Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 21 Sigurganga AZ’67 óslitin AZ ’67 ALKMAAR hélt áfram sÍKurKönKU sinni í hollensku deildarkeppninni i knattspyrnu um heljíina. er liðið sigraði WageninKen 2—1 á útivelli. Hefur Alkmaar því náð þeim frábæra áran>?ri, að tapa aðeins einu sti>?i í 16 umferðum. Piet Tol ok Kristian Nygaard skor- uðu mörk Alkmaar gegn Wag- eninxen. Feyenoord, eina liðið sem haldið hefur i við Alkmaar. knúði fram nauman si^ur Kejfn FC Tvente. Pierre Vcrmaulen skoraði sigurmark Feyenoord. Úrslit leikja i hollensku deild- arkeppninni urðu annars sem hér segir: Excelsior — Sparta 1—2 PSV Eindh. — Groningen 5—0 Nac Breda — Den Haag 1—0 Wageningen — Alkmaar 1—2 Roda JC — Pec Zwolle 4—0 GAE Devent. — Nec Nijm. 3—1 FC Utrecht — Ajax fr. Willem 2. — Maastricht fr. Feyenoord — FC Tvente 1—0 Adrie Koster, Paul Posthuma, Jan Poortvliet, Michel Walke og Willy Van Der Kuylen skoruðu mörk PSV gegn Groningen og PSV er í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig. Feyenoord hefur 27 stig, en Alkmaar hefur 33 stig. Podborski sigraði í St. Moritz Kanadamaðurinn Steve Pod- borski sigraði i bruni á heims- bikarkeppninni i St. Moritz í Sviss um helgina. Podborski hefur um nokkurt skeið verið í hópi fremstu skiðamanna ver- aldar, en þó aldrei unnið meiri háttar keppni fyrr en nú. Brun- brautin í St. Moritz var ákaf- lega erfið og fjöldi þátttakenda komst ekki á leiðarenda i æf- ingarferðunum. Podborski lét það þó ekkert á sig fá og fór brautinaá 1:54,31 mínútu, einni sekúndu betri tíma en næsti maður. sem var Austurrikis- maðurinn Peter Wirnsberger. Svisslendingurinn Peter MuII- er, sem er heimsmeistari í hruni, hafnaði i þriðja sætinu að þessu sinni á 1:54,88. Eftir brunkeppnina i St. Moritz, er staða efstu mannanna i stiga- keppni heimsbikarsins sem hér segir: Peter Muller Sviss 80 Steve Podborski Kan. 61 Uli Spiess Austurr. 56 Harti Weireither Austurr. 55 Leonard Stock Austurr. 52 Ingimar Stenmark Svíþ. 50 Ken Read Kanada 42 Bojan Krizaj Júg. 26 Hans Enn Austurr. 15 Andreas Wenzel Licht. 15 Kvenfólkið keppti á meðan í stórsvigi í Bormio á Italíu. Perr- ine Pelen hin franska bar þar sigur úr býtum, annar sigur hennar í heimsbikarkeppninni, á þessu keppnistímabili. Með sigri sínum treysti hún sig enn frekar i sessi í öðru sætinu í stiga- keppninni. Efst þar er Maria Teresa Nadig frá Sviss, með 136 stig, en Pelen hefur nú 114 stig. Nadig rak annan fótinn í hlið á leið sinni niður brekkuna og fékk umtalsverða byltu. Slapp hún þó án meiðsla Skiðakóngnum sænska, Ingemar Stenmark, hefur ekkert gengið neitt sérstaklega vel það sem af er heimsbikarkeppninni, a.m.k. ekki miðað við fyrri afrek hans. Ilér er hann ásamt landa sinum úr sænska landsliðinu. Knatt- spyrnu- urslit Úrslit leikja í þriðju og fjórðu deild ensku deildar- keppninnar i knattspyrnu urðu sem hér segir: 3. dcild: Barnsley — Blackpool 2-0 Burnley — Plymouth 2-1 Charlton — Carlisle 2-1 Chester — Gillingham 1-2 Colchester — Newport 1-0 Exeter — Chesterfield 2-2 Huddersf. — Portsm 0- Millwall — Oxford 2-1 Reading — Fulham 0-0 Rotherham — Brentford 4—1 Sheffield Utd. - Hull 3-1 4. deild: Crewe — Darlington 1-1 Halifax — Port Vale 2-2 Hartlepool — Peterbr. 