Morgunblaðið - 23.12.1980, Page 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
Villa lá í Brighton
— Liverpool því enn á toppinn
— Staöa Ipswich er mjög sterk
Liverp<M>l prílaði aftur í efsta sætið í ensku deildarkeppninni.
með því að vinna magran sigur gegn Úlfunum. á sama tíma ok
Aston Villa tapaði frekar óvænt fyrir HrÍKhton. einu af neðstu
liðunum í 1. dcild. Þar með hefur Brighton siijrað tvö af þremur
efstu liðum fyrstu deildar á heimavelli sínum, en liðið varð fyrir
nokkru fyrsta liðið til að sigra Ipswich. Þó að Liverpool skipi nú
cfsta sætið. er staða Ipswich best <>k þrátt fyrir 3—5 tap gejfn
Tottenham i síðustu viku, hefur liðið aðeins tveimur stÍKum minna
en Liverpool ok hefur leikið tveimur leikjum færra. Ipswich tók
aftur upp þráðinn á laugardaKÍnn ok sigraði BirminKham
öruKKlcKa á útivelli. Annars urðu úrslit leikja sem hér seKÍr:
Þeir Franz Thijssen, Alan Brazil, John Wark, Arnold Muhren ok
Eric Gates faKna einu af mörKum mörkum Ipswich á þessu
keppnistímabili.
Arsenal — Man. Utd 2—1
BirminKham — Ipswieh 1—3
Brighton — Aston Villa 1—0
Liverpool — Wolves 1—0
Man. City — Leeds 1—0
Middlesbr. — Tottenham 4—1
Norwich — Coventry 2—0
Nott. Forest — Sunderland 3—1
Southampton — Cr. Palace 4—2
Stoke — Leicester 1—0
WBA — Everton fr.
Toppliðið fóll
Brighton lék Aston Villa
lengst af sundur og saman og
liðið sýndi besta leik sinn á
þessu keppnistímabili. Hefur lið-
ið oft í vetur leikið mjög vel án
þess að hafa heppnina með sér,
en nú gengu hlutirnir upp. Mick
Robinson skoraði sigurmark
Brighton á 15. mínútu leiksins,
12. mark hans á keppnistímabil-
inu og áður en yfir lauk, höfðu
leikmenn Brighton hæft mark-
súlurnar oftar en einu sinni.
Þetta var þriðja tap Villa á
útivelli í röð.
Liverpool ok
Ipswich sterk
Liverpool og Ipswich létu hins
vegar engan bilbug á sér finna
og treystu stöður sínar við topp
deildarinnar. Liverpool fékk
Wolverhampton í heimsókn og
var leikurinn þófkenndur. Liv-
erpool vann þó eftir atvikum
sanngjarnan sigur, Ray Kennedy
skoraði sigurmarkið á 35. mín-
útu með góðum skalla. Liverpool
hefur þar með leikið 83 deildar-
leiki í röð á Anfield Road, án
þess að bíða lægri hlut. Steve
Heighway, írski landsliðsfram-
herjinn roskni, lék sinn fyrsta
leik með aðalliði Liverpool í 14
mánuði og komst mjög vel frá
hlutverki sínu.
Ipswich tók Birmingham i
kennslustund á Saint Andrews
leikvanginum í Birmingham.
Birmingham hélt þó lengi vel út,
en fékk á sig tvö mörk á versta
tíma, nánar tiltekið á síðustu
mínútum fyrri hálfleiks. Fyrst
skoraði Paul Mariner á 41. mín-
útu og 3 mínútum síðar bætti
John Wark öðru marki við.
Birmingham sótti nokkuð í sig
veðrið í síðari hálfleik, en Ips-
wich var þó áfram hættulegri
aðilinn og átta mínútum fyrir
leikslok skoraði Alan Brazil
þriðja markið. Á síðustu andar-
tökunum tókst Alan Ainscow
síðan að minnka muninn.
Illutverkaskipti
Arsenal og United
Arsenal tryggði sér fjórða
sætið í deildinni í stað Man-
chester Utd, er liðin áttust við á
Highbury, heimavelli Arsenal.
Arsenal lék sinn 20 heimaleik í
röð án þess að tapa, en United
beið sinn þriðja ósigur á þessu
keppnistímabili. Graham Rix
skorað fyrra mark Arsenal beint
úr hornspyrnu. Var það eina
markið sem skorað var í fyrri
hálfleik og kom það snemma í
leiknum. Paul Vaessen, sem lék í
stað Alan Sunderlands, skoraði
síðara markið fljótlega í síðari
hálfleik og var staða Ársenal þar
með orðin æði sterk. En leik-
menn United gáfust ekki upp,
liðið sótti mjög undir lokin og
Lou Macari tókst að minnka
muninn áður en yfir lauk.
BotnliAin íenKu skelli
Crystal Palace gengur ekkert í
haginn og þó að liðið leiki á
köflum ágæta knattspyrnu,
stendur varnarleikurinn varla
undir nafni. Billy Gilbert byrjaði
leikinn gegn Southampton á því
að senda knöttinn í eigið net,
1—0 fyrir Southampton. Síðan
kom Charlie George mikið við
sögu, hann klúðraði víti, en
skoraði síðan glæsilegt mark
með skalla. Tony Sealy tókst að
minnka muninn snemma í síðari
hálfleik, en þeir Mick Channon
og Steve Moran skoruðu um-
svifalítið fyrir Southampton og
gerðu þar með út um leikinn.
Clive Allen tókst þó að minnka
muninn með góðu marki undir
lok leiksins.
