Morgunblaðið - 23.12.1980, Síða 39

Morgunblaðið - 23.12.1980, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980 47 Verða 3 milljónir Breta án vinnu á Veður víða um heim Akureyri -1 snjókoma Amsterdam 6 skýjaó Aþena 14 skýjað Berlín 2 skýjað BrUssel 8 rigning Chicago -6 skýjað Feneyjar’A b8 heiðskírt Frankturt 4 skýjað Færeyjar 2 slydduél Gent 5 skýjað Helsinki 2 rigning Jerúsalem 16 heiðskírt Jóhannesarb. 26 heiðskírt Kaupmannahöfn 3 skýjað Las Palmas 19 skýjað Lissabon 15 heiöskírt London 11 heiðskírt Los Angeles 22 skýjað Madrid 17 heiðskírt Mallorka 16 lóttskýjað Malaga 19 heiöskírt Miami 24 skýjað Moskva 0 skýjað New York -3 skýjaö Osló 0 skýjað París 8 skýjað Reykjavík -1 snjókoma Ríó de Janeiro 38 heiöskírt Rómaborg 9 heiöskírt Stokkhólmur 0 skýjað Tel Aviv 19 heiöskírt Tókýó 10 skýjað Vancouver vantar Vínarborg 5 skýjað miðju ári 1982 París. 22. desomhor. — AP.' EFNAHAGS- og framfarastofnun Evrópu (OECD) sendir á morgun frá sér efnahagsspá fyrir aðiidarlönd stofnunarinnar. og nær spáin 18 mánuði fram í timann. eða fram á mitt ár 1982. I spánni er gert ráð fyrir áframhaldandi efnahagskreppu í Bretlandi og að þrjár milljónir manna verði atvinnulausar þar í landi á miðju ári 1982, eða sem nemur 12,25% vinnufærra manna. Spáð er neikvæðum hagvexti í Bretlandi á næsta ári, þó ekki eins miklum og í ár, en að ástandið batni örlítið í þeim efnum á árinu 1982. Spáð er 12% verðbólgu i Bretlandi á næsta ári og níu prósentum árið 1982. I skýrslunni er rýrð kastað á efnahagsstefnu stjórnar Thatchers. Spáð er meiri hagvexti og minni verðbólgu í Bandaríkjunum á næstu tveimur árum en í ár. Búist er við að verðbólgan, sem var 10,5% á árinu 1980, standi í stað framan af ári, en minnki í 9,5% á seinni hluta ársins 1981. Spáð er, að 8% vinnufærra Bandaríkja- manna verði atvinnulausir 1981, en 7,75% 1982. Á árinu sem er að líða voru 8,3% vinnufærra Banda- ríkjamanna atvinnulausir. Búist er við að hagvaxtaraukn- ing verði hvað mest í Japan á næstu 18 mánuðum, en þar á eftir koma Bandaríkin, Kanada, Ítalía og Frakkland. Meðaltals hagvöxt- ur í löndum OECD næstu 18 mánuðina er áætlaður þrír af hundraði, en í spánni er jafnframt gert ráð fyrir því að 25,5 milljónir manna verði atvinnulausar í lönd- um aðildarlandanna, eða sem svarar 7,5% atvinnufærra manna. Búist er við að meðaltalsverðbólga í ríkjum OECD verði 9% á miðju ári 1982, en hún er 11,25% á árinu sem er að ljúka. írönsk gagnsókn á vesturhálendinu Beirút. 22. des. AP. ÍRANAR héldu því fram í dag, þrcmur mánuðum eftir að stríðið við Pcrsaflóa hófst, að þeir hefðu hafið gagnsókn og hrakið Iraka úr stöðvum i vesturhálendi írans og í oliuhéraðinu Khuzistan. ír- akar sögðu, að báðum gagnárás- unum hefði verið hrundið. Samkvæmt tilkynningum frá Teheran misstu írakar „nokkrar víggirtar stöðvar" í snævi þöktum rótum Zagrosfjalla fyrir ofan þjóðveginn frá vesturlandamær- um írans til Bagdad. íranar sögðu, að 130 íraskir hermenn hefðu fallið og 21 hefði verið tekinn til fanga í bardögum um hæðirnar í héraðinu Sar-E- Pol-E-Zahab og í héraðinu Gilan Gharb við norðurenda hinnar 483 km löngu víglínu. Sjálfir sögðust þeir hafa misst 10 fallhlífaher- írakar sögðu, að 262 íranar og 47 írakar hefðu fallið í Zagros- hæðunum og umhverfis olíu- hreinsunarborgina Abadan, syðst á vígstöðvunum. Vestrænir sérfræðingar efast um að verulegar breytingar geti orðið á víglínunni vetrarmánuðina vegna snjókomu í vesturhálöndun- um og rigninga í mýrlendinu í Khuzistan. Má verjast hjartaslagi með vínanda og kynlífí? Tel Avlv, 22. desember. — AP. ÍSRAELSKUR hjartasérfræð- ingur hélt því fram í dag, að drekki menn eitt vinglas á dag eða fái sér einn bjór, og stundi kynlíf að auki, minnki likurnar á hjartaslagi verulega. Læknirinn, sem veitir hjart- veikivarnarmiðstöð Soroka- sjúkrahússins í Beersheba for- stöðu, sagði að við athuganir hefði komið í ljós, að minni líkur væru á hjartaslagi meðal þeirra, sem neyttu „hóflegs magns" af vínanda, en hjá þeim sem ekki brögðuðu áfengi. Hann brýndi fyrir mönnum að stunda líkamsæfingar og leiðir til að draga úr spennu, og benti á að kynlíf sameinaði hvort tveggja fullkomlega. Hann sagði að athuganir sýndu fram á, að ekkert væri hæft í fullyrðingum þess efnis, að aukinn hjartslátt- ur við kynlíf gætu leitt til hjartaveilu. Börn deyja úr lungnabólgu á skjálftasvæðum Napóli. 