Morgunblaðið - 20.12.1980, Síða 33

Morgunblaðið - 20.12.1980, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1980 33 Bókmennllr eftir ERLEND JÓNSSON skildi eftir sig. Hér eru ritgerðir sem heita Yngstu ísaldarminjar i hliðarbeltinu og á hálendinu t Árnessýslu, Fróðlegar jokulrákir og ísaldarlok og eldfjöll á Kili. Þótt langt sé nú liðið frá ísöld á mannlífsmælikvarða gegnir öðru máli á jarðsögumælikvarða, þá er það sem andartak eitt. Þorleifur Einarsson segir að »Guðmundur Kjartansson var sér- staklega vel ritfær og svo vel máli farinn, að unun var að hlýða á fyrirlestra hans á fundum eða í útvarpi. Hann átti létt með að gera jafnvel hin flóknustu atriði í fræðum sínum auðskiljanleg jafnt leikum sem lærðum.« Minna má á að á uppvaxtarár- um Guðmundar Kjartanssonar var náttúrufræðiáhugi alþýðu manna hér á landi geysimikill. Tímarit, sem þá voru gefin út fleiri og stærri og vandaðri en nú, fluttu jöfnum höndum ritgerðir um bókmenntir og náttúruvísindi. Náttúrufræðinga áttu íslendingar þá fáa en góða. Og vegna hins almenna áhuga töldu þeir sér skylt að tala og rita svo allir skyldu. Þótt tímar væru breyttir er Guðmundur Kjartansson tók, sem fulltíða maður, að gera grein fyrir rannsóknum sínum á prenti, fylgdi hann dyggilega fordæmi hinna eldri starfsbræðra sinna og gerði sér jafnan far um að tala ljóst og skýrt — svo skýrt að t.d. venjulegur ferðamaður hefði full not af ritum hans. Því er unnt að gefa þessar ritgerðir hans út handa almenningi; því þær höfða í raun og veru til hvers sem áhuga hefur á þeirri grund sem hann gengur á. LJÖÐ VEGA MENN er önnur Ijóðabók Sigurðar Pálssonar. Fyrsta bókin LJOÐ VEGA SALT kom út árið 1975 og hlaut afbragðs góða dóma. LJÓÐ VEGA MENN mun ekki þykja minni tíðindum sæta. Bókin skiptist í átta bálka, hvern öðrum ferskari. Allt frá upphafsbálkinum þar sem skáldið tekur lesandann með sér í för út á hringveg Ijóðsins er hann genginn þessum Ijóðum á vald. LJÓÐ VEGA MENN er kannski glannalegur titill á þessum tímum þegar máttur Ijóðsins þykir fara dvinandi, en þessi I jóð kveikja fögnuð í huga þeirra sem lesa. £ ilÍÍÍTÍÍfi ' og menmng LJÓÐ VEGA MENN lifandi Ijóö Þeir bræöur munu tylla niður fæti í búöina frá kl. 3 til 5 og árita þessa merku ferðalýsingu sína. A þessari plötu fær Barbra nokkra helstu poppara Ameríku til lags við sig og árangurinn er samkvæmt því. Mfí.HANOS Aðdáendur þessa mikilhæfa tónlistarmanns, eru víst í skýjunum þessa dagana. Þetta er platan fyrir þá sem unna alvöru rokki. Laugavegi 33, sími 11508. Strandgötu 37, Hf., sími 53762. Björgvin og Ragnhildur munu árita þessa vinsælu plötu sína milli kl. 5 og 7 í dag. Þessi jolaplata Björgvins kemur öllum í hiö rétta jóla- skap. HER8IE HANCOCK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.