Morgunblaðið - 23.12.1980, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
25
sigur íslands
ikslandsleik
gn Belgíumönnum
r hér fallega sendingu á línuna. Þrátt fyrir að Sigurður sé ein mesta skytta sem
uga fyrir samleik og línusendingum.Og mörgeru þau mörkin semkoma af línu
valdaður á línunni. I.júsmynd KrÍHtján E
tveir. Kristján varði frábærlega í
markinu, m. a. eitt víti, og þeir
Steindór Gunnarsson, Þorbergur
Aðalsteinsson og Ólafur Jónsson
voru drjúgir ásamt Bjarna, sem
jafnan stendur fyrir sínu.
Belgíska liðið olli vonbrigðum
eins og að framan greinir. Til
dæmis er varla hægt að kalla
markvörðinn því nafni. Kannski
nokkuð ósanngjarnt þar sem vörn-
in var upp á fáa eða enga fiska
fyrir framan hann. Og sóknarleik-
ur liðsins var illa skipulagður þó
að knötturinn hafi gengið nokkuð
hratt manna á milli. Liðið hefur
þó í röðum sínum einn eða tvo
frambærilega leikmenn, sérstak-
lega pilt að nafni Bronwers, en
hann fékk lítinn eða engan stuðn-
ing frá félögum sínum.
Mörk íslands: Þorbergur Aðal-
steinsson 6, 1 víti, Ólafur Jónsson
5, Steindór Gunnarsson, Páll
Ólafsson og Sigurður Sveinsson 4
hver, Páll Björgvinsson og Bjarni
Guðmundsson 3 hvor, Guðmundur
Guðmundsson 2 og þeir Steinar
Birgisson og Þorþjörn Guð-
mundsson eitt mark hvor.
Mörk Belga: Willemsen, Ver
Hofstadt, Bronwers og De Bruyn 2
mörk hver, De Vlieger og Thoma-
sen eitt hvor. — gg.
m,
Bjarni Guðmundsson kominn i dauðafæri á linunni og skorar eitt ai
þremur mörkum sinum i leiknum.
Átta marka sigur
var í minnsta lagi
ÍSLENDINGAR unnu öruggan sigur á Belgiumönnum 25—17 i siðari
landsleik þjóðanna i handknattleik sem fram fór i Laugardalshöllinni
á sunnudagskvöld. Staðan i hálfleik var 14—9 fyrir islenska
landsliðið. Atta marka sigur var i minnsta lagi þar sem lið Belgíu var
frekar slakt i leiknum en það vill oft skorta að þegar yfirburðir eru
miklir að leikmenn leiki á fullri ferð og af einhverri festu. Og það
vantaði i leik islenska landsliðsins að þessu sinni.
Sóknarleikur íslenska landsliðs-
ins var oft á tíðum mjög lipur.
Boltinn gekk vei og hratt á milli
leikmanna og laglegar leikfléttur
gengu fallega upp. Enda gott að
æfa þær gegn slöku landsliði eins
og þarna var á ferðinni. Meira
hefði þó mátt sjást af hröðum
upphlaupum. Varnarleikurinn
hefði líka getað verið sterkari
sérstaklega í síðari hálfleiknum.
En það kom ekki að sök þótt
leikmenn færu sér í engu óðslega,
sigurinn var stór og allan tímann
alveg öruggur.
Fyrstu mínútur fyrri hálfleiks-
ins var jafnræði með liðunum og
þegar 10 mínútur voru liðnar af
leiknum hafði belgíska landsliðið
forystu í leiknum hafði skorað 4
mörk gegn þremur. Hægt og
bítandi sigu þó leikmenn íslenska
landsliðsins á og tóku forystu í
leiknum og höfðu fimm mörk yfir
í leikhléi.
