Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 3 Erfiðlega hefur genKÍð að halda áætlun innanlandsflugs siðustu daga vegna óveðurs víða um land og eru því margir sem bíða eftir fari til síns heima. Innanlandsflug gengur stirðlega vegna illviðra ILLA leit út með innanlandsfluK FluKÍeiða á timabiii i gær og um hádegi hafði aðeins verið flosið til Sauðárkróks, Hafnar, Egilsstaða ok Húsavikur, en nokkuð rættist úr þegar líða tók á daginn og var þá hæjít að fljújía til Akureyrar. EKÍlsstaða og Vestmannaeyja og undir kvöld átti að halda áfram ÍIukí til Akureyrar ok Sauðár- króks, m.a. með fraKt einKönKU. Ekkert var floKÍð á Vestfirði ok hefur ekki verið fioKÍð á ísafjörð siðan á föstudaK. Varðskipið Ægir fór frá Reykja- vík á sunnudag til ísafjarðar með póst og farþega og átti skipið að fara frá ísafirði í gærkvöld með á annað hundrað farþega. Fyrirhugað er að skipið fari vestur á ný um hádegi í dag, þriðjudag, ef ekki hefur þá rætzt úr með flug. Að sögn Sveins Sæmundssonar hjá Flugleiðum verður lögð öll áherzla á að fljúga á Vestfirðina í dag sé þess nokkur kostur og eru ráðgerðar allt að 6 til 7 ferðir, en um 250 manns bíða fars í Reykjavík og um 150 á ísafirði. Sagði hann hugsanlega hægt að nota þotu í Akureyrarflugið, ef bremsuskilyrði væru góð á flugbrautinni þar. Sagði hann starfsfólk Flugleiða leggja áherzlu á að ljúka tilskildu áætlun- arflugi fyrir jólin, en veðurútlit væri e.t.v. ekki sem bezt. Á aðfanga- dag er gert ráð fyrir að fljúga fram til kl. 14 og lengur fram eftir degi ef þörf krefur. Bráðabirgðalög væru ein- stök óvirðing við Alþingi - segir Ólafur G. Einarsson um stöðuna í vaxtamálunum „I>AÐ er ljóst, að samkvæmt lögum eiga vextir að hækka um áramótin um nærri 10% og ég sé því ekki annað en að Seðlabankinn verði að fram- fylgja ákvæðum þessara laga," sagði Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálf- stæðismanna, í samtali við Mbl. er hann var inntur eftir hans áliti á stöðu mála í sambandi við vexti og hugsan- lega vaxtahækkun um áramót- in. Ekki trúaður á hækkun vaxta - segir Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins „ÉG ER sömu skoðunar og Seðla- bankinn um það, að samkvæmt lögunum beri þeim að hækka vextina upp í verðbólgustigið um áramótin,“ sagði Kjartan Jó- hannsson, formaður Alþýðu- flokksins. í samtali við Mbl. er hann var inntur álits á þeirri stöðu sem nú ríkir varðandi vexti, en samkvæmt svonefndum Ólafslögum eiga þeir að vera komnir i sama prósentustig og verðbólgan við árslok. Loðnubátun- um bannaðar aðrar veiðar SAMKVÆMT reglugerð, sem Sjávarútvegsráðuneytið gaf út 18. desember sl. er þeim loðnubát- um, sem leyfi hafa til loðnuveiða, bannað að stunda veiðar með netum, botn- og flotvörpu og línu frá 1. janúar til 10. febrúar nk„ eða þangað til annað verður ákveðið. Ákvörðun þessi er tekin m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir endanlega hversu mikið magn af loðnu verður leyft að veiða á yfirstandandi vertíð. Raðuneytið mun á næstunni beita sér fyrir að upp verði teknar viðræður við hagsmunaaðila um vandamál þessara skipa. „Ég er hins vegar ekki trúaður á, að vextir verði hækkaðir um áramótin, annað hvort verða sett lög, sem heimila að vextir verði óbreyttir, eða þá lögin verða hreinlega hundsuð," sagði Kjartan