Morgunblaðið - 23.12.1980, Síða 40
íPEPi^r9
Nýborg^ W
k Ármúla 23 - Sími 86755 ^
$ull & á£>tlfur
Laugavegi 35
g dagur
I til jóla
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1980
Ófærð á Vest-
f jörðum og
Norðurlandi
- en greið-
fært syðra
FÆRÐ á vegum í nátjrenni
Rcykjavíkur var sæmilega góA i
K3‘r <>k var fært allt austur á
firði um Suðurland. l>á var einn-
ig fært frá Reykjavík vestur á
Snæfellsnes og í Dalina. Fært var
til Akureyrar og Húsavíkur, en
til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar
var ótrygg færð.’
A norðausturlandi var víðast
ófært og urðu vegagerðarmenn að
hverfa frá mokstri vegna veðurs.
Fært var í nágrenni Egilsstaða og
Oddsskarð og Fjarðarheiði voru
ruddar, en ófært var niður á
Borgarfjörð. Á Vestfjörðum var
verið að ryðja vegi út frá Patreks-
firði. en litlar fréttir bárust af
norðanverðum fjorðunum. Vega-
gcrðin mun eftir mætti reyna að
halda vegum opnum í dag og fram
til hádegis á morgun.
12 ára gömul
stúlka á gjör-
gæzludeild
MJÖG haröur árekstur varð
milli fólksbíls og vöruhíls á
mótum Vesturhóla og Dúfna-
hóla klukkan 12.10 í ga*rdag.
Fólksbílnum ók 19 ára gömul
stúlka og 12 ára gömul stúlka
var farþegi í bílnum. Báðar
voru fluttar á slysadeild Borg-
arspítalans og > ngri stúlkan var
lögð mikið slösuð inn á gjör-
gæzludeild að lokinni aðgerð.
Hún er ekki talin í lífshættu
samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar.
Þessi mynd var tekin á Vancouverflugvelli i Kanada á laugardaginn, er háhyrningarnir fjórir frá
Sædýrasafninu komu þangað að lokinni flugferð frá íslandi. I texta AP-fréttastofunnar með myndinni
segir að ýmsar öryggisráðstafanir hafi þurft að gera vegna flutningsins á háhyrningunum, en frá
flugvellinum voru þeir fluttir til sædýrasafnsins í Stanley Park utan við Vancouver. Símamynd-AP.
Sjómenn krefjast 30%
hækkunar á fiskverði
Ríkisstjórnin hefur boðið sjómönnum skatta-
ivilnanir i stað hluta fiskverðshækkunar
„hETTA er <>ðum að þróast. Það er
verið að láta reikna út ýmsar
útfærslur, en það er ekki kominn
neinn botn i þetta ennþá." sagði
Svavar Gestsson, félagsmálaráð-
herra. er Mbl. ræddi við hann i
gærkvöldi um störf efnahagsmála-
nefndar ríkisstjórnarinnar, en hún
kom saman til fundar á sunnudag-
inn og aftur í gærkvöldi.
Mbl. spurði Svavar, hvort hann
reiknaði með niðurstöðum fyrir jól
eða áramót. Hann sagðist síður eiga
von á þeim fyrir jól og svo væri til
þess að líta, að þröngt væri milli
jóla og nýárs með virka daga,
þannig að hann vildi engu spá um
það, hvenær niðurstöður fengjust.
Mbl. spurði þá, hvort vaxtamálin
yrðu ekki afgreidd fyrir áramót, en
Seðlabankinn hefur lagt til 10%
vaxtahækkun þá til að fullnægja
FISKVERÐ og bátakjarasamn-
ingar eru nú í uppnámi. Sjómenn
krefjast 30% hækkunar fiskverðs
og útvegsmenn hafa neitað að
ræða hátakjarasamninga við sjó-
menn, þar sem ríkisstjórn hefur
ekki viljað gefa yfirlýsingu um að
hún skipti sér ekki af samnings-
gerðinni. Þá er gengið látið síga
hröðum skrefum þessa daga og
stefnir allt í, ef svo fer sem verið
hefur, að Bandaríkjadollar verði
kominn allverulega á 7. hundrað
krónur um áramót. Þá eru sjó-
skiiyrðum Ólafslaga. Spurði Mbl.
