Morgunblaðið - 23.12.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
31
Spennandi einvígi hafið
Robert Iliibner vann fyrstu
skákina í einvígi sinu við Viktor
Korchnoi sem hófst á laugardag-
inn í ítalska bænum Merano.
Hiibner var þó ekki lengi yfir því
önnur skákin var tefld strax á
sunnudag og þá jafnaði Korchnoi
metin. Staðan er því 1 — 1 og allt
útlit íyrir mjög fjörugt einvígi
því það er óvenjulegt að skákir
vinnist svo snemma i einvígjum í
heimsmeistarakeppninni. Ollu al-
gengara er að keppendur fari sér
að engu óðslega í byrjun og taki
þá enga áhættu.
I einvíginu nú verða samkvæmt
reglu FIDE tefldar 16 skákir,
nema annar hafi náð 8% vinningi
áður en þeim skákafjölda er náð.
1. einvígisskákin
Hvítt: Robert Hiibner
Svart: Viktor Korchnoi
CaroKann vörn
1. e4 - cG, 2. d4 - d5, 3. Rc3 -
dxe4, 4. Rxe4 — Bf5.
(Það er ákaflega sjaldan sem
Korchnoi beitir þessari byrjun.
Gegn Karpov í Baguio lék hann þó
4.... Rf6, 5. Rxf6 — exf6?! en fékk
nánast óteflandi stöðu. Nú beitir
hann fyrir sig öðru afbrigði byrj-
Fremur en undanfarin ár voru
skákáhugamenn á íslandi ekki
sviknir af timaritinu Skák sem
hefur nú rétt fyrir jólin sent á
markaðinn bókina „Skák í austri
og vestri, þættir úr skáksögu“,
eftir Guðmund Arnlaugsson,
fyrrv. rektor.
Bókin fjallar um skákviðburði
og skákmenn allt frá því að
fyrsta skákmótið var háð í Lond-
on árið 1851 og fram að seinni
heimsstyrjöldinni. Samt er hér
ekki á ferðinni neitt uppsláttar-
rit um skáksögu heldur fjallar
Guðmundur um viðfangsefni sitt
á þann alúðlega hátt sem þeir
sem hlýtt hafa á útvarpsþætti
hans um skák kannast áreiðan-
lega við.
Arangur hans er skemmtileg
skákbók sem hrífur lesandann og
hvetur hann til að kynna sér
nánar ævi og stíl bestu skákmeist-
aranna á því tímabili sem bókin
spannar, því í henni gerir höfund-
urinn sér greinilega far um að
draga fram í dagsljósið forvitnileg
atvik úr skáksögunni og lýsir
jafnframt sérkennum hvers
meistara svo og helstu æviatriðum
þeirra.
Ekki leikur nokkur vafi á því að
af Islendingum er Guðmundur
Arnlaugsson allra manna færast-
ur til að rita slíka bók. Sjálfur
hefur hann stundað skák í hálfa
öld og því átt hægt með að leita
fanga í þeim skákritum sem hon-
um hafa safnast á þeim tíma auk
þess sem hann hefur með eigin
augum litið marga þá kappa sem
bókin fjallar um.
Einn stærsta kost bókarinnar
tel ég vera hve höfundur gerir sér
títt um að setja skáksöguna í
samband við atburði líðandi
stundar á hverjum tíma, svo sem
kemur fyrir m.a. í köflunum
„Blómaskeið skákmótanna“ og svo
sérstaklega í „Skák og stjórnmál"
þar sem reynt er að finna skýr-
ingu á því hvers vegna Rússar
urðu langöflugasta skákþjóð í
heimi.
Það er álit mitt að Skák í austri
og vestri sé bók sem mjög hafi
verið vandað til frá hendi höfund-
ar. Bókin er skemmtileg aflestrar
fyrir hvern sem er, bæði reynda
skákmenn og þó alls ekki síður
áhugamenn og byrjendur, því
öfugt við flestar erlendar skák-
bækur er engin skákkunnátta
nauðsynleg til að njóta hennar. Að
loknum lestri er lesandinn síðan
stórum fróðari um skák og skák-
menn.
í bókinni, sem er 175 bls. að
stærð eru að auki 60 skákir, allar
ágætlega skýrðar, og 11 mótatöfl-
unarinnar, sem hefur orð á sér
fyrir að leiða oft til jafnteflis.)
5. Rg3 - Bg6, 6. h4 - hG, 7. RÍ3
- Rd7, 8. h5 - Bh7, 9. Bd3 -
Bxd3,10. Dxd3 - Dc7,11. Bd2 -
RgfG. 12. 0-0-0 - e6,13. Re4!
