Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
27
Lið Atla Eðvaldssonar Borussia Dortmund. Atli er fjórði frá vinstri í efstu röð. Borussia Dortmund var
i 5. sæti í 1. deild er leikmenn fengu jólafrí.
• Jóhannes Eðvaldsson er eini islenski atvinnuknattspyrnumaðurinn
sem nú leikur með liði i Bandarikjunum. Jóhannes leikur um þessar
mundir innanhússknattspyrnu með liði sinu Tulsa Roughneeks og
gerir það mjög gott. Nokkur félög i Bandarikjunum hafa verið að
faiast eftir Jóhannesi en hann mun ekki vera falur, enda staðið sig
mjög vel hjá liði sínu. Það eru ekki mörg dæmi þess að bræður séu
atvinnumenn i knattspyrnu, en þeir Atli og Jóhannes Eðvaldssynir
eru einu islensku bræðurnir sem leikið hafa sem atvinnumenn. Hér er
Jóhannes á fullri ferð i Celtic búningnum.
• Jæja hvernig lýst þér á. Gæti Björn Borg verið að segja við
eiginkonu sina Marinu Borg þar sem hann sýnir henni stuttbuxur þær
sem hann er að máta fyrir næstu keppni sina. Björn Borg var næst
tekjuhæsti tennisleikari á árinu sem er að liða. Borg þénaði aðeins
523,212 doilara. Sá hæsti var John MC Enroe sá hafði 602,383 dollara.
Þetta eru bara tekjur fyrir kappleiki. Síðan koma augiýsingatekjur.
Þeir eru þvi ekki á flæðiskeri staddir þessir kappar.
Viðar Halldórsson fyririiði
FH-liðsins var útnefndur af
Meistaraflokksráði leikmaður
ársins 1980. Viðar sýndi frábæra
frammistöðu á leikvelli og hreif
félaga sína með er mest á reyndi.
Viðar Haildórsson lék þrjá lands-
leiki fyrir tsland sl. sumar.
Staðan í 2. deild kvenna
NÚ FYRIR skömmu lauk fyrri umferð i 2. deild kvenna í
fslandsmótinu i handknattieik. Keppt er i tveimur riðlum, A og B, og
er hart barist í báöum og staðan jöfn og tvísýn. ÍR hefur forystu í
A-riðli og Þróttur i B-riðli. Önnur lið fylgja fast á eftir. Hér má sjá
stöðuna í riðlunum þegar farið var i jólafri.
Staðan í A-riðli Staðan í B-riðli
er þessi: ÍR 5500 120-38 10 er þessi: Þróttur 4 4 0 0 71-43 8
Stjarnan 5 4 0 1 63-50 8 Ármann 4 3 0 1 74-39 6
Fylkir 5 3 0 2 64-50 6 UBK 4 2 0 2 59-63 4
ÍBK 5 2 0 3 45-69 4 ÍBV 4 10 3 60-57 2
UMFN 5 10 4 37-84 2 HK 4 0 0 4 24-86 0
UMFA 5 0 0 5 48-86 0
• Það var nóg að gera hjá Ásgeiri Sigurvinssyni er hann mætti í
Pennann í siðustu viku til þess að árita bók sína. Á stórum
sjónvarpsskermi sem komið var fyrir i glugga verslunarinnar voru
sýndir kaflar úr leikjum Standards. Þar á meðal mörk Ásgeirs á móti
Dynamo Dresden. Fjöldi fólks var allan daginn við gluggann og horfði
á knattspyrnuna, þrátt fyrir mikinn kulda. Myndin er tekin rétt eftir
að byrjað var að sýna á skerminum og strax var kominn góður hópur
fyrir utan gluggann eins og sjá má. Ljósm. Kristján Einarsson Mbl.
Þetta er markvörðurinn sem allir
markverðir óttast Dragar Pant-
alic. Hann skorar nefnilega mörk
þótt það kunni að hljóma cinken-
nilega. Nokkru áður en að keppn-
istimabilið hófst i Júgóslaviu i
haust, tók lið hans, Radnicki,
þátt i fjögurra liða mót þar sem
sterk lið áttust við. f einum
leiknum skoraði Pantalic þrennu
en lið hans fékk þrjár vítaspyrn-
ur. Skoraði hann úr þeim öllum.
Hann skoraði lika mark fyrir
Júgóslaviu i landsleik gegn Dan-
mörku fyrr í vetur og nú fyrir
skömmu. er Radicki og Velez
Mostar áttust við i deildarkeppn-
inni, skoraði Pantalic beint úr
markspyrnu. Spyrnti hann him-
inhátt upp i loftð. þar sem
vindurinn hrifsaði knöttinn og
skilaði honum i markið hinu
megin á vellinum!