Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
17
Ragnhildur og Björgvin
Dreifing
Einu sinni pantar Landsbank-
inn bíl. Bankinn átti þá franskan
bíl og ók honum einn starfs-
manna. Bíllinn minn bilaði á
leiðinni að Kolviðarhóli. Bankabíl-
stjórinn verður þess vísari og
gengur til mín og segir: Það er
leiðinlegt fyrir jafnstóra stöð og
BSR, að bíll skuli bila. Þú þarft nú
ekkert að minna mig á það, segi
ég. Það er nú annað átakanlegra
en það þó að bílskrjóður frá BSR
bili. Hvað er það?, segir hann. Það
voru bilaðar þurrkurnar á banka-
bílnum, ég vissi það og segi: Að
þessi eina vinnukona sem þjóð-
banki íslendinga hefir undir hönd-
um, að hún skuli vera í óstandi, ég
álít það verra. Svo kemst ég af
stað, en þegar kemur að Ajiavatni
þá bilar bíllinn aftur. Eg kem
fólkinu heim að Laugarvatni og
fer suður um nóttina til að sækja
stykki í bílinn og er búinn að því
þegar ég á að fara frá Laugarvatni
morguninn eftir. Þá, skömmu
seinna, bilar rafmagnið á bílnum
hjá mér. Það var gert við það á
ljósastöðinni. Þetta tafði mig um
klukkutíma. Fólkið á bankabílnum
bíður eftir mér. Það var kærustu-
par í bílnum með mér og þau voru
hálfóánægð yfir töfinni, sérstak-
lega stúlkan. Mér fannst það
eðlilegt, svo ég er að óska þess í
huganum þegar ég ek um Kamba,
að ég fái tækifæri að borga fyrir
mig í gríni. Bjóst nú ekki við því.
En þegar við komum á áfangastað,
þá er okkur fagnað sem góðum
gestum. Svo er farið að borða, en
það var beðið eftir okkur. Síðan er
farið að segja frá því sem fyrir
augun bar á Laugarvatni. Einn sá
þetta og annar hitt. Sáu raunar
það sama, en sögðu misjafnlega
frá því. Þessi nýtrúlofaða stúlka
var með þeim síðustu, sem talaði
undir borðum, heldur borðræðu.
Segist hafa farið klukkan 9 á
fætur. Gengið upp fyrir skólann.
Komið þar að fimmfaldri gadda-
vírsgirðingu. Inni í girðingunni
var afskaplega stórt naut. Guð
almáttugur hvað ég var hrædd.
Það var með stóran hring í
nösinni. Af hverju var það bíl-
stjóri, segir hún og víkur sér að
mér? Hann hefir víst verið nýbú-
inn að opinbera, sagði ég. Mikið
var hlegið. Þessi saga fór um allt
land.
Við Egill Thorarensen urðum
eitt sinn samferða Krísuvíkur-
leiðina. Ég hafði ráðist til Kaupfé-
lagsins 1949 til að rukka fyrir
hitaveitu og við fórum á gömlum
bíl. Rúða var á framsæti, svo við
vorum alveg út af fyrir okkur. Við
fórum að segja hvor öðrum um
dulræne.r lækningar og annað þvi
um líkt. Egill sagði mér, að hann
væri dauður fyrir mörgum árum
ef hann hefði ekki haft dulrænar
lækningar.
Ég hóf svo starf hjá Kaupfélagi
Árnesinga. Svo er ég kominn
uppábúinn með tösku út á götu. Þá
kemur maður til mín og segir:
Komdu sæll. Ég heiti þetta og ég
er þetta gamall. Hvernig í
andsk ... stendur á því, að þú
fékkst svona gott starf hér á
Selfossi? Ég er búinn að vera hér
alla mína ævi og ég er orðinn
þetta gamall og hefi aldrei fengið
neitt. Þú átt nú að svara þessu
sjálfur, góði, segi ég. En ef þú
veist það ekki, þá er nú stundum
að menn eru teknir eftir útliti.
Þrisvar leit hann aftur og ég stend
eins og helv ... merkikerti. Þetta
var svo upplagt.
Ég var látinn fara í dælurnar
klukkan tvö á nóttunni, til þess að
vera viss um að þær væru í gangi.
Þetta var hálftíma gangur. Ég
vissi um húsnæði sem hægt var að
innrétta sem vistarveru. Þar
mátti hafa ein tvö, þrjú herbergi.