1-1 Hereford — Bradford 4-0 Lincoln — Bournemouth 2—0 Northampt. — Rochdale 3—2 Scunth. — Tranmere 2-0 Wimbledon — Wigan fr. York — Aldershot 4-1 v # Skotland, úrvalsdeild: Celtic — Airdrie 2-1 Hearts — Morton 0-0 Kilmarnock — Rangers 1-1 Partick — Aberdeen 1-1 St. Mirr. — Dundee Utd. 3—3 Aberdeen hefur enn for- ystu, en Ceitic hefur heldur betur vegið að liðinu að undanförnu. Nú munar að- eins einu stigi. Að vísu hefur Aberdeen aðeins leikið 18 leiki á sama tíma og Celtic hefur leikið 19 leiki. Aber- deen hefur 29 stig, Celtic 28 stig. Síðan kemur lið Rangers með 24 stig að 18 leikjum loknum. # • ftalía: Avellino — Catanzaro 1-0 Bolognia — Fiorentina 2-1 Cagliari — Brescia 1-2 Inter — Torino 1-1 Juventus — Udinese 4-0 Perugia — Napólí 0-0 Pistoise — Como 2-0 Roma — Ascoli 4-1 Roma hefur forystuna í deildarkeppninni, en liðið hefur 15 stig. Juventus og Inter hafa 13 stig hvort félag og Torino hefur 12 stig. # ♦ v.#- Spánn: Atl. Madr. — Real Madr. 3—1 Valladolid — Zaragoza 1-1 Almeria — Salamanca 3-2 Atl. Bilbao — Barcelona 4—1 Sevilla — Hercules 0-0 Murcia — Real Betis 2-0 Gijon — Las Palmas 2-1 Espanol — R. Sociedad 0-0 Valencia — Osasuna 4-1 Atletico Madrid hefur hlot- ið 26 stig og er því fjórum stigum á undan næsta liði, sem er Valencia. í þriðja sætinu er síðan Real Soci- edad með 20 stig. Osasuna, Barcelona og Sevilla hafa öll hlotið 19 stig. Evrópukeppnin í handknattleik Erfitt að semja við Svía „VIÐ HÖFUM staðið í samning- um við sænska liðið Lugi. og óskuðum eftir þvi að fá að leika fyrri leikinn hér heima 11. janúar og siðari leikinn 18. janúar i Sviþjóð. Þetta gerðum við meðal annars til þess að landsliðsmenn okkar gætu far- ið beint i þá leiki sem eru hjá landsliðinu í byrjun janúar. Við höfum hinsvegar fengið skeyti þess efnis að Lugi samþykkir ekki þessa leikdaga,** sagði formaður handknattleiksdeild- ar Víkings. Eysteinn Helgason í viðtali við Mbl. Eysteinn sagði að reyndar yrðu ýmsar leiðir til þess að fá að leika hér heima 11. og úti þann 18. janúar. Ef það tækist ekki yrði sennilega að leika hér heima 18. janúar á sunnudegi og úti í Svíþjóð sunnudaginn 25. janúar. Leikjunum á að vera lokið í síðasta lagi fyrir þann tíma. Eins og skýrt hefur verið frá leikur íslenska landsliðið tvo landsleiki í lok janúar. Báðir verða erlendis í Belgíu og Vest- ur-Þýskalandi. Yrði það mjög bagalegt ef landsliðsmenn Vík- ings gætu ekki tekið þátt í þeim undirbúningsleikjum fyrir B-keppnina. _ j>r_ Landsliðið i körfuknattleik undirbýr sig af kappi undir landsleiki við Frakka sem fram fara hér á landi um næstu helgi. Landsliðið varð að sætta sig við tvö töp um helgina fyrir úrvalsliði Danny Shousc. Fyrri leikur iiðanna fór fram