liðinu. Siðari hluta leiksins missti liðið hvern máttarstólp- ann af öðrum út af, en það kom ekki að sök, þeir sem í staöinn komu héldu strikinu og Fram vann mjög frækinn sigur, 86— 66, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 38—30 fyrir Fram. Fram lék feiknarlega sterkan varnarleik að þessu sinni eins og sjá má af stigatölunni, barátta leikmanna var gífurleg og hafa varamennirnir áreiðanlega verið jafn þreyttir og fastamennirnir í leikslok, því hávaðinn og lætin á bekknum var slíkur, að annað eins hefur varla sést eða heyrst. Ef frá eru taldar fyrstu mínútur fyrri hálfleiks, hafði lið Fram allan tímann forystuna. Það dró þó ekki verulega í sundur fyrr en í síðari Lokeren kom.st í 2—0 í fyrri hálfleik með mörkum danska leikmannsins Prebcn Elkjær Lar- sen, en spænska liðið jafnaði i siðari hálfleik með mörkum Uf- arte og Zamore. Ilinir 30.000 áhorfendur voru litt hrifnir af gangi mála. Fram:ÍBK 86:66 hálfleik. Villudraugurinn grúfði sig yfir Fram, liðið missti þá Viðar Jónsson, Þorvald Geirsson, Val Bracey, Björn Magnússon og Ómar Þráinsson út af með fimm villur síðustu 10 mínúturnar. En það eina sem gerðist var að Fram jók forystuna! Mestur varð mun- urinn 22 stig, en lokamunurinn 20 stig, 86—66 eins og áður sagði. Lið ÍBK, sem tapaði þarna sínum fyrsta leik í vetur, lék illa að þessu sinni. Atkvæðamestir voru Terry Reid sem skoraði 15 stig og Axel Nikulásson sem skoraði 12 stig. En báðir léku illa gegn ofureflinu. Hjá Fram stóðu menn sig hins vegar hver öðrum betur, engir þó betur en Símon Ólafsson og Val Bracey, sem voru frábærir. Símon skoraði 24 stig, Bracey 21 og Viðar Jónsson kom næstur með 12 stig. — gg. Stjörnuhlaup FH STJÖRNUIILAUP FH fer fram næstkomandi laugardag og hefst það klukkan 14.00. Hefst hlaupið við íþróttahús Lækjarskóla. Keppt verður bæði í karla og kvennaflokki og hlaupa karl- mennirnir 5 kílómetra, en kven- fólkið 2,5 kílómetra. Lokaren komst áfram gærdag af góðum árangri fim- leikastúlkna á alþjóðlegu móti i Luxemborg féll niður nafn Bjarkar Ólafsdóttur sem vann bronsverðlaun í flokki 17 — 18 ára. Mót það er stúlkurnar kepptu á var aldursflokkakeppni í fimleikum. Birna Björnsdóttir sem dæmdi gólfæfingar á mótinu var ekki ein af fararstjórum hópsins eins og skýrt var frá. heldur ferðamaður á eigin vegum á mótinu. Þá munu verðlaun stúlknanna ekki vera þau fyrstu sem fimleikafólk hlýtur erlendis. Áður hafa stúlkur unnið til verðlauna á fimleikamóti í Nor- egi. Úrslit í botn- baráttunni? EINN leikur fer fram í úrvals- deildinni í körfuknattleik og má með nokkrum sanni segja hann úrslitaleikinn um fallið. Það eru Ármann og ÍS sem leiða saman hesta sina í íþróttahúsi Hagaskól- ans og_ hefst leikurinn klukkan 20.00. Ármenningar standa nokk- uð höllum fæti fyrir þennan leik, þar er nokkur upplausn i herbúð- unum og mikill skortur á sjálfstrausti. Þá er engan veginn víst að Bandarikjamaðurinn James Breeler leiki með Ármanni vegna deilna sem hann á við félagið. ÍS vann hins vegar síðasta leik sinn í úrvalsdeildinni, ÍR, og hefur því fjögur stig. Stig Ármanns eru aðeins tvö talsins. Síðasti leikur ÍS bendir eindregið til þess að þeir séu sigurstranglegri gegn Ár- manni, en ekkert skyldi þó full- yrða. Tilkoma þeirra Jóns Oddssonar og Gunnars Thors í IS-liðið hefur gerbreytt liðinu til hins betra. Sigri ÍS í kvöld, verður staðan á botninum skyndilega mjög ljós. Leiörétting SÚ LEIÐA villa slæddist i blaðið í fyrradag er greint var frá iþróttamönnum í Texas, að rangt var farið með nafn lyftingakapp- ans. Hann heitir Stefán Sturla Svavarsson en ekki Sigurður, eins og skýrt var frá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.