Morgunblaðið - 11.12.1980, Page 32

Morgunblaðið - 11.12.1980, Page 32
Síminn á afgreiðslunni er 83033 JHvrgnnblntiib Demantur .M æðstur eðalsteina (§ttll Sc á£>ilftir Laugavegi 35 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980 Flugleiðir: Flugmenn til Líbýu á SAMKOMULAG náAist í K»r milli Flugieiða ok fluKmanna um storf fluKmanna á Fokkerum sem FIuk- leiðir leÍKja í farþeKafluK til Líhýu í eitt ár og^fer fyrri Fokkerinn utan nk. lauKardaK með þremur fluK- stjórum ok einum vélamanni, en síóustu atrióin sem samió var um vörðuðu yfirvinnu og frídaga. Erling Aspelund framkvæmda- stjóri stjórnunarsviðs Flugleiða sagði _ í samtali við Mbl. í gær að fyrri vélin færi fyrir hádegi á laugardag, en verið væri að kanna leigu á annarri vél og kæmi niðurstaða væntanlega skjótt í því máli. Þegar seinni vélin fer fara tveir flugstjórar með henni og einn vélamaður, en leigusamning- urinn er þannig að íslenskur flug- stjóri verður í hverri ferð, en aðstoð- arflugmaður af erlendu bergi. Verða íslensku flugstjórarnir í Líbýu í 30 daga minnst í einu, en þá er reiknað með að nýir taki við. Mögulegt er að Flugleiðir tékki út nýja flugstjóra vegna þessa verkefnis. Kristján Egilsson formaður FÍA sagði í samtali við Mbl. í gærkvöidi flugmenn teldu þessa samninga hag- stæða samninga fyrir Flugleiðir og þannig að flugmenn gætu vel sætt sig við á við þær aðstæður sem eru. „Þetta verkefni skapar atvinnu og þarna er farið inn á nýjar leiðir sem skapa væntanlega nýja möguleika í framtíðinni," sagði Kristján, en benti jafnframt á að þarna væri í rauninni verið að leigja flugvél með einum manni, því þeir ættu að fljúga með mönnum sem þeir þekktu ekki. Væri það að því leyti nýtt fyrir hinn þrönga hóp flugmanna á Islandi þar á Fokker laugardag sem allir væru þjálfaðir eftir sama kerfi og hefðu reynslu af persónulegu samstarfi í fluginu. Kvaðst Kristján vona að báðir aðilar, flugmenn og Flugleiðir mættu vel við una. Að- spurður um kaup Flugleiða á öðrum Fokker Landhelgisgæzlunnar sagði Kristján að flugmenn væru mjög ánægðir með þau kaup og þar væri um að ræða góða vél sem hefði verið í góðum höndum. Kvöld eitt, er skipið var í höfn í Englandi var mikill gleðskapur um borð. Skipverji á skipinu hefur viðurkennt við yfirheyrslur hjá RLR að hafa snemma morguninn eftir neytt eiginkonu eins skipsfé- laga síns til samfara á meðan félagi hans svaf. Málið var kært til Rannsóknarlögreglu ríkisins þegar skipið kom til landsins. Morgunblaðið leitaði frétta af máli þessu hjá Arnari Guð- mundssyni deildarstjóra RLR í gær og staðfest.i hann að stofnun- in hefði haft málið til meðferðar og sagði að rannsóknin væri vel á veg komin. Lánsfjáráætlun ekki afgreidd fyrir áramót: 30 milljarða lántökuheimild lögð fram á Alþingi í gær GUNNAR Thoroddsen forsætis- ráðherra kvaddi formenn þing- flokkanna á sinn fund i gær, og tilkynnti þeirn, að ekki yrði unnt að afgreiða lánsfjáráætlun fyrir jólaleyfi þingmanna. í ræðu á Alþingi í fyrradag sagði Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra. að ástæða þess að lánsfjáráætlunin væri svo seint á ferðinni væri sú. að upplýsingar og vinna frá Framkvæmdastofnun og Seðla- hanka hcfðu komið seint. auk þess sem hankaverkfall tefði fyrir gerð áætlunarinnar. Talsmenn stjórnarandstöðunn- ar kváðu það á hinn bóginn lágt lagst hjá ríkisstjórninni að bera slíku við, vitað væri að það væru erfiðleikar á stjórnarheimilinu-en ekki seinagangur embættismanna, sem tafið hefði gerð lánsfjáráætl- unarinnar. Það, að bæta svo ný- tilkomnu bankaverkfalli við, sýndi aðeins örvæntingarfulla tilraun til að grípa síðasta hálmstráið til afsökunar. Samkvæmt upplýsing- um er Morgunblaðið fékk í gær hjá þingmönnum í hópi stjórnar- liða, er líklegt að lánsfjáráætlunin verði lögð fram 17. til 18. þessa mánaðar, en gert er ráð fyrir að fjárlög verði afgreidd hinn 20. desember. Lánsfjáráætlunin verði þá afgreidd er þing kemur aftur saman að loknu jólaleyfi, í janúar eða febrúar. í gær lagði ríkisstjórnin hins vegar fram á Alþingi eins konar „bráðabirgðalánsfjáráætlun", þar sem annars