Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 Ernir fá nýja flugvél Ný flugvél af gerðinni Cessna 404 Titan bættist í flugfiota Vestfirðinga á sunnudaginn, en eigandi vélarinnar er flugfélagið Ernir. Hörður Guðmundsson og Hálfdán Ingólfsson flugu vélinni heim frá Bandaríkjunum og i gær fór vélin sína fyrstu flugferð innanlands; frá ísafirði til Reykjavíkur. Myndin er tekin við komuna tii ísaf jarðar á sunnudaginn. ijúwn. Mbi.: úifar Fernt á slysadeild eftir umferðarslys Hafnarfjarðarlögrejílan hafði í nógu að snúast í gær en alls höfðu lögreglu- menn afskipti af 12 um- ferðarslysum frá hádegi og fram undir kvöld. Fernt var flutt í Slysadeild Borgarspítalans. Tvennt var flutt á slysadeildina eftir að bifreið var ekið á ljósastaur á Arnarneshæð. Þá var tvennt flutt á slysa- deild eftir að bifreið valt á mótum Reykjanesvegar og Hafnarfjarðarvegar. í báðum tilvikum voru bif- reiðir talsvert skemmdar en meiðsli voru ekki alvarleg. Þó dvaldi einn í slysadeildinni þeg- ar Mbl. fór í prentun. Bjarni Jakobsson um vörugjaldsfrumvarpið: „Undrar mig að menn skuli selja samvizku sína“ „ÉG VIL nú fyrst og fremst segja það að ég ásamt sam- starfsmönnum mínum í Iðju varð fyrir miklum vonbrigðum þegar vörugjaldsfrumvarpið var samþykkt sem lög frá Al- þingi. Það undrar mig að menn skuli selja samvizku sina eins Bjarni Jakobsson og raunin virðist hafa verið við atkvæðagreiðslu um frumvarp- ið. Mér finnst það hreinlega óvirðing við Alþingi," sagði Bjarni Jakobsson formaður Iðju er Mbl. ræddi við hann um frumvarpið. „Það er enn ófyrirsjáanlegt hvað þetta mun valda miklum samdrætti og þar með tjóni fyrir gosdrykkja- og sælgætisiðnað- inn og það fólk, sem við hann starfar. Við hjá Iðju teljum það nær öruggt að um nokkurn samdrátt verði að ræða og þar með veruleg hætta á uppsögnum. Það er mikill uggur í starfsfólki innan þessa iðnaðar eins og kemur fram í undirskriftasöfn- uninni, en nú hafa alls um 450 manns skrifað undir mótmæli vegna frumvarpsins og undir- skriftir eru enn að berast. Þetta er einnig í mikilli mót- sögn við þann tímabundna 40% verndartoll, sem settur var á innflutt sælgæti og því er þetta frumvarp enn óskiljanlegra og hreinlega þversögn að mínu mati.“ Útlit fyrir nægan rjóma Nýr vatnsgeymir Hvergerðinga reistur. Ljósm. Mbt: surún. „ÞAÐ VIRÐIST ætla að takst að fá nægan rjóma á höfuðborgar- svæðið, en vegna minnkandi mjólkurframleiðslu töldu menn lengi tvísýnt um það,“ sagði Guðlaugur Björgvinsson, for- stjóri Mjólkursamsölunnar í Reykjavík. í samtali við Mbl. í gær. Guðlaugur sagði, að síð- ustu daga fyrir jól seldust um 60.000 lítrar af rjóma á höfuð- borgarsvæðinu og hefði tekizt að tryggja 40—50.000 lítra lengra að en af svæði Mjólkur- samsölunnar, en á því eru mjólkurbúin á Selfossi, í Reykjavík, Borgarnesi og Búð- ardal. Hvergerðingar fá nýjan vatnstank Hverageröi, 22. desember. í HVERAGERÐI er verið að reisa stóran og mikinn vatnsgeymi fyrir vatnsveituna. Var honum valinn staður í hliðinni austan i Hamrinum á svipuðum stað og gamli vatnsgeymirinn stóð, en hann er nú ónýtur. Nýi geymirinn er gerður úr steinsteypu og á að rúma um 700 tonn