ennfremur. Þá kom það fram hjá Kjartani, að Alþýðuflokksmenn hefðu á næstsíðasta degi þingsins lagt fram frumvarp um vaxtamál og fjármál húsbyggjenda, sem m.a. væri tengt þeirri miklu óvissu sem ríkti í vaxtamálum. „Megininntakið í þessu frum- varpi er, að stofnaðir verði nýir sparireikningar, þar sem sá hluti innistæðu, sem látinn er óhreyfð- ur í hverja þrjá mánuði, skuli vera að fullu verðtryggður. Hins vegar geti menn gengið í reikninginn hvenær sem menn vilja, og sá hluti sem ekki væri verðtryggður bæri venjulega sparifjárvexti," sagði Kjartan. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir því, að stofnuð verði sérstök við- bótarlán innan bankakerfisins fyrir húsbyggjendur, sem sé að upphæð helmingur þess, sem við- komandi fær að láni hjá Húsnæð- ismálastofnun ríkisins. Lánið yrði síðan borgað niður á fimmtán árum. Varðandi hina nýju verðtryggðu reikninga sagði Kjartan, að hann væri sannfærður um að þeir myndu auka sparifjármyndun innan bankakerfisins. „Ég vil hins vegar benda á, að ríkisstjórnin hefur oftar en einu sinni á árinu lýst því yfir, að aðlögunartímabil vaxta yrði lengt. Það hefur hins vegar ekkert verið gert í þessum efnum. Við sjálfstæðismenn spurðum um þessi mál fyrir þinghlé oftar en einu sinni, en fengum engin svör, önnur en þau, að Ragnar Arnalds, fjár- málaráðherra, sagði í ræðu, að ákvæðum laga væri fullnægt með hinum svokölluðu verð- tryggðu sparifjárreikningum. Okkur þykir þessi túlkun á málinu alveg fráleit og höfum ekki trú á að Seðlabankinn fari eftir henni,“ sagði Ólafur ennfremur. Þá sagði Ólafur, að það væri einstök óvirðing við Alþingi, ef sett yrðu bráðabirgðalög vegna þessa, einhvern næstu daga, því ekkert hefði verið gert meðan þing sat, þrátt fyrir margar yfirlýsingar um málið. Ekið á hross Á sunnudaginn gerðist sá atburð- ur á Vesturlandsvegi að fólksbif- reið ók á tvö hross, sem verið var að teyma yfir veginn. Annað hrossið gaf fljótlega upp öndina og hitt var aflífað skömmu síðar. Farþegi í fólksbílnum slasaðist og var fluttur á slysadeildina. Núvist — ný ljóðabók eftir Ingimar Erlend Sigurðsson komin út Erlend er komin út. Bókin nefn- ist NÚVIST. Þetta er sjöunda ljóðabók Ingimars, en auk þess hefur hann gefið út þrjár skáld- sögur og tvö smásagnasöfn. Síð- asta Ijóðabókin kom út fyrir tveimur árum, Fjall i þúfu. MUVIST Ingimar Erlendur Sigurdsson Ljóðabókin Núvist er 170 blað- síður og inniheldur 140 ljóð. Hún skiptist í þrjá kafla, er bera heitin: Þávist, Ljóðvist og Núvist. Fyrsti kaflinn horfir til liðinnar reynslu og eilítið úthverfari en í hinum köflunum. Annar kaflinn fjallar um samskipti lífs og listar og er þar meðal annars að finna einskonar minningarljóð um ýmis skáld, erlend og innlend. Þriðji kaflinn er langsamlega ljóðflestur og öll ljóðin hreinræktuð trúar- ljóð. Trúarstrengur er og fólginn í hinum köflum bókarinnar, svo segja má að ljóðabókin Núvist einkennist af trúarljóðum. Þótt lífssýn höfundar, eins og hún birtist í þessum ljóðum, sé tví- mælalaust kristin, lýsa ljóðin sum hver reynslu höfundar af jógaiðk- un. Ljóðin eru öll persónuleg, innhverf en fyrst og fremst myst- isk — dulræns eðlis. Bókaútgáfan Letur gefur bókina út og kápumynd hennar hefur höfundur teiknað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.