Morgunblaðið - 23.12.1980, Page 16

Morgunblaðið - 23.12.1980, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 Páll Þorgilsson bifreiðastjóri 85 ára i dag: „Ég hefði helst viljað vera leikari og prestur“ Ekki mæðir ellin Pál. Þótt hann sé þéttvaxinn og gildur, þá er hann léttur á fæti og ekur dag hvern um götur borgarinnar. Hann mæðist ekki þótt hann gangi til mín upp á þriðju hæð, þá er við tökum tal og rifjum upp liðna tið. Tilsvör hans, gamansöm, beinskeytt og markhittin, kannast kunningjar hans við. Djúp alvara og eilifðarmál tvinnast öðrum þræði þá er Páll rekur sögu sína. Ég get varla sagt að ég hafi fengið gigt eða kvef á lífsins leið í 85 ár. Jón Bergmann segir ein- hvers staðar: Mér var oft um hjartað heitt heldur meira en skyldi. þessvegna er ég ekki neitt aí því sem ég vildi. Maður lætur hverjum degi nægja sína þjáningu án þess að hugsa. En ef manni hefir liðið vel á allri ævinni, hraustur og annað því um líkt, þá getur maður séð eftir hverjum einasta degi sem líður, þá er maður að kveðja vin sem maður sér ekki aftur. Ég hefði helst viljað vera leikari og prestur. Gott var ég var ekki prestur, því ég hefði aldrei úr pokabuxunum farið. Það er ég alveg viss um, segir Páll og hlær Mig langaði mikið til þess að verða leikari. Ég elti hvert einasta leikrit sem leikið var. Svo kom séra Haraldur Níelsson og það eru þær sælustu stundir sem ég hefi lifað í mínu lífi, það er að hlusta á hann í kirkjunni. Það var mikið um kirkjuhósta í gamla daga. Afhverju fólkið lét svona botnaði ég aldrei í. Ekki heyrði það frekar í prestinum að vera alltaf hóst- andi. En hjá Haraldi Níelssyni heyrðist andardráttur. Það hóstaði enginn þar nema séra Kristinn Daníelsson og Einar H. Kvaran, en það var vegna þess að þeir þurftu þess. Ég hefi aldrei iifað sælii stund en í kirkju hjá Haraldi Níelssyni. Ég man, að þegar hann var kominn í ræðu- stólinn, þá hafði hann þesskonar persónu, að hann greip mann um leið. Það hefði heyrst þó það flygi fluga í kirkjunni. Það voru biðrað- ir að dyrunum þegar hann mess- aði. Ég hef haft kynni af mörgum spiritistum. Hafstein Björnsson þekkti ég allt frá árinu 1933. Ég er fæddur í Öræfum, á Svínafelli. Þar voru fimm býli þá. Jón Pálsson, sá sem fór í jökulinn 1922, hann var einn af 18 börnum sem Páll í Svínafelli átti. Sá Páll var Jónsson Pálssonar frá Arnar- drangi. Jón, sonur Páls, var bróðir Lárusar hómópata. Þau hjónin áttu saman 18 börn og hún átti eitt með ömnmubróður mínum, Eyjólfi á Reynivöllum, áður en hún giftist Páli. Eyjólfur kom víða við. Hann kom á Fagurhólsmýri einu sinni til Ara Hálfdánarsonar. Þar var kerling, ekki eins og fólk er flest. Eitthvað hafði hann samband við hana. Hún segir í einhverri ein- feldni svona svo margir heyra: Biddu Guð almáttugan að fyrir- gefa, hvað þú hefir smánað mig. Og trúðu mér til, hann gerir það, sagði Eyjólfur. Runólfur, bróðir Eyjólfs, ömmu- bróðir minn, hann var orðinn blindur og kom austur að Svína- felli og Reynivöllum að heimsækja börnin sín. Svo fer hann út að Maríubakka í Fljótshverfinu aft- ur. Þá var mikið í Skeiðará og þeir eru að velja hana sitt á hvað, fá alminleg brot, en tóku hann ekki af baki því hann var orðinn blindur. En hestinum leiddist að bíða, þeir voru svo lengi, fer útí með kallinn á