Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
Fimmtugur í dag:
Sr. Guðmundur
Þor^teinsson prest
ur Arbæjarsóknar
Kimmtugur er í dag, 23. desem-
ber. Séra Guðmundur Þorsteins-
son sóknarprestur Arbæjarsókn-
ar, Glæsibæ 7 í Reykjavík.
Af því tilefni óskum við hjónin
honum innilega t.il hamingju með
daginn og árnum honum og fjöl-
skyldu allra heilla á ókomnum
árum. Ég vil þakka séra Guð-
mundi Þorsteinssyni hjartanlega
fyrir samstarf okkar á liðnum
árum, og allar hans góðu ræður,
sem hann flytur okkur við guðs-
þjónustur, hann er bænheitur og
trúaður maður, var því mikils
virði fyrir íbúana í sókninni að
hafa fengið góðan prest og kenni-
mann á borð við séra Guðmund.
Séra Guðmundur Þorsteinsson tók
við embætti 3. janúar 1971 að
undangenginni kosningu í Árbæj-
arsókn, og vægast sagt við slæm
skiiyrði hvað aðstöðu snerti til
guðsþjónustuhalds, Jjví varð að
halda þær ýmist í Árbæjarkirkj-
unni litlu, eða í sal Árbæjarskóla.
Varð því ljóst að stórt átak var
framundan að byggja söfnuðinum
fastan samastað.
26. ágúst 1973 tók séra Guð-
mundur fyrstu skóflustungu að
byggingu safnaðarheimilis á mót-
um Rofabæjar og Vatnsveituveg-
ar, sem gengið hefir vel að byggja,
við þær aðstæður sem nú eru.
Biskup Islands séra Sigurbjörn
Einarsson vígði fyrsta áfanga
kirkjubyggingarinnar 19. mars
1978. Séra Guðmundur Þorsteins-
son hefir verið lífið og sálin í þeim
framkvæmdum, og gengið á undan
mcð góðu eftirdæmi og áfram skal
haldið uns framkvæmdum er náð
að reisa að fullu safnaðarheimili
fjölskyldunnar til dýrðar Drottni
vorum Jesú Kristi.
Barnaguðsþjónustur í sunnu-
dagaskóla séra Guðmundar Þor-
steinssonar eru mjög vel sóttar og
unun að hlýða á, svo góðum tökum
nær presturinn til barnanna, að
sjá má eftirvæntingu skína úr
augum þeirra, enda kunna börnin
að meta leiðsögn og hlýleik hans í
orði og verki.
Séra Guðmundur er mikill fé-
lagsmálamaður og skipuleggjari
sem oft hefir komið sér vel og
kunnum við bræðrafélagar honum
bestu þakkir fyrir alla hjálpfýsi í
okkar garð, maðurinn er skemmti-
legur félagi og ljúfur í allri sinni
framkomu, sem gott er að eiga að
vin.
Séra Guðmundur Þorsteinsson
á sér góða kona, frú Ástu Bjarna-
dóttur, sem gegnir margvíslegum
störfum við hlið mannsins síns í
þágu safnaðarmála.
Það er mikils virði að hafa
fengið séra Guðmund Þorsteins-
son til að stýra málefnum kirkj-
unnar í Árbæjarsókn, mættum við
njóta starfskrafta hans sem
lengst.
Við hjónin óskum afmælisbarn-
inu og fjölskyldu gleðilegra jóla og
nýárs, jólahátíðar og alls þess
besta í bráð og lengd.
Lifðu heill.
Guðmundur Sigurjónsson
í dag á fimmtugsafmæli séra
Guðmundur Þorsteinsson, sókn-
arprestur í Árbæjarprestakalli.
Þorláksmessa er ekki heppi-
legasti dagur til að eiga á afmæli,
allra síst fyrir prest, þar sem í
hönd fer ein mesta hátíð ársins og
allir eru í óða önn að undirbúa
komu jólanna. Það er því hætt við,
að afmæli, sem ber upp á þennan
dag, vilji gleymast og fari því fyrir
ofan garð og neðan.
Af kynnum mínum við séra
Guðmund á undanförnum 10 ár-
um, er ég viss um, að hann hefði
ekki valið neinn annan dag frekar,
ef hann hefði sjálfur mátt velja
sér afmælisdag. Fáa menn þekki
ég, sem eins lítið eru fyrir að vera
í sviðsljósinu og láta hlutina
snúast í kringum sig.
Þegar fyrstu prestskosningar
fóru fram í Árbæjarprestakalli í
desember 1970 hlaut séra Guð-
mundur lögmæta kosningu og
hefur þjónað þessu prestakalli
síðan við miklar vinsældir.
