Morgunblaðið - 20.12.1980, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 20.12.1980, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1980 32 Litríkur og listrænn vefur Við vatn og eld Briggskipið Bláliljan Höfundur: Olle Mattson Þýðing: Guðni Kolbeinsson Bókin sett og prentuð í Prent- stofu G. Benediktssonar Ikikband: Arnarfell hf. Káputeiknirg: Þorvaldur Jónas- son Útgefandi: Bjallan Þetta er án nokkurs efa ein bezta unglingabók sem komizt hefir í mínar hendur. Það er fyrst, að hófundurinn er bráðsnjall, seg- ir sögu á þann hátt að fáir munu leika eftir, og í annan stað er það, að Guðni Kolbeinsson hefir þýtt söguna á snilldarlegan hátt. Efnið er um átök milli fátæktar og efnishroka — á lítili, fátækur „föðurlaus" drengur, með bægifót að auki, á hann sama rétt til lífsins og sá sem ístru ber og Jan Pienkowski. DRAUGASPAUG. Þýðing: Andrés Indriðason. Jane Walmsley aðstoðaði við mynd- skreytingu. Hönnun: Thor Lok- vig. Draugaspaug er sérstæð bók. Þið getið talið — því sem næst á fingrum ykkar — orðin sem í henni standa. Svo varla getur hún heyrt undir bókmenntir. Þótt þessi orð mín lendi sennilega í þeim flokki. Bókin er listilega vel gerð hvað myndskreytingu og uppsetningu alla snertir. Að mínum dómi tilvalin fyrir myrkfælna krakka að spreyta sig við að semja sögur við hinar skuggalegu — oft ógnvekjandi — en bráðskemmtilegu myndir sem troðna buddu? Til sögunnar eru nefndir vinir, tvífættir og ferfætt- ir, sannir vinir í leit að hamingju, sem þeir þrá en virðast ekki bornir til þess að ná. Höfundur fléttar þetta allt í litríkan, list- Bókmenntir eftir SIGURÐ HAUK GUÐJÓNSSON rænan vef, gefir það svo meistara- lega, að þá lestri er lokið stynur lesandinn aðeins: Svona á að skrifa sögu. bókin byggist á. Sú iðja barnanna að segja eða semja sögur um myndirnar minnkar eða jafnvel eyðir innri spennu og hræðslu við slík fyrirbæri. Um leið og þau opna þannig hugarheim sinn fyrir öllum þessum kynjamyndum á jákvæðan hátt, auka þau frásagn- arhæfni sína og bjóða upp á margt spaugilegt eins og börnum er einum lagið í tjáningu. Mér finnst bókin því gott efni fyrir börn sem foreldrar mega Bðkmenntlr eftir JENNU JENSDÓTTUR Oft hefi ég haldið því fram, að það þurfi miklu meiri færni t.þ.a. rita fyrir börn en fullorðna. Því miður telja margir að börnum sé bjóðandi hvaða glundur sem er, kaup foreldra á unglingabókum sanna slíkt. Ég skal viðurkenna, að margar stoðir renna undir þá skoðun. En nú bíð ég spenntur eftir að sjá, hvort mér verði ekki rétt stoð til styrktar kenningu minni. Og þá er það þýðingin. Hún gladdi mig svo sannarlega. Hér niðar íslenzk tunga eins og hún á hljóminn fegurstan. Guðni kann þau tök, að hann þarfnast ekki leikvallamáls, t.þ.a. gera sig skilj- anlegan. Hafi hann þökk fyrir frábært verk. Prentun óvenju hrein og góð. Útgáfan gefur fyrirheit um fleiri sagnir slíkar. Takist henni það, þá verður gaman fylgjast með því er íslenzkum ungmennum verður boðið. Hafi Bjallan innilega þökk fyrir. vera að að sinna og leiðbeina þeim til skapandi túlkunar er hugarflug þeirra fær byr undir báða vængi. Hún er um leið verkfæri — ef vel er leiðbeint — í þágu þess að hrekja úr hugum barnanna ótta við það sem ekki er til og getur gert þeim auðvelt að líta á myrk- fælni og draugatrú með rósemi, sjáandi hinar gamansömu hliðar. Svona kemur bókin mér fyrir sjónir. En útfrá hinum fáu textaorðum fæ ég ekki séð neitt spaugilegt við ungra hæfi. Gagnvart börnum ráðlegg ég því að gera þau ekki að