bakinu og fer rétt yfir. Jón Sigurðsson, móðurbróðir minn, var þarna með sína fjöl- skyldu. Svo var Magnús, hálfbróð- ir Jóns Pálssonar. Svo var ekkja í Breiðutorfu. Hét Þuríður. Stekkatún hét bærinn okkar. Faðir minn hét Þorgils, sonur Guðmundar á Fossi á Síðu. Sá Guðmundur var Hálfdánarson frá Núpum í Fljótshverfi. Þeir Guð- mundur afi minn og Guðlaugur bróðir hans fóru mjög illa út úr kláðamálinu. Þeir voru með fjár- ríkustu mönnum í þá daga. Einu sinni kom Hálfdán gamli frá Núpum út á Síðu, segir sagan. Svo segir hann upp úr eins manns hljóði þar sem hann var: Já, ég held ég fari nú að hypja mig af stað. Ég sé nú, að þeir eru að klára að skera hausinn af honum Grána mínum. Og fór. Og þá voru þeir nýbúnir að skera hann. Þetta sá hann. Það var að morgni dags heima. Mamma kallaði í mig þegar hún sá að ég var vakandi og bað mig að fara út að reka úr túninu. Ég gerði það náttúrlega. Það var grá rolla með gráum hrút. Var mikil túna- rolla. Og líkt og hún vaktaði mann. Það var siður í Öræfunum þá að taka í töðugjöld og slaga. Þegar búið var að skera í töðu- gjöld og búið að slá túnin, þá vildi mamma vera með og grái hrútur- inn er tekinn. „Sér eignar smala- maður fé þó enga eigi hann kindina." Ég þóttist eiga þennan hrút. Svo veit ég ekkert fyrr en Sigurður, elsti bróðir minn, er kominn með hníf. Mamma kemur með hríslu og trog og þá er hrúturinn lagður á völlinn, en þá sleppi ég mér alveg. Og læt öllum illum látum þangað til honum er sleppt, en annar hrútur tekinn, kollóttur og hann rassskelltur, líklega með sömu hríslunni og átti að hræra í blóðinu. Ég man vel eftir þessu, ég var 7—8 ára. En móðirin lemur ekki barnið sitt út af því hún elski það ekki. Það vitum við. Svo er ég þarna ógirtur. Svo kemur hún. Þurrkar með svuntuhorninu sínu tárin. Ef ég hef þá grátið. Þurrkar mér og girðir mig, klappar mér, kyssir mig. Má ég nú taka hrútinn? Þá var allt í lagi. Þetta er eina rassskellingin á ævinni. Hrafnarnir vita sínu viti, segir Páll. Því til sönnunar fylgir saga frá æskuárum hans. Sigurður bróðir minn var höfuð- veikur og lá stundum fleiri vikur. Svo er ég eitthvað að sniglast þarna, þá ungur. Hann kemur út úr hlöðu. Þá koma þrír hrafnar og fljúga og fljúga og garga og garga og hann verður að fara inn í hlöðu aftur til að ná sér í skaft til þess að verja sig. Hann kemur út með skaftið og þeir halda áfram að lumbra á honum og tala sínu máli. Hann verst þeim með hrífunni. Svo þegar kemur heim að bæ, þá krunka tveir fyrir neðan bæ, veginn austur að Sandfelli, kirkju- veginn, en einn sest á bað- stofuþakið, beint uppi yfir rúminu hans. Mamma var búin að segja okkur, að hrafninn vissi um ýmis- legt. Svo byrja þeir að leggja veginn yfir Skaftárhraun 1907 og Sigurður deyr þennan vetur. Hvað ætlar þú að gera í vor?, sagði einhver við hann. Ég fer úr Stekkatúninu, segir hann. Ætl- arðu að fara að vinna úti í hrauni? Ég veit bara að ég fer úr Stekka- túninu. í þrjá sólarhringa biðu hrafnarnir í Borgarættinni, kvik- myndinni. Og fljót var Stefanía að krossa sig þegar hann flaug yfir bæinn. Hrafninn veit ýmislegt. Ingibjörg í Varmahlíð hafði lamb- ærnar í brekkunum fyrir ofan bæinn. Hrafninn átti þar laup. Og hún gaf honum alltaf. Ærnar báru þarna og hann leit ekki við lömbunum. Svo kom hún út