Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 W, Óðinn sigraði Stjörnuna óvænt Óðinn — Stjarnan 30-24 STJARNAN byrjaði þennan leik ákaflega vei. Þeir komust í 7—2 og stuttu seinna i 10—5. Þessi leikkafli gcrði út um leikinn. Vörn ok markvarsla Óðins var í molum í byrjun leiks og skoraði Stjarnan 9 mörk úr jafn mörgum sóknartilraunum. Það skal þó sagt Óðins mönnum tii smá hug- hreystingar að Stjarnan lék mjög vel þennan leikkafla, voru örygg- ið uppmálað i sóknarleik sinum. I seinni hluta fyrri hálfleiks jafnaðist leikurinn og náði Óðinn að minnka forskot Stjörnunnar. Staðan í leikhléi var aðeins tvö mörk 16—14. I síðari hálfleik náði Óðinn að minnka muninn í eitt mark 17— 18. En Stjarnan gaf ekkert eftir og virtust þola spennuna sem mynd- aðist betur, heldur en leikmenn Óðins. Þeir gerðu sig þá seka um alls konar mistök. Stjarnan jók forskot sitt jafnt og þétt og sigruðu örugglega 30—24. Þrátt fyrir þessi mörgu mörk var leikurinn hinn skemmtilegasti á að horfa. Og glöddu þá einkum stórglæsileg mörk sem skoruð voru. Hjá Óðni var Jakob bestur, hann sýndi mikið öryggi ekki síst í vítaköstum sem Óðinn fékk dæmd, eftir glæsilegar leikfléttur. Hjá Stjörnunni voru Gústaf og Magnús Andrésson bestir. Mörk Óðins: Jakob 13, Frosti 3, Hörður Sig., Kristján og Hörður Hafsteinsson 2 hver og Jakob Gunnarsson og Óskar Bjartmanns 1 hvor. Mörk Stjörnunnar: Gústaf 12, Magnús Andrésson og Eggert 4 hvor, Ingólfur 3, Eyjólfur, Gunn- laugur og Magnús Teitsson 2 hver og Gunnar Björnsson 1. íslanflsmótið 3. flellfl ----------------------- Sigruðum með 22 marka mun í USA SIGUR íslenska landsliðsins í handknattleik gegn Belgiu- mönnum síðastliðinn laugardag er einn stærsti sigur sem islenska landsliðið í handknattleik hefur unnið fyrr og siðar. Leikur lið- anna endaði 33—10, eða 23 marka sigur fyrir ísland. Stærstu sigrar íslands í hand- knattleik eru þessir: Árið 1966 sigraði ísland Bandaríkin er leik- ið var í New Jersey með 41 marki gegn 19. Hér heima vannst einu sinni sigur gegn Bandarikja- mönnum 39—19. Lið Luxem- borgar var sigrað 35 — 12 og lið Belgíu var sigrað 31 — 10 árið á forkeppni Ol-leikanna á Spáni árið 1972. - ÞR Páll ólafsson átti mjög góðan leik á laugardaginn, hér skorar hann eitt af mörkum sínum. Ljósm. Kristján. . flokkur KR varð Reykjavikurmeistari i handknattleik, en fyrir skömmu lauk þeirri keppni með irslitaleik þar sem KR-ingar stóðu uppi sem sigurvegarar. Á meðfylgjandi mynd Kristjáns Einarssonar er lið sigursæla lið KR. Þarna eru ýmsir kunnir kappar og má benda á Hilmar Björnsson landsliðsþjálfara, Jrynjar Kvaran fyrrum landsliðsmarkvörð og Einar Vilhjálmsson spjótkastara, auk Péturs Arnarsonar lugmanns. • Einn efnilegasti handknattleiksmaður íslands í dag, Sigurður Sveinsson gefui komið hefur fram í handknattleik hér á landi í mörg ár, hefur hann mjög gott a eftir að Sigurður hefur fengið í sig varnarmennina en gefið á línumann sem er ó Einn stærsti; í handknattle 23 marka sigur ge íslendingar bókstaflega möluðu Belga i fyrri landsleik þjóðanna i handknattleik, sem fram fór á laugardaginn. Lokatölur leiksins urðu 33—10 fyrir Island, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16—4. Er óhætt að segja, að sigurinn hafi sist verið of stór miðað við gang leiksins og þann getumun sem augljóslega var á liðunum. Kom á óvart hversu slakir Belgarnir voru, þegar að er gáð, að hér var á ferðinni lið sem var hársbreidd frá þvi að komast i B — keppnina eftir siðustu C — keppni. Liðinu hlýtur að hafa farið gífurlega aftur eftir umrædda keppni, þvi það virkaði ákaflega slakt á laugardaginn. Gangur leiksins var í stuttu máli sá, að jafnt var upp í 3—3 og voru þá níu mínútur liðnar af leiknum. Þessar fyrstu mínútur þreifuðu íslensku piltarnir fyrir sér og fóru sér engu óðslega. En þegar hér var komið sögu, sprakk allt og ísland skoraði 13 mörk gegn einu síðustu 20 mínútur hálfleiksins. Voru mörg markanna skoruð úr hraðaupphlaupum og má segja, að allt hafi gengið upp hjá íslenska liðinu. Skotanýting íslenska liðsins var frábær í fyrri hálfleik, 16 mörk úr 18 tilraunum. Þar fyrir utan glataði ísland knettinum ekki oftar en að telj- andi er á fingrum annarar handar. Nýtingin í heild var því stórkost- lega góð. Þó að ísland hafi skorað einu marki meira í síðari hálfleik, losnaði leikurinn dálítið úr bönd- unum undir lokin. Þó var mesta furða hversu agað og yfirvegað íslenska liðið lék gegn smælingj- anum, en oft fara leikir út í tóma vitleysu, þar sem svona ójöfn lið reyna með sér. Islenska liðið gerði marga hluti laglega í leik þessum og nokkra glæsilega. Má þar nefna fjölleika- húsfléttuna hjá þeim Sigurði Sveinssyni, Bjarna Guðmundssyni og Steindóri Gunnarssyni, er sá síðastnefndi skoraði 27. mark ís- lenska liðsins. Meira að segja Belgarnir gátu ekki annað en klappað landanum lof í lófa, enda óvenjulega glæsilegt mark á ferð- inni. Þá var 24. markið hörkufal- legt, en þá tók Sigurður Sveinsson eitt af sínum kyrrstöðuskotum af löngu færi. Eins gott að mark- vörðurinn varð ekki fyrir negling- unni, þá hefði hugsanlega illa farið. Aftur klöppuðu þeir belg- ísku. Eins og lesa má, kom Siggi Sveins mikið við sögu. Hann skoraði reyndar ekki mikið, en hann átti engu að síður stórleik, mataði félaga sína með frábærum sendingum hvað eftir annað. Þetta var sem sé mjög góður leikur hjá íslenska liðinu. Yngri mennirnir, þeir Páll Ólafsson og Guðmundur Guðmundsson, sem reyndar lék þarna sinn fyrsta landsleik, komu einnig mjög vel frá leiknum. Stórefnilegir báðir W, 'i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.