Morgunblaðið - 23.12.1980, Side 28

Morgunblaðið - 23.12.1980, Side 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 Rósturnar í Verkamannaflokknum: Einar K. Guðfinnsson — 3. grein Á vinstri leið til einangrunar Stefna ríkisstjórnar Margareth Thatcher á ekki upp á pallborðið meðal breskra kjósenda um þessar mundir. Það sýna skoðanakannan- ir ljóslega. Þó frú Thatcher sé ekki sérlega vinamörg þessa dagana, þá getur hún huggað sig við að óvinurinn, stjórnarandstöðuflokk- urinn, er ekki ýkja hættulegur. Verkamannaflokkurinn er ekki bara sjálfum sér sundurþykkur og flakandi sár eftir innbyrðis hjaðn- ingavíg. Það má öllu alvarlegra telja, að hann er hugmyndalega gjaldþrota og býður kjósendum upp á valkosti sem þeir hafa fyrir löngu snúið baki við. Gamalt breskt orðatiltæki, — lítið eitt úr lagi fært — lýsir því vel stjórnmálaástandinu í Bret- landi í dag: „Með slíka að óvinum þarfnast frú Thatcher ekki vina.“ Bjartsýni í Verkamanna- flokknum Enginn vafi er á því, að úrslit kosninganna árið 1979 voru Verkamannaflokknum mikið áfall. Flokkurinn fékk meirihluta eftir síðari kosningarnar árið 1974. Hans beið erfitt verkefni og óvin- sælar ráðstafanir þurfti að gera. Á kjörtimabilinu fóru fram auka- kosningar og þær ollu því, að flokkurinn missti meirihluta sinn. James Callaghan þáverandi leið- togi flokksins var samt ekki af baki dottinn. Eftir nokkurn tíma undirritaði hann samkomulag við Frjálslynda flokkinn, sem varði flokkinn vantrausti. Það var á þessum árum sem flokksmönnum jókst mjög sjálfstraustið. James Callaghan sagði til dæmis eitt sinn: — Sú var tíðin að menn litu á íhaldsflokk- inn sem hinn raunverulega stjórn- arflokk, en á okkur sem stjórnar- andstöðuflokk. Nú hefur orðið breyting á. í dag erum við hinn raunverulegi stjórnarflokkur í Bretlandi. Kosningarnar árið 1979 færðu mönnum heim sanninn um, að bjartsýnin var ekki á rökum reist. — Til þess að átta sig á stöðu Verkamannaflokksins, er eðlilegt að gera sér grein fyrir því hvað olli tapi flokksins í kosningunum. „Vetur óánægjunnar" Síðasti veturinn sem Verka- mannaflokkurinn var við völd, hefur verið nefndur „vetur óánægjunnar". Ástæðan er ein- föld. Þann vetur voru stöðug verkföll og vinnudeilur. Opinberir starfsmenn ýmsir, voru þar afkastamiklir. Þetta kom hart niður á margvíslegri þjónustu. Almenningur fann því mjög til öryggisleysis. Dæmi: Verkamenn- irnir sem áttu að sjá um að hreinsa snjó af götum, fóru í verkfall. Þetta olli því, að oft varð erfitt að ferðast um götur, sem voru hálar og sleipar. Starfsfólk í sjúkrahúsum fór í verkfall svo loka varð heilu deildunum á sjúkrahúsunum. Þetta vakti upp kurr meðal margra. Þá fóru slökkviliðsmenn í verkfall. Og fólk fann fyrir öryggisleysi fyrir vikið, ekki síst vegna þess að það er alltaf meiri eldhætta á vetrum í Bretlandi, þar sem fólk kyndir mikið með kolum í arinofnum. Verkamannaflokkurinn hafði skapað það álit, að hann einn gæti átt gott samstarf við verkalýðsfé- lögin. Veturinn 1978—1979, sann- aði, að þetta átti ekki við rök að styðjast. Þrátt fyrir þetta setja margir sama sem-merki á milli verkalýðs- hreyfingarinnar og Verkamanna- flokksins. Hinar óvinsælu aðgerð- ir verkalýðsfélaganna hafa því ábyggilega átt sinn þátt í að auka vantraustið á