vegar er um að ræða tæplega 5 milljarða lán til greiðslu aftur í tímann, og hins vegar 25 milljarða lántökuheimild fram í tímann. Er þetta gert til að bjarga ríkissjóði þar til endanleg lánsfjáráætlun liggur fyrir. Munu formenn þingflokka stjórnarand- stöðunnar hins vegar hafa til- kynnt forsætisráðherra í gær, að þeir myndu ekki fallast á af- greiðslu þessarar bráðabirgða- lánsfjáráætlunar, nema Alþingi fengi áður að sjá hina raunveru- legu lánsfjáráætlun. Alla jafna er lánsfjáráætlun afgreidd samhliða fjárlagafrum- varpi, en dæmi eru þess þó að slíkt sé ekki gert, við óvenjulegar eða óeðlilegar aðstæður í stjórn lands- ins af einhverju tagi. Nauðgun um borð í fiski- skipi í sölu- ferð UPPLÝST er að mestu alvarlegt kærumál, sem Rannsóknarlögregla ríkis- ins hefur haft til meðferð- ar að undanförnu. Málavextir eru þeir að íslenzkt fiskiskip hélt til Englands í sölu- ferð í haust. Með í förinni voru eiginkonur einhverra skipverja. Verðlagsráð: Bensínlítrinn í 580 krónur - meirihluti vill frjálsa varahlutaálagningu VERÐLAGSRÁÐ heimilaði á fundi í gær hækkun bensínlitrans úr 515 krónum í 580 krónur, sem er 12,6% hækkun. Rikisstjórnin mun fjalla um þessa ákvörðun verðlagsráðs og aðrar á fundi i dag, þar á meðal, að varahlutaálagning verði gefin frjáls. Auk bensínhækkunar heimilaði verðlagsráð 11% hækkun á gasolíu, sem hækkar lítrann úr 210 krónum í 234, og 7% hækkun farmgjalda skipafélaga og 15% hækkun vöru- geymslugjalda skipafélaganna. Ágreiningur var í verðlagsráði um varahlutaálagninguna og greiddu fulltrúar Alþýðusambands Islands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja atkvæði gegn því að gefa hana frjálsa. Asgeir^ skoraði þrennu Knattspyrnusnillingurinn Ás- geir Sigurvinsson sýndi stórleik i gærkvöldi er lið hans Standard sigraði Dynamo Dresden 4 — 1 í Dresden í IJEFA-keppninni i knattspyrnu. Ásgeir skoraði þrjú fyrstu mörk Standard ug voru þau öll stórglæsileg. Fjórða mark Standard skoraði svo Tahamata. Fyrri leik liðanna lauk með jafn- tefli 1 —I i Belgiu. Með þessum stóra sigri sínum komst Standard i átta liða úrslit í keppninni. Þetta er i annað skipti sem íslenskur knattspyrnumaður leik- ur það i Evrópukeppni að skora þrennu i leik. Pétur Pétursson skoraði þrennu i keppninni i fyrra fyrir lið sitt Feyencmrd. gegn Malmö FF. Sjá íþróttir. Slitnaði upp í bankamannasamningum: Deilt um yfirvinnutíma sem ígildi afturávirkni UPP úr samningaviðræðum slitnaði milli samninganefndar SÍB og samn- inganefndar hankanna rétt fyrir hádegi i gær og hafði nýr sáttafund- ur ekki verið boðaður i gærkveldi. Hins vegar bjóst rikissáttasemjari við, að siðdegis í dag yrði hoðaður nýr sáttafundur í þessari kjaradeilu. sem nú er farin að kreppa talsvert að 1 þjóðfélaginu og barst verkfalls- nefnd hankamanna i gær fjöldi undanþágubeiðna vegna launa- greiðslna. sem fram eiga að fara i dag og á morgun. Öllum þessum undanþágubeiðnum var hafnað. Þegar upp úr slitnaði voru menn enn að ræða afturvirkni 3ja prósent- anna, sem bankamenn höfðu krafizt að fá greidd frá 1. júlí 1979, en bankarnir hafa boðið frá 1. ágúst síðastliðnum. Til þess að freista þess að brúa þetta bil, höfðu umræður snúizt í að ræða um greiðslu fyrir þennan tíma að einhverju leyti og ræddu menn um fjölda yfirvinnutíma og orlofsálag í því sambandi. Höfðu menn nálgast talsvert og höfðu bank- arnir boðið, er upp úr slitnaði 10 yfirvinnutíma til greiðslu í janúar næstkomandi, en bankastarfsmenn kröfðust 15. Einnig buðu bankarnir ‘h% í orlofsálag, sem greiðast á um mitt ár. Orlofsálagið er nú 3%, en hankarnir buðust til þess að hækka það í 3‘á. Þegar málin stóðu þannig hljóp snurða á þráðinn, er í ljós kom, að aðilar lögðu mismunandi mat á þann umræðugrundvöll, sem verið var að ræða á og verulegur ágreiningur var um útreikning á afturávirkni 3ja prósentanna. Áður en upp úr slitnaði höfðu bankamenn gefið verulega eftir á þeim félagslegu kröfum, sem þeir hafa haft í frammi, en við lok sáttafundar lýstu þeir því yfir, að sú eftirgjöf gilti ekki lengur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.