Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.12.1980, Qupperneq 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 + Eiginmaöur minn, GUDLAUGUR ÞORSTEINSSON, fv. verkstjóri Melhaga 15, andaöist aö heimili sínu 19. desember. Mítte Þorsteinsson. + Móöir mín, JOHANNA PÁLMADÓTTIR, Fálkagötu 3, Reykjavík, dó 3. desember 1980, og hefur jaröarför fariö fram. Helga Jónsdóttir. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, SIGURÐUR JÓHANNESSON, Njálsgötu 85, lézt í Landspítalanum aö morgni 22. desember. Ingibjörg Ulfarsdóttir og börn hins látna. Faöir okkar og tengdafaöir, MATTHÍAS JÓNSSON, Amtmannsstíg 5, lést í Landspitalanum sunnudaginn 21. desember. Jaröarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. desember kl. 15.00. Ólafía B. Matthíasdóttir, Þórarinn B. Gunnarsson, Hafdís Matthíasdóttir, Bjarki Friögeirsson, Jón Matthíasson, Matthildur Jóhannsdóttir, Oddný Matthíasdóttir. + Móðir okkar og tengdamóöir, BERGNÝ MAGNÚSDÓTTIR, sem lézt 20. des. sl., veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 30. desember kl. 10.30 fh. Asgrímur Sveinsson, Hólmfríóur Jóhannsdóttir, Guömundur Björnsson, Viktoría Kristjánsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Jóhannes Pétursson, Hrefna Björnsdóttír, Kjartan Guðjónsson, Svavar Björnsson, Ása Kristinsdóttir. + Útför INGIBERGS STEFANSSONAR, forstjóra, veröur gerð þriðjudaginn 23. desember í Fossvogskirkju kl. 10.30. Svanhildur Sigurjónsdóttir, íris Ingibergsdóttir, Óskar Nikulásson, Sveínn Ingibergsson, Guörún Haraldsdóttir, Ingibergur Ingibergsson, Sigrún Helgadóttir. + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför BERGÞÓRU AUÐUNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til Kvenfélags Þorlákshafnar. Sigurþór Skasringsson og börn. + Alúöarþakkir færum við starfsfólki Elliheimilisins Grundar fyrir umönnun BJARGARJÓNSDÓTTUR, frá Akureyri, er lézt í nóvember sl. Barnabörn. Blikksmiöjan Grettir veröur lokuð í dag, þriðjudaginn 23. desember vegna útfarar Ingibergs Stefánssonar, forstjóra. Aldís Olafsdótt- ir — Kveðjuorð Fædd 5. nóvember 1920. Dáin 4. desember 1980. Hún Allý vinkona okkar hjóna er dáin. Það er erfitt að trúa því. Ég fylltist miklum söknuði, er ég las það í blaði fyrir nokkrum dögum, er ég var á leið með skipi heim til íslands í jólafrí með syni mína. Ég hafði ekki séð Allý í tæp tvö ár og hlakkaði mikið til að sjá hana eins og alltaf. Við hjónin kynntumst Allý um borð í ms. Gullfossi vorið 1971, þar sem við unnum saman, og var það yndislegur tími. Það er mér ógleymanlegur tími og oft var glatt á hjalla og mikið gátum við Allý hlegið vel saman og spjallað. Allý átti stórkostlega fallegt heimili, það var eins og að koma í draumaland að koma til hennar. Alltaf tók hún vel á móti okkur, var mjög gestrisin og vildi allt fyrir mann gera. Það var alltaf gaman að hlusta á hana segja frá ferðum sínum á sjónum og margt spennandi hafði hún upplifað og ævintýralegt. Hún hafði líka mætt miklu mótlæti í lifinu og reynt mikil veikindi, og var stundum mjög langt niðri, en fljót að verða glöð aftur og sjá allt það góða sem lífið gaf. Allý var ekki hrædd við að vinna, vann alla ævi mikið, aðal- lega við framreiðslustörf. Hún var einnig mjög listræn, mikil hann- yrðakona og málaði afar fallegar landslags- og blómamyndir, og þykir okkur vænt um þær myndir sem hún gaf okkur. Síðustu árin átti Allý við erfið- an sjúkdóm að stríða, en hún var sterk og hafði sterkan vilja. Hún náði aldrei að heimsækja okkur til