Morgunblaðið - 23.12.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
41
fclk í
fréttum
Mótmæli
í París
+ Fyrir skömmu safnaðist stór
hópur Frakka fyrir framan sendi-
ráð Argentínu í París. Tilgangur-
inn var sá að láta í ljós andúð sína
á hvarfi þriggja franskra kvenna í
Argentínu, en þrjú ár eru nú liðin
frá hvarfi þeirra. Sem kunnugt er,
hefur athygli manna beinst mjög
að Suður-Ameríku að undanförnu,
en stjórnvöldum þar virðist ekkert
vera heilagt. Morð, mannahvörf og
hvers konar hryðjuverk eru þar
svo til daglegt brauð. Hins vegar
munu vera mjög fjölmennar frels-
ishreyfingar í Suður-Ameríku og
fyrr en seinna mun dagur frelsis-
ins renna upp. I mótmælunum í
París tóku margir frægir aðilar
þátt. Þessi þrjú eru, frá hægri:
franska kvikmyndaleikkonan
Catherine Deneuve, franski söngv-
arinn og leikarinn Yves Montand
og sovéski andófsmaðurinn og
rithöfundurinn Marek Halter.
Máttu ekki ganga
+ Lögreglan í
Nashville i Banda-
ríkjunum meinaði
um daginn hinum
forógnaniegu Ku
Klux Kian-sam-
tökum aö taka
þátt i jólaskrúÖ-
göngu. Sérþjáifuð
50 manna sveit,
vopnuÖ M16 riffl-
um, sá til þess, aö
hinir kuflaklæddu
Klan-menn fengju
ekki að vera með.
Tjáði lögreglan
meðlimum sam-
takanna, að þeir
mættu ganga um
sem einstaklingar
en ekki sem hópur
eða samtök. Varð
nokkurt málaþóf
út af þessu, en ekki
kom til átaka.
Myndin sýnir
svartan öryggis-
vörð meina Ku
Klux Klan-manni
að taka þátt í
göngunni. Eins og
kunnugt mun vera,
berjast samtök
þessi gegn hvers
konar útlendingum
og lituðu fólki í
Bandaríkjunum.
+ Fyrir skemmstu voru gamli
kvikmyndaleikarinn Kirk Dougl-
as og frú í Austur- og Vestur-
Berlin i sambandi við töku nýrr-
ar kvikmyndar. Þess má til gam-
ans geta, að ektakvinnan er þýsk.
V erðlaunahafarnir
+ Hér er mynd af Nóbelsverð-
launahöfum 1980. Sitjandi er
Bandarikjamaðurinn George D.
Snell, fyrir eðlisfræði. Standandi
frá vinstri eru: James W. Cronin.
Bandarikjunum. fyrir eðlisfræði,
Val F. Fitch. Bandaríkjunum,
fyrir eðlisfræði. Lawrence R.
Klein. Bandarikjunum, fyrir hag-
fræði, pólski útlaginn Czeslaw
Milosz. fyrir bókmenntir, Frakk-
arnir Jean Dauset og Baruj
Benecerraf ásamt Bretanum
Frederik Sangcr og þeim Walter
Gilbert og Paul Berg frá Banda-
rikjunum. deildu með sér efna-
fræðiverðlaununum.
Allir tóku þeir við verðlaunum
sinum úr hendi Karls Gústafs,
Sviakonungs.
Kjólar - kjólar
Nýkomið sérlega fjölbreytt úrval af kvöld- og
samkvæmiskjólum, úr allskonar prjónaefnum, satíni,
prjónasilki og nýtísku hömruðu flaueli í 8 glæsilegum
litum. Allar stæröir, einnig tækifæriskjólar.
Opiö í kvöld til kl. 23.00.
Fatasalan
Brautarholti 22, inngangur frá Nóatúni
(við hliðina á Hlíðarenda).
MICROMA
ER FRAMTÍÐARÚRIÐ ÞITT
ÞVÍ GETUR ÞÚ TREYST
Gæði, nákvæmni, og fjölbreytt útlit er aðalsmerki
MICROMA SWISS úranna. Þér er óhætt að láta eigin
smekk ráða í vali. Þú færð gæðaúr á góðu verði.
Alþjóöa ábyrgð. örugg þjónusta fagmanna.
Litmyndalisti. Póstsendum um land allt.
FRANCH MICHELSEN
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUGAVEGI39 SÍM113462