í síðari hálfleik var um algjöra
einstefnu íslenska landsliðsins að
ræða. Liðið lék létt og vel fyrsta
korterið og staðan breyttist úr
14—9 í 17—9. Fyrstu 12 mínútur
síðari hálfleiks náði lið Belga
aðeins að skora eitt mark. Staðan
var um tíma 21—10. Þá slakaði
íslenska liðið á og lið Belga sótti
aðeins í sig veðrið. Um tíma var
staðan 22—13 og lokatölur urðu
25-17.
Lið Belgíu reyndi að berjast í
leiknum og leika vörnina fast, en
það gekk upp og ofan að stöðva
skyttur og línumenn íslands.
Sóknarleikur Belga var afar fálm-
kenndur og á köflum var eins og
leikmenn vissu ekkert hvað þeir
ætluðu að gera. Markvarsla liðsins
var svo til engin í síðari leiknum.
íslenska landsliðið er erfitt að
dæma þar sem mótspyrnan var
svo til engin. Leikmenn æfðu
ýmsar leikfléttur og gekk það
yfirleitt vel að reka á þær smiðs-
höggið. Línuspil var ágætt og
stórskyttur liðsins Sigurður
Sveinsson og Þorbergur Aðal-
steinsson sendu nokkra sannkall-
aða þrumufleyga í netið. Hilmar
Björnsson er alveg greinilega með
góðan efnivið í' höndunum. Nú
ísland- AB
Belgía
þarf bara að stilla alla strengi
liðsins og æfa upp sterkan varn-
arleik, þá ætti liðinu að ganga vel
í því erfiða verkefni sem framund-
an er í Frakklandi á næsta ári.
Besti maður Belga í leiknum var
Dirk Verhofstadt. Skoraði hann
flest mörk liðsins eða 10 talsins.
Islenska landsliðið var jafnt að
getu. Einar Þorvarðarson var í
markinu í fyrri hálfleiknum og
varði af stakri prýði. Kristján
varði markið í síðari hálfleik og
stóð sig ágætlega. Þá kemur nýlið-
inn í landsliðinu Guðmundur Guð-
mundsson mjög vel frá hlutverki
sínu í horninu. Er ógnandi og
óhræddur við að reyna að brjótast
ígegn.
Mörk Islands í leiknum skoruðu:
Þorbergur Aðalsteinsson 6, 2v,
Sigurður Sveinsson 5, Steindór
Gunnarsson 3, Atli Hilmarsson 3,
Steinar Birgisson 2, Stefán Hall-
dórsson 2, lv, Ólafur Jónsson,
Bjarni Guðmundsson, Guðmundur
Guðmundsson og Páll Ólafsson 1
mark hver.
Brottvísun af leikvelli: Þorberg-
ur Aðalsteinsson og Páll Ólafsson
í 2 mín. hvor. - þr.
Grótta sigraði
eftir hörkuleik
— hart barist í 3. deildinni
í handknattleik
Grótta — Þór
27-26
Leikurinn var leikinn í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi
sunnudaginn 14. desember.
Þarna mættust tvö af toppliðum
deildarinnar svo ljóst var að
hart yrði barist á báða bóga.
Þór tók þegar í stað foryst-
una og leiddi ávallt með einu til
tveimur mörkum. Staðan í leik-
hléi var 13—11 Þórurum í hag.
í síðari hálfleik hélt Þór for-
ystu sinni og náði að komast í
fimm marka forskot 20—15.
Gróttumenn létu þetta ekki á
sig fá. Þeir gáfust ekki upp. Og
samfara því að Þórarar hægðu
ferðina — trúlega haldið að
leiknum væri lokið — efldust
Gróttumenn. Og áður en Þórarar
höfðu áttað sig var Grótta búin
að jafna 25—25. Þórurum tókst
ekki að komast yfir, en það tókst
hins vegar Gróttu, og náðu þeir
tveggja marka forystu 27—25. Á
síðustu sekúndu leiksins þegar
staðan var 27—26 voru Þórarar
óheppnir að skora ekki, fengu
tvö dauðatækifæri en Einar
Birgisson markvörður Gróttu
varði meistaralega í bæði skipt-
in. Það var því Grótta sem fékk
bæði stigin, jafntefli hefði verið
sanngjörnustu úrslitin.