Danmerkur, og þykir mér það leitt, því oft vorum við búin að ræða um það og hlakka til, en við héldum að tíminn væri nógur, en því ráðum við ekki sjálf, því miður. Henni hlotnaðist ekki sú gæfa að verða móðir, en hún átti 5 góðar og skemmtilegar systur og mjög elskuleg systrabörn sem reyndust henni vel, og hún elskaði mikið. Systrum hennar og fjölskyldu votta ég og fjölskylda mín okkar innilegustu samúðarkveðjur. Elsku Allý, takk fyrir allt. Blessuð sé minning Allýjar. Gullý Hanna Minning: Þóra Magnea Magnús- dóttir frá Fagraskógi Fædd 8. febrúar 1894. Dáin 3. maí 1980. Jólin og undirbúningur þeirra kalla fram í hugann myndir af þeim vinum sem horfnir eru en minnisstæðir. Einn þessara vina minna er Þóra Mangúsdóttir í Fagraskógi við Eyjafjörð. Ég handleik jólakortið, sem hún sendi á síðustu jólum. Á því er mynd af Möðruvallaklausturs- kirkju, þar sem tendruð voru hundruð lifandi kertaljós á jólum. Þetta var kirkjan hennar og kirkj- an mín þau ár, sem ég bjó á Hjalteyri. Á Möðruvöllum áttum við góða vini sem voru presthjónin séra Sigurður Stefánsson og María Ágústsdóttir. Með söknuði minnist ég Þóru, þessarar elskulegu, trygglyndu konu, og rifja upp ferðirnar, sem við fórum saman til Akureyrar að gera jólainnkaupin. Þóra fæddist í Reykjavík. For- eldrar hennar voru Steinunn Sig- urðardóttir og Magnús Vigfússon starfsmaður við Stjórnarráð ís- lands. Bjuggu þau í húsi, sem stóð á baklóð Stjórnarráðsins og þar ólst hún upp ásamt Margréti systur sinni. Þóra var snemma bókhneigð og fróðleiksfús. Hún las allar þær bækur, sem hún komst yfir. Á unglingsárunum sótti hún ensku- og þýskutíma, sem varð henni ómetanlegt. Ung að árum sigldi hún til Kaupmannahafnar og fór þar í hússtjórnarskóla. Eftir heimkom- una starfaði hún við Landsíma íslands. Hún giftist árið 1916 Carsten Bherens kaupmanni í Reykjavík og síðar í Hafnarfirði. Þau eignuðust tvö börn, Idu sem gift er Robert L. Dibble, aðstoðarframkvæmda- stjóra, búa þau í Bandaríkjunum og Wilhelm Magnús, efnispilt sem andaðist fjórtán ára að aldri. Eftir að þau slitu samvistum fluttist Þóra norður til Akureyrar með börnin sín og starfaði þar við Landsímann. Á Akureyri bjó hún þar til hún giftist árið 1931 Stefáni Stefáns- syni bónda og lögfræðingi í Fagra- skógi. Þóra kunni strax vel við sig í Fagraskógi og festi þar rætur. Heimilið var mannmargt og gestkvæmt. Þóra og Stefán eignuðust fjögur börn. Þau eru: Stefán bæjarverkfræð- ingur á Akureyri, kvæntur Jó- hönnu Stefánsdóttur frá Neskaup- stað; Þóra húsfreyja, gift Gisla Teitssyni, framkvæmdastjóra Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík; Magnús bóndi í Fagra- skógi, kvæntur Auði Björnsdóttur frá Ölduhrygg í Svarfaðardal; og Ragnheiður húsfreyja, gift Har- aldi Sveinbjörnssyni verkfræðingi á Akureyri. Þau hjónin voru hjúasæl og dæmi voru þess að sama vinnu- fólkið væri hjá þeim árum saman, oft þar til það festi ráð sitt og setti saman eigið bú. Þóru kynntist ég fyrst í Reykja- vík fyrir hálfri öld. Það var á heimili Margrétar systur hennar, en við Stella dóttir Margrétar vorum æskuvinkonur. Það var allt- af stórviðburður þegar von var á Þóru að norðan. Það var svo mikil reisn yfir henni. Eftir að hún gerðist húsfreyja í sveit var hún ævinlega á íslenska búningnum og með franskt slegið sjal. Þegar ég og fjölskylda mín fluttumst til Hjalteyrar, endurnýj- uðum við kunningskapinn og átt- um margar ánægjustundir saman. Stefán var nú orðinn alþingis- maður og var fyrir sunnan á vetrum. Stundum fór Þóra