Þegar fundum okkar Guðmund-
ar bar fyrst saman, er hann tók
við prestsstarfinu í Árbæjar-
hverfi, þekkti ég hann ekkert,
nema af afspurn. Ég vissi að hann
var kominn af miklu ágætisfólki,
en faðir hans var séra Þorsteinn
B. Gíslason prófastur á Steinnesi,
sem lést á þessu ári og Ólína
Benediktsdóttir. Ég vissi líka, að
séra Guðmundur hafði verið
óvenjulega mikill námsmaður í
skóla. Þegar hann tók guðfræði-
próf frá Háskóla íslands, var það
íanghæsta próf sem tekið hafði
verið og engum tókst að hnekkja
því í mörg ár. Ennfremur hafði ég
heyrt, að hann hefði unnið sitt
prestsstarf í Hvanneyrarpresta-
kalli í Borgarfirði með miklum
ágætum.
Það er ekki fýsilegt fyrir prest
að taka að sér starf í nýbyggðu
hverfi í Reykjavíkurprófastdæmi.
Aðstaða er nánast engin. Engin
kirkja til að messa í og engin
skrifstofuaðstaða. Það verður
m.ö.o. að byrja frá grunni. Það
segir sig sjálft, að það er gífurlegt
átak að byggja frá grunni kirkju
og safnaðarheimili. Það er ekki
lítill tími, sem lagður er í það
starf af hálfu prests, sóknarnefnd-
ar, kirkjubyggingarnefndar, fjár-
öflunarnefndar, auk félaga, sem
starfa innan safnaðanna.
I öllum þessum nefndum, sem
ég taldi upp hefur séra Guðmund-
ur setið flesta ef ekki alla fundi.
Auk þessa hefur hann verið
manna afkastamestur að afla fjár
til framkvæmdanna með margvís-
legu móti.
Það var því stór stund, þegar
fyrsti áfangi Safnaðarheimilisins
var vígður fyrir tveimur árum og
ég veit, að enginn fagnaði því meir
en hann. Á aðfangadag verður enn
einum áfanga fagnað. Byggingu
klukknaturns er lokið og búið að
koma.fyrir nýjum kirkjuklukkum
og verður þeim hringt í fyrsta sinn
á aðfangadag. Munu þessar
kirkjuklukkur um ókomna tíð
kalla íbúa Árbæjarhverfis til
helgra tíða. Ég veit, að ekkert
myndi gleðja séra Guðmund meira
en það, ef sóknarbörnin hans
hlýddu þessu kalli.
Það hefur verið mér ánægjuleg
lífsreynsla að fá að starfa með
séra Guðmundi að safnaðarmálum
í Árbæjarprestakalli. Fyrir
margra hluta sakir er hann mjög
óvenjulegur maður. Auk þess að
vera mjög greindur er hann góður
ræðumaður. Setur hann mál sitt
mjög skýrt fram og hefur góða
framsetningu, er söngmaður
ágætur og tónnæmur. Og síðast en
ekki síst er hann mikill mann-
kostamaður. Hann er af „gamla“
skólanum. Þó að margir skólar séu
góðir, tekur sá gamli öllum öðrum
fram. Hvaða kostir prýða mann-
inn meir en áreiðanleiki, orð-
heldni, stundvísi og fáguð fram-
Heill og sæll, frændi minn
góður. Nú hefur þú, með heiðri og
sóma, lokið við helming 9. ára-
tugsins. Og ekki hvarflar að mér
efi um, að þú skilir hinum helm-
ingnum, með sama sóma.
Ég fagna því, að ég skuli enn
vera ofan moldar með þér, því að
fjarri er, að ég sé íeiður á lífinu.
Én ég húðskamma stundum sjálf-
an mig fyrir, að miðla mér ekki
oftar tíma til að fá hressandi
skammt andlegra vitamína, af
óþrjótandi birgðum þínum, sem
virðast ekki lúta því lögmáli, að
minnki það, sem af er tekið. Þær
eru eins og hafið. Á því sér ekki
borð, þótt af sé ausið.
Þú hefur verið svo innundir hjá
drottni allsherjar, að hann úthlut-
aði þér úrvalstegund minnis-
fruma. Um það vitna ógrynni
fróðleiks um menn og málefni,
skrítlur, skopsögur, ljóð og lausa-
vísur, sem þú hefur á hraðbergi.
En fleira gerði hann við þig vel,
þú ert hagyrðingur. Og hann gaf
þér slíka raddleikni, að þú gast og
getur vonandi enn tileinkað þér
margar ólíkar raddir og brugðið
þér í margra gerfi og leikið.
Aldrei hef ég, síðan ég kynntist
þér, efast um, að best hefðirðu
kunnað við þig á fjölum leiksviðs-
ins, og fjalirnar ekki síður kunnað
vel við þig, og þá ekki síst
áhorfendur og heyrendur.
koma? Það eru einmitt greinarn-
ar, sem menn nema í gamla
skólanum.