í Ilagaskóla og þar tapaði landsliðið 87 — 86 eftir spennandi og tvísýna viðureign. Og á sunnudag tapaði landsliðið i leik við úrvalið á Selfossi, líka mcð eins stigs mun 90 — 89. Landsliðið í körfubolta mun æfa vel yfir hátiðina og vera vel undir landsleikina húið. Fyrri landslcikurinn fer fram í Laugardalshöllinni á laugardag og hefst hann kl. 14.00. „Þeir voru slakir" - sagöi Hilmar Björnsson JÚ ÞEIR voru slakir, en það þarf lika að æfa sig i að leika gegn slökum liðum. Það er vel hugsanlegt að markatala geti ráðið úrslitum i B-keppninni i Frakklandi, sagði Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari eft- ir síðari landsleikinn gegn Belgíu. — Við lékum vel í fyrri leiknum en það vantaði alla festu og ákveðni í síðari leik- inn. Ég er um margt ánægðari með fyrri lcikinn. Við gátum einbeitt okkur að hinum ýmsu leikkerfum og það gekk vel. Við munum æfa svo á hverjum degi á milli jóla og nýárs og taka þátt í lokuðu hraðmóti. Lands- liðið mun tefla fram tveimur liðum auk þess sem FH og KR við leggjum áherslu á að lands- liðsstrákarnir fái góða samæf- ingu út úr þessu móti, sagði Hilmar. Jón Erlendsson stjórnarmað- ur í HSÍ, sagði eftir síðari landsleikinn að lið Belga væri mun lakara en þeir hefðu átt von á. — Við höfðum fengið upplýsingar um að þeir væru sterkarL Það er ægilegt að vera að taka á móti svona slökum liðum. sagði Jón. Sjábls. 24-25. - þr. Þráinn og Þórdís halda til Alabama Frjálsíþróttahjúin úr ÍR Þrá- inn Hafstcinsson og Þórdis Gísladóttir, fengu óvænta upp- hringingu á föstudagskvöld frá Tuscaloosa í Alahama í Banda- rikjunum. Þjálfari frjáls- iþróttaliðsins við Alahama- háskóla var á línunni og vildi ólmur fá þau Þráin og Þórdísi til liðs við sig. Og hann veitti þeim aðeins tveggja daga um- hugsunarfrest, „... ég hringi aftur á sunnudag og vonast þá eftir ákveðnu svari**. sagði þjálfarinn. „Þetta kom okkur að sjálf- sögðu á óvart, fengum gott tilboð og ákváðum að slá til,“ sögðu Þráinn og Þórdis í spjalli við Mbl. í gær. „Þeir vildu fá okkur strax eftir áramótin og höldum við út í fyrstu viku nýs árs.“ Þráinn og Þórdís sögðu að þeir Hreinn og Guðni Halldórssynir úr KR hefðu dvalist við æfingar hjá skólanum í fyrravetur og lýst aðstæðum og móttökum ytra mjög vel. „Við vitum því betur en ella að hverju við erum að ganga.“ Þórdís Gísladóttir er sem kunnugt er íslandsmethafi í hástökki, hefur stokkið 1,81 metra og er vel liðtæk í öðrum keppnisgreinum. Þráinn hefur lengi verið í röð fremstu frjáls- íþróttamannanna og undirbjó sig vel í Kanada og Bandaríkjun- um í allan fyrravetur og hugði gott til glóðarinnar í tugþraut í sumar, en draumar hans um glæstan árangur í keppni í sumar urðu að engu er hann slasaðist illa í stangarstökks- keppni á Laugardalsvelli í sumarbyrjun, eins og frægt varð á sínum tíma. Þráinn var skor- inn Upp og hefur nú náð sér nokkuð vel og verður vonandi sprækur á næsta ári. — ágás.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.