með honum, en á þessum árum var hún heima. Börnin voru í skólum. Þóra lifði lífinu lifandi og var ævinlega til í að skreppa inn á Akureyri ef ég hringdi til hennar. I þessum ferðum sáum við margar leiksýningar, bæði hjá Leikfélagi Akureyrar og nemendum Mennta- skólans. í hverri ferð var komið við á Bjarmastígnum hjá Árna lækni og Ingibjörgu frænku minni, en með þeim var einlæg vinátta. Þessum vetrarferðum eru tengdar margar minningar. Þegar allt var á kafi í snjó þá kom Þóra á kana með hestum fyrir til Hjalteyrar og sat eins og drottning í hásæti á kananum. Svo fórum við um borð í Drang og sigldum inn Eyjafjörð. Mér er í minni hve hún lagði mikla alúð í jólainnkaupin og miðaði þau við Davíð mág sinn svo hann yrði ánægður. Enda sagði Davíð aðspurður árið 1956. „Ég hlakka alltaf til jólanna. Þó að ég sakni vina í stað heima í Fagra- skógi þá uni ég mér hvergi betur en þar á jólum. Þar standa mér opnar allar dyr.“ Þóra var skemmtileg kona og Ijóðelsk. Hún kunni að meta gróð- urmoldina og plantaði trjám tug- um saman. Þau eru hennar minn- isvarði í Fagraskógi undir Sólar- fjöllum. Faðmaðu bliði blær bygKðir ok Nundin við... Sé én hvar bðndabær brosir i veaturhlið. D.S. Þóra var einstaklega hjálpsöm og vildi hvers manns vanda leysa. Heimilið stóð opið, ekki aðeins vinum og vandamönnu'm, heldur öðrum gestum og gangandi, sem leið áttu framhjá Fagraskógi. Á vetrum í vondri færð var hver sá hólpinn, sem náði heim að Fagra- skógi, þar var honum vís besti beini og aðhlynning, hvort sem var á nóttu eða degi. Ríkir þættir í skapgerð Þóru voru trygglyndið og kjarkurinn sem aldrei brást henni. Kom henni það vel þegar Stefán maður henn- ar missti heilsuna, hann var þá um fimmtugt. Hún var óþreytandi við að hvetja hann og hjúkra. Hún fylgdi honum til útlanda þar sem reynt var að ráða bót á heilsuleysi hans. Síðustu árin hjúkraði hún honum heima í Fagraskógi. Stefán andaðist árið 1955. Eftir lát manns síns fluttist hún suður á æskustöðvarnar og bjó lengst af í skjóli Þóru dóttur sinnar og Gísla manns hennar. Þar var hún í nágrenni við Margréti systur sína, en með þeim systrum voru miklir kærleikar alla tíð. Hún ferðaðist til Bandaríkjanna og dvaldi á heimili Idu dóttur sinnar. Ida sýndi móður sinni mikla ræktarsemi og kom oft til Islands að heimsækja hana og fjölskylduna. Þegar heilsan fór að bila þurfti hún að gangast undir hvern upp- skurðinn eftir annan en kjarkinn missti hún aldrei og aldrei kvart- aðihún. Ég heimsótti hana á sjúkrahúsið á Akureyri sumarið 1978. Hún lá í sjúkrarúmi en trúði mér fyrir því að á morgun ætlaði hún út í Lystigarðinn, sér væri það lífs- nauðsyn að finna bjarkarilminn. Hún naut þess að vera með fjölskyldu sinni og vinum. Betri amma var ekki til að dómi barna- barnanna fjórtán. Hún gaf sér ætíð tíma til að sinna þeim, hlusta á frásagnir þeirra og tala við þau. Þóra var ekki síður heimsborg- ari en sveitakona. Hún las mikið og fylgdist vel með bæði innanlands og utan. Síðustu árin bjó hún hjá Stefáni syni sínum og tengdadóttur á Akureyri. Hún tók sér ferð á hendur eftir síðustu jól til Noregs að heim- sækja Ragnheiði dóttur sína og fjölskyldu hennar sem þá dvaldi í Osló. Þar andaðist hún 3. maí sl. Hún var flutt heim í Fagraskóg og kvödd þar en jarðsett að Möðru- völlum við hlið ástvina sinna. Á ári trésins kveð ég Þóru í Fagraskógi með þökk fyrir sam- fylgdina. Blessuð sé minning hennar. Soffía Eygló Jónsdóttir frá Stóra-Skipholti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.