22. desember. — AP. TVEGGJA mánaða stúlkubarn dó úr lungnabólgu á jarðskjálfta- svæðunum í nótt og heilbrigðisyf- irvöld óttast að sömu örlög bíði fjölmargra ungmenna er hafast við i óupphituðum tjöldum við þröngan kost á skjálftasvæðun- um, þar sem mikill kuldi og vosbúð hefur verið á svæðunum i nokkra daga, og ekki er búist við betri tíð í bráð. Þúsundir manna hýrast enn í tjaldborgum, án upphitunar eða viðunandi eldunar- og hreinlætis- aðstöðu, en í skjálftunum 23. nóvember sl. misstu þrjú hundruð þúsundir heimili sín og yfir 3.000 fórust. Faðir stúlkubarnsins sagði i dag, að fjölskyldan hefði búið í tjaldi í mánuð, og ekki fengið skjólhús annarstaðar þrátt fyrir margítrekaðar beiðnir til yfir- valda. Tveggja ára gamall piltur dó úr lungnabólgu á jarðskjálfta- svæðunum í síðustu viku, en þar ríkir nú rigning og hvassviðri. Helmut Schmidt kanzlari gerir að gamni sínu við Ijósmvndara og þykist ætla að kasta i þá epli. Schmidt fékk eplin í jólagjöf fyrir rikisstjórnarfund í kanzlarahöllinni. Fengu ekki að minnast Lennons á Leninhæðum Moskvu, 22. desember. — AP. SOVÉZKA lögreglan dreifði á sunnudag hóp nokkurra hundr- uða ungmenna er safnast höfðu saman á Leninhæðum til að minnast John Lennons, bítilsins er myrtur var í New York fyrir skömmu. Sex menn voru teknir fastir er þeir neituðu að hverfa af vettvangi. Vitni sagði, að hópurinn hefði að mestu samanstaðið af fólki um tvítugt, og báru fjölmargir myndir af Lennon eða önnur skilti. Þá spiluðu fjölmörg ung- menni lög Bítlanna af kassett- um. Lögreglumaður kom þar að sem ungmennin héldu til og bað þau að hverfa á brott, en þau létu ekki segjast. Skömmu seinna birtust tvær rútubifreiðir með rúmlega 50 lögreglumenn innanborðs er tókst um síðir að stökkva aðdáendum Lennons á braut. Plötur Lennons eða annarra Bítla er venjulega ekki að fá í verzlunum í Sovétríkjunum, en ganga kaupum og sölum á svört- um markaði fyrir hátt verð. Þar sem Bítlarnir voru ekki í háveg- um hafðir meðal valdamanna í Sovétríkjunum voru örstuttar fregnir af láti Lennons aðeins birtar í tveimur blöðum þar eystra. Farþegaþotu var grandað Boxota, 22. des. — AP. MAÐUR, sem sagði ekki til nafns, hringdi. og varaði við slysi kólombísku farþegaflugvélarinn- ar, sem fórst með 68 mönnum. að sögn talsmanns flugfélagsins í dag og talið er að um skemmdar- verk hafi verið að ræða. Allir sem fórust virðast hafa verið Kól- ombiumenn. Þotan fórst í gær í afskekktri eyðimörk, Guajira, um 800 km norður af Bogota, skömmu eftir að flugstjórinn skýrði frá sprengingu um borð. Fréttir hermdu að flugvélin hafi haft meðferðis japanskar hvell- hettur þrátt fyrir bann við flutn- ingi á slíkum sprengiefnum. Emb- ættismenn segja að farþegar hafi getað látið líta út fyrir að þeir hafi haft eitthvað annað meðferðis en hvellhettur. Maðurinn sem hringdi sagði í símanum: „Það væri bezt að kyrr- setja flugvélina, því að hún mun ekki komast á ákvörðunarstað.“ Starfsmenn flugfélagsins neit- uðu að svara því hvort leit hefði verið gerð í þotunni, sem var tveggja hreyfla af Caravelle-gerð, að sprengju eftir að hótunin barst. Sovétbanki þjóðnýttur Beirút. 22. des. - AP. ÍRANSSTJÓRN kunngerði í gær þjóðnýtingu íransk-sovézka hankans og setti hann undir „eftirlit“ seðlabankans. Ríkisstjórn mun taka við fullri stjórn bankans 20. jan. 1981. Sovézk sendinefnd hans hefur verið í Teheran vegna málsins. Þetta er síðasti erlendi bankinn sem er þjóðnýttur samkvæmt áætlun síðan í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.