neinu atriði. Að endingu höfundurinn ku vera frægur fyrir þessa — og fleiri bækur sínar. Guðmundur Kjartansson: FOLD OG VÖTN. 222 bls. Bókaútg. Menningarsjóðs. Rvik, 1980. Greinar um jarðfræðileg efni er undirtitill þessarar bókar. Þret- tán eru þættirnir, auk ævisögu- brots eftir Þorleif Einarsson. Þar er upplýst að Guðmundur var prestssonur frá Hruna í Hruna- mannahreppi í Árnessýsiu, nam við menntaskólann í Reykjavík, lauk þaðan stúdentsprófi og stúd- eraði að því búnu jarðfræði, aðal- lega við Hafnarháskóla. »Við heimkomu Guðmundar tvöfaldað- ist tala starfandi jarðfræðinga á Islandi,« segir Þorleifur. En það var munur að mannsliðinu, Guð- mundur hóf fljótlega jarðfræði- rannsóknir og lá þegar mikið eftir hann þegar hann lést um aldur fram, sextíu og þriggja ára. Þó var Guðmundur einum of hlédrægur, eins og Þorleifur tvítekur fram; varð að verja ærnum tíma til brauðstrits og vann hægt við rannsóknirnar, rasaði aldrei um ráð fram í niðurstöðum. Einhvers staðar er gefið til kynna í Eddukvæðum, minnir mig, að enginn sé svo snjall að jafningi hans fyrirfinnist ekki einhvers staðar. Einhvern tíma heyrði ég því slegið fram eftir að tala íslenskra jarðfræðinga hafði margfaldast frá því að Guðmund- ur Kjartansson sneri heim frá námi, að Guðmundur væri allra þeirra færastur. Athugasemdin festist mér í minni því Guðmund- ur lét svo lítið á sér bera sem verða mátti. Einhver annar hlaut því að vera höfundur þessarar staðhæfingar! Við lestur þessara greina hygg ég að jafnvel áhugamaður eins og undirritaður megi vel kallast dómbær um glöggskyggni og varfærni Guð- mundar Kjartanssonar. Segja má að Guðmundur hafi verið heppinn sem jarðfræðingur því hvort tveggja, Heklugosið mikla ’47 og Surtseyjargosið ’63, bar með hæfilegu millibili upp á besta skeiðið á starfsævi hans. En btðum nú við, kannski er orðið helstil fast í vitund okkar að jarðfræðin sé einungis eldfjalla- fræði og ævi jarðfræðings sé einlæg bið eftir eldgosum. Guð- mundur Kjartansson sinnti fleiri viðfangsefnum þó jarðeldar hljóti eðli sínu samkvæmt að snerta flest viðfangsefni íslensks jarð- fræðings að einhverju leyti. Vatn og vatnsvirkjanir voru honum ekki síður hugleikin viðfangsefni. Þorleifur segir að hann hafi »ung- ur dundað við ýmiss konar stíflu- og vatnsvirkjunarframkvæmdir og þá einkum í kirkjulæknum í Hruna.« Sá áhugi hefur síður en svo dvínað eftir að starfsævin hófst. Hér eru ritgerðir sem heita: íslenzkar vatnsfallategundir, Úr sögu Helliskvislar, Tungná, og Frá Jökulsárlóni á Breiðamerk- ursandi. Guðmundur var Sunnlendingur, Árnesingur, og hvort sem því nú olli heldur átthagatryggð eða til- viljun þá er svo mikið víst að hann rannsakaði öðru fremur jarðfræði heimahaganna. Meðal annars skrifaði hann mikla jarðfræði Árnessýslu. Og það hef ég fyrir satt að Guðmund- ur hafi uppgötvað æði margt sem ekki hafði verið komið auga á áður. Meðal annars var Guðmund- ur, eins og Þorleifur minnir á, með hinum fyrstu til að skýra hvernig móbergsfjöll eru mynduð. Þá er það ísöldin og hlýskeiðið sem nú stendur yfir. Isaldarminj- ar fyrirfinnast víða. ísöldin skildi eftir sig rúnir sem sumum hefur orðið hált á að ráða eins og frægt er frá liðinni öld. Guðmundur Kjartansson var öðrum gleggri að lesa rúnir þær sem fimbulvetur sá Að spauga með drauga Lífið er ekki mun- aður heldur athöfn * Svami Vivekananda: STARFSRÆKT (KARMA-YOGA) Þýðendur: Jón Thoroddsen og Þórbergur Þórðarsom Útg.: Þjóðsaga, Rvík. 1980. í marga áratugi hef ég verið