að mýri um sláttinn. Hann fylgdi henni. Hann tók ekki mat hjá neinum nema henni. Aldrei. Það vildu allir gefa honum. Ef hún gaf honum, þá tók hann. Páll keypti hlut í BSR árið 1929. Hann á margar minningar frá ferðum sínum sem ökumaður. BSR hélt þá uppi ferðum til Hafnarfjarðar og þótt leiðin væri ekki lengri, gat margt sögulegt gerst. Svo var m.a. eitt sinn er Páll ók þá leið. Ökuferðir voru þá farnar fyrir eina krónu. Bæjartúr svonefndur kostaði eina krónu. Og sæti milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur einnig krónu. Einu sinni er ég sendur í Hafnarfjörð á 7 manna bíl, líklega milli jóla og nýárs, en það spring- ur hjá mér á suðurleið í roki og rigningu. Svo kem ég hálftíma of seint á afgreiðsluna í Hafnarfirði og fæ ekkert annað en skammir fyrir hvað ég hafi verið lengi, en mér er sagt að fara í Gerðið og taka þar 5 sæti. Þegar ég kem vestur á Hraunsholt, þá springur aftur, en af tilviljun kemur bíll frá BSR, samskonar bíll, og getur tekið okkur öll í sæti. Um leið pg ég kem inní þann bíl þá segi ég: Ég hef enga góða trú á því, að það séu neinar góðar vættir með mér hér í kvöld, það er tvisvar búið að springa milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Það er best að gera gott úr því öllu. Ég er enginn hagyrðingur, en ég segi samt: Andskotinn vill ei^a Pál ekki er því aA leyna. Þá eru þarna í bílnum Herdís Andrésdóttir frá Breiðafirði, Theodóra Thoroddsen og Ásthild- ur Thorsteinsson og tvær aðrar, sem ekki voru hagyrðingar. Her- dís segir strax: Býst étf við hans bjóðist sál betra veganesti. Andskotinn fær aldrei Pál þó allt hjá honum bresti. Theodóra sagði: Við erum unvar allar fimm inn í bil með tveimur. Næði Kott ok nóttin dimm, nautnarikur heimur. Ásthildur sagði: Vonin fór að verða dimm vélin full af táli. Áfram komust allar fimm óskemmdar af Páli. Svo sendu þær mér vísurnar. Þær voru komnar niður á BSR kl. 9 morguninn eftir. Ég ætlaði alltaf með þær til Þingvalla, en hugsaði víst aldrei nógu mikið um það. Það kom í hlut Páls að aka mörgum nafnkunnum ferðamönn- um um landið. Þegar Jakobínu Johnson, skáldkonunni vesturís- lensku, var boðið til íslands árið 1935 og hún ferðaðist um í boði ríkisstjórnarinnar, var Páll beð- inn að aka henni norður í land. Fararstjóri og leiðsögumaður var Ari Eyjólfsson er lengi vann í Garnastöðinni. Fyrsti áfanginn var að Reykholti, en Jakobína bað um að koma við í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Segir að sig langi að sjá lindina, þar sem Hallgrímur Pétursson hafi þvegið sér. Förin þangað gekk ágætlega. Ég stakk upp á því, að við syngjum í kirkjunni: Son Guðs ertu með sanni. Það gerum við. Þegar við komum upp á Ferstikluháls, þá segir Jóhanna Friðriksdóttir, ljósmóðir, sem með var í förinni: Af syfjuóum auKum svefninn fór í salnum Ijósahjálma þeKar Páll minn komst í kór ok kyrjaði HallKrimssálma. í Reykholti vorum við svo nótt- ina og förum síðan norður yfir Holtavörðuheiði. Það var rigning og vegurinn holóttur. Ég fór stundum út og athugaði hvort holurnar væru ekki of djúpar fyrir bílinn. Þá gerði Jakobína fyrstu vísuna, hér á landi: Holtavórðuheiði er Ijót hættir Páli að svara. Lýsir KeKn um leir ok Krjót lipurðin hjá Ara. Svo komum við norður og þegar Jóhanna sér yfir háheiðina, þá segir