Svavar einnig, hvort sú skýring
Ragnars Arnalds, fjármálaráð-
herra, að raunvaxtatakmarki
Ólafslaga væri þegar náð með sér-
stökum sparireikningum, væri skoð-
un Alþýðubandalagsins í vaxtamál-
um. Svavar sagðist fyrir sitt leyti
telja, að þetta gæti vel verið svo, en
þetta væri eitt þeirra atriða, sem
verið væri að kanna. Spurningu Mbl.
um 10% vaxtahækkun svaraði Svav-
ar á þá leið, að hann væri henni
andvígur. Þingflokkur og fram-
kvæmdastjórn Alþýðubandalagsins
áttu í gær fund um efnahagsmálin.
Tómas Arnason, viðskiptaráð-
herra, hefur tekið sæti Steingríms
Hermannssonar í efnahagsmála-
nefndinni. „Menn liggja yfir þessu,
en ég þori ekki að segja til um það,
hvenær niðurstöðurnar korna,"
svaraði Tómas, er Mbl. spurði hann,
mannafélögin nú þessa daga sem
óðast að fá verkfallsheimildir og
er ráð fyrir því gert, að sjómanna-
verkfall verði boöað f upphafi
næsta árs.
Ingólfur Ingólfsson kvað ríkis-
stjórnina hafa viðrað við sjómenn,
að hún myndi ívilna þeim í skatta-
lækkunum, ef þeir sættu sig við
lægri fiskverðshækkun, sern væri á
bilinu 700 til 800 milljónir. Ingólfur
kvaðst hafa sagt sjávarútvegsráð-
herra það sl. fimmtudag, að hann
hefði enga trú á því að fyrir slíku
hvort helgar- og kvöldfundir bentu
til þess, að niðurstöður væru að fást.
„Ég hef sagt, að það yrði farið með
vaxtamálin að lögum,“ svaraði Tóm-
as, er Mbl. spurði hann um það
atriði. Mbl. spurði þá, hvort hann
ætti við Ólafslög og sagðist hann þá
ekki vilja tjá sig frekar um vaxta-
málin frekar en önnur atriði sem til
umræðu væru í efnahagsmálanefnd-
inni.
Gunnar Thoroddsen, forsætisráð-
herra, er formaður efnahagsmála-
nefndarinnar, fulltrúi þingflokks
Framsóknarflokksins er Halldór
Ásgrímsson og frá Alþýðubandalag-
inu Ólafur Ragnar Grímsson og
einnig sitja Jón Ormur Halldórsson,
aðstoðarmaður forsætisráðherra, og
Þórður Friðjónsson, hagfræðiráðu-
nautur forsætisráðuneytisins, í
nefndinni.
væri pólitískur meirihluti á Al-
þingi, þar sem hér væri kannski um
að ræða menn með tekjur á bilinu
12 til 30 milljónir króna á ári á
sama tíma og menn ræddu enn um
svokallaða barnaskatta og aðgerðir
fyrir láglaunafólk.
Fiskverðsundirbúningur er mjög
skammt á veg kominn. Haldnir
hafa verið tveir yfirnefndarfundir
og er hinn þriðji ráðgerður í dag.
Ingólfur Ingólfsson, fulltrúi sjó-
manna í yfirnefnd, kvaðst í gær
ekki eiga von á bráðum breytingum
í fiskverðsmálum, þar sem engin
ákveðin ákvörðun verði tekin þar,
fyrr en séð verður, hvernig báta-
kjarasamningum reiðir af. Kvaðst
Ingólfur ekki búast við því að
fiskverðsákvörðun yrði tekin gegn
atkvæði sjómanna að þessu sinni
með yfirvofandi verkfall þeirra.