(Þessi leikur hefur nýverið skot-
ið skelk í bringu margra sem beita
Caro-Kann vörn. Venjulega er hér
leikið 13. ... 0-0-0, 14. g3 - Rxe4,
14. Dxe4 — Be7, 16. Kbl — Hhe8,
en þá nær hvítur nokkrum stöðu-
yfirburðum með því að leika 17.
De2! Korchnoi velur aðra leið, sem
virðist þó enn síðri. Korchnoi
hefur reyndar áður fengið upp
þessa stöðu, það var gegn Stein í
Sousse 1967, þá lék hann strax 13.
... Rxe4, en tókst ekki fullkomlega
að jafna taflið.)
13. ... Be7, 14. Kbl - c5. 15.
Rxf6+ — Rxf6, 16. dxc5 — Bxc5,
17. De2!
(Hvítur tryggir riddara sínum
afnot af e5 reitnum 17. Db5+ —
Dc6 hefði aftur á móti engu
áorkað. Það er nú þegar orðið ljóst
að svartur verður að tefla mjög
nákvæmlega til þess að eiga
möguleika á að jafna taflið) 17.
... 0-0. 18. Re5 - IIfd8. 19. f4 -
Hac8?!
ur. Stuttan formála ritar Baldur
Möller.
Að lokum vil ég fyrir hönd
skákmanna þakka útgefendum
bókarinnar þeirra framtak í þágu
skáklistarinnar á íslandi. Sam-
keppnin á bókamarkaðinum er
hörð og vinnsla á skákbókum er
jafnvel enn dýrari en á öðrum
bókum, vegna þess hve setning á
skákum er erfið. íslenskar skák-
bækur eru nú komnar hátt á
þriðja tug ef kennslubækur fyrir
byrjendur eru taldar með og það
eitt ætti að tryggja að áhugi á
skákíþróttinni hér á landi haldi
áfram að aukast, því flest bóka-
söfn eiga nú nokkurt úrval ís-
lenskra skákbóka.
Nýlega las ég í sænsku skák-
blaði að skákmönnum þar í landi
til vonbrigða kæmi engin ný
skákbók út á sænsku um þessi jól,
enda væri ekki út í slíkt leggjandi
fyrir bókaforlög vegna þess hve
sænska málsvæðið og þ.a.l. mark-
aður væri lítill. Enn um sinn verða
Svíar því að láta sér nægja að lesa
um skák á ensku og þýzku.
Skák
eftir Margeir
Pétursson
(Vegna yfirvofandi peðssóknar
hvíts á kóngsvæng þurfti svartur
að bregða við fljótt með að létta á
stöðu sinni og leika 19.... Rd7, því
hann hefur of litil gagnsóknarfæri
á drottningarvæng.)
20. g4 - BbG.
(E.t.v. hefði verið skynsamlegra
að hafa þennan biskup í vörn á f8,
en frá b6 hindrar hann hvítan
hrók í að komast í gl síðar.)
21. Bcl - Rd7, 22. Rxd7 -
Hxd7, 23. g5
(Hvítur er þegar kominn vel á
veg með að rústa svörtu kóngs-
stöðuna. 23. ... Hcd8 yrði nú
einfaldlega svarað með 24. Hxd7
— Dxd7, 25. Hfl.)
23.. .. Hxdl, 24. Hxdl - Dc4, 24.
Hd3
(I stöðunni hótar hvítur nú 26.
g6 - f5, 27. Hc3!)
25.. .. hxg5,26. fxg5 — e5,27. g6
— Íxg6, 28. hxg6
(Takið eftir því að hvítur hótar
nú 29. Hc3! - De6, 30. Dxe5!)
28. ... Hc6, 29. Dg2 - e4, 30.
Hg3 - HÍ6.
(Þessi leikur leiðir til vonlausr-
ar stöðu, en 30. ... e3 var litlu
betra. Eftir t.d. 30. ... e3, 31. b3!
en ekki 31. Bxe3 — Bxe3, 32. Hxe3
— Hxg6, er svörtum mikill vandi á
höndum, því drottning hans verð-
ur að vera til taks síðar, til þess að
bera fyrir skák, á g8, þegar hvíta
drottningin skákar á h8.)
31. IIg4! - De6, 32. IIxe4 -
Hxg6, 33. De2 - Dh3,
(Eftir t.d. 33. ... Df5 vinnur
hvítur með 34. He8+ — Kh7, 35.
Dh2+.)
34. Dc4+ - KÍ8, 35. b3! - Hc6,
36. Ba3+ og Korchnoi gafst upp.
Hubner vann á mjög sannfær-
andi hátt úr sóknarstöðunni sem
hann fékk eftir byrjunina.
