Morgunblaðið - 20.12.1980, Page 3

Morgunblaðið - 20.12.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1980 3 Eggert Haukdal: Veit ekki hvort ég get sætt mig við að haf a gert þetta „ÉG HAFÐI ekki borið það á torn hvort ég væri á móti þessu frumvarpi. en éj? j?et þó sagt það. að ég var og er ekki hrifinn af þessu máli," sagði Eggert Ilaukdal alþingismað- ur í samtali við Morgunblaðið. en hann var spurður um ástæð- ur þess. að hann greiddi at- kvæði með frumvarpi ríkis- stjórnarinnar um vörugjald. Frumvarp þetta var afgreitt frá neðri deild Alþingis aðfara- nótt föstudagsins. „Svona fjáröflun finnst mér óheppileg í hæsta máta. Það muna allir, að innflutningur á sælgæti var gefinn frjáls, en síðan var þetta erlenda sælgæti skattlagt, vegna innlendra framleiðenda, en því var ég sannarlega samþykkur. Nú er búið að setja á vörugjald. Eg er á móti svona hringli," sagði Eggert. Eggert Haukdal Morgunblaðið spurði Eggert þá, hvers vegna hann hafi greitt atkvæði með frumvarpinu. „Ég fékk vörugjaldið lækkað úr 10% í 7% og auk þess var fundin lausn á fleiri málum.“ — Hvaða málum? „Það fékkst t.d. viss lausn á málefnum Byggðasjóðs, en hlut- verk Byggðasjóðs er m.a. að efla íslenska atvinnustarfsemi vítt og breitt um landið," sagði Eggert. Þá var Eggert spurður að því, hvort hann gæti sætt sig við þessa niðurstöðu mála. „Ég veit ekki hvort ég get sætt mig við að hafa gert þetta, en það verður að gera fleira en gott þykir, þegar menn eru í samstarfi. Mér finnst samt sem áður þessi skattheimta óeðlileg og til hennar hefði ekki þurft að koma ef þessir hlutir hefðu verið skoðaðir betur og í víðara samhengi,“ sagði Eggert Hauk- dal. Guðmundur G. Þórarinsson: Er í hjarta mínu á móti vörugjaldinu „ÉG ER i hjarta mínu á móti þessu vörugjaldi." sagði Guð- mundur G. Þórarinsson alþing- ismaður í samtali við Morgun- blaðið. en hann var spurður um ástæður hjásetu sinnar við at- kva'ðagreiðslu um frumvarp rikisstjórnarinnar um vöru- gjald, sem afgreitt var frá Neðri deild Alþingis aðfaranótt föstudagsins. „Það má segja að þegar 32 þingmenn standa að ríkisstjórn þá verður að vera mikil sam- staða meðai þeirra til að koma fram málum. Það er ljóst að allir þessir þingmenn eru ekki sam- mála í öllum málum. í flestum tilvikum eru þess háttar mál leyst innan þingflokkanná, en stundum telja menn nauðsynlegt að ágreiningur komi fram og mótmæla á þann hátt að fella frumvarp, en í þessu tilfelli stóð 31 þingmaður að þessu frum- varpi. Fall frumvarpsins hefði þýtt halla á fjárlögum sem aftur á móti hefði þýtt að þurft hefði Guðmundur G. Þórarinsson. að fresta afgreiðslu fjárlaga fram í febrúar," sagði Guðmund- ur. „Mín afstaða var sú, að þó ég væri algerlega á móti þessu frumvarpi, þá treysti ég mér ekki til að fella það, með þeim afleiðingum sem ég áður lýsti. Viðhorf sín í svona máli verður maður að eiga við sína eigin samvisku," sagði Guðmundur. „Það má segja að ég hafi átt um tvo kosti að velja og báða slæma. I fyrsta lagi gat ég fellt frumvarpið og í öðru lagi gat ég setið hjá og mótmælt á þann hátt.“ — Varst þú ekki nógu kjark- aður til að fylgja sannfæringu þinni í þessu máli? „Þetta er ekki spurning um kjark, menn verða að meta það í hverju tilviki hvernig bregðast á við. Ég tel mig hafa valið þann kostinn sem var minnst verstur í stöðunni. Ég hef heldur ekki trú á að aðrir hefðu breytt öðruvísi í minni aðstöðu. Hins vegar tel ég upphróp stjórnarandstöðunnar í þessu máli bæði hræsni og yfir- drepsskap," sagði Guðmundur G. Þórarinsson. KARNABÆR Laugavegi 66 — Glæsibæ. Sími 85055. „Dún watt“ (Hollefill) kápurnar komnar aftur Hlýjar — léttar — notalegar. Verö aöeins kr.yg 800 — Einnig nýkomiö ullarkápur, köflótt pils, lambsullarpeysur, bolir, skyrt- ur o.m.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.