Enginn einn skaraði fram úr í
liði Gróttu, allt liðið mjög jafnt.
Hjá Þór voru Karl Jónsson,
Albert Ágústsson og Einar Birg-
isson markvörður einna bestir.
Mörk Gróttu: Sverrir 7, Gunn-
ar Páll og Jóhann 5 hvor, Grétar
3, Hjörtur Jóhannes Geir og
Axel 2 hver og Gauti 1.
Óðinn — Þór
18-19
Óðinn fékk Þór í heimsókn
laugardaginn 13. desember.
Leikur þessi var engin undan-
tekning á öðrum leikjum í
deildinni hvað varðar spennu
og jafnan leik. Ilann var hníf-
jafn allan timann. Óðinn mætti
til leiks án þjálfarans Bogdans
og aðalmarkvarðarins EHerts
Vigfússonar sem fótbrotnaði á
æfingu fyrir stuttu og leikur
sjálfsagt ekki meira með á
þessu keppnistímahili.
í fyrri hálfleik var Þór ávallt
með forystu, þó munaði aldrei
meira en einu til tveim mörkum.
í leikhléi var staðan 11 — 10 Þór í
vil.
í byrjun síðari hálfleiks kom
frábær leikkafli hjá Óðni, þeir
skoruðu fjögur mörk í röð, án
þess að Þór tækist að svara fyrir
sig. Var því staðan orðin 14—11
Óðni í hag. En Þórarar ætluðu
sér sigur og ekkert annað.
Þeir söxuðu á forskot Óðins og
jöfnuðu 16—17 og þegar 45
sekúndur voru eftir var staöan
18—19 Þór í hag.
Óðinn byrjaði með boltann og
þrátt fyrir ágætar tiltaunir
tókst þeim ekki að skora og
tíminn rann út.
Þórarar stálu því báðum stig-
unum.
Hjá Óðni var Hörður Sigurðs-
son langbestur, skoraði 9 mörk
úr 11 skottilraunum.
Hjá Þór voru Andrés og Ás-
mundur bestir annars er lið
þeirra mjög jafnt og erfitt að
gera upp á milli einstakra leik-
manna.
ÍBK - ÍA 16-20
Skagamenn fóru enga fýlu-
ferð til Keflavikur si. föstudag,
þegar þeir nældu sér þar í tvö
stig. — Fyrirfram var búist við
jöfnum og skemmtilegum leik
og varð sú raunin á. í fyrri
hálflcik skiptust liðin á forystu
þó virtust Skagamenn leika af
meira öryggi. einkum Pétur
Ingólfsson sem lék sinn lang-
hesta leik í vetur. Skagamenn
höfðu forystu í hálfleik 11—9.
Síðari hálfleikur var nánast
spegilmynd af þeim fyrri nema
nú höfðu Skagamenn ávallt
frumkvæðið. Þá var öllu meiri
harka í síðari hálfleik, þó án
þess að leikurinn gæti kallast
grófur. Þegar 4 mínútur voru
eftir var staðan 16—15 IA í vil.
Þá tóku þeir mikinn sprett og
sigruðu örugglega 20—16.
Lið ÍBK var jafnt og var
enginn sem skaraði fram úr.
Það vantaði festu í leik þeirra
á síðustu mínútunum. Það tekst
aldrei að skora tvö mörk í einni
sókn, það á hvert lið að hafa
hugfast, svo oft sér maður gerð-
ar tilraunir til þess.
Skagamenn léku af öryggi
allan leikinn. Pctur var þeirra
langbesti maður, skoraði m.a. 10
mörk. Með slíkum leik sem þeir
sýndu í Keflavík ætti lið þeirra
að eiga auðvelt með að vera á
toppi deildarinnar.
Ih