Ég segi Agli frá þessu. Hann
lætur innrétta herbergi. Svo koma
þeir báðir, Egill og sýslumaður,
báðir fráskildir. Ég segi: Jæja,
Egill minn. Ég ætla nú að taka í
hendina á þér og þakka þér
innilega fyrir. Þú gerðir mér
góðan greiða. Þetta er ágætis
herbergi og mér líður ágætlega
hérna. En nú er hérna annað
pláss, segi ég, og þá eru þau orðin
tvö. Og svo er kompa hérna á bak
við og ég er búinn að fá mér
ráðskonu og ætla að fara að búa.
Ég held, að það verði nú ekki af
þessu, segir Égill. Þú getur fengið
þér eina í dag og aðra á morgun,
segir hann og hefir mörg orð um
þetta. Ég geng beint til Egils.
Sýslumaður stóð við hliðina á
honum. Klappa Agli á öxlina og
segi: Þetta er hægt Egill. Ég hafði
bara ekki hugsað mér í ellinni að
stunda neina heldri manna reið.
Ekkert sagði hann við því. Ég
hugsa, að honum hafi líkað þetta.
Hann var einn af þeim mönnum,
að ef maður bað hann um greiða,
þá margfaldaði hann alla djöfla
sem honum datt í hug. Þó hann
gerði það. Það var hans háttalag.
Ég kom einu sinni með bíl og
hann bræddi úr sér. Ég lét hann
þegjandi inn á verkstæðið. Það
kostaði 6000 krónur. Af þvi ég var
ráðinn allt árið, þá var ég ekkert
að spyrja að þessu. Svo sagði ég
Agli söguna um bílinn og að það
kosti þessa upphæð. Já, þú ert eins
og aðrir andsk... asnar. Þið
komið. Þið látið bílinn inn á
verkstæðin og komið svo með
hlandið í buxunum og getið ekkert
borgað. Hafði mörg orð um þetta.
Ef það á að kosta þetta Egill
Thorarensen, segi ég, þá er mér
andsk. enginn þægð í því. En ég
skal bara segja þér það, að það er
hver einasti Arnesingur sem gerir
út bílinn þinn. Hann er með
hlandið í buxunum og þarf hér um
bil að vinda sig áður en hann
kemur hér inn, upp til þín. Það var
blekbytta á borðinu og ég lamdi
svo í borðið að hún fór um.
Þá kallaði hann í Gunnar Vig-
fússon frá Flögu, hann var skrif-
stofustjóri og ég fékk víxil. Ég
hugsa hann hafi haft gaman að
þessu.
Það var fyrir áratugum, að
maður nokkur fór á mótorhjóli
austur að Ölfusá. Gekk út á
strenginn á gömlu brúnni og
sagði: Verið þið sælir strákar.
Henti sér í ána. Kunningjakona
mín, sem var miðill, hann kom til
hennar og sagði hvar hann væri,
hvenær hann fyndist og hver
fyndi sig. Og það stóð allt heima.
Þessi kona, sem var gædd óvenju-
legum miðilshæfileikum fór
stundum i ferðir út á land. Þegar
hún fór í lengri ferðalög, þá hélt
hún alltaf miðilsfund og þá sagði
þessi maður henni hvernig gengi.
Við áttum að sækja unga stúlku
sem var í sumarfríi vestur í
Hjarðarholti. Ég átti að keyra og
var á gömlum bíl, þá var verið að
gera veginn yfir Bröttubrekku hjá
Dalsmynni og ég hálfkveið fyrir
þessu. Svo er haldinn fundur og þá
segir þessi maður: Ykkur gengur
allt vel, en þegar þið hafið keyrt í
2 tíma, þá farið þið upp bratta
brekku, vegurinn var ekki kominn
í kring, og þá kemur smávegis
fyrir bílinn, en Páll lagar það á 10
minútum. Svo gengur allt vel, það
springur ekki einu sinni, svo farið
þið í Dali, þar verðið þið dag um
kyrrt. Svo farið þið í Húsafells-
skóg á þriðja degi. Á fjórða degi
farið þið heim. En takið eftir því
sem ég segi við ykkur. Þegar
klukkan er þrjú. Munið þið það, á
mínútunni þrjú, þá kemur kol
svartur þokubakki á móti ykkur.