hún: Sólin brosti blítt OK heitt blessaði xestkomuna. Sást hún. þð hún setfði ei neitt. sittna skáldkonuna. Norðurfjðllin blöstu blá bjortum himni móti. Það var eins og yrði þá annað hljóð i tfrjóti. Ari fararstjóri segir þegar Jó- hanna ætlar að halda áfram að yrkja. Við vorum þá hjá Hrúta- tungu, sem er næsti bær við Grænumýrartungu og hann segir: Þarna eru líka emjandi rollur. Og í Hrútatungu segi ég. Þá sagði Jóhanna: Sleppi Kolan ei mér úr eða stirðni um tunKU. Páll skal seinna súpa úr söKn um IlrútatunKU. Þá kom þessi vísa: Ýmsa pinir óijós þrá oft með tfeði þuntfu eina stærri auðartfná upp að llrútatuntfu. Jóhanna stóð þá á fimmtugu. Að Bjargi í Miðfirði komum við. Komumst ekki alla leið á bílnum. Jakobínu langaði að hitta kalla sem höfðu verið árið áður í Ameríku. Við förum yfir mýrar- fles. Urðum að fara úr sokkunum til að komast heim að Grettistaki. Þar er rjúpa í sárum. Mér dettur í hug að hún segi við mig, hún talaði á sínu máli: Hvað eruð þið að ónáða mig? Ég er hér með unga mína. Því má ég ekki vera í friði? Svo göngum við í kringum stein- inn. Það er klípa undir honum öllum. Hann er fleiri metra í þvermál. Förum til baka aftur og að bílnum. Um leið og Jóhanna kemur inn í bílinn, þá segir hún: Hræðist ba*ði hunda «k menn. hrelld af stefnuvarKÍ. Hefir í mörKU að mæðast enn móðurást á Bjarvri. Gísli á Eiriksstöðum segir: Allar na tur rin á Bjartfi Ásdís baó o|f ifrét. Svo fer Jóhanna til Akureyrar og yrkir margar vísur. Við vorum heilan sólarhring að komast frá Reykholti að Sveins- stöðum. Hún þurfti að koma víða við. Svo kemur Jóhanna suður eftir mánuð. Ég hringi til hennar, þegar ég frétti hún væri komin. Hvað syngur í þér Jóhanna mín, segi ég. Komdu blessuð og þakka þér fyrir síðast. Jóhanna segir: t>að leikur vart á tunKum tveim tæpt er marKt sem sleppur. Líkur sækir likan heim. Landspitali ok Kleppur. Eitt sinn var það á Fæðingar- deildinni, að maður nokkur kom með konu sína er var komin að því að fæða. Hann gekk að dyrum Jóhönnu og kvaddi dyra. Enginn svaraði, svo hann fór að ókyrrast og greiddi hurðinni þung högg og stór. Lét bylmingshöggin dynja hvert af öðru, en konan var hljóðandi á ganginum. Loks birt- ist Jóhanna og eiginmaðurinn hafði mörg orð og stór. Þá svarar Jóhanna: Æðrast þarftu ei maður minn. mundu að biða <>k vona. Að luktum dyrum kom lausnarinn ok lét hann ekki svona. Einu sinni var hún búin að taka ein á móti sjö börnum og hún hendir sér upp í dívan. Mér er orðið mál að hátta meKa sofna vært <>k rótt. IIvernÍK er það yfir á 8. er þar nokktrr léttasótt? Hún átti þá von á konu. Einu sinni er pantaður bíll hjá BSR. Fæðingardeildin var fyrir almenning. Svo kemur Jóhanna með konu og heldur á litla barn- inu. Ég stend við afturhurðina á bílnum. Konan sest inn og hún réttir henni barnið. Svo fer hún sína leið án þess að heilsa mér. Við vorum búin að kljást í viku alla leiðina norður. Mér þótti þetta skrítið, svo ég segi bara við hana. Ég er feginn, að það er ekki mér að kenna, Jóhanna mín. Þá tekur hún í hendina á mér og segir: Allar hafa þa'r þotta þeifið. þaó sem enifinn sér. Guð má vita hvað þið eiifið hvcr um sig hjá mér. Svo fór maður ýmsa túra. Mað- ur fór á Laugarvatn og hingað og þangað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.