Hann kvaðst fastlega gera ráð fyrir
að verkfall yrði boðað fyrstu viku af
janúar. Af undirtektum sagði hann
að sér sýndist mikill einhugur og
mikil samstaða meðal sjómanna.
Ingólfur kvað sjávarútvegsráð-
herra hafa boðað á aðalfundi LÍÚ
niðurgreiðslur á olíu. Þetta kvað
hann vera nýtt fyrir sjómenn og
vaknaði þá spurningin, hvernig
fjármögnun slíkra niðurgreiðslna
yrði háttað. Um þetta hefðu engin
skýr svör fengizt. Hann kvað sjó-
menn hafa verið með kröfur um
afnám olíugjalds, en olíuverð færi
hækkandi. Hann kvað fiskverðs-
ákvörðun að öllum llkindum ekki
verða tekna fyrir áramót. „Við
munum ekki standa að verðákvörð-
un, fyrr en séð er hvernig kjaramál-
in þróast og ég trúi því ekki, að
ríkisstjórnin beiti sér fyrir fisk-
verðsákvörðun í blóra við sjómenn
með lausa samninga."
Hljómflutn-
ingstækjum
fyrir 4 millj.
króna stolið
AÐFARANÓTT sl. sunnudags
var brotist inn að Grettisgötu
89, en þar eru m.a. til húsa
skrifstofur BSRB og hljóðfæra-
verzlun Poul Bernburg.
Talsverðar skemmdir voru unn-
ar hjá BSRB og þjófarnir höfðu
brott með sér hátalara og magn-
ara af lager hljóðfæraverzlunar-
innar að verðmæti um 4 milljónir
króna.
Sömu nótt var brotizt inn í
verzlun Karnabæjar að Laugavegi
66 og þaðan stolið hljómplötum og
snældum, 50 þúsund krónum í
peningum og 100 krónum sænsk-
um og 100 krónum norskum.
Málin eru í rannsókn hjá RLR.
Síðustu
sölurnar á
þessu ári
SÍÐUSTU íslenzku fiskiskipin.
sem lönduðu afla sínum ytra
íyrir áramót, lönduðu í Bretlandi
og V-Þýzkalandi síðustu daga
liðinnar viku. Meðal þeirra var
Sólberg ÓF, sem seldi í Grimsby
á miðvikudag 154 tonn fyrir
131,3 milljónir króna, meðalverð
á kíló 852 krónur. Gæði aflans
voru mikil þrátt fyrir heldur lágt
meðalverð.
Pálmi BA seldi í Grimsby á
fimmtudag 76,8 tonn fyrir 57,9
milljónir, meðalverð á kíló 754
krónur. Helgi S. seldi í Gimsby á
föstudag 48,9 tonn fyrir 32,1 millj-
ón, meðalverð á kíló 656 krónur, 3.
flokkur.
Yfir 80 um-
ferðaróhöpp
um helgina
ÞUNGFÆRT var í höfuðborginni
um helgina og mörg óhöpp í
umferðinni.
Alls var lögreglan kölluð í
umferðaróhöpp í 81 skipti um
helgina, í 41 skipti á föstudag, sem
er með því mesta sem þekkst
hefur, í 21 skipti á laugardag og í
19 skipti á sunnudag.
Að sögn lögreglunnar var mjög
áberandi að menn festu bíla sína í
snjónum, enda ótrúlega margir á
ferð, sem illa voru undir vetrar-
akstur búnir. „Þeir voru margir á
ferðinni sem betur hefðu tekið
strætó,“ sagði lögreglan.
Auglýsendur
athugið
Auglýsingar sem birtast
eiga í Morgunblaðinu 28.
desember nk. þurfa að hafa
borist auglýsingadeildinni
fyrir kl. 17.00 í dag.
Efnahagsmálaneíndin á
helgar- og kvöldfundum