í leit að skilningi á lífinu og tilgangi þess. Þess vegna las ég meðal annars mikið af bókum um þessi efni. Dag nokkurn var ég orðinn þreyttur á þessu og gerði þá kröfu til sjálfs mín, að ég í einni setningu gæti orðað einhvern kjarna sem væri hugsunarverður. Ég hafði ekki fyrr lokið þessari hugsun en svarið varð mér Ijóst og ég skrifaði niður setninguna. Hún var svohljóðandi: „Þú átt aðeins það sem þú hefur gefið." I fyrstu virðist þetta þversögn, því flestum mun þykja líklegra að maður eigi það sem manni er gefið en það sem maður gefur öðrum. En þegar betur er að gætt kemur annað í ljós. Hvert verður veganesti okkar þegar við hverfum úr þessu jarð- lífi? Einungis það sem við kunnum að hafa gert öðrum til heilla án þess að ætlast til nokkurs endur- gjalds. Það sem með slíkum at- höfnum safnast er með öðrum orðum sá fjársjóður sem Kristur talar um, fjársjóðurinn sem hvorki mölur né ryð fá grandað. Hér hafði ég því fundið rétta mælistiku á líf mitt. Ég brá þessari mælistiku af einlægni á ævi mína og komst að þeirri niðurstöðu að ég væri andlega gjaldþrota. Ég hafði allt mitt líf verið að þiggja í stað þess að gefa. Ég nefni þetta litla dæmi úr eigin lífi til þess að sýna að setning getur í rauninni haft allt aðra merkingu en virðist við fyrstu sýn, miklu dýpri og mikil- vægari þýðingu. Þessa litlu bók verður að lesa með þessu hugarfari. Það sem í henni stendur þarf íhugunar við. Hún er hvorki heppileg dægra- stytting né sérstakur skemmti- lestur. Hún gerir kröfur til lesand- ans, eins og allt sem einhvers virði er í þessu lífi. Hún kennir okkur að lífið sé ekki munaður heldur athöfn. Þessi litla en fallega bók inni- heldur átta fyrirlestra eftir Ind- verjann Svami Vivekananda. Annar þýðandi þessara fyrir- lestra er einn skemmtilegasti og frumlegasti rithöfundur íslensku þjóðarinnar á 20. öld, Þórbergur Þórðarson. Hann var engum líkur. Fáum öðrum hefði tekist að hafa í sama huga jafnólík áhugamál og að vera annars vegar sannfærður kommúnisti og jafnframt guð- spekisinni og spiritsisti. En Þór- bergur var einnig frábær íslensku- maður og ber þessi þýðing þess glögg vitni, en hún er á afburða- góðri íslensku, svo unun er að lesa. Þórbergur segir okkur að höf- undur þessara átta fyrirlestra, Vivekananda hafi fæðst á Ind- landi 1863, verið um tíma við nám í háskóla í Kalkútta, en síðar gerst lærisveinn Ramakrishna, eins dásamlegasta guðmennis sem sög- ur fari af. Vivekananda hafi flutt fyrirlestra víða um Evrópu og Ámeríku. Hann hafi verið spek- ingur að viti, afburðaræðuskör- ungur og ritsnillingur. Hann and- aðist árið 1902 harmaður um Indland þvert og endilangt, og reyndar talinn sannheilagur mað- ur. Fyrirlestrarnir í bókinni bera þessi nöfn: Áhrif karma á skap- gerðina „Sérhver er mikill á sínum stað“, Leyndardómur starfsins, Hvað er skylda?, Vér hjálpum sjálfum oss, heiminum eigi, Frá- hvarf er alger sjálfsafneitun, Frelsi og Takmark karma-yoga. Hér er ekki rúm til að gera nokkra grein fyrir öllum þessum fyrirlestrum. Það er ekki hægt í stuttu máli. Þó er óhætt að ráða hverjum hugsandi manni að lesa bókina. Einkanlega sökum þess hve viðhorf höfundar eru gerólík því sem tíðkast í okkar heimi, hér á Vesturiöndum. Ég er þó ekki að halda því fram, að Vivekananda hafi fundiö ailan sannleikann, fremur en ýmsir aðrir leitendur hans. Þrátt fyrir mikinn þroska höfundar má þó finna mannlega veikleika í rökum hans sumum. Þannig leitar hann til einhverrar dásamlegustu persónu alls Ind- lands