Morgunblaðið - 23.12.1980, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
23
r,
Þór bárust margar góðar
gjafir á 65 ára afmælinu
Heiðursformaður Þórs, Haraldur Helgason, og núverandi formaður
félagsins, Sigurður Oddsson.
Heiðursformaður Þórs, Haraldur Helgason og kona hans, frú Áslaug
Einarsdóttir. Haraldur heldur á skjali þvi er fylgdi útnefningu hans
sem heiðursformaður Þórs.
EINS OG sagt heíur verið
frá varð Iþróttafélagið
Þór 65 ára hinn 6. júní á
þessu ári. Margt hefur
verið gert til að minnast
þessara tímamóta og ýms-
ir áfangasigrar hafa náðst
í mörgum greinum starfs-
ins. Ilinn 14. nóv. sl. var
svo haldið afmælishóf að
Hótel KEA og þar bárust
félaginu margar veglegar
gjafir og félagar þess voru
heiðraðir fyrir störf sín í
þágu Þórs og íþróttahreyf-
ingarinnar í heild.
Meðal gjafa sem bárust félaginu
voru kr. 1.000.000 frá Þórsfélögum
sem ekki létu nafns síns getið og
sama upphæð barst frá Kvenna-
deild Þórs, kr. 500.000 bárust frá
Einari Malmquist og fjölskyldu,
en Einar var formaður félagsins
frá 1925—1930 og er nú einn af
heiðursfélögum Þórs, kr. 100.000
bárust frá hjónunum Hólmfríði
Guðnadóttur og Jóni Þórarinssyni
og sama upphæð frá Þorsteini
Svanlaugssyni og frú til minn-
ingar um þá Þórarin Jónsson og
Kristján Kristjánss. sem fórust á
ferðalagi á vegum félagsins áríð
1950, þá bárust kr. 50.000 frá
Reimari Þórðarsyni heiðursfélaga
í Þór sem nú er búsettur í
Reykjavík. Sigurður Oddsson,
formaður Þórs, lýsti yfir kjöri
heiðursformanns í félaginu og var
það Haraldur Helgason, en hann
var formaður Þórs um 20 ára
skeið, frá 1960—1980, eða lengur
en nokkur annar sem gegnt hefur
þeirri stöðu. Var Haraldi fært
skrautritað skjal í tilefni kjörsins.
Þá hlutu eftirtaldir félagar silfur-
merki félagsins fyrir frábær störf
að uppbyggingu íþróttasvæðis
Þórs: Haraldur Helgason, Guðjón
Steindórsson, Haukur Jónsson,
Hilmar Gíslason, Hallgrímur
Skaptas., Ævar Jónsson, Sæbjörn
Jónsson, Samúel Jóhannsson, ívar
Sigurjónsson og Herbert Jónsson.
Við þetta tækifæri var Haraldur
Helgason sæmdur æðsta heiðurs-
merki ÍSÍ, heiðurskrossi, af Sveini
Björnssyni forseta ÍSÍ fyrir frá-
bær störf að íþróttamálum, þá
sæmdi Sveinn þá Rafn Hjaltalín
og Herbert Jónsson gullmerki ÍSÍ
fyrir mikil og góð störf í þágu
íþróttahreyfingarinnar. Jens
Sumarliðason, f.h. stjórnar KSÍ,
sæmdi Harald Helgason gullmerki
KSÍ og Hallgrím Skaptason silfur-
merki KSÍ fyrir dugnað að málum
knattspyrnunnar.
í tilefni afmælishátíðarinnar
kom út starfsrit, sem spannar
sögu félagsins í máli og myndum
frá upphafi til þessa dags. Þeir
félagar sem greitt hafa árgjöld sín
munu fá ritið heimsent, en öðrum
er eignast vilja ritið er bent á
blaðsölustaði.
Knattspyrnusnillingurinn Pele sýndi tilþrif á vellinum sem eru ólýsanleg. Hér sést
hann framkvæma hjólhestaspyrnu.
KR er efst í 1. deild
í liðakeppni BTI
Liðakeppni BTÍ
1980-1981
Liðakeppni BTÍ 1980—81 hófst
í síðustu viku októbermánaðar.
Nú er í fyrsta skipti keppt í
tveimur deildum í karlafiokki.
fyrstu deild og annarri deild. I
hvorri deild eru fimm lið. Einnig
er keppt í unglingaflokki yngri
Önnur deild karla:
Fram a-lið
Víkingur b-lið
Örninn c-lið
Fram b-lið
KR b-Iið
4 4 0 0 24-10
2 10 1 7-10
2 10 1 10-9
3 10 2 12-15
3 0 0 3 9-18
Fyrirhuguð mót
í vetur
8
2
2
2
0
en 15 ára og í kvennaflokki.