Leicester tapaði einnig og
virðist ekkert annað en 2. deildin
blasa við liðinu. Stoke var
sterkari aðilinn frá upphafi til
enda þrátt fyrir að sigurinn væri
naumur. Lee Chapman skoraði
sigurmarkið snemma í leiknum
og þrátt fyrir nokkra sókn Lei-
cester seinni hluta leiksins, var
sigri heimaliðsins ekki ógnað að
ráði.
Sunderland er í umtalsverðri
fallhættu og liðið átti aldrei
möguleika gegn Nottingham
Forest. Trevor Francis lék sinn
fyrsta deildarleik í háa herrans
tíð fyrir lið sitt og kórónaði góða
frammistöðu með því að skora
þriðja markið nokkru fyrir lok
leiksins. Svissneski landsliðs-
maðurinn Raymondo Ponte, sem
átti frábæran leik, skoraði
fyrsta markið og unglingurinn
/
V
SJk*
Peter Shilton átti náðugan dag
gegn Sunderland á laugardag-
inn.
Úr leik Arsenal og Manchester Utd. Liðin áttust við um helgina og
hafði Arsenal betur. Á myndinni eru Martin Buchan og Steve
Coppell í baráttu við Alan Sunderland og Brian Talbot.
Kevin Reeves skoraði sigur-
mark Manchester City gegn
Leeds á elleftu stundu.
Colin Walsh annað markið, áður
en að Garry Rowell lánaðist að
minnka muninn fyrir lið sitt. En
eins og fyrr greinir, átti Trevor
Francis lokaorðið.
Leeds á einnig í baráttu við
falldrauginn og staðan liðsins
batnaði ekki við ósigur gegn
Manchester City á Main Road.
City hafði yfirburði í leiknum,
en John Lukic í marki Leeds
varði eins og berserkur. Það var
ekki fyrr en seint í leiknum, að
leikmönnum City tókst að finna
leiðina í netið og var það Kevin
Reeves, sem skoraði sigurmark-
ið.
Víðar:
Lið Tottenham er gersamlega
og með öllu óútreiknanlegt. Liðið
hefur stundað það í vetur, að
leggja stórlið að velli í hörku-
leikjum og tapa síðan með mikl-
um mun gegn lakari liðum í
næstu leikjum. David Hodgeson,
miðherjinn ungi hjá Boro, skor-
aði sína fyrstu þrennu, er lið
hans tætti átakalítið vörn Tott-
enham í sundur. Ástralíumaður-
inn Craig Johnstone bætti fjórða
markinu við, en miðvörðurinn
John Lacy skoraði eina mark
Tottenham.
Norwich átti einn af sínum
betri leikjum gegn Coventry og
vann verðskuldað. Joe Royle
skoraði fyrra mark Norwich, en
Graham Paddon það síðara,
staðan í hálfleik var 2—0. Nor-
wich varð þó fyrir miklu áfalli,
júgóslavneski landsliðsmaðurinn
í liðinu, Dragan Muzinic, ökkla-
brotnaði og verður frá keppni
næstu mánuðina af þeim sökum.
2. deild:
Cambridge 0 — Blackburn 0
Chelsea 0 — Orient 1 (Mayo)
Newcastle 0 — Bristol City 0
Oldham 2 (Steel, Wylde) —
Swansea 2 (R. James, Curtis)
Preston 1 (Elliott) —
Wrexham 1 (Edwards)
Watford 3 (Taylor, Armstrong,
Poskett) — Grimsby 1 (Kilmore)
West Ham 3 (Cross, Goddard,
Brooking) — Derby 1 (Swindle-
hurst).
1. DEILD
Liverpool
Aston Vill»
Ipswich Town
Arsenal
Manchester
Onited
Everton
Nottfnxham
Forest
West Bromwich
Southampton
Tottenham
Stoke Clty
Middiesbroxh
BfrminKham
Manchester City
Volverhampton
Coventry
lœds llnited
Sunderland
Norwich City
Brixhton
lolcester
Crystal Palace
23 II 10 2 46
23 13 5 5 39
21 11 S 2 37
23 10 8 5 34
23 6 14 3 32-
22 10 6 6 38-
23 10 6
22 9 8
23 9 6
23 9 6
23 7 10
22 9 4
23 8 4
23 8 4
7 34-
5 28-
8 40-
8 43-
6 27-
9 34-
8 28-
10 30-
10 22-
11 26-
11 21-
11 30-
11 29-
13 27-
15 18-
16 29-
-27 32
21 31
20 30
-25 28
20 26
-28 26
-24 26
-23 26
-35 24
-41 24
-31 24
-32 22
-30 21
-36 20
-29 20
-35 20
-34 20
-32 19
-43 19
41 16
37 14
-48 12
2. DEILD
West Ham 23 14 6 3 39 17 34
Chelsea 23 11 7 5 38 22 29
Swanaea City 23 10 9 4 34 20 29
Notts County 23 10 9 4 26 22 29
Orient 23 10 6 7 32 25 26
Sheffield Wed. 22 11 4 7 31 26 26
Blackburn 22 9 7 6 25 19 25
Derby County 23 8 9 6 32 31 25
Cambr. l)td. 23 11 3 9 28 30 25
Luton Town 23 9 6 8 31 28 24
Grimsby 23 6 10 7 20 23 22
Wrexham 23 7 7 9 20 24 21
Newcastie 22 7 7 8 17 31 21
QPR 22 7 6 9 29 23 20
Bolton 23 7 6 10 37 35 20
Watford 23 8 4 11 28 30 20
Shrewsbury 23 5 9 9 22 24 19
Oldham 23 5 9 9 17 22 19
Cardiff City 21 8 3 10 23 29 19
I Preston 23 5 9 9 22 35 19
Bristol Clty 23- 4 8 11 18 33 16
Bristol Rovers 23 1 10 12 18 38 12