Okkur datt þetta ekkert í hug, en
það skeði allt eins og hann hafði
sagt. Á fjórða degi förum við
Kaldadal. Það skeði hjá Meyjar-
sæti. Þá kom þokubakkinn og ég
setti ljósin á.
Tíminn líður fljótt í nærveru
Páls og við frásagnir hans. Margt
fleira bar á góma í spjalli okkar.
Dulrænar frásagnir, draumar og
fyrirbæri margskonar. Framliðnir
er leiðbeindu þeim er leituðu
þeirra, að sögn Páls. Fyrsta flug-
ferðin í öræfi er Páll fór með
Agnari Kofoed Hansen er lenti á
æskustöðvum Páls í Hálsaskeri.
Páll biður vini sína og kunn-
ingja að hitta sig hinn 10. janúar
að Holtagörðum, húsi Sambands-
ins, klukkan 3 stundvíslega.
Pétur Pétursson þulur
Og
nætur
plata átsins
Platan fyrir unga
fólkið
tilvalin í jólapakk-
Allt hvítt
af snjó í
Meðallandi
Hnausum. Meðallandi. 19.12., 1980.
NÚ ER allt hvítt af snjó hér og
allmikill til fjalla. Færð er erfið á
hringveginum. megum við samt
vel við una. Hefur óvenjuleg
veðurblíða verið á þessu ári. Hér
i Meðallandi reyndist sláturfé
óvenju gott, svo að slíkt hefur
aldrei verið áður. Er jafnvel
talið, að af þvi fé sem slátrað var
á Klaustri, hafi bezt meðalvigtin
verið héðan. Einnig var þyngsti
dilkurinn héðan 28 kiló, eða vel
það, eign Sigurgeirs Jóhannsson-
ar á Bakkakoti.
Er slátrun var að ljúka, sagði
einn ónefndur bóndi hér í sveit,
„að þeir til fjalla væru grátandi
yfir þessari svívirðu", En að öllu
gamni slepptu, þá er þar, sem
jarðvegur er beztur, það sama að
gerast hér og í Landeyjum.
ðhemju frjómagn leysist úr læð-
ingi er skurðir taka að eldast.
Mikil hey eru núna í sveitinni,
en misjöfn að gæðum. Brást
þurrkur að mestu leyti í júlí.
Tvö íbúðarhús eru í smíðum á
Ytri-Lyngum I og Langholti og er
farið að búa í þeim báðum. Eru
þetta steinhús.
Vilhjálmur
Þannig var umhorfs i herbergi Williams Burt þegar eldurinn hafði
verið slökktur. Lj<ism. Mbi. Július.
Brezkur maður lét
lífið í eldsvoða
BREZKUR maður, William Burt,
40 ára gamall. lét lífið í eldsvoða
að Brautarholti 22 í Reykjavík
aðfaranótt sl. sunnudags.
Ungur maður, sem var að koma
út úr veitingahúsinu Þórscafé á
fjórða tímanum um nóttina veitti
því athygli að eldurtungur stóðu
út um glugga í rishæð hússins.
Maðurinn brá skjótt við og fór við
annan mann upp í rishæðina.
Tókst þeim að vekja menn í
þremur herbergjum en þeir kom-
ust ekki inn í herbergi Williams
Burt vegna elds og reyks. Slökkvi-
lið kom fljótiega á staðinn og fóru
reykkafarar inn í herbergið og
fundu Burt þar látinn.
I Brautarholti 22 eru leigð út
herbergi til einstaklinga. Hafði
William Burt haft þar herbergi á
leigu um tíma en hann var sjó-
maður. Hann hafði verið á Islandi
um nokkurra ára skeið og stundað
hér ýmsa vinnu.
Miklar skemmdir urðu á húsinu
af eldi, vatni og reyk. Talið er að
eldurinn hafi komið upp í herbergi
Williams Burt og er líklegt talið
að kviknað í hafi í út frá eldunar-
tækjum.
Laugavegi 33,
Strandgötu, Hafnarfirði
HLJÓMPLÖTUÚTGÁMN hf.
■
Tveir af betri söngvurum landsins sameina
krafta sína á þessari skemmtilegu plötu.
Björgvin og Ragnhildur hafa aldrei veriö betri
Kíktu við og kauptu eintak.
Þú sérð ekki eftir því.