Verkamanna- flokksstjórninni. Fangi eigin fortíðar Þrátt fyrir að „vetur óánægj- unnar" hafi örugglega gert Verka- mannaflokknum erfiðara fyrir, var það ekki hann sem úrslitum réði. Það sem mestu réði um úrslitin, að mínum dómi, er, að Verkamannaflokkurinn er fangi sinnar fortíðar. Flokkurinn býður upp á notaðar og úreltar hug- myndir. Aldrei verður nægilega vel minnt á, að breski Verkamanna- flokkurinn og verkalýðshreyfingin eiga sér sameiginlega sögu. Flokk- urinn er hinn pólitíski armur hreyfingarinnar. Árið 1945 komst flokkurinn til valda eftir sögu- legar kosningar. Leiðtogi íhalds- flokksins í þeim kosningum var sjálfur Winston Churchill. Attlee leiddi Verkamannaflokkinn. Att- lee og félagar hans voru með ítarlega stefnuskrá og þeir voru staðráðnir í að koma henni í framkvæmd. Stjórnmálafræð- ingar, sem hafa skoðað þetta tímabil, segja það stórkostlegt hversu mikill hluti þessarar stefnuskrár komst í raun og veru í framkvæmd á þeim árum, sem Attlee var við völd. Meginhlutverk Attlee-stjórnar- innar var auðvitað að reisa Bret- land úr styrjaldarrústunum. Ann- að aðalverkefnið var að koma á sæmilegu velferðarsamfélagi með almannatryggingum, heilsugæslu og þess háttar. Þjóðnýting var líka ofarlega á stefnuskránni hjá þess- ari stjórn og ekki síður hjá þeim stjórnum Verkamannaflokksins sem síðar ríktu. Óheppilegt Ævinlega hefur ímyndin af Verkamannaflokknum haldist. Flokkurinn hefur verið holdtekja verkalýðshreyfingarinnar. Hann hefur líka verið ímynd velferðar- samfélagsins, sem í augum flestra Breta nú er þó frekar „báknið". Og loks hefur Verkamannaflokkurinn verið orðaður við hin þjóðnýttu fyrirtæki. Allt væri þetta kannski gott og blessað ef ekki vildi svo óheppi- lega til, að þjóðfélagið hefur breyst á þeim 35 árum frá því að Verkamannaflokkurinn komst fyrst til valda árið 1945. Því óheppilegra er það, að flokkurinn hefur lítið aðlagað sig þessum breytingum. — Lítum nú á nokkra málaflokka sem flokkurinn hefur borið fyrir brjósti sér. JW Hjf . 'q'cT in CA5T/ foóffnH fmTinTitepote fo*T< H fefi\ foof ‘>°*£ 'fiif'* MmTtf ■ l!iinCr KI$, ’ (oit MF*<|itr) ' Y»« n<T ifpT fiwr «( Y'M W Ymt UFT fnrtirt ‘ ■pf*T L.00 Í6 w Michael Foot, séður með augum skopteiknara. Persónufylgi hans meðal almennings er ákaflega litið. Tony Benn. Róttskni hans mun fremur fæia kjósendur frá Verka- mannaflokknum en laða þá að. 35 milljarða styrkur á viku Þjóðnýting ýmissa ríkisfyrir- tækja var lengi ofarlega á baugi hjá Verkamannaflokknum. Og vissulega hafa fyrirtæki verið þjóðnýtt, en jafnt af íhalds- meðal almennings. Þessa hafa verkamannaflokksmenn goldið. Óvinsældir verka- lýdshreyfingar- innar Sú var tíðin, að verkalýðsbar- átta hafði yfir sér nokkurn sjarma. Þetta var sú tíð þegar skrifaðar voru rómantískar hetju- sögur um þá atgervismenn, sem börðust fyrir brauði handa blá- snauðri alþýðu. Orðið verkalýðs- barátta hefur fyrir löngu tapað þessum sjarma. Verkalýðsleiðtogi er ekki lengur sviphreinn alþýðu- maður, er öllum vill gott gera. Verkalýðsleiðtogi er í dag, í aug- um stórs hóps kjósenda, maður, sem notar sitt mikla vald til hins ýtrasta og hreint ekki alltaf til góðs. Verkföllin árið 1978—1979 minntu þá fáu á það sem höfðu gleymt því. Verkalýðshreyfingin hefur furðu lengi staðið á móti því, að félagsmenn mættu greiða atkvæði um verkföll og senda það í pósti. Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var í fyrra, kom í ljós að 89 prósent kjósenda voru því þó fylgjandi. Og það sem meira var, 91 prósent meðlima verkalýðsfé- laga vildu það. Svokallað „second- ary picketing" setti svip sinn á Óhamingju Verkamannaflokksins verður allt að vopni... Kjósendur Verkamannaílokksins um kosningalof- orð íhaldsflokksins. Ætti rikÍ88tjórnin að stefna aö eftirtöldum markmiöum? Draga úr ofbeldi og skemmdar- Já % Nci % Veit ekki % starfsemi Draga úr opinberum bótum handa verkfallsmönnum, þar sem þeir fá hvort eð er bætur frá 95 3 2 verkalýðsfélögunum sínum Stöðva verkfallsvörslu annarra verkamanna en þeirra sem hlut 63 30 7 eiga að verkfalli Lækka tekjuskatt, einkum hjá 78 14 8 þeim sem hafa góðar tekjur Veita leigjendum í verkamanna- bústöðum á vegum ríkis og sveit- arfélaga rétt til að kaupa íbúð- irnar, með afslætti fyrir þá sem 52 45 3 búið hafa þar lengi 75 20 5 Fækka opinberum starfsmönnum Selja hlutabréf i opinberum 70 22 8 fyrirtækjum 40 49 11 Heimild: Anthony King prófessor. mönnum sem verkamannaflokks- mönnum. Munurinn hefur bara verið sá, að íhaldsmennirnir hafa talað gegn þjóðnýtingartilraunum alla jafna. Verkamannaflokks- menn hafa borið kápuna á báðum öxlum í þessum málum. Hinir róttækari hafa mælt þjóðnýting- um bót og raunar viljað ganga miklu lengra en þegar hefur verið gert. I þessum hópi eru margir úr hinni nýju valdastétt, menn á borð við Tony Benn og Eric Heffer. Hinir, sem hægfara eru, hafa aftur á móti minna sagt. Nú vill svo illa til, að þjóðnýting er illa þokkuð meðal breskra kjósenda. Ástæðurnar eru marg- ar, en ég hygg, að sá árangur, sem orðið hefur af þjóðnýtingunni, hafi ekki orðið til að kjósendum þætti hún til eftirbreytni. Breski bílaiðnaðurinn, þjóðnýttur að hluta, er í lamasessi. Verr er þó komið með stáliðnaðinn. Bresku stáliðnaðarverksmiðjurnar eru reknar með ofboðslegum halla. Samkvæmt nýjustu tölum þurfa breskir skattborgarar að greiða sem svarar 35 milljörðum króna til þessa iðnaðar, í formi beinna styrkja, á viku hverri. Menn, sem orðaðir eru við svonalagað fjár- málaævintýri, eru illa þokkaðir Bretland fram á þennan dag. „Secondary picketing" þýddi, að menn stóðu verkfallsvörð á ein- hverjum vinnustað þar sem verk- fall var, þó víðs fjarri sínum eigin vinnustað. Þetta var illa þokkað. 89 prósent kjósenda vildu láta banna „secondary picketing", 86 prósent meðlima verkalýðsfélaga voru slíku banni samþykkir. Þannig vildi það til að íhalds- flokkurinn boðaði einmitt stefnu sem miðaði að því að skerða ægivald verkalýðsfélaganna. Það átti því hljómgrunn meðal kjós- enda. Verkamannaflokkurinn er rígbundinn verkalýðshreyfingunni fjárhagslega og skipulagslega. Hann stóð og féll því með „hags- munum" hreyfingarinnar. „Báknið“ Þá er að geta velferðarsamfé- lagsins. íhaldsmenn tóku þá af- stöðu eftir stríð að viðhalda og auka við það velferðarkerfi, sem komið hafði verið á af stjórn Verkamannaflokksins eftir stríð. Hins vegar fór þeirra radda að gæta eftir 1970, að rétt væri að athuga hvort ekki mætti einhvers staðar koma við meiri hagkvæmni og draga úr eyðslu. Þessum rödd-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.