2. skákin:
Hvitt: Viktor Korchnoi
Svart: Robert Ilúbner
Enski leikurinn
1. c4 - c5,2. g3 - Rc6, 3. RÍ3 -
«6-
(Byrjanaval Hubners í þessari
skák kemur nokkuð á óvart. I
einvíginu við Portisch var hann
vanur að leika 3. ... e6 í stöðum á
borð við þessa og hafa kóngsbisk-
up sinn á e7. V-þýzki stórmeistar-
inn virðist heldur ekki finna sig í
stöðunni sem upp kemur þannig
að engu líkara er en að Korchnoi
hafi gabbað hann með óvenjulegri
leikjaröð sinni.)
4. d4 — cxd4, 5. Rxd4 — Bg7, 6.
Rc2 - RÍ6, 7. Bg2 - 0-0, 8. Rc3
- d6,9. 0-0
(Reynslan af þessari stöðu sýnir
að hvítur hefur töluvert betri færi
vegna meira rýmis síns. Eftir 9.
... Be6, 10. b3 - Dd7, 11. Rd5 -
Bf5, 12. Bb2 - Rxd5, 13. Bxg7 -
Kxg7, 14. Bxd5 hafði hvítur að
vísu litla, en samt ótvíræða yfir-
burði í skák Petrosjans og Smejk-
al í Amsterdam 1973. Það fram-
hald sem Hubner velur er einnig
ófullnægjandi til að jafna taflið.)
9.... Bd7,10. b3 - Dc8,11. Bb2
- Bh3,12. Hbl - Hfd8.13. e4 -
Bxg2, 14. Kxg2 — e6, 15. Hel —
a6, 16. Ral - IIb8, 17. Hcl -
Dd7,18. Df3 - De7.
(18. ... Re5 hefði hér og í næsta
leik verið svarað með 19. Bxe5 —
dxe5, 20. c5.)
19. Re3 - Rd7.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi bréf frá byggingar-
nefnd Hallgrímskirkju, en það er
frá systkinunum Guðlaugu L. Jóns-
dóttur, Ólafi Jónssyni, Jóni P.
Jónssyni og Jónasi Gislasyni.
„I tilefni af 40 ára afmæli Hall-
grímssóknar langar okkur systkinin
til þess að minnast foreldra okkar,
sem lengst af áttu heima í sókninni
og tóku þátt í starfi safnaðarins.
(19.... b5!? var mögulegt, en því
hefði hvítur t.d. getað svarað með
20. cxb5 — axb5, 21. Hxc6 — bxa4,
22. Bxf6 og síðan bxa4 eða jafnvel
22. Ba3!?)
20. Bxg7 - Kxg7, 21. De2 - h5.
22. Hedl - Rc5, 23. Rc3 - Df6.
24. f3 - b5?!
(Fífldjarfur leikur. í staðinn
hefði svartur átt að leika 24.... b6
og láta hvít um að færa sér
veikleikann á d6 í nyt, en að því er
allt annað en hlaupið.)
25. cxb5 - Rd4, 26. Df2 - Rxb5,
(26.... axb5 gekk ekki vegna 27.
Red5.)
27. Re2 - Ra3?!
(Þessi undarlegi leikur hefur
þann tilgang að hindra hvít í að
bæta stöðu sína með 28. Rc4.
Eðlilegra var 27. ... Hbc8.)
28. Rd4 - Hbc8, 29. De2 - d5.
(Leiðir til skiptamunartaps, en
svartur átti allt annað en hægt um
vik. Hvítur hótaði t.d. 30. b4 og
síðan Dxa6.)
30. e5!
(Ef nú 30. ... De7, þá 31. b4 —
Ra4, 32. Rc6.)
30.... Dxe5, 31. Ref5+ - Kf6, 32.
Dxe5+ — Kxe5,33. Re7! — a5,34.
Rxc8 - Hxc8,35. IIc3 - Kd6.36.
f4 - f6, 37. Hdcl - Hc7.
(Leiðir beint til taps, en eftir 37.
• •. e5 tryggir 38. Re6! sigur.)
38. b4! - Ra6. 39. b5 og svartur
gafst upp.
Gísli var formaður byggingarnefnd-
ar kirkjunnar og sat í sóknarnefnd
frá upphafi, þar til þau fluttust úr
sókninni, þar af var hann formaður
sóknarnefndar um langt árabil.
Sendum við hér með kr. 1.000.000.-
í þessu skyni með þeirri bæn, að
þetta megi hjálpa til við að fullgjöra
kirkjuhúsið sem fyrst, en kirkju-
byggingin var þeim hjónum ætíð
mikið áhugamál."
Sl<apa fötin
manninn?
Þaö er nú kannske heldur mikið sagt.
Hins vegar breyta Terra fötin honum verulega.
Terra fötin eru í tískusniðum. Þau fást
með eða án vestis og ef óskað er, fóðruðum
buxum. Stærðirnar eru 50 og ef engin þeirra
passar, saumum við fötin sérstaklega.
u
n
//
vj
SNORRABRAUT 56 - SiMI 13505
Ný skákbók komin út
Höfðingleg gjöf