Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.12.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS nruMuiM* uM-uu fugla. Eins og ég nefndi í minni grein er hrafninn hættulegur búfé og einnig er hann skaðvaldur í varplöndum. Er oft Ijót aðkoman, þegar hrafnar hafa ráðist á kind- ur, lifandi en ósjálfbjarga, og kroppar úr þeim augun eða holrif- ið. Veiðibjallan er þekkt fyrir að tína upp æðarunga jafnóðum og þeir koma úr hreiðrum auk þess sem hún er skaðvaldur í göngu- seiðum laxa og silunga. Loks er hún sýklaberi, þar sem hún nærist oft á úrgangi á öskuhaugum í þéttbýli og er m.a. ekki óþekkt að hún baði sig í drykkjarvatni þétt- býlisfólks að slíku áti loknu. Það er því engin tilviljun að veiðibjall- an er stundum nefnd „fljúgandi rotta". Sportveiðimaðurinn ætlar alveg að ærast af því að ég tala um að fækka þessum vargfugli. Má hann gjarnan vita það, að ég sæi alls ekki eftir því þó hann skyti sér slíka fugla, hvort heldur væri til áts eða annars. Ekki ætlunin að standa í blaðadeilum Það sem hér skiptir meginmáli að minn hyggju, er að rjúpna- stofninn hefur farið minnkandi á undanförnum árum, m.a. og aðal- lega vegna óþarfa ágangs sport- veiðimanna, sem oft á tíðum kunna ekki að umgangast við- kvæma íslenska náttúru á þann hátt, sem nauðsynlegt er, þó að þeir séu jafníslenskir og við sem búum við hana dagsdaglega. Stofninn þarf því að mínu mati að friða, að minnsta kosi um sinn, svo að hann nái eðlilegri stærð á ný. Stofn vargfugla, aðallega hrafns og veiðibjöllu, hefur hins vegar vaxið á undanförnum árum óeðli- lega mikið. Þann stofn þarf því að minnka, alls ekki útrýma, svo að jafnvægi komist á. Svo einfalt er það sem hér um ræðir. Útúrsnún- ingar og rangfærslur „sportveiði- manna", sem ég leyfi mér nú loks að setja innan gæsalappa, fá þessum staðreyndum alls ekki breytt. Með línum mínum hér í dálkum Velvakanda var ekki ætiunin að fara að standa í blaðadeilum, allra síst við einhverja huldumenn, sem blygðast sín svo fyrir ritverk sín og málstað, að nafns má alls ekki geta með skrifum. Slíkt er þó e.t.v. ekki óeðlilegt, þegar haft er í huga, hvað verið er að verja." Ekki rétt mynd af fimleikum Fimleikaunnandi skrifar: ;,Kæri Velvakandi. Eg get ekki lengur orða bundist eftir að hafa horft á „Stundina okkar“ hinn 14. desember. par var verið að bera saman tvær göfugar listir, ballett og fimleika. Þessi þáttur var til lítillar veg- semdar fyrir fimleikana. Eg get ekki skilið í Bryndísi hvernig hún getur látið sér detta í huga að bera saman manneskjur sem æfa með íslenska dansflokknum og eru búnar að æfa hátt í 10 ár ef ekki meira og manneskju, sem varla hefur æft í meira en eitt ár hjá, og ef mér leyfist að segja það: hjá lélegu félagi. Efast ég um að hún hafi nokkurn tíma keppt í þessari grein. Ég veit að það eru margir fleiri en ég þessarar skoðun- ar og skora ég á þá, sem horfðu á Stundina okkar að láta sem þeir hafi ekki séð fimleikana, því það var alls ekki rétt mynd af þeim, sem birtist á skerminum." Canon jólagjöfin sem reiknað er með fyrir hann, hana og þau Viö vorum meö þeim fyrstu sem seldu tölvur hérlendis og þaö var frá Canon merki sem heldur velli enda framleiöa þeir aöeins fyrsta flokks vöru. Ábyrgö og þjónusta Shrífuékin hf Suöurlandsbraut 12. Sími 85277. Gleðileg jól & SIGGA V/öGA £ \/LVERAW W4$ \i06T>A OVf WA; QCR MhtiA VÍBtf, $L\QA. VA V&'Sfö A9 fe MIA%T mi Tll AQ S.A mr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.