af vatni. Framkvæmdin mun kosta nálægt 90 milljónum króna með tengingu og frágangi. Verkið var boðið út. Verktakarnir Sveinn Frímannsson og Tómas Sigur- pálsson höfðu hagstæðasta tilboð- ið og hófu þeir verkið í haust og Hólmarar með stuðningslista við Friðjón áætla að ljúka því í maí á næsta ári. Sigrún Guðlaugur sagði, að stærsti hlutinn kæmi frá Akureyri, en einnig kæmi verulegt magn frá Sauðárkróki og Húsavík. Flutn- ingar hafa gengið vel. Guðlaugur sagðist ekki ennþá geta sagt til um kostnaðinn af þessum flutn- ingum, en hann er kostaður af sérstökum sjóði, sem framleiðslu- ráð landbúnaðarins annast og renna í hann 20 aurar af hverjum seldum mjólkurlítra. Bensínafgreiðslu- menn fara í verk- fall 28. desember VERKFALL bensinafgreiðslu- manna hefur verið boðað frá og með 28. desember, sem er sunnu- dagur. Boðaður hefur verið sátta- fundur með deiluaðilum i deil- unni hinn 27. desember klukkan 14 og á þá að freista þess að ná fram samningum. Nokkrir fundir hafa verið haldnir í deilunni og mun enn bera þó nokkuð í milli aðila. Þetta er í fyrsta sinni, sem gerðir verða sérstakir kjarasamningar við bensínafgreiðslumenn, sem til þessa hafa verið á Dagsbrúnar- samningum. Við undirritun heild- arkjarasamninganna hinn 28. október síðastliðinn, kom fram sérstök ósk um að gerðir yrðu sérstakir samningar við af- greiðslumennina. í dag er boðaður sáttafundur með byggingarmönnum, sem standa utan Sambands bygg- ingarmanna. - segir Guðmund- ur Þ. Jónsson „VIÐ höfum lýst andstöðu okkar við vörugjaldið og teljum þetta vond lög,“ sagði Guð- mundur Þ. Jónsson formaður Landssambands iðnverkafólks. þegar Mbl. spurði hann um nýsett lög um vörugjald á sæl- gæti og gosdrykki. „Við óttumst að vörugjaldið muni hafa samdrátt í för með sér í sælgætisiðnaðinum og þar með uppsagnir starfsfólks. Þetta er auðvitað alvarleg staða en reynslan mun leiða í ljós hve áhrifin verða rnikil," sagði Guð- mundur að lokum. Stykkishólmi. 22. desember. NÚ UM helgina hafa gengið áskrift- arlistar í Stykkishólmi, þar sem fólk skorar á Friðjón Þórðarson að halda fast við ákvörðun sína um að veita Gervasoni ekki landvist. Telur fólk að slíkt gæti dregið dilk á eftir sér. Bæjarbúar heita Friðjóni stuðningi sínum. Á skömmum tíma voru komnar yfir 160 undirskriftir. Fréttaritari Eftirlifandi eiginkona Ágústs er ísafold Jónsdóttir. Guðmundur Þ. Jónsson Ágúst Jóhannesson Ágúst Jóhannesson fyrrverandi verk- smiðjustjóri látinn ÁGÚST Jóhannesson, fyrrum verk- smiðjustjóri kexverksmiðjunnar Fróns lést á fimmtudaginn 87 ára að aldri. Ágúst fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1893 sonur hjónanna Jóhann- esar Þórðarsonar, skósmiðs, og Sól- veigar Björnsdóttur. Hann nam bakaraiðn í Reykjavík og stundaði framhaldsnám í Danmörku, þar sem hann kynnti sér sérstaklega rekstur kexverksmiðja. Heimkominn stofnaði hann með öðrum kexverksmiðjuna Frón 1926 og var verksmiðjustjóri þar til fyrir nokkrum árum, að hann lét af störfum aldurs vegna. Ágúst stund- aði mikið íþróttir á yngri árum og var um skeið formaður Glímufélags- ins Ármanns. „Vond lög“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.