Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 5 Skólameistari aíhendir dúxinum. Ingibjörgu Harðardóttur, bókaverð- laun. (Ljósm: Troels Bendtsen.) Flensborgarskóli brautskráir stúdenta HAUSTÖNN Flensborgarskóla var slitið laugardaginn 20. des- ember sl. og þá brautskráðir 3 nemendur með almennt verslun- arpróf og 30 stúdentar. Bestum árangri á stúdentsprófi náði Ingibjörg Harðardóttir, nátt- úrufræðibraut; hún fékk 38 sinn- um A og 12 sinnum B á námsferl- inum, en skólinn starfar eftir áfangakerfi og einkunnir eru gefnar í bókstöfum. Stúdentarnir skiptast þannig á brautir að 11 eru af viðskipta- braut, 8 af náttúrufræðibraut, 6 af eðlisfræðibraut, 3 af félagsfræða- braut og 2 af uppeldisbraut. Skólameistari Flensborgarskóla er Kristján Bersi Ólafsson. FréttatilkynninK Bækur frá Bókaforlagi Odds Björnssonar: Um Hlaðir eftir Stein- dór Steindórsson og minningar Gísla á Læk MORGUNBLAÐINU haía borist fjórar nýjar bækur frá Bókafor- lagi Odds Björnssonar á Akur- eyri. Má þar fyrst nefna Hlaðir í Hörgárdal eftir Steindór Stein- dórsson og Vini í varpa eftir Jón Gísla Högnason, en auk þeirra hefur forlagið gefið út nýja skáldsögu eftir Sidney Sheidon, Verndarcngla, og Skugga úlfsins eftir James Barwick. Hersteinn Pálsson islenzkaði báðar bækurn- ar. Steindór Steindórsson Bók Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum, Hlaðir í Hörgárdal, ber undirtitilinn Norðlenskt sveitaheimili í byrjun 20. aldar. Bókin, sem er 142 blaðsíður að stærð, skiptizt í fimm kafla, auk inngangs, og marga þætti um bæinn, húsbúnað, klæðnað, matar- æði, andlegt líf, fjárgæzlu, hey- annir, vetrarvinnu, hátíðir o.s.frv. Vinir í varpa, sem er æskusaga eftir Jón Gísla Högnason, er 420 blaðsíður, en fremst er efnisskrá yfir þá fjölmörgu kafla sem hún skiptist í og aftast manna- nafnskrá. Bókina prýða margar ljósmyndir og teikningar. Á bók- arkápu segir, að Gísli á Læk, eins og hann er jafnan nefndur af samferðarmönnum sínum, sé roskinn bóndi úr Árnessýslu. í bókinni reki hann endurminn- ingar sínar frá æsku og uppvexti á fyrstu áratugum þessarar aldar. Leiðrétting ÞAU MISTÖK urðu í sunnudags- blaði, að rangt nafn birtist með höfundi umsagnar um bók Líneyjar Jóhannesdóttur. Umsögnin var eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur en ekki Jennu Jensdóttur og leiðréttist þetta hér með. Guðni Kolbeinsson: „Betra að hætta eftir eina vitleysu en tvær“ „ÁKVÖRÐUN mín stendur óhögguð og ég býst við því að nýr maður taki við þættinum um áramótin,“ sagði Guðni Kol- beinsson, umsjónarmaður þátt- arins Daglegt mál i útvarpinu i samtali við Morgunblaðið. Guðna varð á í messunni í þætti nýlega, beygði rangt orðið lækur og tilkynnti strax í næsta þætti að hann ætlaði að hætta umsjón með þættinum. Síðan hafa margir skorað á Guðna að hætta við að hætta, t.a.m. Ásgeir Jakobsson í langri grein hér í Morgunblaðinu. „Ég tók ákvörð- un um að hætta án þrýstings og henni breyti ég ekki þó að þrýst sé á mig. Það er betra að hætta eftir eina vitleysu en tvær,“ sagði Guðni. Fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar lögð fram: Heildarniðurstöður eru 1.696,5 milljónir króna FJÁRHAGSÁÆTLUN Seltjarnar nesbæjar var lögð fram til fyrri umræðu 17. desember sl. og eru heildarniðurstöður á rekstrarreikn- ingi 1696,5 milljónir króna, sem er um 53% hækkun frá endurskoðaðri f járhagsáætlun siðasta árs. Sömu álagningarreglur gilda og siðasta ár, þ.e. 10% útsvar með fyrirvara um 0,5% hækkun. ef teknaviðmiðun reynist lægri en við- miðunartölur Þjoðhagsstofnunar. Fasteignagjöld eru með 20% af- slætti á íbúðarhúsnæði, eða 0,4% en 1% á annað húsnæði. Gjaldstigi aðstöðugjalda er óbreyttur frá fyrra ári. Viðmiðunartekjur elli- og örorku- þega vegna niðurfellingar eða lækk- unar fasteignagjalda hækka enn- fremur miðað við tekjur og verða eftirfarandi, miðað við eigin ibúð: a) einstaklingar: brúttótekjur 1980 allt að 4,6 m.kr. 100% niðurfelling. brúttótekjur 1980 allt að 5,4 m.kr. 70% niðurfelling. brúttótekjur 1980 allt að 6,3 m.kr. 30% niðurfelling. b) fyrir hjón sem bæði eru ellilífeyr- isþegar: brúttótekjur 1980 allt að 5,7 m.kr. 100% niðurfelling. brúttótekjur 1980 allt að 6,4 m.kr. 70% niðurfelling. brúttótekjur 1980 allt að 7,3 m.kr. 30% niðurfelling. Helztu tekjuliðir áætlunarinnar eru Utsvör og aðstöðugjöld, sem gefa 1150 milljónir króna, fasteignagjöld 190 milljónir króna, jöfnunarsjóðs- framlag 200 milljónir króna, gatna- gerðargjöld 50 milljónir króna og vextir 70 milljónir króna. Helstu gjaldaliðir eru: Fræðslumál 282 milljónir króna, almannatryggingar og félagshjálp 172 milljónir króna, gatna og holræsagerð 265 milljónir króna, stjórn kaupstaðarins 80 millj- ónir króna, skipulagsmál 64 milljónir króna, hreinlætismál 61 milljón króna, samgöngumál (strætisvagnar) 41 milljón króna og bruna- og almannavarna. Til eignabreytinga er áætlað að verja um 440 milljónum króna af rekstri, sem er hærri hlutfallslega en verið hefur undanfarin ár eða 26%. Þessi aukna áherzla á eignabreyt- ingar gerir það að verkum, að mjög er dregið úr þjónustuframkvæmdum, sem setið hafa fyrir undanfarin tvö ár. Helztu framkvæmdir á eigna- breytingareikningi eru innrétting 1. áfanga heilsugæzlustöðvar fyrir 135 milljónir króna, sundlaugarbygging 153 milljónir króna, dagheimilis- bygging 110 milljónir króna og íbúðir aldraðra 100 milljónir króna. Áætlað er að ríkisframlög til þessara verk- efna nemi um 150 milljónum króna, og eru niðurstöðutölur eignabreyt- inga því um 690 milljónir króna. Áætlunin var samþykkt samhljóða til annarrar umræðu, sem væntan- lega verður í janúar nk. „Armv fötin‘‘ Kúreka fötin Indíána fötin Mokkasinurnar sem allir hafa beöiö eftir eru komnar aftur. sem tryggja rétta tízku IJB Laugavegi 20. Sími frá skiptiborði 85055.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.