Ramakrishna oj yerist læri- sveinn hans, en heldur því hins vegar fram í þessum fyrirlestrum, að ekkert sé hægt að læra af öðrum. Ailt komi að innan, frá manninum sjálfum, og ef svo er, hverjum eru þá þessir fyrirlestrar ætlaðir? Hann talar fallega um trúar- brögðin og skilur að þau eru aðeins rnismunandi leiðir til Guðs. Ekki tekst Vivekananda þó að halda hlutleysi í umræðu sinni um trúarbragðahöfundana, því hann segir í lok síðasta fyrirlesturs síns, að Buddha hafi verið mesti maðurinn sem nokkru sinni hafi fæðst. En hvað sagði svo Buddha sjálfur: „Trúðu ekki neinu af því að það stendur í einhverjum gömlum ritum. Trúðu ekki af því, að það er þjóðtrú þin, ekki af því, að þú hefur verið látinn trúa því frá bernsku, en finndu sannleik- ann með hugsun þinni, og þegar þú hefur gert þér grein fyrir honum, skaltu trúa honum, ef þér virðist hann vera hverjum og einum til blessunar, lifa fyrir hann og hjálpa öðrum til þess að öðlast hann.“ Þó ég þannig þykist finna ýmis- legt í fyrirlestrum þessum sem ég að svo komnu sé ekki ástæðu til að fallast á og vildi gjarnan rökræða nánar, ef þess væri kostur, þá ræð ég mönnum engu að síður til að lesa þessa bók, því hún hvetur óhjákvæmilega til hugsunar um tilveru og tilgang mannsins á þessari jörð. Ef ég skil Vivekan- anda rétt í þessari bók, er það hugsjón hans að hefja manninn með síauknum þroska til þess að losa hann algjörlega við allt sem einkennir hann einmitt sem mann. Hann á sem sagt að losa sig við allar tilfinningar til þess að vera óháður. Slíkur maður finnur því hvorki til góðs né ills, óham- ingja eða gæfa annarra skiptir hann engu máli framar. Ekkert virðist skipta hann minnsta máli lengur, því með því einu getur hann talist óháður. Mér er auðvitað ljóst hve óend- anlega mikið ég á sjálfur ólært og hve óþroskaður ég er, og það er þá kannski þess vegna, að mér geðj- ast engan veginn að þessum nýja manni, þessari háþroskuðu veru sem virðist vera markmið Vivek- ananda. Vera, sem er orðin svo háþroskuð (ef það er þá rétta orðið) að hún er með öllu orðin tilfinningalaus fyrir þjáningum annarra, er í mínum augum ekki Bðkmenntlr eftir ÆVAR R. KVARAN lengur maður, því hún hefur svift sig öllu sem einkennir manninn og það besta sem í honum býr. Þessi vera heillar mig sannarlega ekki. Og mér er sama þó það verði af einhverjum talið mér til van- þroska. Með þessum hætti vekur þessi bók okkur lesendur til umhugsun- ar um eigin viðhorf og eitt er víst, hvað sem öðru líður: það er hollt að hugsa. Þessi bók er ein þeirra sem áreiðanlega aldrei yrði metsölu- bók í neinu landi. Til þess gerir hún alltof miklar kröfur til les- enda sinna. Engum er það ljósara en útgefanda hennar, Hafsteini Guðmundssyni hjá Þjóðsögu. En hann er einn þeirra fáu manna á ísiandi, sem hikar ekki við að gefa út bók þótt honum sé það fullljóst að hann tapar á því. Hvers vegna?, spyr einhver. Svarið er að hann er hugsjónamaður. Þótt undarlegt þyki, þá eru þeir enn til á þessu landi. Hafsteinn Guðmundsson er löngu orðinn frægur bókagerðar- maður, því hann er ekki einungis frábær prentari heldur einnig mikill listamaður. Hann hefur skreytt merkar bækur sem vandað er til með þeim hætti að aðdáun og unun vekur. Einhvern tíma verður haldin sýning með þessum lista- verkum Hafsteins, sem mun að- dáun vekja. Útgáfa þessarar vonlausu sölu- bókar lýsir vel þessum bókaútgef- anda. En sá sem les þessa bók þarf ekki að sjá eftir því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.