Leikið er heima og að heiman.
Liðakeppninni á að vera lokið
fyrir íslandsmótið 14. og 15.
marz 1981.
8. des.Punktamót Arnarins kl. 19.40 í
l.auKardalshnll (1. flnkkur + Meistarafl.)
5. jan. Punktamót KR kl. 19.40 I LauKardals-
hðll.
24. jan. Arnarmótió I LauKardalshnll.
19.—21. jan. LandsliAakeppni Evrópu 3.
deild I Cardiff.
Staðan eftir fyrstu umferðirnar
er þannig:
22.-24. jan. STIGA Wales Open í Cardiff.
7. feb. UnKlinKamót KR kl. 13.00 I Foss-
vugsskóla.
15. feb. HéraAsmót UMSB
7. mars Islandsmót unKlinga ng uld boys I
Fyrsta deild karla:
KA a-lið
Örninn a-lið
Víkingur a-lið
Örninn b-lið
UMFK
3 2 10 17-8 5
3 111 11-6 3
2 0 2 0 10-10 2
2 0 1 0 5-11 1
3 0 1 2 9-17 1
LauKardalshöll.
14. —15. mars Islandsmót. karlar. konur og
opnir flokkar.
21. mars Punktamót UMSB
1(1. og 18. apr. Reykjavikurmót I Laugardals-
hðll.
14.—26. apr. Heimsmeistaramót I Júgóslav-
lu.
Forgjafamót í
borðtennis
Forgjafarmót Borð-
tennisdeildar KR
Forgjafarmót njóta mikilla
vinsælda erlendis enda aldrei
hægt að spá um úrslit. Tilgang-
ur með því að halda forgjafar-
mót er að gefa öllum jafna
möguleika á sigri óháð getu
manna í borðtennis. Þetta fyrir-
komulag gerir það að verkum
að ailir leikir mótsins verða
æsisponnandi. Heimaspilarar,
fyrirtækjaspilarar og aðrir sem
ekki æfa borðtennis með keppni
fyrir augum fá nú tækifæri á að
sigra i móti.
Nú er í fyrsta skipti haldið
slíkt mót á Islandi. í forgjafar-
móti borðtennisdeildar KR er
hverjum keppanda gefin forgjöf
á bilinu —15 til +15. Við ákvörð-
un forgjafar er fyrst tekið mið af
í hvaða BTÍ-flokki (skv. punkta-
kerfinu) keppandinn er. Þannig
fær:
Meistaraflokksmaður í karla-
flokki forgjöf á bilinu frá —15 til
+5.
1. flokksmaður í karlaflokki
forgjöf á bilinu frá —5 til +5.
2. flokksmaður í karlaflokki
forgjöf á bilinu frá +5 til +15 og
allt kvenfólk.
Hver keppandi fær síðan
ákveðna forgjöf samkvæmt
stöðu hans innan flokksins.
Þeir sem ekki hafa tekið þátt í
mótum fyrr eða eru óskráðir í
punktakerfinu verða að teljast
óþekktar stærðir og fá allir
sömu forgjöf (10).
Dæmi: Miðlungs m.fl.maður
keppir á móti miðlungs 2. fl.
manni. Byrjunarstaða yrði þá
—10:+10 í stað 0:0.
Leikið verður upp í 21 eins og í
venjulegum leik og leiknar verða
2—3 lotur. Forgjöf helst óbreytt
allar loturnar og gegnum allt
mótið. Leikinn verður einfaldur
úrsláttur og keppt í einum
flokki.
Keppt verður með Stiga-kúl-
um. Keppt verður í íþróttahúsi
Kennaraháskólans og hefst það
kl. 13.30, sunnudaginn 28. des-
ember 1980. Þátttökugjaid er kr.
4.000.-. Siðasti skilafrestur er
fyrir 24. desember, til móta-
nefndarmanna.
Þau félög sem senda þátttak-
endur eiga kost á að senda
fulltrúa á fund borðtennisdeild:
ar KR sem verður í herbergi BTÍ
í íþróttamiðstöðinni, Laugardal,
laugardaginn 17.12, klukkan
13.00. Þar verður endanleg for-
gjöf hvers keppanda ákveðin
með tilliti til athugasemda full-
trúa félaganna. Dregið verður í
mótið á sama tíma.
Mótanefnd gefur nánari upp-
lýsingar ef óskað er.
Mótanefnd: Hjálmtýr Haf-
steinsson, Tómas Guðjónsson,
Kristján Franklin.
Yfirdómari: Pétur Ingimund-
arson.