I hinu kirkjulega starfi hefur
séra Guðmundur lagt sig allan
fram. Hann kastar aldrei höndun-
um til neins sem hann gerir.
Börnin hafa fundið þetta vel. Hafa
þau sýnt, að þau kunna vel að
meta það, sem vel er gert, enda
hafa þau fjölmennt svo á hverjum
sunnudagsmorgni, að þau eru að
sprengja þetta húsnæði utan af
sér. Margt fleira gæti ég nefnt, en
læt þetta nægja að sinni.
Islensk kirkja á mjög góðan
liðsmann, þar sem séra Guðmund-
ur er. Áhugi hans er einlægur á
því, að benda mönnum á, að án
trúar á Guð og frelsarann sé lífið
tilgangslítið.
Með þessum orðum langar mig
að þakka séra Guðmundi fyrir
undangengin 10 ár, sem við höfum
átt samstarf að safnaðarmálum
Árbæjarhverfis, sem aldrei hefur
fallið skuggi á. Ég hef lært mikið
af honum og er þakklátur fyrir
þennan tíma.
Ég veit, að ég mæli fyrir munn
allra sóknarbarna hans, er ég óska
honum alls góðs á þessum tíma-
mótum í lífi hans. Megi Guð blessa
hann og fjölskyldu hans um
ókomna tíð, með ósk um gleðileg
jól og farsælt nýtt ár.
Geirlaugur Árnason
Þótt allt hafirðu vel gert, sem
þú hefur stundað, áttirðu best
heima á leiksviðinu, það var þinn
rétti vettvangur. Fjárans klúður,
að þú skyldir lenda utan þess.
Páll fæddist og ólst upp í
afskekktustu sveit landsins, á
hinu forna höfuðbóli Flosa, Svína-
felli, í kallfæri við Öræfajökul.
Á vaxtarárum hans blöstu stöð-
ugt við honum sterkar andstæöur
stórbrotinnar náttúru, sem öræf-
ingar höfðu mótast af gegnum
kynslóðir. — Enda er sagt, að í
Öræfum sé ekki til neitt miðlungs-
fólk.
Með móðurmjólkinni hefur Páll
drukkið í sig seiðmagnaða orku
Öræfajökuls, ilm úr grasi og skóg,
mildi og unað sumars — fegurð, líf
og liti allra árstíða, nið og straum-
þunga fljótanna á báðar hendur,
víðáttu sanda og sævar.
Alls þessa, sem Páll hefur hlotið
í arf og skynjað gegnum auga og
eyra, gætir í skapgerð hans.
Páll kvaddi Öræfin 17 ára að
aldri. Og þá orðinn karlmenni að
burðum. Utþráin ólgaði í blóðinu.
Henni varð að fullnægja. Hvort
henni hefur verið fullnægt á þeim
68 árum, sem liðin eru síðan, veit
ég ekki. En hér hefur hann lifað og
starfað um áratugi, og verið meðal
þeirra, sem setja svip sinn á
borgina.
Og aldrei hefur honum, eða
þeim systkinum, brugðist hin ör-
æfska hjálpfýsi og samúð með
öllum, er minna mega sín. Og
vonandi verða þeir eiginleikar
ávallt aðalsmerki Öræfinga, þótt
aldalöng einangrun sé rofin.
Þegar þú áttir stórafmæli síð-
ast, fyrir 5 árum, og skaust 8.
áratugnum aftur fyrir þig, óskaði
ég þér víst þess, að þú stæðist öll
brögð bragðslyngrar Elli kell-
ingar, 9. áratug þinn. Og það
hefurðu nú gert með prýði, fyrri
helming hans, þótt eilítið hafi
slaknað á stælingu og léttleik.
Nú óska ég þess, frændi minn
góður, að þér endist ríkulegt
glímuþrek til næsta afmælis, eftir
5 ár, og lengur, og að þú gangir
styrkum fótum, er þú heilsar 10.
áratug þínum. Einnig, að engin
þurrð verði í þínum andlegu vita-
mínbyrgðum, eða miðlun þeirra.
Og svo óska ég þér heilla með
þetta afmæli — og áfram.
M. Skaftfells.
Afmælis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
SINGER
Fullkomlega sjálfvirk
saumavél.
Nálin er skásett til að
auðvelda saumaskapinn,
þér sjáið betur og
saumið betur.
Allt þetta við fingurgómana,
og saumaskapurinn
verður leikur einn.
SINGER ER SPORI FRAMAR
URA
Sjálfvirk hnappagöt.
Festir tölur.
Sjálfvirk spólun
í gegnum nálina.
Frjáls armur eða
fast flatborð.
25 nytja- eða
skrautsaumar.
VÉIADEILD
SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reyk/avik Simi 38900
HALLARMÚLAMEGIN
85 ára í dag:
Páll Þorgilsson